Morgunblaðið - 06.03.2003, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARS 2003 25
FORNBÓKAVERSLUNIN Gvend-
ur dúllari hefur opnað netverslun á
slóðinni www.gvendur.is. Þar er
hægt að skoða hluta af úrvalinu í
búðinni, bæði með því að skoða bæk-
ur eftir flokkum og leita eftir titlum
eða höfundum. Síðan er beintengd
við gagnagrunn þannig að hægt er
að sjá hvort bækurnar sem við-
skiptavinir leita að séu til, og geta
þeir þá pantað bækur og fengið
sendar heim.
Hilmar Ingimundarson hrl. opnaði
síðuna formlega, en hann hefur verið
viðskiptavinur Gvends dúllara um
árabil.
Hilmar Ingimundarson opnar heimasíðu Gvends dúllara. Með honum á
myndinni er Einar Örn Þorvaldsson sem sá um uppsetningu síðunnar.
Gvendur dúllari opnar vef
ÞRIÐJI og síðasti hluti verkefnisins
Myndbönd og gjörningar stendur
nú yfir í Listasafni Reykjavíkur –
Hafnarhúsi. Verkefnið nefnist
Flash og er til sýnis í fjölnotasal
safnsins. Um er að ræða margmiðl-
unarverk sem var fyrst kynnt árið
1999 en að því stendur hópur
myndlistarmanna og tónlistar-
manna. Verkið skiptist í níu hluta
en að hverjum hluta standa tveir
listamenn; myndlistarmaður og
tónlistarmaður. Verkefnið er sam-
starfverkefni Bifros Foundation og
BALTIC, Centre for Contemporary
Art. Flash verður sýnt á þeim tíma
sem Hafnarhúsið er opið eða dag-
lega frá kl. 10–17 til 9. mars.
Eftirfarandi listamenn vinna
saman að Flash, fyrra nafnið er
heiti myndlistarmanns en síðara
tónlistarmanns: Maarten van Nord-
en & Annette Messager, Voder-
show & Liza May Post, Roderik de
Man & Maura Biava, Paul Termos
& Ansuya Blom, Maarten Altena &
Ger van Elk, Eric Calmes & Henrik
Peeters, Martijn Padding & J.C.
Ruggirello, Chiel Meijering & Jaap
Kroneman og Louis Andriessen &
Marijke van Warmerdam.
Eitt verkanna á sýningunni Flash.
Margmiðl-
unarverk-
efnið Flash
KRISTÍN G. Magnús stendur
fyrir leiklistarnámskeiði í Iðnó
8.–10. mars. Námskeiðið er ætl-
að almenningi frá 16 ára aldri.
Nemendur fá tilsögn í leik-
spuna, persónusköpun, radd-
beitingu, framsögn, tjáningu og
hreyfingum á leiksviði.
Í framhaldi af námskeiðinu
gefst hæfileikaríkum leikurum
kostur á að koma fram í sýn-
ingum Ferðaleikhússins á
Light Nights sem verða í Iðnó í
júlí og ágúst nk.
Skráning á námskeiðið er í
síma 551-9181.
Leiklistar-
námskeið
í Iðnó
Þjóðmenningar-
hús Skáld mán-
aðarins er Grím-
ur Thomsen og
verður sýning á
verkum skáldsins
opnuð kl. 14.30.
Við opnunina
verður sýningin
og efnið á Skóla-
vefnum, skolavef-
ur.is, kynnt auk þess sem Kristján
Jóhann Jónsson framhaldsskóla-
kennari mun kynna Grím Thomsen
í stuttu máli. Síðar í mánuðinum
mun Kristján fjalla frekar um skáld
mánaðarins Grím Thomsen.
Skáld mánaðarins er samvinnu-
verkefni Þjómenningarhúss,
Skólavefjarins ehf. og Lands-
bókasafns Íslands – háskóla-
bókasafns sem setur upp sýninguna
í bókasal Þjóðmenningarhúss.
Í DAG
Grímur Thomsen