Morgunblaðið - 28.09.2003, Page 44
DAGBÓK
44 SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Sel-
foss kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Haust-
litaferð Aflagranda
verður farin miðviku-
dag 1. október kl.13.30
ekið verður um Línu-
veg - Grafning - Þing-
velli og að Básum þar
sem boðið er í kaffi-
hlaðborð. Fararstjóri
Nanna Kaaber. Skrán-
ing í síma 562 2571 og
á staðnum.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Haustfagn-
aður í félagsstarfinu
verður 2. október í
Tónlistarskólanum í
Garðabæ og hefst kl.
20. Garðakórinn verð-
ur með fjölbreytta
söngdagskrá, ungir
dansarar koma og
dansa og fimleika-
stúlkur sýna fimleika
og ýmislegt fleira verð-
ur til skemmtunar.
Akstur frá Hleinum og
Holtsbúð. Allir vel-
komnir.
Félag eldri borgara í
Garðabæ. Hrafnkell
Helgason læknir held-
ur fyrirlestur um Pál
biskup í Garðabergi
miðvikudaginn 1. okt.
kl. 14.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Dansleikur
kl. 20 í kvöld Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið opnað kl. 9.
Pútt- og biljardsalir
opnir til kl. 16.
Gerðuberg, félags-
starf. Á morgun kl. 9–
16.30 vinnustofur opn-
ar, frá hádegi spilasal-
ur opinn, dans fellur
niður, s. 575 7720.
Korpúlfar, Grafarvogi.
Á morgun, mánudag,
ferð til Akraness kl. 10
frá Miðgarði.
Vesturgata 7.
Fimmtudaginn 2. októ-
ber kl. 10.30 verður
helgistund í umsjón
séra Jakobs Ágústs
Hjálmarssonar dóm-
kirkjuprests. Kór fé-
lagsstarfs aldraðra
syngur við undirleik
Sigurbjargar P. Hólm-
grímsdóttur. Félags-
og þjónustumiðstöðin
verður 14 ára föstu-
daginn 3. október. Af
því tilefni verður gest-
um og velunnurum
boðið í morgunkaffi frá
kl. 9.15–10.15. Sig-
urbjörg P. Hólmgríms-
dóttir spilar á flygilinn.
Hana-nú, Kópavogi.
Mánudagskvöldið 29.
september verður
fundur í Gjábakka sem
hefst kl. 20 og stendur
til 21.30. Fundarefni:
Eru mánudagar til
mæðu?
Í panel sitja: Guðrún
Ásmundsdóttir, Sigrún
Valbergsdóttir, Magn-
ús Randrup og Theó-
dór Júlíusson.
Allir velkomnir, ungir
sem aldnir!
Leshópurinn í Gull-
smára efnir til síns
fyrsta bókmennta-
kvölds á þessu hausti
þriðjudaginn 7. októ-
ber í félagsheimilinu
Gullsmára. Samveran
hefst kl. 20 og lýkur kl.
21.15. Gluggað verður í
ljóð Vilborgar Dag-
bjartsdóttur. Skáld-
konan mætir á staðn-
um. Allir eldri bóka- og
ljóðavinir velkomnir.
Leshópurinn hittist
reglulega fyrsta
þriðjudag í hverjum
mánuði.
Minningarkort
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum í
Reykjavík: Skrifstofu
Hjartaverndar, Holta-
smári 1, 201 Kópavogi,
s. 535-1825. Gíró og
greiðslukort. Dval-
arheimili aldraðra,
Lönguhlíð, Garðsapó-
tek, Sogavegi 108, Ár-
bæjarapótek,
Hraunbæ 102a, Bók-
bær í Glæsibæ, Álf-
heimum 74, Kirkjuhús-
inu, Laugavegi 31,
Bókabúðinni Grímsbæ,
v/ Bústaðaveg, Bóka-
búðinnni Emblu,
Völvufelli 21, Bókabúð
Grafarvogs, Hverafold
1–3.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á
Reykjanesi: Kópavog-
ur: Kópavogsapótek,
Hamraborg 11. Hafn-
arfjörður: Lyfja, Set-
bergi. Sparisjóðurinn,
Strandgata 8–10,
Keflavík: Apótek
Keflavíkur, Suðurgötu
2, Landsbankinn Hafn-
argötu 55–57.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á Vest-
urlandi:
Akranes: Hagræði hf.,
Borgarnes: Dalbrún,
Brákarbraut 3.
Grundarfjörður:
Hrannarbúð sf.,
Hrannarstíg 5. Stykk-
ishólmur: Hjá Sesselju
Pálsd., Silfurgötu 36.
Ísafjörður: Póstur og
sími, Aðalstræti 18.
Strandasýsla: Ásdís
Guðmundsd. Laugar-
holti, Brú.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á Aust-
urlandi:
Egilsstaðir: Gallery
Ugla, Miðvangur 5.
Eskifjörður: Póstur og
s., Strandgötu 55.
Höfn: Vilborg Einars-
dóttir Hanarbraut 37.
Minningarkort Hjarta-
verndar fást á eftir-
töldum stöðum á Suð-
urlandi:
Vestmannaeyjar: Apó-
tek Vestmannaeyja,
Vestmannabraut 24.
Selfoss: Selfossapótek,
Kjarninn.
Í dag er sunnudagur 28. sept-
ember, 271. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Öll jörðin nýtur nú
hvíldar og friðar, fagnaðarópin
kveða við.
(Jes. 14, 7.)
Í störfum sínum þurfaþingmenn að sitja
marga misþýðingarmikla
fundi og hitta fjölda
fólks. Síðasta mánudag
hitti Helgi Hjörvar, al-
þingismaður, kollega sína
frá Færeyjum. Segir
hann að Íslendingar geti
margt af þeim lært: „Það
er nefnilega þannig í litlu
Færeyjum að þingmenn
færeyska lögþingsins
geta ekki setið jafnframt
sem ráðherrar. Gerist
þingmaður ráðherra
kemur einfaldlega annar
þingmaður í hans stað. Sú
skipan hefur stundum
verið rædd í íslenskri
þjóðmálaumræðu, en þá
gjarnan með vísan til fyr-
irkomulagsins í Banda-
ríkjunum sem eru þúsund
sinnum fjölmennara ríki
en við. Er ekki skyn-
samlegra að líta okkur
nær?
Kostir fyrirkomulags-ins eru ótvíræðir.
Þessi einfalda regla skil-
ur betur að fram-
kvæmdavald og löggjaf-
arvald og gerir lög-
gjafarvaldið líklegra til
þess að vega og meta til-
lögur og frammistöðu
framkvæmdavaldsins
með sjálfstæðum hætti.
Þannig er einfaldlega
meiri von til þess í þessu
fyrirkomulagi að þingið
veiti framkvæmdavaldinu
það aðhald sem sann-
anlega þarf.
Í ljósi þess hve undir-gefið þing okkar hefur
jafnan verið fram-
kvæmdavaldinu,“ segir
Helgi, „er full ástæða fyr-
ir okkur að leita þessarar
og annarra leiða til að
auka aðgreiningu vald-
þáttanna og sjálfstæði
þeirra. Það er enda vand-
séð hverjir vankantar
færeysku skipanarinnar
eru. Var þetta ekki líka
landsfundarstefna Fram-
sóknarflokksins? Eða
misminnir mig? Eins og
þetta með Siglufjarð-
argöngin, línuívilnunina
og íslensku uppgripa-
störfin á Kárahnjúk-
um...“
Ögmundur Jónasson,þingmaður VG, situr
ekki síður fundi og þá
annað hvort sem þing-
maður eða formaður
BSRB. Héldu samtök
hans nýlega utan um þing
Starfsmannasamtaka rík-
isútvarpsstöðva á Norð-
urlöndunum þar sem
ályktun um eflingu út-
varps í almannaeign var
samþykkt. „Á meðal
frummælenda var und-
irritaður og Pétur H.
Blöndal alþingismaður.
Hann lagði áherslu á að
efla bæri markaðsútvarp
og taldi það í reynd
lýðræðislegra en rík-
isútvarpsstöðvar.
Hagsmunir eigenda
markaðsútvarpsstöðva
væru að þjóna almenn-
ingi sem best og væri
þeirra vegvísir því heppi-
legri en „forræðis-
hyggja“ hinna sem stýrðu
ríkisreknum stöðvum.“
Ögmundur hafði aðra sýn
og skýrði hana vel fyrir
norrænum ríkisstarfs-
mönnum.
STAKSTEINAR
Sjálfstætt þing og nor-
rænir ríkisstarfsmenn
Víkverji skrifar...
ÞAÐ fer alveg hryllilega ítaugarnar á Víkverja að
fréttatímar Stöðvar 2 og RÚV
séu á sama tíma. Starfs síns
vegna þarf hann að fylgjast með
báðum fréttatímum sem er nú
hörku púl. Víkverji botnar ekk-
ert í þessari ákvörðun Stöðvar 2
og finnst rök um að þessi tíma-
setning styrki Ísland í dag og að
hún sé „besta uppleggið“ sem
stöðin hafi, eins og Karl Garð-
arsson fréttastjóri orðaði það í
viðtali í Morgunblaðinu, ekki
sannfærandi. Karl viðurkennir að
þetta muni draga úr áhorfi á frétta-
tíma beggja stöðva svo ekki er breyt-
ingin nú gerð til að ná fleiri áhorf-
endum.
x x x
VÍKVERJI sér mikið eftir GuðrúnuGunnarsdóttur og Snorra Má
Skúlasyni úr Íslandi í dag. Honum
finnst nýju þáttarstjórnendurnir ekki
eins góðir þótt þau séu bæði lifandi og
skemmtileg og taki sig vel út á skján-
um. Víkverja finnst þau nefnilega
grípa allt of mikið fram í fyrir við-
mælendum sínum. T.d. þegar móðir
kom til að segja frá einelti sem dóttir
hennar varð fyrir voru það stjórnend-
urnir en ekki móðirin sem röktu sög-
una og var þetta hálfvandræðalegt að
horfa á. Þá var alveg skelfilegt að sjá
þau taka orðið aftur og aftur af Soph-
iu Hansen þegar hún ræddi um dóm
Mannréttindadómstólsins. Þó að við-
mælendur hiki og komi ekki orðum
alltaf hratt og örugglega að hlutunum
er alls ekki þörf á að taka af þeim
orðið.
x x x
VÍKVERJA finnast þættir JónsÓlafssonar, Af fingrum fram, sér-
staklega skemmtilegir. Þó fer einnig í
taugarnar á honum, líkt og með Ís-
land í dag, hvað Jón á það til að
grípa fram í fyrir viðmælendum.
Jón er fróður um sögu tónlistar á
Íslandi og sögu margra sinna
viðmælenda. En hann má nú al-
veg leyfa þeim sjálfum að segja
söguna, við vitum eftir sem áður
að hann er sérfræðingurinn.
x x x
VÍKVERJA finnst KastljósRÚV frekar lummulegur
þáttur samanborið við breytt yf-
irbragð Íslands í dag. Það mætti
gera miklu meira af því að hafa létt-
meti og tala við fólkið í landinu, vera á
faraldsfæti. Endalausar umræður í
stúdíóinu eru oft frekar þreyttar.
Föstudagskastljósið stendur þó alltaf
fyrir sínu og er ómissandi fyrir hverja
helgi.
x x x
SJÓNVARPSÞÁTTURINN Idol,eða Stjörnuleit, er byrjaður á
Stöð 2 og lofar góðu að mati Víkverja.
Honum finnst reyndar sárt að sjá
dómarana þrjá fella harða dóma yfir
söngvurunum, sérstaklega þegar þeir
eru ungir og viðkvæmir. En út á
þetta gengur víst leikurinn.
Stjörnuleitin á Stöð 2 lofar góðu.
ÉG þurfti að sækja um svo-
kallað P-kort til að nota á
bílastæðum en ég er hreyfi-
hömluð. Stundum þarf ég
að vera með hækjur eða
grind, en er ekki í hjólastól.
Var mér bent á að sækja
um þetta hjá lögreglunni,
því næst Tryggingastofn-
un, hjá Ríkislögreglustjóra
og hjá Lömuðum og fötluð-
um.
Eftir að hafa verið send á
milli ofangreindra aðila
náði ég loks sambandi við
manneskju í Hátúni 12 sem
gat sent mér eyðublað í
pósti.
Vil ég benda þeim sem
málið varðar á hversu erfitt
manni er gert fyrir þegar
verið er að senda mann
svona á milli stað. Geta
þessir aðilar ekki haft rétt-
ar upplýsingar við höndina
þegar fólk kemur í þessum
erindum?
Hreyfihömluð kona.
Lágmarkskurteisi
ÉG er ein af þeim sem er í
atvinnuleit. Í þeirri leit
felst að senda þarf fer-
ilskrá, meðmæli og ýmis
persónuleg gögn til at-
vinnurekenda. Oft á tíðum
veit maður ekki hvaða fyr-
irtæki um er að ræða.
Finnst mér lágmarkskurt-
eisi að viðkomandi fyrir-
tæki sendi manni gögnin til
baka eða a.m.k. láti vita að
maður hafi ekki komið til
greina. Finnst mér mjög
óþægilegt að vita að svona
persónuleg gögn um mig
liggi hingað og þangað.
Mörg fyrirtæki fara fram
á að umsækjandi sendi með
umsókninni mynd, er ég al-
farið á móti því, held að það
verði til þess að of mikið sé
einblínt á mynd en ekki á
hæfni viðkomandi.
Ein í atvinnuleit.
Sérsaumaður
sundbolur
ER einhver sem getur bent
mér á hvar ég get fengið
sérsaumaðan sundbol? Þeir
sem geta gefið upplýsingar
eru vinsamlega beðnir að
hafa samband í síma
551 1307.
Tapað/fundið
Olympus-myndavél
týndist
GRÁ Olympus-myndavél í
gráu hulstri tapaðist fyrir
um mánuði síðan á Akur-
eyri eða við Jólahúsið í
Eyjafirði. Í vélinni er filma
með myndum af tveim
stelpum í og við Jólahúsið
sem áttu að fara á jólakort
og er þess sárt saknað. Ef
einhver hefur fundið vélina,
vinsamlega hafið samband
við Jóhönnu í síma 849 5984
eða 453 5775.
Hjól týndist
GARY Fisher-hjól týndist
við Smáraskóla föstudag-
inn 29. ágúst. Hjólið er
svart, hvítt og gult. Þess er
sárt saknað af eiganda sín-
um. Þeir sem hafa orðið
varir við hjólið hafi sam-
band í síma 660 4022.
Gullarmband
týndist
GULLARMBAND týndist
mánudaginn 15. septem-
ber, líklegst í eða við Leit-
arstöð Krabbameinsfélags-
ins við Skógarhlíð. Finn-
andi vinsamlega hafi sam-
band við Birgittu í síma
659 0606.
Antikveggklukka
glataðist
ANTIKVEGGKLUKKA
glataðist úr dánarbúi. Síð-
ast er vitað um klukkuna
fyrir 10 árum í antikverslun
sem þá var starfrækt á
Hverfisgötu en er nú flutt
þaðan. Sá sem veit um
þessa klukku – eða sá sem
hefur keypt hana – er beð-
inn að hafa samband í síma
565 3912 eða 693 3912.
Dýrahald
Vantar
kettling
VANTAR kettling, fress,
ekki eldri en 3ja mánaða.
Helst svartan eða svartan
og hvítan. Upplýsingar í
síma 662 4637.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Gert erfitt
fyrir
Morgunblaðið/Ásdís
LÁRÉTT
1 meyr, 4 grískur bók-
stafur, 7 minnist á, 8 inn-
heimta, 9 tjón, 11 nöldra,
13 lof, 14 þukla á, 15 auð-
mótuð, 17 geð, 20 spor,
22 árás, 23 bál, 24 ílátið,
25 gabba.
LÓÐRÉTT
1 háðsbros, 2 fóstrið, 3
hluta, 4 þref, 5 laumuspil,
6 stéttar, 10 hindra, 12
kraftur, 13 mann, 15
þræta, 16 huldumenn, 18
dásemdarverk, 19 til-
biðja, 20 veit margt, 21
úrkoma.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 útkjálkar, 8 pækil, 9 pokar, 10 kóp, 11 lands,
13 agnar, 15 falls, 18 strit, 21 kot, 22 lætur, 23 ólmir, 24
snakillur.
Lóðrétt: 2 tekin, 3 jálks, 4 loppa, 5 askan, 6 spil, 7 þrír,
12 díl, 14 get, 15 fólk, 16 látin, 17 skrök, 18 stóll, 19
rimmu, 20 tæra.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16