Morgunblaðið - 11.05.2002, Page 66
DAGBÓK
66 LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Snorri
Sturluson kemur og fer í
dag. Antonio Enes kem-
ur í dag. Gorch Fock fer í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Kleifarberg fer í dag.
Karelia kom í gær.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður í
Kattholti, Stangarhyl 2,
opinn þriðju- og fimmtu-
daga kl. 14–17.
Félag frímerkjasafnara.
Opið hús laugardaga kl.
13.30–17.
Mannamót
Árskógar 4. Handverks-
sýning í dag laugardag
kl. 13–16.30.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á þriðju-
og fimmtudögum kl. 13–
16.30, spil og föndur.
Lesklúbbur kl. 15.30 á
fimmtudögum. Jóga á
föstudögum kl 11. Kór-
æfingar fimmtudaga kl.
17–19. Púttkennsla í
íþróttahúsinu kl. 11 á
sunnudögum. Óvissuferð.
Mánud. 13. maí, lagt af
stað frá Damos kl. 13 og
komið til baka um kl. 17.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
692 0814 og s. 586 8014,
kl. 13–16.
Félagsstarfið, Seljahlíð.
Sýning á handverki
heimilismanna opin í dag
kl. 13.30–17. Kaffiveit-
ingar á staðnum. Allir ve-
komnir.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Á mánu-
dag púttað í bæjarútgerð
kl. 10–11.30, félagsvist kl
13.30. Morgungangan í
dag kl. 10. frá Hraunseli.
Opið Hús í boði Rótarí
fimmtudaginn 16. maí kl.
14 í boði eru skemmti-
atriði og kaffi. Kór eldri
Þrasta og Gaflarakórinn
halda tónleika í Víði-
staðakirkju föstudaginn
17. maí kl. 20. Aðgangur
ókeypis. Vest-
mannaeyjaferð 2.–4. júlí
rúta, Herjólfur, gisting í
2 nætur. Upplýsingar og
skrásetning í Hraunseli,
sími 555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan op-
in virka daga frá kl. 10–
13. Kaffi, blöðin og matur
í hádegi. Fuglaskoðun og
söguferð suður með sjó
og á Reykjanes frá Ás-
garði kl. 9. Sunnud: Fé-
lagsvist kl. 13.30. Dans-
leikur kl. 20 Caprí-tríó
leikur fyrir dansi. Má-
nud: Brids kl. 13.
Þriðjud: Skák kl. 13.
Miðvikud: Göngu-
Hrólfar fara í göngu frá
Hlemmi kl. 9.45. Göngu-
Hrólfar fara í leikhúsferð
á Sólheima laugard. 18.
maí að sjá „Hárið“.
Brottför frá Ásgarði kl.
14. Allir velkomnir,
skráning á skrifstofu
FEB. Þeir sem hafa
skráð sig í Vestfjarðaferð
18.–23.júní þurfa að stað-
festa ferðina fyrir 15.
maí. Silfurlínan er opin á
mánu- og miðvikudögum
frá kl. 10–12 í s. 588 2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt í Faxafen 12, sama
símanúmer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í Ás-
garði, Glæsibæ. Upplýs-
ingar á skrifstofu FEB.
Gerðuberg, félagsstarf, Í
dag. kl. 13–16 handa-
vinnusýning og myndlist-
arsýning Huga Jóhann-
essonar opin,
listamaðurinn á staðnum
í dag og á morgun. Veit-
ingar í Kaffi Bergi. Upp-
lýsingar um starfsemina
á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Vorsýningin verður opn-
in frá kl. 14–18 í félags-
heimilinu 11. og 12. maí.
Uppl. í s. 554 3400 og
564 5260.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Vorsýningin verður opin
frá kl. 14–18 í félags-
heimilinu 11. og 12. maí.
Uppl. í s. 554 3400 og
564 5260.
Hæðargarður. Hand-
verkssýning í dag laug-
ard. frá kl. 13–16 og
mánudaginn 13. maí kl.
10–16. Félagsvist fellur
niður mánudag. Sunnu-
dagskaffið fellur niður
sunnud. 12. maí.
Hraunbær 105. Miðviku-
daginn 15. maí verður
farið frá Hraunbæ 105 kl.
13, ekið að Aflagranda
um miðbæinn - vest-
urbæinn og komið við í
Læknasafninu á Sel-
tjarnarnesi. Kaffi drukk-
ið í Aflagranda.
Skráning á skrifstofu s:
587 2888.
Vesturgata 7. Hand-
verksýning verður 11. og
13. maí frá kl. 13–17 báða
dagana.
Gönguklúbbur Hana-nú.
Morgunganga kl. 10 frá
Gjábakka í Kópavogi
laugardagsmorgna.
Krummakaffi kl. 9. Allir
velkomnir.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Vorferð-
in verður þriðjudaginn
14. maí til Grindavíkur.
Lagt af stað frá kirkjunni
kl. 11.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s. 530 3600.
Stuðningsfundir fyrrver-
andi reykingafólks. Fólk
sem sótt hefur námskeið
gegn reykingum í
Heilsustofnun NLFÍ í
Hveragerði, fundur í
Gerðubergi á þriðjud. kl.
17.30.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í Sel-
tjarnarneskirkju (kjall-
ara), kl. 20.30 á fimmtu-
dögum í fræðsludeild
SÁÁ, Síðumúla 3–5 og í
Kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg á
laugardögum kl. 10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis, fund-
ir mánudaga kl. 20 á Sól-
vallagötu 12. Stuðst er
við 12 spora kerfi AA-
samtakanna.
Kvenfélag Grensás-
sóknar. Kaffisala félags-
ins til fjáröflunar verður
sunnud. 12. maí kl. 15 í
safnaðarheimilinu. Tekið
á móti kökum frá kl. 11
sunnudag. Vorfundur fé-
lagisins verður kl. 20
mánud. 13. maí.
Orlofsnefnd húsmæðra í
Kópavogi. Á vegum
nefndarinnar verða farn-
ar tvær ferðir á þessu
sumri: að Kirkjubæj-
arklaustri 13.–15. júní, í
Skagafjörð 22.–24. ágúst.
Hvíldar- og hressing-
ardvöl að Laugarvatni
24.–30. júní. Innr. í s.
554 0388, Ólöf, s.
554 2199, Birna.
SVD Hraunprýði. Hin
árlega kaffi og merkja-
sala verður mánud. 13.
maí. Kaffisalan verður í
Hjallahrauni 9 kl. 15–20.
Tekið verður á móti kök-
um og meðlæti í Hjalla-
hrauni 9 frá kl. 9 sama
dag.
Vopnfirðingafélagið í
Reykjavík. Hinn árlegi
kaffidagur félagsins
verður haldinn í Félags-
og þjónustumiðstöðinni
Aflagranda 40 sunnudag-
inn 12. maí kl. 15.
Siglfirðingar í Reykjavík
og nágrenni. Árlega fjöl-
skyldukaffið verður í
Kirkjulundi, Garðabæ,
sunnudaginn 12. maí kl.
15. Allir velkomnir.
Vestfirðingafélagið.
Menningarvaka sem er
tileinkuð minningu Sig-
ríðar Valdimarsdóttur
verður í félagsheimilinu
Gullsmára, Gullsmára 13,
frá kl. 20 þriðjud. 14. maí.
Uppl. í s. 554 3773 eða
566 6500.
Junior Chamber Reykja-
vík, í samvinnu við JC-
Ísland, stendur fyrir Eld-
rauninni 2002, kapp-
ræðum á milli frambjóð-
enda Reykjavíkurlista og
Sjálfstæðisflokks,
þriðjud. 14. maí kl. 20.
Dagur B. Eggertsson, R-
lista, og Gísli Marteinn
Pétursson, D-lista, etja
kappi í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhús-
inu við Tryggvagötu. All-
ir velkomnir.
Borgfirðingafélagi í
Reykjavík verður með
kaffiboð fyrir Borgfirð-
irnga 60 ára og eldri á
Suðurlandsbraut 30 á
morgun, sunnudaginn 12.
maí. Húsið opnað kl.
14.30.
Kvenfélag Breiðholts.
Fundur verður í safn-
aðarheimilinu Breið-
holtskirkju þriðjudaginn
14. maí kl. 20. Sýndar
verða myndir frá ferð til
Kína.
Bandalag kvenna í
Reykjavík. Vorfundurinn
verður haldinn á Hall-
veigarstöðum, Túngötu
14, mánudaginn 13. maí
kl. 20. Gestur fundarins
verður Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir. Kaffi-
veitingar.
Í dag er laugardagur 11. maí, 131.
dagur ársins 2002. Lokadagur. Orð
dagsins: En mikillega bið ég yður,
bræður, fyrir sakir Drottins vors
Jesú Krists og fyrir sakir kærleika
andans, að þér stríðið með mér með
því að biðja til Guðs fyrir mér.
(Rómv. 15, 30.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 drekkur, 4 slátra, 7
munnholið, 8 girnd, 9
handlegg, 11 forar, 13
hár, 14 rotin, 15 látið af
hendi, 17 snæðir, 20
bandvefur, 22 heimshlut-
inn, 23 hitt, 24 mæliein-
ing, 25 rándýr.
LÓÐRÉTT:
1 ná í, 2 laumuspil, 3 titra,
4 pat, 5 meiða, 6 þátttaka,
10 slæmt hey, 12 kvíði, 13
liðamót, 15 óþokka, 16
leyfir, 18 ámu, 19 rugla,
20 stúlka, 21 snaga.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 átroðning, 8 forað, 9 gerði, 11 afl, 11 skarn, 13
arðan, 15 svöng, 18 ókind, 21 jór, 22 meiða, 23 asnar, 24
fallvatns.
Lóðrétt: 2 tyrta, 3 orðan, 4 negla, 5 nýrað, 6 afls, 7 kinn,
12 Rán, 14 rík, 15 sumt, 16 örina, 17 gjall, 18 óraga, 19
iðnin, 20 durt.
Víkverji skrifar...
VINKONA Víkverja fékk fyrirnokkrum mánuðum veður af
því að til stæði að byggja fjölbýlishús
í Suðurhlíðunum í Reykjavík. Þetta
vakti forvitni hennar, ekki síst fyrir
þær sakir að byggingin átti að rísa í
grennd við hús foreldra hennar og
því ákvað hún að kynna sér hvort
hún myndi hafa áhrif á útsýni og
annað er laut að eign þeirra.
Svo vildi til að þetta var á svip-
uðum tíma og hún var að svipast eftir
hentugri íbúð til kaupa og eftir að
hafa skoðað teikningar og annað
flaug henni í hug hvort hún ætti ekki
bara að kaupa sér íbúð í húsinu.
Reyndar var hún svosem ekkert
hrifin af því að þarna yrði byggt en
hins vegar var allt útlit fyrir að það
yrði gert og ef hún myndi ekki búa í
húsinu myndu einhverjir aðrir verða
til þess. Auk þess mælti ýmislegt
með þessum kosti: þetta var í gamla
hverfinu hennar, í nágrenni við
mömmu og pabba og skammt frá
vinnunni – gat varla passað betur.
Uppfull af framtíðardraumum af-
réð vinkona Víkverja því að hringja í
byggingaraðilann og forvitnast nán-
ar um íbúðirnar góðu. Þar sem hún
var búin að skoða málið nokkuð var
eiginlega bara ein spurning sem
brann á vörum hennar þegar mað-
urinn á hinum enda línunnar svaraði.
„Hvað eiga íbúðirnar að kosta?“
spurði hún.
x x x
SATT best að segja kom vinkon-unni svarið nokkuð á óvart því
maðurinn svaraði með þunga í rödd-
inni að þær yrðu „mjöööög dýrar“!
Reyndar var það ekki sú stað-
reynd að íbúðirnar yrðu dýrar sem
gerði vinkonuna hlessa heldur frek-
ar það að svarið var einhvern veginn
ekki til þess fallið að freista tilvon-
andi kaupanda. Fyrirfram hefði hún
haldið að viðkomandi myndi reyna
að draga úr því að um afar hátt verð
væri að ræða og frekar leggja
áherslu á að þarna væri um glæsi-
legar íbúðir að ræða sem væru
hverrar krónu virði.
En nei, svarið var að þær væru
mjöööög dýrar. Vildi maðurinn ekki
reyna að selja þessar íbúðir? hugsaði
vinkonan kjaftstopp með sér en
muldraði þó í símann hvort hann
meinti að þær yrðu á einbýlishúsa-
verði? Jú, maðurinn samsinnti því og
gerði engar tilraunir til að freista
vinkonunnar.
Það var ekki laust við að vinkonan
væri hálfsár þegar hún skýrði Vík-
verja frá þessu samtali. Ekki gat hún
ímyndað sér að allir þeir sem
hringdu út af íbúðunum fengju svona
svör. Nei, það hlaut að vera eitthvað í
málrómi hennar sem gerði það að
verkum að hún þótti ekki líklegur
kaupandi. Líklega væri hún bara
með svona fátæklega rödd! Gvuuuð
hvað hún skammaðist sín.
x x x
Í DAG er vinkonunni hins vegarrórra. Hún hefur nefnilega fundið
út hvað íbúðirnar kosta eins og allir
þeir sem hafa fylgst með fjölmiðlum
að undanförnu. Verðmiðinn hljóðar
upp á 18 til 57 milljónir (án gólfefna!)
og í því ljósi er ekki hægt að segja
annað en að maðurinn hafi verið af-
skaplega heiðarlegur í svörum sín-
um. Og hvað röddina varðar þá er
vinkonan sallaróleg því þetta margar
milljónir hlýtur að vera erfitt að
burðast með í einum kvenmanns-
barka.
Hvað varð um Isostar?
KOLVETNADUFTIÐ Is-
ostar var selt í flestum
verslunum hér á landi frá
u.þ.b. 1990 og þangað til í
fyrra. Um er að ræða duft
sem blandað er saman við
vatn og þannig fenginn kol-
vetnaríkur drykkur sem
drukkinn er meðan á lík-
amsræktaræfingum stend-
ur. Í fyrra hvarf þessi
ágæta vara fyrirvaralaust
úr hillum verslana og hefur
ekki spurst til hennar síð-
an. Langar mig að forvitn-
ast um örlög Isostar. Ekki
er mér kunnugt um hver
flutti efnið inn en ég notaði
það samhliða lyftingum
nánast allan þann tíma sem
það var selt hér.
Um mjög góða fram-
leiðslu var að ræða og ekki
spillti fyrir að hún virtist
hafa gleymst við hina ger-
ræðislegu ofurtollun fæðu-
bótarefna, hægt var að fá
500 gramma dós af Isostar
fyrir innan við 800 krónur
lengst af.
Nú er öldin önnur og
maður er neyddur til að
kaupa hina rándýru Leppin
Energy Boost-kolvetna-
blöndu sem virkar síst bet-
ur, bragðast verr og er nán-
ast aldrei til í þeim
verslunum sem selja hana.
Þetta er illt og ég veit að ég
tala fyrir fleiri munna þeg-
ar ég bið vinsamlegast um
Isostar aftur.
ASG.
Kæra Ríkissjónvarp
ÉG sendi þetta bréf varð-
andi jóladagatalið 2001.
Jóladagatalið var ekki ís-
lenskt og snerist ekki á
margan hátt um jólin. Þetta
var um jólasveininn og
markmiðið var að gefa
börnum gjafir, hann leysti
vandamálin ekki alltaf á
skynsaman hátt.
Hann gaf börnunum ekki
gjafir eftir venjulegri skyn-
semi og fór alls ekki leynt
með starfsemina og nafnið
„Leyndardómar jólasveins-
ins“ fannst mér ekki passa
við.
Börn á Íslandi fá gefið í
skóinn af 13 jólasveinum,
eða svo er sagt, en þarna
gaf hann börnum hvað sem
þau vildu í allan desember.
Í þessari seríu var nýtt efni
í hverjum þætti s.s. ekkert
að hlakka til, auk þess 30
mínútna langt. Það lá við að
ég héldi með skúrkinum í
þessu „jóladagatali“.
Jólin eru haldin af þeirri
ástæðu að Jesú Kristur
fæddist, ekki út af því að
jólasveinn gefur börnum
hvað sem þau vilja!
Það skiptir ykkur líklega
ekki miklu máli hvað þið
sýnið í jóladagatalinu en
fyrir börn skiptir það máli,
annars gleymist tilgangur
jólanna.
Ég hvet ykkur þannig til
að sýna næst jóladagatal
sem snýst um jólin, ekki
teiknimyndaseríu um tíma-
vélar, flugtæki og sjálfvirk-
ar leikfangavélar – og jóla-
svein sem flýgur út um allt
og gefur börnum hvað sem
er, þess vegna stríðstölvu-
leiki.
Ykkar einlægur,
reiður ungur maður,
12 ára.
Dýrahald
Kettlingur
fæst gefins
KETTLINGUR fæst gef-
ins. Uppl. í síma 561 1259.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
UNDIRRITAÐUR hefur
tekið inn birkiöskuna í 5
ár og hefur mjög góða
reynslu af því. Ég greind-
ist með krabbamein í
blöðruhálskirtli fyrir 6
árum og það leit ekki vel
út því að það hafði breiðst
út í blóðið og beinin. Ég
fór að taka inn birki-
öskuna og fann strax
mikla breytingu eftir
tvær vikur og var lækn-
irinn minn mjög undr-
andi. Samkvæmt lækn-
isráði hefði ég átt að fara
í geislameðferð og því til-
heyrandi, en það vildi ég
ekki en fór í sprautu-
meðferð samhliða því að
taka inn birkiöskuna.
En svo varð ég fyrir því
áfalli í fyrra að krabba-
meinið í blóðinu hafði tek-
ið sig upp aftur. Ég fann
alls staðar til í líkamanum
og var mjög kvalinn og
gekk um með staf. Ég fór
að taka inn 9 hylki af
birkiösku á dag og fór í
nokkrar sprautu-
meðferðir. Mér fór batn-
andi og varð verkjalaus
eftir u.þ.b. 2 mánuði. Nið-
urstöðurnar úr blóðpruf-
unum komu mjög vel út
og í dag er krabbameinið
nánast horfið.
Ég á eftir að taka birki-
öskuna á hverjum degi
það sem ég á eftir ólifað.
Nú flýg ég eins og fiðrildi
og get gengið upp fjöll og
firnindi þó mig vanti tæpt
ár í áttrætt.
Eftir að ég fór að taka
inn birkiöskuna hef ég
ekki fengið neina um-
gangspest eða orðið las-
inn af neinu tagi.
Ég veit að birkiaskan
læknar einnig brjóst-
sviða, psorasis, migreni,
exem, háls-, nef- og
eyrnabólgur, svefnvanda-
mál, magameltingu, hey-
mæði, hjartatruflanir og
er í senn orkugjafi.
Þorgeir Þórarinsson,
s: 426-8388.
Kraftaverk birkiöskunnar