Morgunblaðið - 01.11.2002, Qupperneq 56
DAGBÓK
56 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Laugarnes kemur í dag.
Skógafoss, Bjarni
Ólafsson, Eldborg og
Mánafoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Grand Iris kom í gær til
Straumsvíkur, Víking
fór í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14. Lyfja verður
með kynningu í kaffi-
tímanum og býður upp á
kaffi og meðlæti.
Árskógar 4. Kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofan, kl.
10–16 púttvöllurinn.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, félagsvist í
dag kl. 13.30. Helgi-
stund kl. 10. með sr.
Kristínu Pálsdóttur.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Laugard: Kl. 10–12 bók-
band, línudans kl. 11.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
opin handavinnustofan,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–16.45 alla daga
nema mánudaga.
Félagsstarfið, Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
applikering, kl. 10–13
opin verslunin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12 böð-
un, kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, myndlist, kl.
9.30 gönguhópurinn
Gönuhlaup leggur af
stað, kaffi á eftir göng-
unni, allir velkomnir, kl.
14 brids og spila-
mennska, hárgreiðslu-
stofan opin kl. 9–14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 „Opið
hús“, spilað á spil.
Haustbasarinn verður
föstud. 8. og laugard. 9.
nóv. Tekið á móti bas-
armunum frá 4. nóv.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Ferð í Borg-
arleikhúsið 2. nóv. kl. 20
að sjá Kryddlegin
hjörtu. Rúta frá Kirkju-
hvoli kl. 19.30. Skráning
í s. 820 8571 e. h.
Kynning frá Lyfju í
Garðabergi mánud. 4.
nóv. kl. 14. Veitingar,
spilað og sungið.
Byjendanámskeið í
spænsku byrjar 7. nóv.
kl. 17. Skráning hjá
Margréti í s. 820 8571
eftir hádegi
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Tréút-
skurður kl. 13, brids kl.
13.30. Á morgun, morg-
ungangan kl. 10 frá
Hraunseli.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Föstudagur:
Félagsvist kl. 13. Bald-
vin Tryggvason verður
með fjármálaráðgjöf 7.
nóvember, panta þarf
tíma. Árshátíð FEB
verður haldinn í Ás-
garði, Glæsibæ, föstu-
daginn 15. nóv. Miða-
pantanir á skrifstofu
FEB, s. 588 2111. Silf-
urlínan er opin á mánu-
og miðvikudögum kl.
10–12. Skrifstofa félags-
ins er flutt að Faxafeni
12, s. 588 2111. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Uppl.
á skrifstofu FEB.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
salur opinn, dansleikur
kl. 20–20.30, húsið opn-
að kl. 19.30. Hljómsveit
Hjördísar Geirs leikur
fyrir dansi, léttar veit-
ingar í Kaffi Bergi. Allir
velkomnir. Allar uppl.
um starfsemina á staðn-
um og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm og silf-
ursmíði, kl. 9. 15
rammavefnaður, kl. 13
bókband.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 glerlistahópur,
kl. 14–15 Gleðigjafarnir
syngja.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
fótaaðgerð og hár-
greiðsla
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, kl. 10 mæðra-
morgunn. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Vatnsleikfimi í Graf-
arvogslaug á þriðjud. kl.
9.45 og föstud. kl. 9.30.
Uppl. í s. 5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17,
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
alm. handavinna, kl. 10–
11 kántrýdans, kl. 11–12
stepp, kl. 13.30–14.30
Sungið við flygilinn, kl.
14–15 félagsráðgjafi á
staðnum, kl. 14.30–16
dansað í aðalsal. Lands-
banki Íslands veitir al-
menna bankaþjónustu
kl. 13.30–14. Kl. 15 kem-
ur Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir alþing-
ismaður í heimsókn.
Mánud. 4. nóv. kl. 13
veitir Lyf og heilsa ráð-
gjöf og svarar fyr-
irspurnum, boðið verður
upp á blóðþrýstings-
mælingu, kaffiveitingar
á eftir, allir velkomnir.
Fimmtud. 7. nóv. kl.
10.30 verður helgistund
í umsjón séra Hjálmars
Jónssonar dóm-
kirkjuprests, kór Fé-
lagsstarfs aldraðra
syngur undir stjórn Sig-
urbjargar Petru Hólm-
grímsdóttur. Myndlist-
arsýning Sigrúnar
Huldar Hrafnsdóttur er
opin alla virka daga á
opnunartíma þjónustu-
miðstöðvarinnar. Sýn-
ingin stendur yfir til 8.
nóvember.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla og
myndlist, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 fótaaðgerðir og
leikfimi, kl. 12.30 leir-
mótun, kl. 13.30 bingó.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, Fannborg
8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl. 21
í Konnakoti, Hverf-
isgötu 105. Nýir félagar
velkomnir. Munið göng-
una mánu- og fimmtu-
daga.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum með
börnin sín á fimmtud. kl.
13–15 á Loftinu í Hinu
húsinu, Pósthússtræti
3–5. Opið hús og kaffi á
könnunni, djús, leikföng
og dýnur fyrir börnin.
Frá Félagi kennara á
eftirlaunum. Skemmti-
fundur verður laugard.
2. nóv. kl. 13.30 í Húna-
búð, Skeifunni 11. Á
dagskrá verður fé-
lagsvist, veislukaffi og
skemmti- og fræðslu-
efni, umsjón Elín Vil-
mundardóttir og Stefán
Ólafur Jónsson.
Kvenfélag Langholts-
sóknar. Hinn árlegi
tertubasar og happ-
drætti verður laugard.
2. nóv. kl. 14 í safn-
aðarheimili kirkjunnar.
Meðal vinninga er mikið
af handgerðu jóla-
skrauti. Allur ágóði
rennur til málefna kirkj-
unnar.
Vestfirðingafélagið í
Reykjavík heldur bað-
stofukvöld laugard. 2.
nóv. kl. 20 að Gjábakka,
Fannborg 8, Kópavogi.
Knattspyrnufélagið
Haukar. Bingó verður
haldið sunnudaginn 3.
nóv. kl. 17 að Ásvöllum.
Fjöldi glæsilegra vinn-
inga. Allir velkomnir.
Rangæingar, kirkju-
dagurinn er í Selja-
kirkju sunnud. 3. nóv.
kl. 14. Kaffiveitingar í
sal kirkjunnar eftir
messu. Kökur á kaffi-
hlaðborðið eru vel þegn-
ar.
Hallgrímskirkja, eldri
borgarar. Opið hús
miðvikud. 6. nóv. kl. 14,
einsöngvararnir Erna
Blöndal og Örn Arn-
arson syngja, hugvekju
flytur sr. Jón Bjarman,
allir velkomnir. Leik-
fimi fyrir eldri borgara
er þriðju- og föstudaga
kl. 13. Jóhanna Sigríður
Sigurðardóttir sjúkra-
þjálfari annast leikfim-
ina.
Í dag er föstudagur 1. nóvember,
305. dagur ársins 2002. Allra
heilagra messa. Orð dagsins:
Og þá munuð þér vera mín þjóð,
og ég mun vera yðar Guð.
(Jer. 30, 22.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 þor, 4 skán, 7 þráin, 8
hnossið, 9 kraftur, 11 líf-
færi, 13 karldýr, 14 fyrir
neðan, 15 gryfjur, 17 við-
bót, 20 greinir, 22 kverk-
sigi, 23 líkamshlutinn, 24
úrkomu, 25 sleifum.
LÓÐRÉTT:
1 áköf löngun, 2 óskar
eftir, 3 eljusama, 4 snjó-
korn, 5 moðreykur, 6
nytjar, 10 ól, 12 for, 13
ósoðin, 15 hlýðinn, 16
heiðarleg, 18 uppbót, 19
oft, 20 höfuð, 21 læra.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 handahófs, 8 afdal, 9 læðan, 10 lof, 11 parta, 13
trant, 15 hring, 18 skjól, 21 rit, 22 gaufa, 23 eikin, 24
landskuld.
Lóðrétt: 2 andar, 3 dolla, 4 helft, 5 fiðla, 6 happ, 7 unnt,
12 tin, 14 rok, 15 högg, 16 iðuna, 17 grand, 18 sterk, 19
jökul, 20 lund.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
FRÁ og með deginum í dag verðaökumenn sektaðir fyrir að tala í
farsíma í akstri án þess að nota
handfrjálsan búnað.
Víkverji hefur notað handfrjálsan
búnað í bílnum árum saman og fund-
izt það sjálfsagt mál og í þágu um-
ferðaröryggis, burtséð frá öllum
lagabókstaf. Hann hefur hins vegar
orðið var við að margir vilja ekki
nota handfrjálsa búnaðinn, jafnvel
þótt þeir eigi hann til. Víkverji hefur
spurt um ástæðurnar og oftar en
ekki kemur þá í ljós að ástæðan fyrir
því að fólk notar ekki handfrjálsan
búnað er sú sama og fyrir því að
sumt fólk notar ekki hjálm á reiðhjóli
– hégómi og spéhræðsla. Kunningi
Víkverja játaði fyrir honum að hon-
um fyndist hann asnalegur með
snúruna í eyranu; hann hefði á til-
finningunni að fólk horfði á hann og
héldi að hann væri að tala við sjálfan
sig í bílnum.
Það er vont ef hégóminn ber heil-
brigða skynsemi ofurliði. Víkverja
finnst sömu rök eiga við í þessu máli
og varðandi reiðhjólahjálmana; það
er þess virði að líta út eins og svepp-
ur ef það getur forðað manni frá því
að enda sem kálhaus.
VÍKVERJI sá í blaðinu auglýs-ingu um svokallað textaþing,
þar sem ræða á möguleika á að texta
innlent sjónvarpsefni og kvikmynd-
ir. Það rifjaðist þá upp fyrir honum
að fyrir forvitni sakir hefur hann
stundum að undanförnu kveikt á
textanum þegar ný, íslenzk sjón-
varpsleikrit hafa verið sýnd í Sjón-
varpinu. Þau hafa verið textuð á síðu
í textavarpi Sjónvarpsins. Þá hefur
brugðið svo við að í fyrsta lagi hafa
séríslenzku stafirnir í textanum birzt
brenglaðir, þannig að hann hefur
orðið illlæsilegur. Lítil hjálp í því.
Ekki getur það verið sjónvarpinu
hans Víkverja að kenna, því að það
birtir íslenzka stafi í textavarpinu
alla jafna óbrenglaða. Í öðru lagi hef-
ur textinn oft alls ekki verið sá sami
og í leikritinu – orð og setningarhlut-
ar hafa fallið út, án þess að Víkverji
sjái á því skynsamlega skýringu.
Þegar þetta tvennt bætist við það
hvað nýju, íslenzku sjónvarpsleikrit-
in hafa verið leiðinleg hefur þetta
orðið nánast óbærileg lífsreynsla.
Þessa vankanta hlýtur að verða að
laga, áður en menn láta sér detta í
hug að texta allt innlent efni Sjón-
varpsins.
VÍKVERJI dagsins er reglumað-ur í daglega lífinu og hefur
gaman af því að raða, flokka og
skipuleggja litla, einskisverða hluti.
Þannig er geisladiskasafnið hans
vandlega flokkað eftir tónlistar-
stefnum og innan hverrar tónlistar-
stefnu er diskunum raðað í nákvæma
stafrófsröð eftir höfundum og flytj-
endum.
Víkverji fylltist því kvíða og
áhyggjum eftir að hann hafði fest
kaup á nýjum hljómdiski hljómsveit-
arinnar SigurRósar, sem heitir bara
( ) og er hér um bil án allra merkinga
á diskinum sjálfum og umslaginu.
Nafn hljómsveitarinnar er reyndar
framan á umslaginu, en engar upp-
lýsingar eru á „kilinum“, eða rönd-
inni, á umslaginu.
Áhyggjur Víkverja felast sumsé í
því að þetta verði mikil tízka hjá tón-
listarfólki, að kalla plötur ekki neitt
og prenta ekkert á umslögin. Hvern-
ig á hann þá að geta raðað geisla-
diskunum sínum, þekkt þá í sundur á
umslögunum þar sem þeir kúra þaul-
raðaðir í hillunni, yfirleitt hlustað á
tónlist og umgengizt geisladiska-
safnið með skipulögðum hætti?
Framtíðin er óviss.
Sátu sem fastast
ÉG er ein af fjölmörgum
Íslendingum sem eru svo
vel settir að geta leyft sér
að ferðast með Flugleiðum,
það er að segja Icelandair
(eins og hið íslenska flug-
félag kýs að kalla sig).
Oft hef ég ferðast með
þessu ágæta flugfélagi og
ávallt dáðst að þjónustu-
lund flugfreyja/þjóna. Á
ýmsu gengur hvað varðar
líðan farþega svo ekki sé
minnst á ef farþegar nota
áfengi fram úr góðu hófi.
Dómgreind og gæska þjón-
ustuaðila Flugleiða sigra
oftar en ekki.
Tilefni þessa bréfs er að
ég get ekki orða bundist.
12. október sl. flaug ég frá
Marmaris í Tyrklandi úr 11
daga fríi á sólarströnd og
var flugtíminn fimm og
hálfur tími. Samferðamað-
ur minn, sem er ellilífeyr-
isþegi, hafði orðið fyrir því
að bólgna mjög um fæturna
á leiðinni til Tyrklands og
var ástandið svo slæmt að
hann þurfti að leggjast inn
á sjúkrahús í fjóra sólar-
hringa. Bólgan var rakin til
flugsins (e.t.v. vegna blóð-
tappa).
Fríið var lengra en fjórir
sólarhringar þannig að
blessunarlega gat hann
notið þess að einhverju
leyti og einnig var hann svo
lánsamur að hafa með sér
sína nánustu (þ.e.a.s eigin-
konu, dóttur og tengdason).
Það var vitað mál að vél-
in var ekki full á leiðinni
heim. Aðstandendur full-
orðna mannsins reyndu að
fá góð sæti fyrir hann, þar
sem hægt væri að teygja úr
fótunum (augljóslega með
hugsanlegan blóðtappa yf-
irvofandi).
Það reyndist hins vegar
útilokað vegna þess að
áhöfnin sem hafði flogið út
með komufarþegana sat
sem fastast í bestu sætun-
um á leiðinni heim. Ef ég
skil hlutina rétt voru þessir
starfsmenn Flugleiða í
rauninni í vinnunni. Þrátt
fyrir að áhöfninni væri
skýrt frá að samferðalang-
ur minn hefði lent í miður
skemmtilegri sjúkrahús-
vist sökum þrengsla í sæt-
um á útleiðinni og ætti jafn-
vel á hættu að lenda í sömu
erfiðleikunum aftur þá
breytti það engu því að
þessir starfsmenn Flug-
leiða gáfu sig ekki. Má
þetta starfsfólk skammast
sín og það innilega. Með
von um að þið takið það til
ykkar sem eigið það.
Enn og aftur takk fyrir
góða þjónustu frá flestum
starfsmönnum Flugleiða.
Elisabeth Ley.
Vinar leitað
KUNNINGI minn, Yunbin
Shi í Seattle USA, bað mig
um að reyna að hafa upp á
vini sínum og skólabróður,
Pétri Péturssyni, sem var
með honum í Univeristy of
Washington fyrir u.þ.b. 10
árum. Kona Péturs heitir
Dísa og er hjúkrunarkona.
Yunbin rekur fiskheildsölu
i Seattle.
Vinsamlegast hafið sam-
band vid mig með tölvu-
pósti: bjornemilsson-
@hotmail.com
Björn Emilsson,
Seattle.
Tapað/fundið
Gleraugu í óskilum
SJÓNGLERAUGU, með
lituðu gleri, [X]oor, í hulstri
sem er merkt O’Neeon, eru
í óskilum í Sorpu í Ána-
naustum. Upplýsingar í
síma 561 6570.
Páfagauka vantar
nýja eigendur
TVEIR páfagaukar, (gára-
par) gulur og blár óska eftir
nýjum eigendum. Búr og
tilheyrandi fylgir. Upplýs-
ingar í síma 562 5504.
Telpuúlpa týndist
TELPUÚLPA, drapplituð,
týndist í Vesturbæ Reykja-
víkur fyrir 2 vikum. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 562 1752 og 824 6966.
Dýrahald
Kettlingur í óskilum
STÁLPAÐUR kettlingur
(læða) fannst í Smárarima í
Grafarvogi 17. október sl.
Hann var ólarlaus og
ómerktur. Hann er gul/grá-
bröndóttur með hvítan kvið
og andlit. Upplýsingar í
síma 545 4200 eða 554 0737.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
HEIL og sæl Sigríður.
Þú spyrð um forsendur
fyrir niðurfellingu/
lækkun á fasteignagjöld-
um af íbúð okkar
hjónanna. Forsendur eru
tvær:
Í fyrsta lagi skatta-
framtal okkar, en afrit af
því fylgdi umsókn um
lækkunina sem lögð var
inn í afgreiðslu Skattstof-
unnar.
Í öðru lagi reglur fram-
talsnefndar Reykjavík-
urborgar um slíka lækk-
un, sem birtust í blöðum,
og bendi ég á lista sem
fylgdi bréfi frá Pétri Guð-
mundssyni, stjórn-
armanni í FEB, í Morg-
unblaðinu 26. febrúar
2002. Sem er vel þess
virði að aldraðir lesi.
Þórir
Guðmundsson.
Svar til Sigríðar Pétursdóttur