Morgunblaðið - 07.03.2003, Side 9

Morgunblaðið - 07.03.2003, Side 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 9 ÞRETTÁN sveitarfélög eða samtök þeirra hafa sýnt áhuga á að gerast rafrænt samfélag og sendu umsókn um þátttöku í verkefninu sem Byggðastofnun stendur fyrir. Skila- frestur umsókna vegna þátttöku í for- vali rann nýlega út og voru umslögin opnuð hjá Ríkiskaupum. Reiknað er með að tvö til fjögur byggðarlög verði valin til að taka þátt í þróunarverk- efnum á árunum 2003–2006. Þau munu fá framlag frá ríkinu til að hrinda í framkvæmd eigin hug- myndum og áætlunum er lúta að framgangi upplýsingasamfélagsins á sínu svæði. Framlag ríkisins er háð því skilyrði að viðkomandi byggðar- lag leggi á móti framlag sem er a.m.k. jafnhátt framlagi ríkisins. Ráðgert er að veita 30–40 milljónir króna á ári úr ríkissjóði í 3–4 ár til verkefnisins í heild. Farið yfir umsóknir Nú tekur við vinna við yfirferð um- sóknanna en vonast er til að niður- stöður liggi fyrir í þessum mánuði. Þau sveitarfélög eða samtök þeirra sem vilja taka þátt í forvalinu eru: Sveitarfélagið Hornafjörður, Akra- neskaupstaður, Dalabyggð, Grundar- fjarðarbær, Aðaldælahreppur, Húsa- víkurbær og Þingeyjarsveit, Dalvíkurbyggð, Hríseyjarhreppur, Ólafsfjarðarbær og Siglufjarðarkaup- staður, Samtök sveitarfélaga á Norð- urlandi vestra, Sveitarfélagið Skaga- fjörður, Öxarfjarðarhreppur og Kelduneshreppur sem sendu inn tvö tilboð, Snæfellsnesbær, Sveitarfélag- ið Árborg, Sveitarfélagið Hveragerði og Sveitarfélagið Ölfus, Vestmanna- eyjabær. Í verkefnislýsingu segir að þróun búsetu og atvinnulífs á landsbyggð- inni muni m.a. byggjast á því hvernig einstaklingum og fyrirtækjum tekst að tileinka sér upplýsinga- og fjar- skiptatæknina og hagnýta sér notk- unarmöguleika hennar. Til þess að landsbyggðin verði virkur þátttak- andi í þessari þróun þurfi að treysta stöðu „upplýsingasamfélagsins“ úti um landið. Áhugi á rafrænu samfélagi „ERTU á leið til útlanda? Afnemum 24,5% vask við kaup á gleraugum gegn framvísun á farseðli“, segir í auglýsingu sem Gleraugnasmiðjan hefur birt í fjölmiðlum. Einar Karlsson, framkvæmda- stjóri Gleraugnasmiðjunnar, segir að ekki sé um það að ræða að verið sé að skjóta undan virðisaukaskatti, verslunin taki á sig afsláttinn sem komi neytendanum til góða. Gler- augnasmiðjan sé heldur ekki fyrst fyrirtækja til þess að nota orðalag af þessu tagi í auglýsingu, Hagkaup hafi riðið fyrst á vaðið. „Við höfum staðið í að okkur finnst ósanngjarni samkeppni við fríhöfnina í Keflavík sem er rekin án virðisaukaskatts. Við erum að lenda í því að missa hugsanlega viðskiptavini sem kannski eru á leið til útlanda sem hugsa með sér að koma við í fríhöfn- inni og fá sér gleraugu þar. Ég hef auðvitað viljað bregðast við þessu og auglýsti m.a. einu sinni gleraugu á frííhfnarverði en þá fékk ég fríhöfn- ina á bakið sem ekki taldi mig geta sannað að ég seldi á fríhafnarverði. Einar segist hafa reynt hugmynd- ina um 6-7 mánuði með auglýsinga- spjöldum innan verslunarinnar sjálfrar. Vsk-laus gleraugu fyrir ferða- langa Bómullarsportfatnaður St. 36-42 & 44—56 Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030. Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. 10—16. Bankastræti 14, sími 552 1555 Ný sending af dönskum sportlegum fatnaði Vorum að taka upp glæsilegt úrval af sumarkjólum Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00. Glæsilegar vörur 30% afsláttur af öllum vörum 7.-10. mars; föstudagur, laugardagur, mánudagur. RÝMUM FYRIR VORLEIKFÖNGUM Þýskar ullarflauelisbuxur og gallabuxur Ný sending Laugavegi 34, sími 551 4301 Full búð af nýjum vörum Grímsbæ, sími 588 8488 Nýkomnir fallegir bolir, blússur og buxur LYF & HEILSA, KRINGLUNNI, MJÓDD OG SELFOSSI. APÓTEKARINN NÓATÚNI OG HAFNARSTRÆTI, AKUREYRI. *TILBOÐIÐ GILDIR FYRIR HYDRIANCE OG LOVING CARE CLAIROL HÁRALITIR Clairol háralitir eru að verða uppseldir á Íslandi vegna breytinga erlends.Þeir sem vilja tryggja sér þessa frábæru háraliti er bent á eftirfarandi verslanir: ÞÚ KAUPIR 1 HÁRALIT OG FÆRÐ ANNAN FRÍAN*  

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.