Morgunblaðið - 27.05.2003, Blaðsíða 16
ERLENT
16 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓÐARFLOKKUR Jose Maria
Aznar, forsætisráðherra Spánar,
þótti ná góðum árangri í bæjar-,
sveitar- og héraðsstjórnarkosning-
unum sem fram fóru um helgina.
Búist hafði verið við því að flokk-
urinn ætti mjög undir högg að sækja
vegna andstöðu almennings við
stuðning þann sem Aznar veitti
Bandaríkjamönnum og Bretum í
Írak. Niðurstaðan þykir umtals-
verður varnarsigur fyrir Aznar en
hann hyggst ekki sækjast eftir end-
urkjöri í kosningum á næsta ári.
Kosið var til 8.111 bæjar- og sveit-
arstjórna um landið allt en einnig
fóru fram kosningar til 13 héraðs-
þinga. Spánn er sambandsríki og
skiptist upp í 17 héruð sem njóta
verulegs sjálfstæðis þótt raunar sé
misjafnt hversu miklu þau fá ráðið
framhjá miðstjórninni í Madríd. Í
hverju héraði er starfandi þing og
stjórn.
Helsti stjórnarandstöðuflokkur-
inn, Sósíalistaflokkurinn, fékk fleiri
atkvæði en Þjóðarflokkurinn og var
þetta raunar besti árangur sósíal-
ista í kosningum á Spáni frá því Azn-
ar komst til valda árið 1996. Sósíal-
istar fengu þegar horft er til
landsins alls um 200.000 fleiri at-
kvæði en Þjóðarflokkur Aznars.
Forsætisráðherrann og menn hans
náðu hins vegar mjög góðum ár-
angri í mörgum af stærri borgum
Spánar. Þeir unnu t.a.m. í Burgos og
Granada en mestu skiptir þó sigur-
inn í borgarstjórnarkosningunum í
Madríd. Þá vann Þjóðarflokkurinn
Valencia. Sósíalistar náðu hins veg-
ar sigri í borgarstjórnarkosningum í
Zaragoza og héldu Sevilla og Barce-
lona.
Hvað héraðsstjórnir varðar tap-
aði Þjóðarflokkurinn Madríd naum-
lega en náði aftur meirihluta á
þinginu á Mallorca. Aðrar breyting-
ar urðu ekki á þessu stigi stjórnsýsl-
unnar.
„Góð byrjun“
Talsmenn beggja stóru flokkanna
kváðust ánægðir með úrslitin.
„Þetta er góð byrjun,“ sagði Jose
Luis Rodriquez Zapatero, leiðtogi
Sósíalistaflokksins, og vísaði þannig
til þingkosninganna sem fram fara á
Spáni á næsta ári. Aznar forsætis-
ráðherra, sem verið hefur við völd
frá 1996, hefur lýst yfir því að hann
hyggist ekki gefa kost á sér í þeim
kosningum. Voru kosningarnar um
helgina því þær síðustu þar sem
hann fer fyrir Þjóðarflokknum.
Í kosningabaráttunni lögðu sós-
íalistar þunga áherslu á stuðning
ríkisstjórnar Spánar við herför
Bandaríkjamanna og Breta gegn
stjórn Saddams Husseins Íraksfor-
seta. Sá stuðningur mæltist ákaf-
lega illa fyrir á Spáni og sýndu skoð-
anakannanir að um 90% þjóðarinnar
voru honum andvíg.
Ríkisstjórnin stóð einnig frammi
fyrir almennri og djúpstæðri
óánægju vegna þess hvernig stjórn-
völd brugðust við olíuslysinu mikla í
nóvember í fyrra við strendur Gal-
isíu í norðvesturhluta landsins.
Hafði því verið spáð að stjórnar-
flokkurinn myndi tapa þar miklu
fylgi en þær hrakspár reyndust ekki
eiga við rök að styðjast. Flokkurinn
fékk 41,5% atkvæðanna þar og tap-
aði innan við fjórum prósentustigum
frá því í kosningunum 1999.
„Frábær úrslit“
Jose Maria Aznar var ánægður
mjög með útkomu flokks síns og
ekki spillti fyrir að eiginkona hans,
Ana Botella, náði kjöri sem borgar-
fulltrúi í Madríd. Er það í fyrsta
skiptið sem hún gegnir pólitísku
embætti. Mikill fjöldi fólks fagnaði
Aznar við höfuðstöðvar Þjóðar-
flokksins í Madríd á sunnudags-
kvöldið. „Þetta eru frábær úrslit,“
sagði Aznar en fólkið hrópaði í kór:
„meistarar, meistarar“ að hætti
fylgismanna knattspyrnuliða. „Þeir
héldu að þeim myndi takast að
þurrka okkur út en við erum öflugri
en nokkru sinni fyrr,“ sagði Aznar.
Forsætisráðherrann brosti sínu
breiðasta og sagði flokkinn nú þann
öflugasta í landinu þegar horft væri
til fjölda borgarstjóra og borgarfull-
trúa.
Þegar nánast öll atkvæði höfðu
verið talin í gær hafði Þjóðarflokk-
urinn tapað tæplega einu prósentu-
stigi á landsvísu borið saman við
héraðs- og sveitarstjórnarkosning-
arnar árið 1999. Flokkurinn hlaut
um 7,8 milljónir atkvæða eða 33,7%.
Sósíalistaflokkurinn bætti við sig
hálfu prósentustigi, hlaut rétt tæpar
átta milljónir atkvæða eða 34,7%.
Aznar tókst
ætlunarverkið
Aznar forsætisráðherra bar uppi
kosningabaráttu Þjóðarflokksins í
von um að vinna á ný það fylgi sem
tapast hafði vegna stríðsins í Írak og
Prestige-olíuslyssins undan strönd
Galisíu. Bæði þessi mál kölluðu fram
einhver fjölmennustu götumótmæli
í sögu Spánar. Var Aznar vændur
um að vera strengjabrúða í höndum
Bandaríkjamanna. Þá var hann sak-
aður um að leiða hjá sér þá örðug-
leika sem olíuslysið kallaði yfir sjó-
menn í Galisíu. Sögðu fréttaskýr-
endur á Spáni í gær ljóst að Aznar
hefði tekist ætlunarverk sitt og góð-
an árangur flokksins bæri fyrst og
fremst að þakka honum.
Róttækir flokkar Baska buðu
ekki fram í kosningunum um
helgina í fyrsta skipti frá því að
Spánn varð lýðræðisríki á ný eftir
dauða einræðisherrans Franciscos
Francos. Róttækum flokkum þjóð-
ernissinnaðra Baska var bannað að
taka þátt í kosningunum vegna
tengsla við ETA-hryðjuverkahreyf-
inguna.
Aðskilnaðarsinnar, sem berjast
fyrir sjálfstæðu Baskalandi á Norð-
ur-Spáni, kváðust hins vegar hafa
unnið siðferðislegan sigur í kosning-
unum því þeir höfðu hvatt stuðn-
ingsmenn sína til að skila auðu í
kosningunum. Það gerðu um
150.000 manns í Baskalandi. Í
Baskalandi og Navarra skiluðu um
tíu prósent kjósenda auðu en hlut-
fallið var um eitt prósent á lands-
vísu.
Nýr flokkur Baska sem nefnist
Aralar fékk næstum 8% greiddra at-
kvæða í kosningum til héraðsþings-
ins í Navarra. Flokkurinn hafnar of-
beldi en berst fyrir sjálfstæðu ríki
Böskum til handa í Baskalandi og
Navarra. Hann fékk fjóra fulltrúa
kjörna á héraðsþinginu í Navarra og
tvo borgarfulltrúa í Pamplona, höf-
uðborg Navarra.
AP
Jose Maria Aznar, forsætisráðherra Spánar, fagnar góðum árangri
ásamt eiginkonu sinni, Önu Botella, og Rodrigo Rato fjármálaráðherra.
Aznar hratt
sókn sósíalista
Jose Maria Aznar, for-
sætisráðherra Spánar,
þykir mega vel við una
eftir kosningar um
helgina þar sem sósíal-
istum mistókst að nýta
sér mikla óánægju al-
mennings vegna stuðn-
ings við stríðið í Írak.
’ Þeir héldu aðþeim myndi takast
að þurrka okkur
út en við erum
öflugri en nokkru
sinni fyrr. ‘
BANDARÍKJAMENN leggja nú
áherslu á að efla innlent lögreglulið
í Bagdad til að binda enda á óöldina
í borginni. Þótt yfirmenn hernáms-
dyr eftir að kvöldsett er orðið. Hér
sést bandarískur herlögreglumað-
ur taka mál af íröskum lögreglu-
manni vegna nýs einkennisbúnings.
liðsins segi að ástandið fari skán-
andi kvarta borgararnir undan því
að vopnaðir glæpamenn vaði uppi
og fáir hætta sér út fyrir hússins
Reuters
Nýr lögreglubúningur í Bagdad
SHERPINN Lakpa Gyelu
setti aðfaranótt mánudagsins
nýtt hraðamet í göngu á Ever-
estfjall, hæsta tind heims, þeg-
ar hann komst á tindinn á 10
klukkustundum og 56 mínút-
um. Gamla metið átti Pemba
Dorjee, 12 stundir og 45 mín-
útur en það var sett í síðustu
viku. Þetta var í 10. skipti sem
Lakpa Gyelu gengur á Everest.
Hann kleif fjallið fyrst árið
1993 og hefur síðan farið þang-
að upp nánast á hverju ári.
Báðir lögðu þeir Pemba
Dorjee og Lakpa Gyelu af stað
frá svonefndum grunnbúðum
sem eru í 5.300 metra hæð en
fjallið er 8.848 metrar. Yfirleitt
tekur það fjallgöngumenn fjóra
daga að komast úr grunnbúð-
um á tind Everestfjalls.
Þá setti Sherpinn Appa nýtt
met þegar hann kleif Everest í
13. skipti. Appa fór í 12. skiptið
á Everest í fyrra og sagðist eft-
ir það vera hættur fjallgöngum.
Hann fór fyrst á Everest árið
1989.
Sherpar búa í Himalajafjöll-
um. Áður en Nepal opnaði
landamæri sín fyrir fjallgöngu-
mönnum og ferðamönnum fyrir
um hálfri öld voru Sherpar
einkum jakuxahirðar en stór
hópur þeirra hefur nú viður-
væri af því að lóðsa fjallgöngu-
menn um Himalajafjöll.
Everest-
met
slegið
á ný
Katmandu. AFP.
PETER Hollingworth, ríkisstjóri í
Ástralíu, tilkynnti um afsögn sína
á sunnudag en undanfarnar vikur
hefur mjög verið að honum sótt
vegna ýmissa hneykslismála. Hef-
ur Hollingworth, sem var sem rík-
isstjóri sérlegur fulltrúi Elísabetar
Bretadrottningar, verið sakaður
um að hafa – er hann var erkibisk-
up í Brisbane á síðasta áratug –
hylmt yfir með barnaníðingi í
prestastétt. Hollingworth neitar
öllum ásökunum en sagði að hann
vildi ekki að málið skaðaði rík-
isstjóraembættið enn frekar. Þykir
líklegt að sú orrahríð, sem staðið
hefur um Hollingworth, verði til að
kveikja enn á ný umræðu um það
meðal Ástrala hvort rétt sé að
rjúfa tengslin við bresku krúnuna
og lýsa yfir stofnun ástralsks lýð-
veldis.
Hollingworth hafði einnig verið
sakaður um nauðgun og átti hún
að hafa átt sér stað á sjöunda ára-
tugnum. Því máli var vísað frá
dómi sl. föstudag.
Fulltrúi drottningar segir af sér
Sydney. AFP.
EFTIRLITSMENN á vegum Sam-
einuðu þjóðanna munu í lok vikunnar
fara til Íraks til að kanna hvað orðið
hafi um geislavirk efni sem notuð
voru í stærstu rannsóknastöð lands-
ins við Tuwaitha. Stöðin er um 50 kíló-
metra frá höfuðborginni Bagdad.
Þjófar hafa þegar farið ránshendi
um Tuwaitha og fleiri rannsókna-
stöðvar og hafa menn haft áhyggjur
af því að hættuleg efni hafi þannig
dreifst víða. Talsmaður Alþjóðakjarn-
orkumálastofnunarinnar (IAEA),
Mark Gwozdecky, sagði að athugað
yrði hvort geislavirk efni sem stofn-
unin innsiglaði þegar árið 1991 væru
enn á sínum stað.
„Verkefnið er að fá staðfest að
Írakar fullnægi settum skilyrðum um
öryggi,“ sagði Gwozdecky. Hann
sagði að kannað yrði hvað hefði horfið
og jafnframt til hvaða ráðstafana
þyrfti að grípa til að ná aftur þýfinu
og koma því fyrir á öruggum stað.
Fyrir Íraksstríðið er talið að um tvö
tonn af auðguðu úrani hafi verið í
Tuwaitha og nokkur tonn af náttúru-
legu úrani hafi verið geymt í stöðinni.
Gwozdecky sagði að ekki væri um að
ræða að verið væri að hefja aftur
vopnaeftirlit SÞ sem lauk rétt áður en
stríðið hófst. Starf liðsmanna þess
væri ákveðið af öryggisráði SÞ en
Bandaríkjamenn myndu á hinn bóg-
inn ákveða starfssvið eftirlitsmann-
anna sem færu nú af stað.
Talsvert var af öðrum tegundum
geislavirkra efna í Tuwaitha sem
hugsanlegt er að nota mætti í svo-
nefnda geislasprengju.
Liðsmenn IAEA
til Íraks
Kanna
ástand
úranbirgða
Vín. AP.