Morgunblaðið - 28.09.2003, Page 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
STJÓRN Sjóvár-Almennra trygginga hf. sendi
Kauphöll Íslands bréf síðdegis á föstudag þar sem
kemur fram að boðað verður til hluthafafundar inn-
an 14 dag.
„Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur bor-
ist krafa frá Íslandsbanka hf. um að haldinn verði
hluthafafundur í félaginu þar sem tillaga verði borin
upp um breytingar á samþykktum félagsins og
kosningu stjórnar. Stjórninni hefur jafnframt bor-
ist krafa frá Afli fjárfestingarfélagi hf. og Fjárfest-
ingarfélaginu Atorku hf. um að boðað verði til hlut-
hafafundar þar sem bornar verði upp tillögur sem
snúa annars vegar að viðskiptum með eigin hluti fé-
lagsins til Íslandsbanka hf. og hins vegar að útboði á
fjármálaviðskiptum félagsins.
Stjórn félagsins hefur samþykkt að boða til hlut-
hafafundar innan 14 daga frá móttöku kröfu hlut-
hafa um að haldinn verði hluthafafundur. Boðað
verður til fundarins fyrir 10. október næstkomandi.
Á dagskrá fundarins verði eftirfarandi tillögur
bornar upp, að kröfu hluthafa:
1. Breyting á samþykktum félagsins. Borin verð-
ur upp tillaga um fækkun stjórnarmanna.
2. Kosning stjórnar.
3. Tillaga um að Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
bjóði öll fjármálaviðskipti sín út í almennu útboði.
Fjárfestingarfélagið Atorka hf. og Afl fjárfest-
ingarfélag hf. höfðu óskað eftir því að borin yrði upp
tillaga á hluthafafundi um riftun/ógildingu o.fl.
vegna viðskipta með eigin hluti félagsins til Íslands-
banka hf. að nafnverði 11.258.146, sem eru 2% af
heildarhlutafé félagsins. Viðskipti þessi fóru fram
þann 18. september 2003. Stjórn félagsins hefur
ákveðið, í samráði við Íslandsbanka hf., að þau við-
skipti gangi til baka miðað við sömu kjör og eru
þessir hlutir því í eigu félagsins á ný. Var þessi
ákvörðun stjórnar tekin til þess að eyða allri tor-
tryggni um viðskiptin gagnvart umræddum hlut-
höfum og hugsanlega öðrum. Þessi viðskipti höfðu
farið fram á skráðu markaðsgengi, sem var þá 37,
og voru á allan hátt eðlileg. Telur stjórnin hins veg-
ar afar óheppilegt að fullkomlega eðlileg viðskipti
séu gerð tortryggileg gagnvart almenningi og hlut-
höfum félagsins á þann hátt sem gert er í nefndri
tillögu. Af þessum sökum var þessi ákvörðun tekin.
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. sendu Kauphöllinni bréf um hluthafafund
Hluthafafundur fyrir 10. október
ÖSSUR hf. hefur samið um kaup á bandarísku
fyrirtækjasamstæðunni Generation II Group,
sem sérhæfir sig í spelkum til nota vegna lið-
bandaáverka, slitgigtar og eftir skurðaðgerðir.
Kaupverðið er 31 milljón dollara eða sem svarar
til 2,4 milljarða íslenskra króna.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, segir að
kaupin hafi mikla þýðingu hvað varðar sókn Öss-
urar á hinn svokallaða stuðningstækjamarkað.
„Þetta fellur mjög vel að okkar rekstri og við
fáum þarna mjög breytt sölukefi bæði í Banda-
ríkjunum og Kanada sem mun einnig gagnast
okkar núverandi vörulínu á stoðtækjamarkaðn-
um. Fyrirtækið hefur mjög fullkomna og góða
vörulínu í hnjáspelkum og er með mjög sterka
markaðsstöðu í spelkum vegna slitgigtar. Einnig
fellur þetta vel að vörulínu okkar í ökklaspelkum
sem við komum út með í byrjun þessa mánaðar.“
Um samlegðarðáhrif af kaupunum segir hann
ljóst að þau verði töluverð en ekki sé tímabært
að ræða það nánar. Gengið verði frá kaupunum
innan þriggja vikna og þá muni nánari upplýs-
ingar liggja fyrir.
Generation II er forystufyrirtæki á sviði þró-
unar og framleiðslu á hnjáspelkum í Norður-
Ameríku, að því er segir í tilkynningu. Hjá fyr-
irtækinu starfa 168 manns og er það með starf-
semi í Vancouver í Kanada, Seattle í
Bandaríkjunum og Brussel í Belgíu. Össur er í
forystu um framleiðslu og sölu stoðtækja, en
framleiðir einnig og selur stuðningsvörur á
Norðurlöndunum. Í tilkynningu segir að kaup
Össurar á Generation II muni auka tækifæri fé-
lagsins á markaði fyrir stuðningstæki til muna
en félagið hóf nýverið að markaðssetja ökkla-
spelkur og er það fyrsta vörulína Össurar á þess-
um markaði.
Haft er eftir Dean Taylor, stofnanda og fram-
kvæmdastjóra Generation II Group að sala fyr-
irtækisins muni skila sér til viðskiptavina þess í
fjölbreyttara vöruúrvali og auknu svigrúmi til að
halda áfram metnaðarfullu rannsóknar- og þró-
unarstarfi. Þá er haft eftir Alan Young, forstjóra
fyrirtæksins í Bandaríkjunum, að samruninn sé
spennandi tækifæri fyrir starfsfólkið til að vinna
með fremsta fyrirtæki á sínu sviði. Áætlað er að
tekjur Generation II Group verði rúmar 20 millj-
ónir dollara eða ríflega 1,5 milljarðar íslenskra
króna á tólf mánaða tímabili sem lýkur 30. sept-
ember 2003.
Árstekjur aukist um 20%
Í Morgunkorni Íslandsbanka í gær sagði að
með kaupunum mætti ætla að samanlagðar árs-
tekjur samstæðu Össurar ykjust um liðlega 20%.
Ekki hefði verið upplýst hvernig staðið yrði að
fjármögnun kaupanna en telja mætti að Össur
mundi ekki þurfa að ráðast í útgáfu nýrra hluta
vegna þeirra.
Verð hlutabréfa í Össuri hækkaði um 6,1% í
Kauphöll Íslands í gær og var lokaverð dagsins
52,5 krónur á hlut en markaðsverð Össurar er
samkvæmt þessu 17.243 milljónir króna.
Össur kaupir Generation
II fyrir 2,4 milljarða
VÖRUFLUTNINGABIFREIÐ frá
Landflutningum hf. með 23 tonn af
óunninni rækju á leið til Ísafjarðar,
valt á veginum í Bitrufirði rétt fyrir
sunnan bæinn Bræðrabrekku á föstu-
dagskvöld. Óhappið varð þegar bíl-
stjórinn mætti annarri flutningabif-
reið og mun vegkantur hafa gefið sig
með þeim afleiðingum að bifreiðin
lagðist á hliðina. Bílstjórinn slapp
ómeiddur en ekki er fullljóst með
skemmdir á bifreiðinni. Henni var
náð upp á veg í í fyrrinótt og komu
björgunarsveitamenn Slysavarna-
félagsins Landsbjargar á vettvang til
að bjarga farminum. Svo virtist sem
rækjukassarnir væru óskemmdir.
Valt með 23
tonn af rækju
ÍSLENSKI leikhópurinn Vestur-
port frumsýnir Rómeó og Júlíu eft-
ir William Shakespeare á miðviku-
dag í hinu kunna leikhúsi
Lundúnaborgar, Young Vic. Er
þetta í fyrsta sinn sem íslensk upp-
færsla með íslenskum leikurum fer
á fjalir eins af stóru leikhúsunum í
Lundúnum. Íslenskur leikhópur
hefur ekki áður sýnt fullmótað verk
í einu þekktasta leikhúsi Evrópu án
opinberra styrkja.
Hið kunna leikrit Rómeó og Júlía
er hér í leikgerð Gísla Arnar Garð-
arssonar, Hallgríms Helgasonar og
Tanya Ronders. Verkið verður sýnt
sjö sinnum í viku fram til 25. októ-
bers nk. Sýningin er ein af aðalsýn-
ingum leikhússins þetta leikárið.
Auk þess að vera einn aðalleikari
sýningarinnar er Gísli Örn leik-
stjóri ásamt Bretanum Rufus Norr-
is. Um tuttugu Íslendingar hafa
dvalið í Lundúnum síðustu tvær
vikurnar við undirbúning og æfing-
ar.
Hefur mikla trú á ungu
íslensku listafólki
Björgólfur Thor Björgólfsson,
kaupsýslumaður, sem búsettur er í
Lundúnum, styrkir uppfærsluna og
kemur að ýmsum þáttum hennar.
Björgólfur Thor segist hafa mikla
trú á ungu íslensku listafólki og er
hann sannfærður um að það eigi
fullt erindi á leiksvið í borg leikhús-
anna. „Ég hef trú á þessum lista-
mönnum. Ég er reiðubúinn að
leggja mitt af mörkum og greiða
fyrir útrás þeirra. Íslenskt hugvit
og íslenskt hæfileikafólk á fullt er-
indi og mun standast harða sam-
keppni á erlendum vettvangi. Ég er
sannfærður um að framfarir í ís-
lensku listalífi sem og öllu öðru at-
hafnalífi byggjast á því að okkar
besta fólk fái tækifæri erlendis. Þar
eru möguleikarnir og mig grunar
að þessi sýning á Rómeó og Júlíu
hér í London sýni öllum að Íslend-
ingar eiga fullt erindi inn á stóra
sviðið.“
„Okkur í Vesturporti var það
mikill heiður að fá boð um að sýna
Rómeó og Júlíu í Young Vic-leik-
húsinu í London. Eykur það vonir
okkar Íslendinganna um að fá fleiri
tækifæri erlendis,“ segir Gísli Örn
Garðarsson leikstjóri og forsprakki
sýningarinnar.
„Án stuðnings Björgólfs Thors
hefði þetta hins vegar ekki verið
hægt. Þá skiptir stuðningur Björg-
ólfs Thors leikhópinn miklu máli
því hann tekur þátt í verkefninu af
heilum hug og er rekinn áfram af
sömu ástríðu og áhuga og við vor-
um þegar við byrjuðum heima í
fyrra og nærumst enn á hér í Lond-
on.“
Aðrir helstu leikarar í sýning-
unni eru Nína Dögg Filippusdóttir
og Björn Hlynur Haraldsson. Gott-
skálk Dagur Sigurðarson og Krist-
ín Ólafsdóttir eru framleiðandur
sýningarinnar í Lundúnum.
Rómeó og Júlía sett upp á fjölum Young Vic-leikhússins í London
Björgólfur Thor Björgólfsson og Gísli Örn Garðarsson fagna undirritun samstarfssamnings á sviði Young Vic-
leikhússins. Leikararnir Björn Hlynur Haraldsson og Nína Dögg Filippusdóttir sveifla sér í rólunum fyrir aftan þá.
„Íslendingar eiga erindi á stóra sviðið“
MORGUNBLAÐINU hefur borist
yfirlýsing frá stjórn Sjóvár-Al-
mennra trygginga hf. Tilefnið er
bréf sem barst stjórn Sjóvár-Al-
mennra frá nokkrum hluthöfum í
félaginu, en fjallað hefur verið um
það í fjölmiðlum. Vegna bréfsins
vill stjórn félagsins taka eftirfar-
andi fram.
„Stjórn og stjórnendum Sjóvá-
Almennra trygginga hf. er mjög
umhugað um að jákvæðni ríki í
hópi viðskiptavina, starfsmanna og
eigenda félagsins í tengslum við
kaup Íslandsbanka á ráðandi hlut í
félaginu. Markmið með kaupum
bankans er að tryggja hagsmuni
viðskiptavina og hluthafa og
styrkja samkeppnisstöðu til fram-
tíðar. Að mati stjórnar félagsins er
alls ekki tilefni til að tortryggja
sölu á eigin bréfum til Íslands-
banka. Að sölunni var á allan hátt
eðlilega staðið og engin leynd
hvíldi á því að viðskiptin hefðu átt
sér stað. Þrátt fyrir þá afstöðu að
rétt hafi verið að málum staðið
hefur stjórn félagsins í samráði við
bankann ákveðið að viðskiptin
verði látin ganga til baka. Ein-
ungis er um að ræða 2% hlut í fé-
laginu og hefur sá hlutur engin úr-
slitaáhrif um framgang viðskipt-
anna. Meðfylgjandi er frétta-
tilkynning sem send var til
Kauphallar Íslands í lok dags í
gær, en þar kemur fram að við-
skiptin hafi verið afturkölluð og
eru hinir seldu hlutir því komnir í
eigu félagsins á ný.“
Yfirlýsing
frá Sjóvá-
Almennum
SHELL og Olís ákváðu í gær að
lækka verðið á lítra af bensíni um
3,50 kr., en ESSO tilkynnti um sam-
svarandi lækkun á föstudag.
Eftir breytingarnar er lítraverðið
á 95 oktana bensíni í sjálfsafgreiðslu
92,60 kr., en fullt þjónustuverð er
96,60 kr. Handhafar vildarkorta
Shell fá viðbótarafslátt í formi
punkta sem jafngildir um 1,50 kr.
fyrir hvern keyptan bensínlítra á
stöðvum félagsins.
Bensínið
lækkar líka
hjá Olís
og Shell
♦ ♦ ♦
FÁLKI, sem undanfarinn mánuð
hefur dvalið á byggðasafninu á Höfn
í Hornafirði, fer á næstu dögum í
Húsdýragarðinn í Reykjavík þar
sem hann fær lögheimili, að því er
kemur fram á fréttavefnum Horni.is.
Fálkinn var skaddaður á væng og
gat ekki flogið þegar hann fannst og
var settur í hjallinn við Gömlubúð
þar sem hann hefur dvalið í góðu yf-
irlæti síðan. Fálkinn gæðir sér á
ýmsu góðgæti.
Fálki í Hús-
dýragarðinum
♦ ♦ ♦