Morgunblaðið - 02.11.2003, Side 3
kom upp á, en hætt var við að flytja
söngleikinn á sínum tíma og svo fór
Leifur út og þegar við ætluðum að
taka upp þráðinn vorum við búin að
gleyma þessu að mestu leyti. Það
eina sem til er af honum mér vit-
anlega er lag sem ég á á bandi sem
Shady syngur, afskaplega fallegt og
gott lag.“
Eftir þetta hætti Jóhann í sveit-
inni og fór til Englands 1972 að hitta
Derek Wadsworth sem hafði verið
upptökustjóri við upptökur Óð-
manna á litlu plötunum tveimur sem
Svavar Gests gaf út. Jóhann var þá
að kanna möguleika á að Derek
myndi aðstoða hann við upptökur á
eigin lögum, sem Ámundi Ámunda-
son hugðist gefa út, og ganga um
leið frá pressun á hinni frægu fram-
úrstefnusmáskífu Brotinn gítar –
Þögnin rofin er vakti furðu manna
hér heima haustið 1972. Jóhann hélt
svo aftur út til Englands 1973 til að
taka upp og þá meðal annars lagið
fræga Don’t Try to Fool Me. Það lag
var gefið út á smáskífu hér á landi og
síðan á plötunni Langspili sem gefin
var út haustið 1974.
Þótt Langspil hafi fengið góðar
viðtökur gagnrýnenda og Don’t Try
to Fool Me vaktið athygli á Jóhanni
erlendis helgaði hann sig málara-
listinni næstu mánuði og það var
ekki fyrr en vorið 1976 að hann sneri
aftur í hljóðver, að þessu sinni til að
taka upp plötuna Mannlíf. Sú plata
seldist ekki ýkja vel og eftir þetta lét
Jóhann sér nægja að semja lög fyrir
aðra, var ekki virkur sem tónlist-
armaður sjálfur. Hann sló þó til þeg-
ar félagarnir í Póker buðu honum að
ganga í sveitina, enda hugðust þeir
freista gæfunnar í Bandaríkjunum.
Áður en af því varð hætti Jóhann í
sveitinni, enda segist hann hafa átt-
að sig á því að hann langaði ekki til
að verða frægur poppari. „Það hefur
aldrei átt vel við mig að vera í þessu
hljómsveitaharki og þegar ég sá
hvert stefndi var ég viss um að þetta
var ekki það sem ég vildi gera.“
Áður í svipuðum sporum
„Ég hafði áður staðið í svipuðum
sporum þegar ég var í Bretlandi
1973 og var meðal annars kominn
með samning við umboðsmenn í
Bretlandi sem kynntu mig á Midem-
tónlistarkaupstefnunni í Frakklandi,
kynntu Don’t Try to Fool Me. Þá
sýndu tíu eða ellefu fyrirtæki áhuga
á að vinna með mér. Hjá Phono-
gram, sem var meðal annars með
hollensku hljómsveitina Focus á sín-
um snærum, var ég spurður hvort ég
væri viss um að ég vildi syngja Don’t
Try to Fool Me næstu tíu árin og
þvælast um alla Evrópu í nokkur ár
með hljómsveit. Ég vissi að ég gæti
það ekki og því varð ekkert úr því,“
segir Jóhann og segir aðspurður að
hann sjái ekki eftir því í dag, það sé
svo margt í lífinu sem skipti meira
máli en frægð og peningar.
Þótt Jóhann hefði lagt draum um
frægð í útlöndum á hilluna um tíma
að minnsta kosti var hann þó ekki al-
veg hættur í músíkinni og setti sam-
an eins konar rokkóperu, Íslenska
kjötsúpu, sem gekk ekki sem skyldi
og aftur dró Jóhann sig í hlé frá tón-
listinni að mestu.
Næstu ár var hann í ýmsu stússi,
rak Gallery Lækjartorg, síðar Lista-
miðstöðin, og tók virkan þátt í fé-
lagsstarfi tónlistarmanna, stofnaði
meðal annars Samtök alþýðu-
tónskálda og textahöfunda, SATT,
til að tryggja stöðu tónlistarmanna
innan STEFs, stofnaði ásamt fleir-
um Púlsinn-tónlistarbar, sem var
um tíma eins konar miðstöð lifandi
tónlistar, og svo má telja, en einnig
hefur hann sífellt verið að semja lög
fyrir hina og þessa og verið tíður
gestur á vinsældalistum sem höf-
undur þótt hann sjáist þar ekki leng-
ur sem flytjandi.
Ríflega 200 lög
Þótt Jóhann sé þekkur fyrir laga-
smíðar sínar, á ríflega 200 lög á eigin
plötum og annarra, segist hann ekki
vinna skipulega að þeim, ekki síst
þar sem hann sé ekki virkur í tónlist.
Hann hefur þó samið hundruð laga
um dagana sem fæst hafa heyrst op-
inberlega eða komið út. Hann á
þannig tugi af snældum með lögum
og lagahugmyndum sem hann hefur
samið í gegnum árin, en segist ekki
reikna með að þau eigi nokkurn tím-
ann eftir að heyrast, hann leitar til
að mynda ekki í bunkann þegar
hann er beðinn um lag. „Það er nú
oft þannig að það er minna mál að
semja nýtt lag en að leita að gömlu,“
segir hann, „og svo tengjast þessi
lög oft tímabilum í ævinni sem getur
verið erfitt að rifja upp. Þetta er eins
og fara að róta í kjallara sem er full-
ur af drasli sem er tengt minningum,
góðum og slæmum, það er ekki hægt
að fara í gegnum slíkt á klukkutíma
og ekki á einum degi, það tekur
mann mánuði og ég get varla sinnt
öðru á meðan.“
Fyrir nokkrum árum fór Jóhann
þó nokkuð skipulega í gegnum hluta
af lagasafninu og úr varð platan
Asking for Love fyrir tilstuðlan Jóns
Ólafssonar. „Jón kom þá til mín og
spurði hvort ég ætti ekki einhver lög
frá Langspilstímanum, einhver
demó. Ég tíndi saman handa honum
hundrað lög og þá bara lög sem voru
þokkalega unnin, og svo valdi hann
úr því,“ segir Jóhann og bætir svo
við að frá þessum tíma sé mikið af
lögum sem hann hefði gaman af að
vinna meira með, „prógressíf lög“
eins og hann kallar það. „Ef ég ætti
gott einkastúdíó væri ég sjálfsagt
alla daga að taka upp og ganga frá
lögum.“ Í framhaldi af útgáfu plöt-
unnar tók Jóhann sig til og setti
slatta af lögum inn á MiniDisk, enda
voru þeir þá að spá í að setja á stofn
eins konar lagabanka. „Það má segja
að við höfum farið of seint af stað,
því þegar við vorum að undirbúa fyr-
irtækið leist öllum voða vel á hug-
myndina, en þegar við síðan ætl-
uðum að fá fé til að hrinda henni í
framkvæmd var hlutabréfamark-
aðurinn hruninn og enginn átti
áhættufé.“
Eins og getið er í upphafi kom út á
dögunum safnplata með nokkrum
helstu lögum Jóhanns í gegnum tíð-
ina, átján lög alls með fjölda flytj-
enda og kallast Gullkorn Jóhanns G.
Jóhannssonar. Frumkvöðlar þeirrar
útgáfu voru Sölvi Blöndal Quarashi-
bóndi og Kári Sturluson. Jóhann
segist hafa orðið undrandi þegar
Sölvi leitaði til hans að fyrra bragði
og bað um að fá að setja saman safn-
plötu, en þegar hann sá að Sölva var
alvara var það auðsótt. Jóhann seg-
ist ekki hafa valið lögin, „ég skrifaði
bara niður fyrir þá hvaða lög hefðu
náð vinsældum á sínum tíma eða
hefðu lifað í gegnum árin og svo
völdu þeir úr því. Mér finnst það af-
skaplega skemmtilegt að þeir skyldu
stinga upp á þessu og ekki síst að
ungir tónlistarmenn skuli þekkja til
þess sem ég hef gert í gegnum tíð-
ina.“
Póker: Pétur W. Kristjánsson, Pétur Hjaltested, Jóhann G. Jóhannsson, Björg-
vin Gíslason, Jóhann Helgason, Ásgeir Óskarsson og Kristján Guðmundsson.
arnim@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2003 B 3
Auglýsing um sveinspróf í matvæla- og
framreiðslugreinum
Sveinspróf verða haldin í bakaraiðn,
framreiðslu, kjötiðn og matreiðslu
6.- 8. janúar 2004 í Hótel – og
matvælaskólanum í Kópavogi
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2003
Upplýsingar og umsóknir
Fræðsluráð hótel – og matvælagreina,
Stórhöfða 31, 110 Reykjavík.
S: 580 5254. Fax 580 5255.
http://www.fhm.is
og í Hótel- og matvælaskólanum
Fræðsluráð áskilur sér rétt til fresta prófi í
einstökum greinum ef næg þátttaka fæst
ekki.
Með umsókn skal fylgja afrit af námssamningi
og brautskráningarskírteini
eða námsferilsblað iðnmenntaskóla.
Greiða þarf leyfisgjald sveinsbréfa
kr. 5000 við innritun.
Miðaverð 2.000 kr.
Miðasala í Japis,
Laugavegi ,
sími 511 1185
og á midi.is
Ath! Sæti eru
númeruð.
Fyrstir koma
fyrstir fá.
í Austubæ
kl. 21 fimmtudaginn
6. nóvember
Á hljómleikunum mun Ríó
ásamt úrvals hljóðfæraleikurum
flytja lög af nýútkominni plötu
sinni „Utan af landi“ auk þess
að klæða mörg sín þekktustu
lög í nýjan búning. Ómissandi
tækifæri til að kynnast eða rifja
upp óborganlega Austurbæjar-
stemningu með Ríó.