Morgunblaðið - 17.05.2003, Side 55

Morgunblaðið - 17.05.2003, Side 55
ur er sr.Þórhallur Heimisson sem jafnframt hefur þýtt messuna og altarisgöngusálma sem Per Har- ling samdi í þjóðlagatakti. Messan hefst kl.11.00. Kristniboðsþing heimsækir Hallgrímskirkju ÞING Sambands íslenskra kristni- boðsfélaga hefur setið á rökstólum um þessa helgi. Meginviðfangsefni þingsins hefur verið stefnumörkun fyrir framtíðarstarf sambandsins í Eþíópíu og Kenýa. Þingfulltrúar munu fjölmenna til messu í Hall- grímskirkju næsta sunnudag kl.11.00. Í messunni munu kristni- boðahjónin Ragnar Gunnarsson og Hrönn Sigurðardóttir kynna starf kristniboðssambandsins. Guðsþjón- ustuna annast séra Sigurður Páls- son en með honum mun séra Kjart- an Jónsson, sem starfaði sem kristniboði um árabil, þjóna fyrir altari. Í messunni verða tekin sam- skot til kristniboðsins. Dómkirkjan – Skín við sólu Skagafjörður Á SUNNUDAGINN sækja Skag- firðingar Dómkirkjuna heim. Séra Fjölnir Ásbjörnsson þjónandi sókn- arprestur á Sauðárkróki predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Hjálmari Jónssyni dómkirkju- presti. Kirkjukór Sauðárkróks syngur undir stjórn Rögnvaldar Valbergssonar organista. Einsöng syngur Jóhann Már Jóhannsson. Dómkórinn tekur þátt í messunni og syngur einnig nokkur lög undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar, dómorganista. Messan hefst kl. 14.00 en fyrir messu verður tónlist- arflutningur í um 20 mínútur. Æðruleysismessa í Dómkirkjunni ÆÐRULEYSISMESSA, tileinkuð fólki sem leitar bata eftir tólf- sporaleiðinni verður í Dómkirkj- unni, sunnudaginn, 18. maí kl. 20. Einhver mun segja þar af reynslu sinni úr baráttunni við áfengissýkina. Anna Sigríður Helgadóttir, Hjörleifur Valsson, Birgir og Hörður Bragasynir, sjá um fjölbreytta tónlist. Sr. Karl V. Matthíasson flytur hugleiðingu. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir sam- komuna og sr. Jakob Ágúst Hjálm- arsson leiðir fyrirbæn. Sjá heimasíðu Dómkirkjunnar www.domkirkjan.is. Tónlistarstund í Hjallakirkju TÓNLISTARSTUND maímánaðar verður nk. sunnudag 18. maí kl. 17.00. Erla Björg Káradóttir og Hildur Brynja Sigurðardóttir syngja einsöng, Rannveig Kára- dóttir leikur á flautu, Katalin Lör- incz og Jón Ól. Sigurðsson leika á orgel. Aðgangur er ókeypis. Á efn- isskrá eru Allelúja og Ave María eftir Mozart, Pie Jesu eftir G. Fauré og Ich folge dich gleichfalls eftir Bach, Consertino fyrir flautu og píanó. Einnig orgelverk eftir Bach, Buxtehude, Mendelssohn, Jó- hann Ó. Haraldsson og fleiri. Séra Sigfús Kristjánsson annast talað mál. Allir velkomnir. Kvennakirkjan í Grensáskirkju KVENNAKIRKJAN heldur guðs- þjónustu í Grensáskirkju sunnu- daginn 18. maí kl. 20.30. Yfirskrift- in er: Trú og fyrirmyndir. Arndís Hauksdóttir guðfræðingur prédik- ar. Kór Kvennakirkjunnar leiðir sönginn undir stjórn Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Á eftir verður kaffi í safnaðarheimilinu. Miðvikudaginn 21. maí kl. 17.30 verður síðdegisboð í Kvennagarði, Laugavegi 59, 4. hæð. Hólmfríður Árnadóttir, félagskona í Kvenna- kirkjunni, segir frá ferð sinni til Puerto Rico til að kynnast lífsstíl sem kallast Lifandi fæði. Þessi lífs- stíll er kenndur við Ann Wigmore en hún kom á fót stofnun sem ber nafn hennar. Ann er frá Litháen en fluttist ung til Bandaríkjanna. Hún læknaði sjálfa sig af erfiðum veik- indum með lifandi fæði og eyddi mörgum árum til að rannsaka áhrif lífsstíls og mataræðis á heilsufar manneskjunnar. Hólm- fríður segir frá kenningum Ann, sýnir matartilbúning og gefur að smakka af þessum mat. Morgunblaðið/Jim Smart Grafarvogskirkja KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 55 Við viljum minna á heimasíðuna okkar – www.arthusgogn.is Foxxy: 3ja 184.000, 2ja 140.000, stóll 99.000 Santos: 3ja 120.000, 2ja 110.000, stóll 67.000 ,Balu: 3ja 250.000, 2ja 180.000 stóll 90.000 Tobago: 3ja 130.000, 2ja 110.000 Karat: 3ja 110.000, 2ja 105.000 Leon: 3ja 140.000, 2ja 92.000, stóll 65.000 Ivory: 3ja 150.000, 2ja 130.000 , stóll 70.000 Juwel: 2ja 135.840 Bæjarlind 4 • 201 Kópavogur • Sími 544-5464 mánudaga - föstudaga 10-18 • laugardaga 11-16 • sunnudaga 13-16 Ferming í Húsavíkurkirkju laugardag- inn 17. maí kl. 10.30. Prestur sr. Sig- hvatur Karlsson. Fermd verða: Sigurður Már Sigurðsson, Grundargarði 9. Einar Þór Haraldsson, Héðinsbraut 15. Alexander Björnsson, Baldursbrekku 15. Ísak Garðarsson, Laugarbrekku 22. Guðrún Lísa Harðardóttir, Heiðargerði 11. Heiðrún Dóra Harðardóttir, Lyngbrekku 3. Stefán Jón Sigurgeirsson, Laugarbrekku 3. Bjarki Breiðfjörð Ómarsson, Skálabrekku 3. Gísli Gunnarsson, Baldursbrekku 11. Karolína Kristín Gunnlaugsdóttir, Árholti 3. Silja Rún Reynisdóttir, Grundargarði 7. Sigrún Björg Steinþórsdóttir, Sólbrekku 16. Atli Björgvinsson, Baldursbrekku 7. Elísa Rún Gunnarsdóttir, Steinagerði 6. Laufey Jóhanna Sigurpálsdóttir, Stór- hóli 69. Ferming í Fríkirkjunni, sunnudaginn 18. maí kl. 11. Prestur sr. Hjörtur Magni Jó- hannsson. Fermd verða: Sonja Ósk Kristjánsdóttir, Borgarhrauni 18, Hveragerði. Guðjón Óskar Kristjánsson Borgarhrauni 18, Hveragerði. Walter Fannar Kristjánsson Kambahrauni 60, Hveragerði. Tómas Þór Jónsson, Sólvallagötu 11, Reykjavík Ferming í Oddakirkju á Rangárvöllum, sunnudaginn 18. maí, kl. 13:30. Prest- ur sr. Sigurður Jónsson. Fermd verða: Auður Bergþórsdóttir, Borgarsandi 4, Hellu. Birna Borg Bjarnadóttir, Heiðvangi 9, Hellu. Einar Þór Guðmundsson, Breiðöldu 6, Hellu. Ferming í Stokkseyrarkirkju, sunnu- daginn 18. maí kl. 13.00. Prestur sr. Úlfar Guðmundsson Fermd verða: Ásta Ósk Guðjónsdóttir, Austurvegi 21b, Selfossi. Matthías Þórarinsson, Birkihlíð, Stokkseyri. FERMINGAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.