Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.2003, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.2003, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. FEBRÚAR 2003 13 FOR- VERÐIR uppgötvuðu á dögunum sjálfsmynd af Rembrandt, en myndin hafði verið „löguð til“ fyrir nokkrum öldum til að hún gæti sýnt rússneskan að- alsmann að því er stjórnendur Rembrandt-safnsins í Amst- erdam greindu frá. Lag eftir lag af málningu voru skafin burt við hreinsun á verkinu svo sýna mætti myndina eins og hún var upphaflega og leiddi hreinsunin í ljós að myndin var í raun portrett af Rembrandt sjálfum. Myndina vann listamaðurinn fyrst árið 1634, er hann var 28 ára gamall, en líklegt er talið að einn lærisveina meistarans hafi síðar málað yfir verkið, sem ekki hafði selst, til að spara peninga. Að sögn Önnu Brolsma, talsmanns safnsins, hafði lærisveinninn bætt höku- skeggi, axlasíðu hári og flauels- húfu á upprunalegu myndina til að ná fram rússnesku áhrif- unum. Myndin hefur verið hreinsuð nokkrum sinnum sl. 70 ár og hafði sú vinna að nokkru leitt í ljós hvað þar lá undir, þótt verkinu því væri ekki lokið fyrr en að sérstakur hópur fræði- manna, sem sérhæfir sig í því að sannreyna verk Rem- brandts, staðfesti nýlega að verkið væri eftir listamanninn. Í fyrstu höfðu þeir þó útilokað að svo gæti verið – til þess skorti myndina fínleg pensilför Rembrandts sjálfs – en eftir sex ára tímafreka hreinsunarvinnu kom sannleikurinn í ljós. Verkið hefur enn ekki verið verðmetið, en nýlega hafa verk Rembrandts selst fyrir um 2,3 milljarða króna. Metverð fyrir Mantegna VERK eftir ítalska endurreisnarlistamanninn Mantegna seldist nýlega fyrir metverð, en 2,1 milljarður króna fengust fyrir verk hans Kristur í limbó á uppboði hjá Sotheby’s í New York. Myndin, sem talin er vera frá 1492, sýnir Jesú Krist stíga niður í limbó til að bjarga sálum hinna réttlátu. Verkið var keypt í gegnum símasölu og vildi kaupandinn ekki láta nafns síns getið, en verkið er síðasta verk Mant- egna, svo vitað sé um, sem enn er í eigu einkaaðila. Talið er að verkið hafi verið málað sérstaklega að beiðni markgreifans Ludovico Gonz- aga III, en hann var einn helsti stuðningsmaður listamannsins. Myndin sker sig frá öðrum verkum af ferð Krists í limbó frá þessum tíma að því leyti að hún sýnir för hans sem einstakt atvik í stað þess að líta á hana út frá lífi frelsarans í stærra samhengi. Að sögn Christopher Apostle, yfirmanns mál- verkadeildar Sotheby’s er verkið eitt „stórkostlegasta og jafnframt áhrifamesta verk“ listamannsins. ERLENT Sjálfsmynd af Rembrandt finnst U M þessar mundir er manns- heilinn rannsóknarefni vís- indanna og við þurfum ekki að velta vöngum lengi til að átta okkur á hvers vegna. Við manneskjurnar höfum öll heila og við höldum að við þekkjum hann. En um leið og við förum að skoða hann, förum inn í hann, finnst okkur við vera stödd á annarri plánetu. Með orð- um úr persneska ljóðinu Ráðstefna fuglanna: „þetta er dalur undrunarinnar“. Þegar við hófum vinnu okkar langaði okkur til að rannsaka þetta undraverk upp á eigin spýtur. (Oliver) Sacks og ritsmíð hans hvöttu okkur til að skoða tilfelli eins og hann lýsir í bók sinni. Inn- blásturinn kom frá Sacks. Hann var upphafið að leit okkar að leikrænu formi.“ Þessi orð eru tekin úr formála Peters Brooks, leikstjórans heimskunna, að verkinu sem Borg- arleikhúsið frumsýnir í kvöld, Maðurinn sem hélt að konan hans væri hattur. Leikverkið er byggt á samnefndri bók taugalæknisins Olivers Sacks sem varð að metsölubók um allan heim og lýsir einstökum tilfellum og einkennum heilasköddun- ar, þar sem einkennin eru jafn furðuleg og þau eru margbrotin. Það er leikhópur Nýja sviðsins í Borgarleik- húsinu undir stjórn sænska leikstjórans Peters Engkvist sem hefur unnið sýningu upp úr hand- riti Brooks en einnig haft bókina sjálfa til hlið- sjónar, því margt í henni varpar enn skýrara ljósi á það sem er í leikverkinu og einnig vegna þess að leikhópurinn hefur samið sína eigin sýningu en ekki farið þá einföldu leið að endurgera sýningu Brooks sem hefur farið víða um heim frá því hún var frumsýnd fyrir 10 árum. „Þetta er allt öðruvísi leikrit en ég hef fengist við hingað til,“ segir Peter Engkvist sem er ís- lensku leikhúsáhugafólki að góðu kunnur. Þetta er fjórða sýningin sem hann setur upp hérlendis, en hinar eru Ormstunga, Lofthræddi örninn Örv- ar og Beðið eftir Godot sem var opnunarsýning Nýja sviðsins haustið 2001. „Þetta eru einfaldar sögur af fólki með heila- skaða. Þetta er því ekki leikrit í hefðbundnum skilningi og við höfum þurft að búa til sýningu úr kraftaverk hvernig sem á það er litið. Þannig eru engin tvö sjúkdómstilfelli nákvæmlega eins, ekki fremur en engir tveir einstaklingar eru eins.“ Peter samsinnir því að auðveld leið inn í verk af þessu tagi væri að leita eingöngu eftir því spaugi- lega. „Ég hef séð þannig handrit unnin upp úr þessari bók. Það er afskaplega lítið gefandi leið og niðurlægjandi. Það sem mér finnst svo stór- kostlegt við þetta verk er hversu nýjan og fram- andi heim það opnar manni. Maður fyllist undrun yfir hversu flókinn og margbrotinn mannsheilinn er og þótt margt sé fyndið í sýningunni er grunn- tónninn vonandi sleginn að lífið sé sumum mjög erfitt og að á degi hverjum gerast kraftaverk þegar einstaklingar með flókinn heilaskaða geta framkvæmt einföldustu hreyfingar og tjáð sig þrátt fyrir allt.“ efninu; klæða það í leikbúning,“ segir Peter. „Við undirbjuggum okkur með því að ræða við tauga- sérfræðinga, sjúkra- og iðjuþjálfa og áttum meira að segja símasamtal við Oliver Sacks sjálf- an. Það sem gerir þetta ólíkt hefðbundinni vinnu leikara er að þeir hafa lítið sem ekkert úr eigin reynsluheimi að byggja á. Við sögðum hvað eftir annað fyrstu dagana að þetta gæti hreinlega ekki verið, svona væri útilokað að nokkur væri. En annað hefur komið á daginn.“ Til að gefa væntanlegum áhorfendum hug- mynd um hvað það er sem leikararnir stóðu frammi fyrir má ljóstra því upp að persónur verksins eru t.d. haldnar þeim heilaskaða að sjá einungis helming hlutanna. Aðrar eru blindar þótt ekki sé hægt að slá því föstu að nokkuð sé að sjóninni. Enn aðrir geta ekki hreyft líkamann nema með því að horfa á líkamshlutann. Og þann- ig mætti áfram telja. „Við spurðum taugasérfræðingana hvort þetta gæti verið og svarið var alltaf á sama veg: „Já, það er alveg mögulegt en þarf samt alls ekki að vera.“ Í fyrstu þótti okkur þetta ómögulegt svar en það reyndist síðan lykillinn að verkinu, því hver manneskja er einstök og er sannkallað Eftir Peter Brook og Marie-Hélène Esti- enne. Þýðing: Hafliði Arngrímsson. Leikarar: Gunnar Hansson, Halldór Gylfa- son, Halldóra Geirharðsdóttir, Harpa Arn- ardóttir, Sóley Elíasdóttir og Þór Tulinius. Hljóð: Jakob Tryggvason Lýsing: Benedikt Axelsson/Kári Gíslason. Dansar og hreyfingar: Yaron Barani. Leikmynd og búningar: Stígur Stein- þórsson. Leikstjóri: Peter Engkvist. Maðurinn sem hélt að konan hans væri hattur Morgunblaðið/Þorkell Leikhópur Nýja sviðsins skiptist á að leika lækna og sjúklinga. Harpa Arnardóttir stendur, Halldór Gylfason í forgrunni. Kraftaverk á hverjum degi Á Nýja sviði Borgarleikhússins verður frumsýnt í kvöld sérstætt leikverk er nefnist Maðurinn sem hélt að konan hans væri hattur. HÁVAR SIGURJÓNSSON ræddi við leikstjórann Peter Engkvist. Morgunblaðið/Þorkell Gunnar Hansson sýnir Tourette- heilkenni. havar@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.