Morgunblaðið - 21.09.2002, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.09.2002, Blaðsíða 20
ÁRBORGARSVÆÐIÐ 20 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ir stóð að rými vantaði fyrir innra starf safnsins, þ.e. söfnun, varðveislu, skráningu og sýningagerð. Innra starf safnanna er grundvöllur þess sem blasir við hinum almenna safn- gesti. Skráning og yfirsýn starfs- manna yfir safnkostinn, traustur og öruggur aðbúnaður hans eru mikil- vægustu þættir þess að safnstarfið þrífist til framtíðar. Þetta hefur verið leiðarljós for- ráðamanna Byggðasafns Árnesinga sem báru gæfu til þess að leysa frum- þarfir stofnunarinnar með uppbygg- ingu hinnar glæsilegu vinnu- og þjón- ustuaðstöðu safnsins á Eyrarbakka. Húsið var reist á skömmum tíma en frá því að framkvæmdin var boðin út í september 2001 liðu aðeins átta mán- uðir þar til verktaki afhenti húsið fullbúið 19. apríl. Staðsetning þess í þorpinu á afmarkaðri lóð utan sjálfs safnsvæðisins er prýðileg. Vinnu- staða fyrir starfsmenn safnsins er BYGGÐASAFN Árnesinga hlaut Ís- lensku safnaverðlaunin árið 2002, fyrir byggingu á þjónustuhúsnæði safnsins sem var fullfrágengið í apríl sl. Verðlaunin voru afhent 12. sept- ember síðastliðinn á farskóla safna- manna sem haldinn var á Höfn í Hornafirði. Það var Björn Bjarnason, fyrrverandi menntamálaráðherra, sem afhenti verðlaunin. Safnið hlýtur verðlaunin vegna áherslu á faglegt innra starf og framsýni sem lýsir sér í byggingu nýs þjónustuhúsnæðis. Í álitsgerð dómnefndar segir: „Segja má að Byggðasafn Árnesinga hafi frá upphafi glímt við aðstöðuleysi svo sem fleiri söfn í landinu gera. Ár- ið 1995 hófst uppbyggingarskeið hjá safninu þegar opnaðar voru nýjar sýningar í Húsinu og Assistentahús- inu á Eyrarbakka. Þá höfðu bæði húsin hlotið gagngera viðgerð en eft- mjög góð og vinnan við að koma safn- gripunum í framtíðarhúsnæði er spennandi verkefni. Það væri fengur fyrir safnastarf- semi á Íslandi ef fleiri söfn ættu þess kost að tryggja starfsemi sína og varðveislu muna með svipuðum hætti og aðstandendur Byggðasafns Ár- nesinga á Eyrarbakka hafa búið sínu safni.“ Lýður Pálsson, safnstjóri Byggða- safns Árnesinga, hefur veitt safninu forystu í þeirri uppbyggingu sem safnið hefur gengið í gegnum á und- anförnum árum. Hann tók við verð- laununum og sagði m.a. við það tæki- færi: „Ég vona svo sannarlega að úthlutun Íslensku safnaverð- launanna eigi eftir að vekja athygli ráðamanna á mikilvægi þess að söfn- um sé búin góð innri aðstaða til starf- semi sinnar og að slík vinnuaðstaða verði sjálfsögð á hverju safni hér á landi.“ Byggðasafn Árnesinga hlaut Íslensku safnaverðlaunin Ljósmynd/Sigurður Jónsson Lýður Pálsson, safnstjóri Byggðasafnsins, í hinu nýja þjón- ustuhúsi safnsins á Eyrarbakka. Selfoss EIGENDUR Hólmarastar á Stokkseyri, Björn Ingi Björnsson og Einar S. Einarsson, vinna að því að finna Hraðfrystihúsinu á Stokkseyri framtíðarhlutverk og hafa í huga að í húsinu verði ýmiss konar starfsemi á sviði framleiðslu og þjónustu. Hólmaröst hóf starfsemi á Stokks- eyri fyrir þremur árum. „Við komum hér þá og ætlum að taka slaginn hérna, framtíðarslag,“ sagði Björn Ingi. Á fyrstu hæð hússins er rekin fisk- vinnsla frá Hólmaröst og Þormóði ramma. Hómaröst er með 10-15 manns í vinnu við saltfiskverkun. Hólmaröst er í vinnslusamstarfi við Þormóð ramma og Granda. „Þetta er gott hús fyrir vinnslu sem er tæknivædd og vel búin og svo er hér afbragðs starfsfólk sem er ag- að í vinnu og fúlsar ekki við því að vinna í fiski,“ sagði Björn Ingi. Á fyrstu hæðinni er einnig flutnings- aðili með sína starfsemi. Björn legg- ur áherslu á að fiskvinnslan á fyrstu hæðinni sé vel afmörkuð frá annarri starfsemi í húsinu. Listamenn í húsinu Þeir félagar eru byrjaðir að virkja húsið sem er í heild 5.500 fermetrar. Tveir listamenn hafa nú aðstöðu í húsinu, Elfar Guðni myndlistarmað- ur er með sýningarsal og vinnuað- stöðu á annarri hæð og Katrín Þor- geirsdóttir leirlistakona er í þann mund að koma í húsið með vinnu- stofu. Þá hefur Myndlistarfélag Ár- nessýslu skoðað möguleika á að nota rými í húsinu fyrir námskeið og vinnustofu ef mögulegt er. Auk þess er unnið að því að tónminjasafn verði í húsinu. Þeir Björn Ingi og Einar telja það mikinn styrk fyrir húsið að í næsta nágrenni þess er veitingastað- urinn Við fjöruborðið sem dregur að sér mikinn fjölda gesta. Þeir félagar segjast heillaðir af arfleifðinni á staðnum og í nágrenni hans. Í húsinu vinnur Elfar Guðni nú að gerð stórrar myndar sem verður sett upp 12. október og vígð á hátíð sem tengd verður nafni Páls Ísólfs- sonar en myndir heitir Brennið þið vitar. Hraðfrystihúsi Stokkseyr- ar fundið nýtt hlutverk Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Húsið skoðað. Kári Jónsson, formaður Myndlistarfélags Árnessýslu, Björn Ingi Björnsson, Einar S. Einarsson og Elfar Guðni listamaður. Fyrir aftan er verkið Brennið þið vitar sem komið verður fyrir utan á húsinu. Selfoss SUNNUDAGINN 15. sept. hófst barnastarfið formlega í kirkjunni með fjölskyldumessu. Nýr prestur, Bára Friðriksdóttir, hóf störf fyrir skemmstu og leysir Jón Ragn- arsson af í vetur, meðan hann dvelst ásamt fjölskyldu sinni við nám í Bandaríkjunum. Bára sagðist hlakka mikið til að vera með Hver- gerðingum í vetur og var ánægð að sjá kirkjugesti fjölmenna í kirkjuna sína. Yfirskrift barnastarfsins í vet- ur verður Réttum hjálparhönd, þar sem börnin kynnast aðstæðum barna í öðrum heimsálfum, heyra sögur um Jesú, læra nýja söngva og ýmislegt fleira. Eins og segir í fréttabréfi frá sóknarpresti verður glatt á hjalla í sunnudagaskólanum í vetur og eru foreldrar hvattir til að nýta sér þjónustu kirkjunnar, sem vill styrkja foreldra í skírn- aruppeldinu. Sameiginleg stund í kirkjunni með börnunum á sunnu- dagsmorgni leggur línurnar fyrir góðan dag. Auk Báru, sem leiðir stundina, verða Stefanía Sigurjóns- dóttir og Berglind Halldórsdóttir sunnudagaskólakennarar og Jörg Sondermann sér um tónlistina. Fjölmennt var á fyrstu athöfn vetr- arins og voru krakkarnir vel með á nótunum og svöruðu spurningum prestsins og sungu af innlifun. Ljósmynd/Margrét Ísaksdóttir Börnin í sunnudagaskólanum eru ekki bara áhugasöm heldur eru þau líka afar stillt og góð. Barnastarf- ið í kirkj- unni hafið Hveragerði FORELDRAFÉLAG Grunnskólans í Hvera- gerði boðaði foreldra og forráðamenn á fund nýlega. Mikill fjöldi fólks mætti á fundinn. Fundarstjóri var Theo- dór Birgisson. Hvatinn að fundinum var sá, að árangur foreldrarölts í öðrum sveitarfélögum hefur skilað miklum ár- angri. Á fundinum voru þrjú framsöguerindi, þau fluttu Elís Kjart- ansson, varðstjóri lög- reglunnar á Selfossi, Herdís Hjörleifsdóttir, félagsmálastjóri Hveragerð- isbæjar og Hrönn Guðmunds- dóttir, stjórnarmaður í foreldra- félaginu. Elís Kjartansson sagði í sínu erindi að vissulega hefði lög- reglan áhyggjur af fíkniefna- neyslu unglinga því neyslunni fylgdu alltaf afbrot, til að fjár- magna neysluna. Hann sagði einnig að ástandið í Grunnskól- anum í Hvergerði væri mjög gott og ekki vitað til að unglingarnir væru í neyslu. Þá benti Elís for- eldrum á, að þeir unglingar sem ættu sér áhugamál væru í sáralít- illi hættu á að fara út af beinu brautinni. Elís upplýsti að á Sel- fossi hefði foreldrarölt verið starfrækt í nokkur ár og mætti sjá ótvíræðan árangur. Í fram- haldi af ummælum Elíss um nauðsyn þess að gera unglingum kleift að eyða tómstundum sínum á uppbyggilegan hátt, hafði fréttaritari samband við Yngva Karl Jónsson, formann íþrótta- og æskulýðsnefndar bæjarins, og innti hann eftir íþróttaiðkun skólabarna. Hann sagði að á elsta stigi grunnskólans væru 113 nem- endur í vetur og rétt tæp 90% þeirra stunda íþróttir, eru í skátafélaginu eða stunda nám í tónlistarskólanum. Má telja það góða forvörn í baráttunni við fíkniefnadrauginn. Herdís Hjörleifsdóttir sagði m.a. í sínu erindi að markmið for- eldrarölts væri að virkja foreldra til samvinnu og það hefði sýnt sig annars staðar að röltið drægi úr neyslu unglinga. Herdís sagði fundarmönnum sorgleg dæmi um misnotkun unglinga í neyslu. Sem betur fer er það fátítt, en öll slík mál snerta fólk illa. Hrönn Guðmundsdóttir stjórn- armaður í Foreldrafélaginu sagði frá því að Foreldrafélaginu hefði verið falið að koma af stað for- eldrarölti í haust. Stjórnin hefði því ákveðið að boða til þessa fundar til að kynna foreldrum hvernig röltið færi fram. Ákveðið hefur verið að foreldrar barna í 7. – 10. bekk sjái um að rölta á föstudags- og laugardags- kvöldum. Í ljós kom að hvert for- eldri þarf aðeins að rölta einu sinni til tvisvar yfir veturinn. Að lokum sagði Hrönn að samstaða og samvinna foreldra væri það sem skipti mestu máli og kæmi til með að skipta sköpum í röltinu. Þessi fundur var virkilega gagn- legur og vonandi fer foreldrarölt af stað hér í haust af miklum krafti. Foreldrar í Hvera- gerði á röltinu í vetur Stjórn foreldrafélags grunnskólans ásamt Marianne Nilsen, yfirlækni Heilsugæslu- stöðvarinnar í Hveragerði. Hveragerði Ljósmynd/Margret Ísaksdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.