Morgunblaðið - 01.06.2002, Side 49

Morgunblaðið - 01.06.2002, Side 49
áratugi; stór hluti hans er orðinn það breyttur að hann hrygnir u.þ.b. tveimur árum fyrr en áður var miðað við sama þunga. Fyrirboðar vondra tíðinda Ekki er unnt að ráða í það hvaða þýðingu snemmbær kynþroski hefur á nýliðun þar sem fjöldi mislífvæn- legra kviðpokaseiða er eitt en nýliðun annað (þriggja ára fiskur), en bæði í Noregi (Lofoten) og sérstaklega þó í Kanada voru þessi einkenni þorsk- stofnsins fyrirboði hruns þar sem sams konar breytingar urðu á nokkr- um árum fyrir hrun hvort heldur það var á þremur stærstu svæðunum (2J3KL, DFO Science Stock Status Report 2001) eða í St. Lawrence-flóa. Sex ára þorskur var um 40% kyn- þroska um árabil fram til 1988 en hækkaði síðan í 90-100% á um fjórum árum og fimm ára fiskur úr 15% upp í 60% á sama tímabili, en eftir veiði- bann 1992 seig kynþroskaprósentan hægt niður (sex ára fiskur er nú um 80% kynþroska), þ.e. langt frá því sem áður var og betur lét. Tæpast er í alvöru unnt að gera því skóna nú að ástæður þessa geti verið aðrar en erfðabreytingar með vali, þ.e. með stærðaveljandi veiðum. Þeim sem þrjóskastir eru til að fallast á erfðabreytingar má benda á, að fjöldi hryggjarliða hefur einnig tekið breyt- ingum. Í nefndum gögnum er tekið fram að hrygning snemmþroska fisks í slæmu ástandi (condition) geti hækkað náttúrlegan dauða. Þetta er flest á sömu bókina lært; veiðar og skráð brottkast skýra ekki hrun veiða við Kanada, vöxtur einstaklinga var orðinn mjög hægur, heildardauði hár og er enn þrátt fyrir mjög litlar sem engar veiðar. Einu ljósglætuna er nú að finna í innfjörðum á staðbundnum stofnum. Íslenskar vísbendingar Það er ofmælt að segja að þorsk- urinn hér sé kominn að fótum fram, en viss einkenni Kanadaveiki eru til staðar en spurningin er sú hversu víð- tæk þau eru og hvort stofninum í heild (hann er samsettur af fjölda- mörgum undirstofnum) sé hætta bú- in. Hægvöxtur er ígildi ákveðins nátt- úrulegs dauða vegna lélegrar nýtingar ætis við viðhald þeirra sjálfra og svo bætist væntanlega við aukinn dauði í hrygningu; einmitt þes fisks sem er snemmþroska og illa haldinn; honum er mest hætta búin og þegar sjómenn eru farnir að tala um slíkan fisk hér þá eiga rauð ljós að kvikna. Það er sem upp geti komið vítahringur með fiski sem er hæg- vaxta og snemmþroska og eyðir mik- illi orku í hrygningu í stað þess að vaxa. Þar sem hrogn frá slíkum fiski eru lítil og seiði líklega ólífvænleg af mörgum ástæðum, er eins víst að erfðir afkomenda líkist þeim sem ein- kenndu foreldra. Af ofangreindum ástæðum skiptir nú miklu máli að kanna hversu út- breidd Kanadaeinkenni eru orðin og að gripið verði til ráðstafana til að hindra frekari útbreiðslu veikinnar áður en of seint er orðið, en engin ástæða er fyrir Íslendinga að fara í fótspor Kanada af þrjósku eða bara skammsýni. Margt bendir til að þorskurinn sé nú um einu ári eldri að meðaltali, en hann á að vera; sé svo þá erum við á miðjum Kanadakóss. Höfundur er efnaverkfræðingur.            &     9  8  J .. K    ' : = 9                .32 4  32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2002 49 í Skútuvogi Laugardagur Sími 525 3000 • www.husa.is Tilboð í verslun Skútuvogi 16 í dag, laugardag. Opið 10-16 AIWA DVD spilari Spilar öll kerfi og einnig MP3 diska Verð 23.900 kr. SEG sjónvarp 28”, textavarp o.fl. Verð 46.990 kr. Örbylgjuloftnet með spenni Verð 13.990 kr. Verð áður: 49.990 kr. Verð áður: 19.272 kr. Verð áður: 34.990 kr. K O R T E R flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is alltaf á sunnudögumBÍLAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.