Vísir - 22.11.1980, Side 4

Vísir - 22.11.1980, Side 4
4 Laugardagur 22. nóvember 1980 vlsnt „Rimurnar eru þjódinni til minnkunar” Kafli úr bók Vilhjálms Þ.Gíslasonar um Jónas Hallgrímsson sem AB gefur út fyrir jólin Eftir nokkra daga kemur út hjá Almenna bókafélag- inu bókin „Jónas Hallgrimsson og Fjölnir” eftir Vil- hjálm Þ. Gislason. Þetta er itarleg ævisaga Jónasar Hallgrimssonar 370bls. aö stærð. Hér á eftir fer stuttur kafli úr bókinni — upphafið að þætti sem nefnist „Rim- ur og rimnadeilur — fagurfræði Fjölnis”. „Eins og rimur (á lslandi) eru kveðnar og hafa veriö kveðnar allt að þessu, þá eru þær flestallar þjóöinni til minnkunar — það er ekki til neins að leyna þvi — og þar á ofan koma þær töluverðu illu til leiðar; eyða og spilla tilfinningunni á þvi, sem fagurt er og skáldlegt og sómir sér vel I góðum kveðskap, og taka sér til þjón- ustu „gáfur” og krafta margra manna er hefðu getað gert eitthvaö þarfara — ort eitthvað skárra, eöa þá að minnsta kosti prjónaö meinlausan duggra-sokk, meöan þeir voru aö „gullinkamba” og „fimbdfamba” til ævarandi spotts og athláturs um alla veröldina. Þetta var upphafiðá ritdómi Jónasar Hallgrimsson- ar 1837 um Tistrans-rimur Sigurðar Breiðfjörðs og hefur siðan orðið frægasta bókmenntagagnrýni á Is- landi. Það er merkilegt að þvi leyti, að hvorki var þessi grein fyrsta rimnagagnrýnin, sem fram kom, né efni hennar svo að það kæmi mönnum á óvart. Áhrifin uröu ekki heldur þau, sem til var stofnaö, þvi að það er mis- skilningur, sem algengur varð siðar aö árás Jónasar Hallgrimssonar heföi útrýmt rfmunum. En greinin var skrifuð af svo alvarlegri vandlætingu og svo skemmti- legri snerpu i senn, að hún hitti betur i mark en nokkur fyrrigagnrýni. Hún var skrifuð af skáldi, sem gat talað eins og sá, sem valdiö hafði, þvi skáldi sem kveðiö hafði tsland, farsælda frón og Saknaðarljóö hans voru I sama Fjölnisheftinu og ritdómurinn. Hann er hvort- tveggja: i formi fræðilegrar útskýringar og I klassisk- um anda Hórasar I Ars poetica. Hann orðtekur efnivið- inn og flokkar hann og skýrgreinir, en er Hka kryddaður af persónulegum áfellisdómum, skætingi og skemmtilegheitum. Greinin er almenn fordæming á rimunum sem bókmenntagrein, og þess vegna er megináhersla lögð á þaö að sýna fram á fánýti þess, sem var grundvöllur forms þeirra ,lýsingarorð og kenningar. Kvæðagyöja rimnaskáldsins heitir „greina skögul” og skáldamjöðurinn heitir „boðnar keyta” og maður heitir „þambar viöur” og kona „bjálfa Yöun” eöa „ósakerta skuld”oghugur þeirra „andarkrá”. Ef maður á aö ganga, veröur hann að dika, drýgja ferðir, hafa kreik eða krefja að arka. Svona tætir Jónas sund- ur orðaforða Tistransrimna og efniö og frásögnin fær ekki betri útreiö. Efnið er, segir hann, einhver dönsk lygisaga, einskis veröog heimskulega ljót og illa sam- in og ekkert af henni að læra. Hún er ekki til neins nema til að kvelja lesandann og láta hann finna til, hversu það er viöbjóðslegt aö hlusta á bull og vitleysu. Þessi gagnrýni forms og efnis var nú sér á parti — og Jónas Hallgrimsson viðurkennir lika að rimurnar séu liöugar, og smelli töluvert I munni viða hvar — og les- endur Fjölnis heföu kannski þolað gagnrýnina eins og hverja aöra fyndni ef ekki hefði annað fylgt. Þaö var litilsvirðingin á Siguröi Breiðfjörö sjálfum — honum, sem haföi mesta alþýðuhylli allra skálda. Hann er kallaöur leirskáld og hann vantar smekk og kunnáttu og imyndunarafliö er gerspillt og saurgað.Jónas Hall- grimsson segir að sér ofbjóöi það, að þetta skuli vera eileftu rimur Breiðfjörös, og standi hann þó ekki nema á þritugu. Hvilik vanbrúkun á skáldskapar-listinni, segir hann, hvllíkt hirðuleysi um djálfan sig og aöra, að hroða svona af kveöskapnum og reyna ekki heldur til aö vanda sig og kveöa minna. Þetta má ekki svo búiö standa. Sigurður og Jónas voru andstæðurnar i islenskum bókmenntum Siguröur Breiöfjöröog Jónas Hallgrimsson voru um þessar mundir andstæðurnar I Islenskum bókmennt- um, keppinautarnir.ef hægt varþáaðkeppa viö Sigurö Breiðfjörö, einkum þegar fram á leiö. Siguröur var nærri áratug eldri en Jónas og ráðgerð skólaganga hans fór út um þúfur. Hann varð beykir að iðn og starf- aði utanlands og innan. Hafnarstúdentar skrifuöu heim sögur af svalli hans ytra og Steingrimur biskup skrifaði heiman að til Hafnar um kvennamál hans og kallaöi það skáldaleyfi, að hann ætti tvær konur. Sjálf- ur orti hann gamankvæði um léttúö sina og lausung. Hann var óráöslumaður, fátækur og flöktandi en si- yrkjandi og sjór af hagmælsku og alltaf trúr þeim skáldskap, sem hann taldi köllun sina, þó að hann brysti bæði menntun og manndóm til að verða það skáld, sem gáfur hans stóðu til. Þó var hann ágætt ljóð- * Sigurður Breiðfjörð. skáld, þegar honum tókst best. En Jónas Hallgrimsson sagöi ekki heldur ofsögum af ambögum hans og hortittum, þegar verst var og framleiðsla hans var hóflaus. Það er nokkur galli á ritdómi Jónasar Hall- grimssonar, að I honum er hvergi tilfærö nein heil visa eða samfella úr mansöng eða rimu. Sumt af þvi heföi reyndar getað sannað gagnrýni hans betur en hin ein- stöku dæmi, en önnur dæmi mundu sýna, aö Siguröi er engan veginn alls þess varnað sem Jónas vildi vera láta. Visur eins og þessar geta komið fyrir hver af ann- arri og aðrar þaðan af verri: Þegar álfur Iss dalneyðar Iðunn bjálfa leit, armar sjálfir út sig breiða, andrúm skjálfa heit... Úr boðnar keitu aö signa sig, sér til gæöa þægða, ég vil heita á eina þig ibúö fræöa nægða. En eftir hann eru lika margar léttar vlsur og falleg kvæði. Meira að segja Jónas Hallgrimsson sjálfur lét sér það sæma aö yrkja eitt góökvæði sitt, Þú stóöst á tindi Heklu hám, undir bragarhætti frá Sigurði Breiöfjörð: Hvaö fögur er min feðra jörð— Fjallkonan gamla, kennd við isa, Hann dró lika seinna dár að háttamyndun Sigurðar, nýhendunni. Samband Sigurðar Breiöfjörös viö Fjölnismenn var ekki heldur einskær óvild, þvi aö Kon- ráð Gislason las yfir fyrir hann og leiðrétti handritið að Grænlandsbókinni. Sigurður varð bæði hryggur og reiður Sigurður varð, eins og við var að búast, bæði hryggur og reiöur af ritdómi Jónasar. Hann haföi tekið Fjölni illa undireins og fyrsta bindið kom út og orti skammir um hann I kvæðinu Fjölnisrjómi, bregður honum um fjölmælgi og sjálfhælni og það aö „annarra vill hann slökkva ljós”.Hann túlkaðilika margra málum Fjölni i visunni: Jónas Hallgrimsson Ekkert bætir hann Eggert glói, á honum litiö verður feitt, þó að hann kveði i kyrrum skógi kjaftæöi sitt um ekki neitt. Sumir óvildarmenn Jónasar Hallgrimssonar reyndu seinna að halda þvi fram, að ritdómur hans væri hefnd fyrir skammarkvæði, en ekki er það I neinu liklegt. Ritdómurinn túlkar einlæga og staðfasta listskoöun Jónasar Hallgrimssonar, hann er þáttur i stefnuskrá Fjölnis og I mati hans á Islenskum bókmenntum. Það var langt siöan Jónas var farinn að fást viö rimurnar I gamni og alvöru. Hann geröi það ööru hverju nú og seinna að búa til skopstælingar á kenningum og rimna- visum: hundskinns-bjálfa-heröari, eða duggáls-blossa dyngju fress, eða: Vona ég dúna dreka lin, á Dáins fleyi náms um haf, við gullhúna hengi fin hýruþvegið náðartraf. Jónas var ekki upphafsmaður árásanna á rimurnar þó að hann væri listfengasti og hnyttilegasti andmæl- andi þeirra. Magnús Stephensen hafði verið miklu stórorðari I Vinagleöinni. Hann talaði um það aö bögur og rimur velli af marklausu þvættingsbulli, stagli, meiningarlausum hortittum og heimskukenningum og láti menn sér þetta lynda, „hafi leirvellan aðeins venjulegt útvortis bragarform, einkum dýrtog I mörg- um samstæðum skellandiieyrum.þegarþessum, enei skynsemi og gáfum, skemmta skal”. Gagnrýnin var ennþá eldrioghafðikomið bæði frá fulltrúum kirkju og nýrra, fagurra bókmennta. Eggert Ólafsson hafði talað um skáldin, sem rembdust viö dýrleikann. Jónas Hallgrimsson tók upp I Fjölni þessa gömlu gagnrýni og gerði hvorttveggja, hann magnaði hana til meira niöurrifs, en lagði lika til jákvæðar listkenning- ar um nýjan skáldskap og sýndi þær i kvæöum sjálfs sin. Það var boðskapur og nýsköpun Fjölnis. Jónas haföi rétt fyrir sér i öllum greinum á þeim velli rit- skýringarinnar, sem hann haslaöi sér — sviöi fegurðar og smekkvisi. Sjónarmið hans var einstrengingslega fagurfræðilegt. Jónas Hallgrimsson er i Islenskri ljóðagerö ósveigjanlegur fulltrúi heiörikrar smekkvisi og hreinnar fegurðar. Fyrir honum er það sjálfsagt aö vanda sig og yrkja minna, eins og hann ráöleggur Siguröi Breiöfjörð...

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.