Morgunblaðið - 28.09.2003, Page 53
Fyrsta platan fékk svo gríðarlega
góðar viðtökur. Þetta gerðist allt
mjög snögglega og við fórum á
samning strax og svo beint á tón-
leikaferðalag. Þannig að lögin á
plötunni nýju eru öll samin á hót-
elherbergjum og í hljóðprufum.
Svo þegar tónleikaferðalagið var
loks búið fórum við aftur í litlu æf-
ingakytruna okkar og lögðum á
ráðin. Fórum að vinna í nýju lög-
unum. Við vorum líka miklu lengur
með þessa plötu. Sú fyrsta tók sex
vikur en við vorum átta mánuði að
vinna þessa!“
Hvernig myndir þú lýsa nýja
efninu?
„Það er jákvæðara og orkurík-
ara. Meira stuð í gangi og minna
af ballöðum (hlær). „Stærri“ lög
með strengjum og þess háttar líka.
Við vorum mikið að hlusta á Glen
Campbell, svo dæmi sé tekið. Okk-
ur langaði ekki til að gera sömu
plötuna aftur og vildum prufa eitt-
hvað nýtt.
Stefnan var auðvitað sú að gera
betur en síðast svo við lögðum höf-
uðið djúpt í bleyti. Það hjálpaði
líka að við erum orðnir miklu þétt-
ari núna.“
En er ekki erfitt fyrir ykkur að
endurskapa þessa nýju tónlist á
sviði?
„Við erum með galdratæki með
STARSAILOR vinna innansvipaðra formerkja og land-ar þeirra Travis og
Coldplay.
En þó ekki. Smellirnir eru ekki
eins „auðheyranlegir“ ef svo mætti
segja, a.m.k. liggja þeir undir fleiri
lögum, eru lævísari ef svo mætti
segja. Melódíurnar eru þarna, en
kannski pínu feimnari en þær sem
áðurnefndar sveitir ýta fram. Með
öðrum orðum, það þarf að vinna í
Starsailor, það þarf að setja gít-
arskotið tilfinningapoppið í netta
marineringu áður en hægt er að
njóta þess til fulls. Og þá rís það
líka upp af tilkomumiklum glæsi-
leik.
Eins og nærri má geta er það
ekki auðvelt að fylgja jafnumtal-
aðri plötu og Love is Here eftir.
Þekkt hugtak innan poppfræða er
„erfiða platan númer 2“, sem Star-
sailor þurfti að glíma við á annarri
plötu sinni, hinni skemmtilega
nefndu Silence is Easy sem er ný-
komin í búðir. Auk þess þurftu
þeir að vinna með sjálfum Phil
Spector! En gefum nú Byrne
blessuðum orðið.
Sinfóníuhljómsveit í boxi
Jæja, var erfitt að klára þessa
plötu?
„Tjaa ... það var dálítið snúið.
okkur; tölvu sem hægt er að spila
strengina af. Alger snilld – eins og
hafa heila sinfóníuhljómsveit í
boxi! Það yrði fremur erfitt að
fara með þrjátíu manns á tónleika-
ferðalag með sér. Ekki nema mað-
ur vildi vera Polyphonic Spree
(hlær).“
Eru síðustu tvö ár ekki búin að
vera viðburðarík?
„Jú, það hafa þau svo sann-
arlega verið. Manni fannst eins og
það væri verið að ýta manni inn í
sviðsljósið. Þetta er búinn að vera
alger rússibani. Maður þurfti að
gæta sín dálítið.“
Nú unnuð þið með Phil
Spector...
„Já ... það hefur verið mikið
rætt um það í blöðunum. Mér
fannst hans innlegg fínt. En okkur
langaði ekki til að vinna alla plöt-
una með honum. Þetta átti aldrei
að verða „Phil Spector“-plata held-
ur platan okkar.“
En er hann „óður snillingur“?
„Hann átti nokkra góða spretti í
þeim málum. Stundum hvarf hann
eitthvert í hálftíma. Stundum var
maður að reyna að koma einhverju
til skila og það var eins og tala við
vegginn. En allt í allt var frábært
að ná tveimur lögum út úr honum.
En svo gerðum við líka eitt lag
með John Leckie (Stone Roses).
Mér finnst það líka stórmerki-
legt.“
Rokkari
Segðu mér að lokum, Ben, lifir
þú rokklíferni?
„Eiginlega, já (hlær). Strákarnir
segja að ég drekki of mikið og
James (bassaleikari) er alltaf að
segja að ég sé alkóhólisti. Mér
finnst það ósanngjarnt og ég vil
koma því sérstaklega á framfæri
að mér finnst gaman að drekka en
er alls ekki svo slæmur.“
Starsailor tekur því rólega. Byrne er lengst til hægri.
Fyrstu plötu Starsailor, Love is here, var
mikið hampað er hún kom út í hitteðfyrra.
Var hún af mörgum sögð einn sterkasti
frumburður sem út hafði komið lengi. Ben
Byrne segir Arnari Eggert Thoroddsen
frá því hvernig Starsailor hefur höndlað
þessa pressu síðustu tvö árin.
Silence is Easy er komin út.
www.starsailor.net
Starsailor gefur út Silence is Easy
Starsailor er hér
KEFLAVÍK
Kl. 2, 4, 6 og 8.
AKUREYRI
Kl. 4, 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.30, 8 og 10.30.
Stórkostleg gamanmynd sem er búin að gera allt
sjóðvitlaust í USA með Jamie Lee Curtis og Lindsay
Lohan í aðalhlutverki.
Antonio Banderas, Johnny Depp og Salma
Hayek í mögnuðu framhaldi af hinni
geysivinsælu mynd Desperado.
DV
Yfir 100 M$
í USA!
Þetta er sko
stuðmynd í
lagi!
ÁLFABAKKI
kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16.
KRINGLAN
kl. 10. B.i. 16.
AKUREYRI
kl. 8 og 10. B.i. 16.
KRINGLAN
Kl. 2, 4, 6 og 8
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.30, 8 OG 10.30.
Frá leikstjóranum Ridley Scott
sem færði okkur myndirnar
Gladiator, Hannibal,
Blade Runner og Alien
"Skotheldur leikur og frábært handrit."
HP KVIKMYNDIR.COM
F R U M S Ý N I N G
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 10. B.i. 10.
KVIKMYNDIR.IS
L.A. TIMES
BBCI
KVIKMYNDIR.IS
ÓHT RÁS 2
SG DV
MBLKVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM Skonrokk FM 90.9
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 10 ára.
ÁLFABAKKI
kl. 1.50, 3.50, 5.55, 8 og 10.05.
Með íslensku tali
ÁLFABAKKI
Kl. 2, 3.45 og 6.10.
KRINGLAN
Kl. 2 og 4.
KEFLAVÍK
Kl. 2 og 4.
AKUREYRI
kl. 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 12.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6. B.i. 12.
HV MBL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2003 53
ÞAÐ hefur líklega enginn einn aðili innan dægur-
tónlistar verið oftar eyrnamerktur þeim orðum sem
er að finna í fyrirsögninni og upptökustjórinn goð-
sagnakenndi Phil Spector. Og ferill hans í gegnum
tíðina hefur meira en boðið upp á það. Kannski mest
undanfarnar vikur, þar sem hann liggur sterklega
undir grun um að hafa myrt unga stúlku að nafni
Lana Clarkson.
Spector varð frægur á sjöunda áratugnum fyrir
upptökustjórnarlist sína, kennda við „hljóðvegg“ (Wall of Sound“).
Nafnið er tilkomið vegna þeirra tilkomumiklu úsetninga sem Spector
lagði sig eftir þar sem strengir og blásturshljóðfæri hjálpuðust að með
hefðbundnum rokkhljóðfærum í uppbyggingu mikilúðlegs hljóms sem
bar sterk höfundareinkenni Spectors. Má heita að hann hafi verið fyrsti
upptökustjórinn sem varð að hálfgildings rokkstjörnu (Bretinn Joe
Meek, sem var undanfari Spectors, getur gert svipaða kröfu en látum
það liggja á milli hluta hér). Hegðan Spectors varð fljótlega til þess að
farið var að kalla hann brjálæðing með snilldargáfu, og það hefur fylgt
honum síðan. Upphaflega varð hann þekktur fyrir að vinna með
stúlknasveitunum Ronettes og Crystals en átti síðar eftir að vinna með
Bítlunum (Let it Be), Ike og Tinu Turner („River Deep, Mountain
High“), George Harrison (All Things Must Pass), John Lennon, Leonard
Cohen og Ramones. Spector hefur undanfarin ár tekið netta „Gretu
Garbo“ á þetta og fylgt vandlega siðvenjum vænisjúka einfarans. Hann
hafði ekki tekið í takkana síðan hann stýrði upptökum á plötu Ramones,
End of the Century, árið 1979 og því merkilegt að hann skuli hafa nálg-
ast þá Starsailor-liða að fyrra bragði. Hann vann að tveimur lögum á
plötunni og bera þau ekki með sér Spector-hljóminn, merkilegt nokk en
Starsailor hefði fellt sig prýðilega að hljóðveggnum. En vegir Spectors
eru órannsakanlegir eins og áður er getið. Þess ber þá að geta að menn
voru ekki á eitt sáttir með handverk Spectors og hefur James Walsh,
leiðtogi Starsailor, lýst því að reynslan með Spector hafi verið „athygl-
isverð“ en að öðru leyti þagað þunnu hljóði.
Óður snillingur?
Phil Spector