Morgunblaðið - 28.05.2002, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.05.2002, Blaðsíða 14
AKUREYRI 14 ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HREIÐAR Valtýsson, útgerðarmaður á Akur- eyri, lést síðastliðinn laugardag, 25. maí. Hann varð bráðkvadd- ur. Hreiðar fæddist 14. mars árið 1925 á Rauðuvík á Árskógs- strönd. Foreldrar hans voru Valtýr Þorsteins- son og Dýrleif Ólafs- dóttir sem bjuggu á Rauðuvík. Þar ólst Hreiðar upp en flutti síðar til Akureyar þar sem hann bjó lengst af. Hreiðar lauk prófi frá Verslunarskóla Íslands árið 1948 og tók þá til starfa við fyrirtæki föður síns, sem rak umfangsmikla útgerð, síldarsöltun og síðar einnig frystihús undir nöfnunum Útgerð Valtýs Þor- steinssonar og Norð- ursíld hf. Hreiðar tók við rekstri félaganna árið 1970 þegar faðir hans féll frá og rak það allt þar til á síðasta ári er hann hætti eigin út- gerð. Fyrirtækið var með starfsemi á Hjalt- eyri, Raufarhöfn og Seyðisfirði, einkum síldarsöltun en frysti- hús var einnig á Seyð- isfirði. Þegar mest var gerðu þeir út 6 báta, Ólaf Magnússon, Þórð Jónasson, Akraborg, Gylfa, Gylfa ll og Garðar. Hreiðar kvæntist eftirlifandi eig- inkonu sinni, Elsu Jónsdóttur, árið 1948. Þau eignuðust tvö börn. Andlát HREIÐAR VALTÝSSON VIÐRÆÐUR fulltrúa Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks um myndun nýs meirihluta á Akureyri ganga vel og er gert ráð fyrir að skrifað verði undir samning þar að lútandi síðar í vikunni. Fulltrúar flokkanna hafa hist þrívegis, síðast í gærkvöld og er góður gangur í við- ræðum að sögn oddvita flokkanna tveggja. „Við mátum stöðuna þannig að þetta væri í raun farsælasta sam- starfið í ljósi þeirra verkefni sem framundan eru m.a. í samskiptum okkar við ríkisvaldið,“ sagði Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokks. Sjálfstæðisflokkur fékk 3.144 at- kvæði, 35,6% og fjóra menn í bæj- arstjórn, tapaði einum frá síðustu kosningum. Framsóknarflokkur fékk þrjá menn, líkt og síðast, 2.124 atkvæði eða 24,1%. Listi fólksins fékk tvo menn, en hafði einn, 1.568 atkvæði eða 17,8%. Samfylkingin fékk einn mann, 1.225 atkvæði eða 13,9% og vinstir grænir fengu einn mann, 769 atkvæði eða 8,7%. Tókst ætlunarverkið Kristján Þór Júlíusson sagði flokkinn ágætlega geta unað niður- stöðum kosninganna. Hann hefði þó tapað um 3% frá síðustu kosningum, en á það bæri að líta að þá hefði flokkurinn unnið einn sinn stærsta sigur í bænum. „Vissulega eru það vonbrigði að tapa fimmta fulltrúan- um, en staða hans var mjög tvísýn,“ sagði Kristján Þór. Jakob Björnsson, oddviti Fram- sóknarflokks, kvaðst þokkalega ánægður með úrslit kosninganna. „Okkur tókst það ætlunarverk okkar að verja þriðja fulltrúann, þótt við hefðum auðvitað ekki haft neitt á móti stærri hlut af kökunni. Okkar barátta skilaði árangri og við erum ánægð með það,“ sagði Jakob. Hann sagði meirihlutaviðræður ganga vel og ekkert benti til annars en skrifað yrði undir samkomulag, vonandi fyr- ir næstu helgi. Ættu að geta náð hagstæðum samningum við ríkið Oddur Helgi Halldórsson var að vonum ánægður með útkomuna. „En það að við vorum ekki valin til meiri- hlutaviðræðna er bara pólitík. Við töldum það siðferðilega rétt að við okkur yrði rætt, en það gildir eitt- hvað annað siðferði hjá þessum flokkum,“ sagði hann. Það að sigra í kosningunum og ná inn tveimur mönnum kvað hann meira virði en meirihlutasamstarf. „Við munum að sjálfsögðu vinna með þessum mönn- um í bæjarstjórn og reyna að koma okkur málum að.“ Oddur benti á að flokkarnir tveir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, hefðu eldað grátt silfur í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili, en nú myndi að líkind- um renna upp gósentíð á Akureyri þar sem sömu flokkar væru við völd í ríkisstjórn og menn ættu því að geta náð hagstæðum samningum, m.a. um fjölgun hjúkrunarrýma í bænum. Samfylking og VG vonuðust eftir betri árangri Oktavía Jóhannesdóttir, oddviti Samfylkingar, sagði að vissulega hefði hún vilja sjá hagstæðari út- komu, „en við munum vinna í sam- ræmi við þessa niðurstöðu og koma tvíefld til starfa við næstu kosningar. Auðvitað eru það vonbrigði að hafa ekki náð tveimur mönnum inn í bæj- arstjórn eins og við stefndum að, en munum gera það sem best er hægt í stöðunni,“ sagði Oktavía og bætti við að menn væru þegar farnir að hefja undirbúning fyrir Alþingiskosningar og sá góði og kröftugi hópur sem myndaðist í aðdraganda kosninga nú kæmi þar sterkur inn. Valgerður H. Bjarnadóttir, odd- viti Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sagði að mikilvægur ár- angur hefði náðst með því að ná inn fulltrúa í bæjarstjórn. „Við höfðum vonast til að ná meiri árangri, en þetta er dómur kjósenda og við sætt- um okkur við hann. Það skapaðist mikil reynsla í hópnum sem stóð að framboðinu og sterk samstaða sem kemur sér vel fyrir næstu kosningar. Allar líkur bentu til að VG yrði í minnihluta í bæjarstjórn, „en við treystum því að hann starfi saman sem sterk heild og veiti þessum ein- staka meirihluta aðhald.“ Meirihluti B- og D- lista í burðarliðnum Oddur og Marsibil fagna góðri útkomu Lista fólksins á kosninganótt. Morgunblaðið/Rúnar Þór Björn Magnússon, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins, Jakob Björnsson, oddviti Framsóknarflokks, Hákon Hákonarson, formaður fulltrúaráðs Framsóknarflokksins og Kristján Þór Júlíusson, oddviti Sjálfstæðisflokks, hittust strax og úrslit lágu fyrir. ELDUR kom upp í sjónvarpstæki í herbergi á þriðju hæð í dvalar- heimilinu Kjarnalundi við Akureyri laust fyrir kl. 6 í gærmorgun. Maður sem í herberginu bjó komst út sjálfur. Alls eru 23 íbúð- arherbergi á hæðinni, þar af eitt mannlaust. Reykkafarar réðust strax til atlögu við eldinn, en þegar að var komið stóð eldsúla upp úr tækinu. Starfsmenn Kjarnalundar, slökkviliðs- og lögreglumenn að- stoðuðu íbúa, sem sumir voru ekki gangfærir, að yfirgefa vistarverur sínar og gekk það greiðlega fyrir sig að sögn Tómasar Búa Böðv- arssonar slökkviliðsstjóra. „Starfsfólkið brást hárrétt við og stóð sig með stakri prýði. Þegar at- burður sem þessi kemur upp sést best hversu mikilvægt er að hafa neyðarskipulag til reiðu,“ sagði Tómas Búi. Vel gekk að rýma ganginn, var fólkið fyrst flutt á reyklausan stað í húsinu, en síðar var farið með það í strætisvagni og sjúkrabílum á Dvalarheimilið Hlíð. Óvíst er hversu lengi það munu dvelja þar að sögn slökkviliðs- stjóra, en miklar skemmdir urðu í herberginu sem eldurinn kom upp í og eins varð mikill reykur á gang- inum og reykjarlykt á öllum her- bergjum. Fjöldi slökkviliðsmanna tók þátt í slökkvi- og björgunarstarfinu. Morgunblaðið/Rúnar Þór Íbúar voru að vonum svolítið skelkaðir en fengu góða aðhlynningu starfsfólks og kaffisopa til að hressa sig við. Eldur í dvalarheimilinu Kjarnalundi Íbúarnir aðstoð- aðir við að yfir- gefa bygginguna Herbergið hans „ Stjána í bíó“, Kristjáns, var illa farið eftir brunann. FORMLEGAR viðræður fulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks um myndun meirihluta í bæj- arstjórn Dalvíkurbyggðar hófust í gærkvöld, en fulltrúarnir hittust á óformlegum könnunarfundi á sunnu- dagskvöld. Framsóknarflokkur hlaut 469 at- kvæði, 40,9% og fjóra menn kjörna í bæjarstjórn, Sjálfstæðisflokkur, 408 atkvæði, 35,6% og þrjár menn og I- listi Sameiningar fékk 230 atkvæði, 20,1% og tvo menn kjörna. Fram- sóknarflokkur og listi Sameiningar mynduðu meirihluta í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili. „Mér finnst eins og sjálfsagt flest- um að okkur hafi gengið vel. Við höldum okkar hlut, erum með svipað hlutfall og við síðustu kosningar og höldum okkar fjórum bæjarfulltrú- um, þannig að ég er ánægður með niðurstöðuna, og þakka fyrir þann stuðning sem við fengum,“ sagði Valdimar Bragason, oddviti Fram- sóknar. Svanhildur Árnadóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks, sagðist ánægð með úrslit kosninganna. „Við jukum við okkar fylgi, fengum um 5% meira fylgi nú en við síðustu kosningar,“ sagði Svanhildur. Ingileif Ástvaldsdóttir, oddviti Sameiningar, sagði listann hafa haldið sínum tveimur mönnum í bæj- arstjórn og meirihlutinn hafi haldið velli í kosningunum. „Þetta teljum við vera skilaboð kjósenda um stuðn- ing við meirihlutann og því kom það okkur í opna skjöldu að viðræður væru að hefjast milli Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks,“ sagði Ingileif. Hún sagði eðlilegra að framsóknar- menn hefðu rætt við fulltrúa listans og útskýrt hvers vegna þeir snéru nú við honum baki eftir 8 ára samstarf í bæjarstjórn. Það hlyti að teljast til almennrar kurteisi. „Við teljum okk- ur hafa starfað að heilindum og ekk- ert það komið upp á sem benti til að brestir væru í samstarfinu,“ sagði Ingileif. Fyrsti formlegi fundurinn um myndun nýs meirihluta var í gærkvöld. „Ég sé ekki annað en að gott útlit sé fyrir því að takist að mynda slíkan meirihluta,“ sagði Valdimar. Svanhildur tók í sama streng og sagði eitthvað mikið þurfa að gerast til að menn næðu ekki sam- an. „Þetta er á rétti leið,“ sagði hún. B- og D-listi ræða myndun meirihluta í Dalvíkurbyggð Kemur sameiningar- mönnum í opna skjöldu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.