Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 28
LISTIR 28 LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ SAGT er, að þegar gleymskan fer að vega þyngra en reynslan, fer maður að verða gamall. Allavega mundi undirritaður ekki fyrir sitt litla líf eftir Tallis-Fantasíu Vaughans Williams (1872–1958) sem fyrst hljómaði á sinfóníutónleikun- um á fimmtudag, þó að yfirgnæf- andi líkur væru á að hann hefði heyrt hana áður, enda frægt verk; að sögn mest flutta hljómsveitar- verk hins þjóðlega sinnaða brezka tónskálds. Það var samið á hala- stjörnuári Halleys 1910 – eingöngu fyrir strokhljómsveit, en hins vegar það niðurskipta að raddskráin hlýt- ur að hafa verið með þeim viða- mestu sem þangað til höfðu sézt fyr- ir slíka áhöfn. Eða (eins og stjórnandinn útlistaði fyrir hlust- endum) fyrir stóra sveit, kvartett, og litla sveit í fjarska er myndaði „raddir hins liðna“. Litauðgin var eftir því gífurleg, þrátt fyrir virðu- legt grunntempó við hæfi endur- reisnarsálmalags frá 1567. Þetta var í alla staði hrífandi glæsiverk, allt frá fyrsta ofurveika en athyglinjörv- andi risahljómi til síðasta tóns 20 mínútum síðar. Ýmist draumkennd eða safarík hugleiðingarferð aftur um aldir, sem Rumon Gamba kreisti fagmannlega úr til hinzta blóðdropa. Hafliði Hallgrímsson samdi fyrri sellókonsert sinn, Hermu, fyrir níu árum. Var hinn seinni, aðeins auk- nefndur ópusnúmeri, sem frumflutt- ur var ytra fyrir skömmu, leikinn nú á Íslandi í fyrsta sinn. Þetta var álíka langt verk (um hálftíma) og hið fyrra, en örugglega ekki minna krefjandi. Allra sízt fyrir sólistann, er leysa þurfti margvíslegustu þrautir og fingurbrjóta bæði til vinstri og hægri handar, enda þótt líðandi sönghæfir kaflar gæfust einnig innan um. Segja má að flest- allir möguleikar knéfiðlunnar hafi verið gjörnýttir, sem og tíðnisvið þess allt frá bjórtunnubotni til ískrandi upphæða (hvað hið seinna varðar mætti stundum halda að fiðla væri á ferð þegar leikið var á efstu endamörkum gripbrettisins), og skilaði norski einleikarinn öllu sem fyrir hann var lagt af smitandi orkuhlöðnu öryggi. Gilti hið sama að mestu um hljóm- sveitina, þrátt fyrir nokkra býsna snúna kafla í ósamhverfum takttegundum. Þó að verkið reyndi svolítið á þolrif undirritaðs í þriðja fjórðungi, gætti samt fjölda athygli- verðra staða, þ. á m. í særingarkennndri kadenzunni þar sem dulrænt þrítekningar- „mottó“ fór á milli ein- leikara og hljómsveit- ar. Þá brá fyrir fjölda litríkra hljóð- færasamsetninga, m.a. syngjandi bassapizzicato dobblað í hörpu. Nið- urlagið var einnig áhrifamikið, borið uppi af sama örlagaþrungna hæg- genga bassatifi og upphafið, og minnti mann óvart á gömlu brag- henduna Tíminn, lífið, lestir, dyggð- ir, löður, fjara, sem vel hefði getað verið einkennisorð þessa víðfeðma verks. Meðal klassískra heimahlustenda hafa þær hinna níu sinfónía Beet- hovens löngum þótt „merkari“ sem ójafnari hafa töluna; m.ö.o. nr. 1, 3, 5, 7 og 9. Hvað sem annars kann að vera hæft í því, þá eru nr. 2, 4 og 8 – með Sveitasinfóníuna sem aðalund- antekningu – eftir sem áður mun sjaldnar fluttar en hinar. Hjá und- irrituðum (ábyggilega líkt og hjá mörgum öðrum) hefur nr. 2 jafnan verið í minnsta uppáhaldi. M.a. vegna hlutfallslegs ófrumleika (ná- lægðin við Eroicu bætir ekki úr skák) og, að manni fannst, full- groddalegs, jafnvel barnalegs, húm- ors, sem í miðlungsflutningi getur komið út sem hálfbilleg eftiröpun af Haydn, kannski sérstaklega í Scherzóinu (III). Það er því hjákátlegt að þurfa að viðurkenna, að í túlkun SÍ þetta kvöld hafi skelin loks hrokkið frá augum og tappinn úr eyrum. Frómt frá sagt var leikur sveitarinnar und- ir drífandi og fjaðurmagnaðri stjórn Rumons Gamba nefnilega upplifun sem kom manni í opna skjöldu. Áður en varði breyttist gamla klumban í korða og kalkkústurinn í lista- mannspensil. Og í þetta sinn voru strengirnir – með 1. fiðlur sem prímaballerínur – aðalstjörnur kvöldsins. Bæði fyrir meitlaðar áherzlur þeirra og sópandi tæra drift í I. og III. þætti, ásamt líðandi sönghæfninni í II. (Larghetto) – sem að vísu var tekinn í það geyst- asta, þó að bráðsnjöll hæging stjórnandans í Coda jafnaði um margt. En ekki sízt í makalaust virt- úósu víravirki þeirra í Fínalnum, þar sem fyrrum frumstætt verbúða- grínið umturnaðist í svo andríka glettni, að fínsmökkuður háðs á við Voltaire hefði örugglega fundið sælufiðring hríslast niður endilanga mænuna. Aðeins hefði mátt óska 6 sellóa og 4 kontrabassa í stað 4 og 3, því þótt styrkvægið hefði að öðru jöfnu verið ákjósanlegt, var við óvenjulágtíðnifælið hús að eiga. Ólíkt því sem við – vonandi – eigum í vændum. Beethoven í banastuði TÓNLIST Háskólabíó Vaughan Williams: Fantasía um stef eftir Thomas Tallis. Hafliði Hallgrímsson: Sellókonsert nr. 2 Op. 30. Beethoven: Sinfónía nr. 2 í D Op. 36. Truls Mørk selló; Sinfóníuhljómsveit Íslands u. stj. Rumons Gamba. Fimmtudaginn 9. októ- ber kl. 19:30. SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Hafliði Hallgrímsson Truls Mørk Ríkarður Ö. Pálsson HAMLET í þýð- ingu Helga Hálf- danarsonar verð- ur leiklesinn í dag kl. 15 í Smiðjunni, leikhúsi LHÍ við Sölvhólsgötu. Í vetur munu nemendur á 2. ári í leiklistardeild leiklesa nokkur af verkum Williams Shakespeares, ásamt atvinnuleikur- um sem tekið hafa þátt í uppfærslum þeirra á íslensku leiksviði. Í Hamlet les Erlingur Gíslason Pólóníus, Kjartan Bjargmundsson Gullinstjörnu, Jakob Þór Einarsson Rósinkrans og Sigurður Þ. Líndal les Laertes. Nemendur skipta með sér öðrum hlutverkum. Lestrarnir eru óæfðir og leikritin verða lesin óstytt. Aðgangur er ókeypis. Hamlet leiklesinn William Shakespeare KAMMERKÓR Suðurlands flytur tónlistardagskrá í Iðnó kl. 17 í dag. Dagskráin kallast Gengið á lagið í Iðnó. Kórinn hefur undanfarið flutt þessa dagskrá á Suðurlandi. Meðal höfunda tónlistar má nefna Bach, Billy Joel og Gunnar Reyni Sveinsson. Dagskráin verður flutt með leikrænu ívafi þar sem léttleiki og grín verður í hávegi haft. Edda Björgvinsdóttir leikkona hefur verið sérlegur leiklistar- ráðunautur kórsins í þessu verk- efni. Sophie Schoonjans hörpuleik- ari kemur fram með kórnum. Kammerkór Suðurlands er skip- aður starfandi tónlistarfólki frá Suðurlandi. Kórinn hefur komið fram víða um land. Stjórnandi kórsins er Hilmar Örn Agnarsson organisti í Skálholti. Gengið á lagið í Iðnó MYNDÞING verður haldið í Lista- safni Reykjavíkur – Hafnarhúsi kl. 13.30–16 á morgun. Tilefni er sýning sem nú stendur yfir í safninu, Yfir bjartsýnisbrúna. Sýningarstjóri er Níels Hafstein en umsjón með þinginu hefur Harpa Björnsdóttir. Eiríkur Þorláksson forstöðumað- ur Listasafns Reykjavíkur setur myndþingið. Hannes Lárusson flyt- ur gjörning. Níels Hafstein kallar er- indi sitt „Listin að safna og sameina list“. Aðalsteinn Ingólfsson fjallar um íslenska naívista. Ólöf Nordal segir frá því hvernig hún sem lista- maður nýtir sér alþýðlegan fróðleik og minni í verkum sínum. Valdemar Bjarnfreðsson sýnir nokkrar myndir sínar á skjávarpa. Hrefna Sigurðar- dóttir flytur frumsamin ljóð. Ólafur Gíslason fjallar um listsköpun naív- ista. Myndþing BORGARSKJALASAFN Reykja- víkur og Kvennasögusafn Íslands í samvinnu við Femínistafélag Ís- lands opna sýningu um kvenna- hreyfinguna síðustu fjóra áratugi kl. 14 í dag í Grófarhúsi, Tryggva- götu 15. Á sýningunni, sem nefnist Áfram stelpur!, gefur að líta skjöl og muni tengda kvennahreyf- ingum. Sýningunni er ætlað að vekja forvitni gesta á þessum hreyfingum og hvetja þá til að halda til haga gögnum sem tengjast þeim og hugleiða varðveislu þeirra fyrir komandi kynslóðir. Söfnin taka bæði á móti slíkum skjölum og munum er tengjast kvennahreyf- ingunni. Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 10–20, föstudaga 11 til 19 og helgar kl. 13–17. Til 2. nóv- ember. Kvennahreyf- ingin í 40 ár ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ TÓNLIST verður í tignarsæti á Stokkseyri á morgun, sunnudag. Þá verða 110 ár liðin frá fæð- ingu dr. Páls Ísólfssonar tónlistarfrömuðar, org- anleikara og tónskálds. Af því tilefni verður vígt nýtt orgel í Stokkseyrarkirkju kl. 13:30. Það er smíðað af Björgvini Tómassyni. Björn Steinar Sól- bergsson orgelleikari leikur verk eftir Pál. Kl. 14:00 hefst guðsþjónusta með þátttöku biskupsins yfir Íslandi, Karls Sigurbjörnssonar, auk prest- anna sr. Úlfars Guðmundssonar og sr. Önnu Sig- ríðar Pálsdóttur. Orgelleikari kirkjunnar, Hauk- ur Arnarr Gíslason leikur á orgelið. Að athöfn lokinni, um kl. 15:00, verður sýningin Organistinn formlega opnuð í nýjum húsakynnum Tónminjaseturs á Hafnargötu 6 og Pálsstofa, ný og endurbætt af sr. Önnu Sigríði Pálsdóttur, dótt- ur tónskáldsins. Bjarki Sveinbjörnsson hjá Músík og sögu sem séð hefur um framkvæmd Tónminjaseturs kveðst ánægður með hin nýju heimkynni setursins. „Við vorum fimm einstaklingar sem unnum að því að skapa þessa hugmynd um Tónminjasetur á Stokkseyri, Björn Ingi Bjarnason og Einar S. Ein- arsson frá Hólmaröst á Stokkseyri, Bjarki Svein- björnsson og Jón Hrólfur Sigurjónsson frá Músík og sögu, og Sigurður Bjarnason frá Atvinnuþró- unarsjóði Suðurlands. Þetta er hugmynd sem hef- ur vaxið. Pálsstofa var upphaflega opnuð fyrir um ári. Í febrúar síðastliðnum var félagið síðan stofn- að og skipað í stjórn sem tók þá ákvörðun að leigja nýlegt húsnæði á Stokkseyri sem þótti henta vel utan um Pálsstofu og þar sem hægt væri að gera skil sögu organistanna á svæðinu.“ Saga organistanna á svæðinu Að sýningunni, Organistanum, hefur verið unn- ið síðan og Ólafur Jóhann Engilbertsson frá fyr- irtækinu Sögumiðlunin fenginn til að sjá um hönn- un. Sýningin segir sögu organistanna í Gaul- verjabæjarkirkju, Stokkseyrarkirkju og Eyrar- bakkakirkju. „Við gagnaöflun hafa komið fram einstakir hlutir,“ segir Bjarki og nefnir þar vísitasíubækur Stokkseyrarkirkju frá 1780 til 1900. Þær voru varðveittar í heimahúsi. „Þarna er ómetanlegar heimildir að finna.“ Þá hafa verið endurgerð sveitablöð frá Eyr- arbakka og Stokkseyri frá því um 1890, skrifuð af Jóni Pálssyni. „Við höfum endurgert stórt handrit eftir Jón þar sem á annað hundrað mannlýsingar er að finna. Það er mjög fróðlegt efni.“ Að auki eru á sýningunni ýmsir merkir munir úr fórum tónlistarmannanna sem um er fjallað og ýmsar persónulegar upplýsingar um þá. Að sögn Bjarka má fullyrða að þetta svæði hafi, ásamt Árnessýslu, orðið fyrst til að orgelvæða kirkjur sínar. „Fyrsta kirkjuorgelið á suðurlandi var vígt á Arnarbæli 1875 og á Stokkseyri ári síð- ar. Þessi saga er því orðin löng.“ Sama fjölskyldan við orgelið í 120 ár Páll Ísólfsson er vitaskuld kunnastur organista sem við söguna koma en af öðrum má nefna föður hans, Ísólf Pálsson og bræður Ísólfs, Bjarna og Gísla, og dóttur Gísla, Margréti. „Það er svo merkilegt að fjölskylda Páls spilaði á orgel Stokkseyrarkirkju svo til samfellt í 120 ár, frá 1876 til 1998, að Pálmar Eyjólfsson lét af störf- um.“ Bjarki bindur miklar vonir við Tónminjasetrið. „Unnið er nú að því að skapa setrinu rekstrar- grundvöll en draumurinn er að það geti orðið höfuðsafn yfir tónminjar í landinu. Það myndi þá í samvinnu við héraðssöfnin hafa frumkvæði að vinnslu heimilda- og gagnasafna um sögu tónlist- ar í landinu. Ég legg hér áherslu á orðið sam- vinnu því ekki stendur til að seilast í minjar ann- arra safna. Tónminjasetrið mun ekki draga neitt til sín sem aðrir eiga. Eins eru hugmyndir um að Tónminjasetrið hafi frumkvæði að því að móta samstarf við hér- öð landsins um sýningar sem myndu þá hverfast um tónlistarsögu á hverjum stað og fundinn yrði staður heima í héraði. Annars verður afstaða til framhaldsins tekin á aðalfundi stjórnar Tónminjaseturs síðar í þessum mánuði.“ Í stjórn Tónminjaseturs eiga sæti: Jónatan Garðarsson, formaður, Hinrik Bjarnason, Ægir Hafberg, Torfi Áskelsson og Ísólfur Gylfi Pálma- son. Tónminjasetur opnað og Páls Ísólfssonar minnst á Stokkseyri Af organistum Ísólfur Pálsson, faðir Páls, ásamt fjórum bræðr- um sínum, Jóni, Gísla, Bjarna og Júníusi. Frændurnir Jón Pálsson og Páll Ísólfsson koma talsvert við sögu á sýningunni í Tónminjasetri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.