Morgunblaðið - 07.01.2004, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.01.2004, Blaðsíða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 37 tókst að því best varð séð afar vel, þó varað væri við of mikilli bjartsýni. Vonin óx í brjósti um betri tíð og ham- ingjuríka daga. Ingvar fór heim til Ragnheiðar sinnar og allt var eins og best verður á kosið miðað við aðstæð- ur, og ekki annað í spilunum en að lífs- hjólið myndi snúast Ingvari í hag. Síð- an kom reiðarslagið. Meinin sem allir vonuðu að væru horfin létu aftur á sér kræla. Nú varð ekki aftur snúið, vonin minnkaði með hverjum degi uns raunsæið tók við og öll gerðum við okkur grein fyrir að hverju stefndi. Sjálfur óskaði hann þess innilega að hann fengi að lifa jólin í faðmi fjöl- skyldunnar, enda mikill fjölskyldu- maður og sú ósk rættist. Eins óskaði hann þess að hitta Lindu, elstu dóttur sína og barn hennar Elísabetu, en at- vikin höguðu því þannig að þau feðgin fóru á mis hvort við annað í lífinu, nokkuð sem Ingvar harmaði alla tíð. Seint á aðventunni varð honum að ósk sinni og hitti þær mæðgur og var óendalega þakklátur fyrir það. Ingvar hafði nokkra fótavist allt til síðasta dags og seint að kvöldi jóla- dags gekk hann eigin fótum, vissu- lega dyggilega studdur, til hvílu sinn- ar. Áður en hann sofnaði áttum við vinirnir saman einkar notalega stund og ræddum lítilsháttar um eilífðar- málin. Ég spurði hann hvort hann yrði ekki hvíldinni feginn fyrst svona væri komið. Ingvar svaraði eftir smá umhugsun: „Jú, eftir tvo tíma.“ Að þessu loknu bað ég algóðan guð að vera með honum og við kvöddumst með orðunum: Sjáumst síðar. Um það leyti sem sólin kom upp að morgni annars jóladags, eins fallegasta dags sem gefist hefur í vetur andaðist Ingvar á heimili sínu í Hafnarfirði, langt um aldur fram. Ingvar tók veikindum sínum af mikilli stillingu og æðruleysi. Hann tók einn dag í einu og hafði eiginlega meiri áhyggjur af ástvinum sínum. Ingvar hafði lengst af vonina eina að vopni og fór langt á þeirri trú að þetta stríð gæti unnist. Ingvar var undir það síðasta orðinn mjög trúaður, trúði á eilíft líf og sá alltaf ljósið í myrkrinu. Ekki er hægt að ræða um veikindi Ingvars án þess að nefna þátt Ragn- heiðar sem í gegnum allt saman stóð eins og klettur við hlið hans. Af mikilli ástúð og elsku annaðist hún hann á heimili þeirra til hinstu stundar og síðustu vikurnar dyggilega studd af móður sinni Hertu. Ég á varla orð til að lýsa því óendanlega þakklæti og virðingu sem þær eiga skilið fyrir allt sem þær gerðu fyrir Ingvar. Ekki má gleyma dætrunum Tinnu, Sunnu, Sif og stjúpdótturinni Karen sem um- vöfðu föður sinn ást og hlýju allt til síðustu stundar. Ekki má gleyma frá- bæru hjúkrunarfólki og læknum heimahlynningar sem komu hvenær sem á þurfti að halda. Persónulega vil ég þó þakka Helga Benediktssyni fyr- ir einstaka umhyggju og hlýju. Ég votta Ragnheiði, Tinnu, Sunnu, Sif, Ingu, Má, Karen, Daníel, Hertu, Dagrúnu, Berglindi og öðrum vanda- mönnum mína innilegustu samúð og vona að algóður guð styrki okkur öll á þessari erfiðu stundu þegar við nú kveðjum Ingvar hinstu kveðju. Guð blessi minninguna um góðan vin. Rúnar Sig. Birgisson. Í nokkrum orðum viljum við minn- ast Ingvars, sem við kynntumst fyrst sjö ára gamlar þegar fjölskyldan fluttist í Stafnaselið. Tókst þá mikill vinskapur með okkur og yngri dóttur hans, Sunnu, og áttum við þar margar góðar stundir. Þar voru t.d. okkar fyrstu spor tekin í matargerð þar sem við máttum útbúa okkar eigin útgáfu af súkkulaðiköku þrátt fyrir að af- raksturinn hafi ekki verið upp á marga fiska og fáir notið þess góð- gætis. Okkur var alltaf vel tekið á heimili þeirra og jafnvel þegar þau fluttu til Noregs fengum við góðar viðtökur. Þar var oft mikið hlegið og yfirleitt fjör í kringum Ingvar. Hann virtist hafa einstakt lag á börnum og okkur er minnisstætt að í einni heim- sókninni tókst honum meira að segja að fá okkur til að borða fisk, sem er meira en foreldrum okkar hafði nokk- urn tíma tekist, enda var Ingvar frá- bær kokkur. Það er gott að eiga góðar minning- ar á þessum erfiðu tímum. En vitn- eskjan um það að nú eru þjáningar hans liðnar og hann kominn á betri stað styrkir þá sem syrgja. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem.) Við sendum Sunnu okkar, Tinnu, Sif og aðstandendum öllum okkar hjartans samúðarkveðjur og biðjum Guð að gefa ykkur styrk í sorginni. Ásta Heiðrún Gylfadóttir, Björg Jónsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Ingvar Þór Halldórsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Flugukastnámskeið Nokkur sæti laus á eftirtalin námskeið: 1. námskeið 11. janúar 2. námskeið 8. febrúar 3. námskeið 7. mars 4. námskeið 4. apríl. Fyrstir koma, fyrstir fá. Upplýsingar í síma 568 6051 eða Ragnar H. í síma 698 0374. Jeep Grand Cherokee ´99. Glæsilegur jeppi m. öllu. Silfur- grár, ný Good Year dekk, vél 4.7 V8. Ekinn aðeins 72.000 km. Ný- lega innfluttur, lítur út eins og nýr. Uppl. í síma 669 9621. Ford Focus 1600cc Trend, 11/02, ek. aðeins 8 þ. km, 5 gíra, 5 dyra, sumar-/vetrardekk, fjarst. samlæsingar, geislaspilari, öryggispúðar. Verð kr. 1.530 þús. Áhvílandi, 490 þús. Bílabúð Benna - Notaðir bílar, Bíldshöfða 10 - sími 587 1000. Ford Explorer árg. '91. Ek. 186 þús. km. V6, 155 hö, sjálfsk., cruise c., leður, CD, toppl., sam- læsingar, dráttarkúla, nýtt í bremsum, alternator, nýtt púst o.fl. Verð 350 þ. Sími 821 2912 eða g siemsen@hotmail.com Dodge árg. '96. Ek. 98 þús. km. V-10, Larami. Ssk., 44"x15" FC, loftlæsingar f/a, lækkuð hlutf., reimdr. loftdæla, 2 tankar, spil- festingar f/a, stýristjakkur, leitar- ljós, 10 kastarar o.fl. S. 699 8065. Daewoo Nubira Polar, 1600cc, 1/ 01, ek. 64 þ. km. Álfelgur, abs, ör- yggispúðar, geislaspilari, fjarst. Samlæsingar, kastarar, upp- hækkaður. Verð kr. 1.190 þús. Bílabúð Benna - Notaðir bílar, Bíldshöfða 10 - sími 587 1000. Daewoo Nubira Polar 1600cc, 1/01, ek. 61 þ. km. Álfelgur, abs, öryggispúðar, geislaspilari, fjarst. Samlæsingar, kastarar, upp- hækkaður. Verð kr. 1.160 þús. Bílabúð Benna - Notaðir bílar, Bíldshöfða 10 - sími 587 1000. Daewoo Nubira 2, 11/99, ek. 47 þ. km. Sjálfskiptur, abs, örygg- ispúðar, rafdr. rúður. Verð 990 þ. Bílabúð Benna - Notaðir bílar, Bíldshöfða 10 - sími 587 1000. Daewoo Nubira 1600cc SX Stw, ek. 67 þ. km. Abs, öryggispúðar, þakbogar. Verð kr. 850 þús. Bílabúð Benna - Notaðir bílar, Bíldshöfða 10 - sími 587 1000. Daewoo Leganza árg. '99. Ek. 35 þús. km. Til sölu mjög vel með farinn Daewoo Leganza árg. '99. Lítur út eins og nýr með litaðar rúður. Uppl. í síma 868 0037. Daewoo Lanos 1500 SE 1500cc, 09/00. Ek. 56 þ. km. 5 gíra, 4 dyra. Geislaspilari. Verð kr. 690 þús. Bílabúð Benna - Notaðir bílar, Bíldshöfða 10 - sími 587 1000. BMW 325i árg. '91. Ek. 169 þús. km. 192 hö., beinskiptur. M. sport- fjöðrun. Topplúga. Kastarar. Mjög vel með farið og gott eintak. Ásett verð 750 þús. Uppl. í s. 663 5009. Audi A4 T, árg. 2000. Ekinn 74 þús km. Einn með öllu, sjálfsk., sóllúga, 16" álfelgur, spoiler, leð- urinnrétting o.fl. Silfur-metallic. Verð 2.100 þús. Upplýs. 864 2839. Vantar þig bíl? Hringdu í AVIS 5914000 VW Bora Highline, 1600cc, 12/02, 5 gíra, ek. 16 þ. km, sumar- /vetrardekk, topplúga, allur sam- litur, álfelgur, aksturstölva, fjarst. samlæsingar, geislaspilari. Verð kr. 1.780 þús. Tilboðsverð kr. 1.575 þús. Bílabúð Benna - Notaðir bílar, Bíldshöfða 10 - sími 587 1000. Suzuki Vitara JLX-SE árg. 7/98, ek. 97 þús. km. 30" dekk, álfelgur, toppbogar o.fl. Góður bíll. V. 890 þús. Uppl. í s. 848 9685 eða 660 0747. Opel Zafira 1800cc, 11/99, ek. 75 þ. km. 5 g., álfelgur, abs, geisla- spilari, pluss-áklæði, þjónustubók. Verð kr. 1.300 þús. Bílabúð Benna - Notaðir bílar, Bíldshöfða 10 - sími 587 1000. Nissan Pathfinder árg. '01, ek. 30 þús. Lúxusjeppi m. öllu. 3.5 V6 240 hp. Leðursæti, topplúga, ABS, líknarbelgir, sjálfsk. Rafm. í ÖLLU. 4wd hi/lo/auto. Þetta er alvöru lúxusbíll. Sími 694 6337. Musso TDI STD, 7/00, 5 gíra, ek- inn 98 þús. 38" breyttur á nýjum 38" dekkjum. GPS, loftlæstur aft/ framan, álpanna o.fl. o.fl. Verð 2.990 þús. Tilboð 2.690 þús. Bílabúð Benna - Notaðir bílar, Bíldshöfða 10 - sími 587 1000. 4 vélsleðar til sölu/Björgunar- sveit Hafnarfjarðar er með 4 Yamaha Ventura 700 vélsleða til sölu. Tveir eru árg. 2000, eknir 2.300 km og tveir árg. 2002, eknir 1.100. Sleðarnir eru með farang- ursgrind og kössum, ásamt negldum beltum og brúsagrind- um. Nánari uppl. í s. 570 5070. ALMENN DYRASÍMA- OG RAFLAGNAÞJÓNUSTA Set upp ný dyrasímakerfi og geri við eldri. Endurnýja raflagnir i eldra húsnæði ásamt viðgerðum og nýlögnum. Fljót og góð þjónusta Geymið auglýsinguna Sími 893 1733 og 562 6645 JÓN JÓNSSON löggiltur rafverktaki jon@netpostur.is Ótrúlegt tilboð á fallegum ljós- myndum! FERMING, GIFTING, BARNAMYNDIR eða hvað sem er. Aðeins 1.500 kr. blaðsíðan með 1, 2, 4 eða 8 myndum að eig- in vali. EKKI MISSA AF ÞESSU! machete@mmedia.is, 849 7826/ 552 6171. Snjóbretti + skór fyrir 20 þús. kr. Hundabúr fyrir 10-20 kg hunda, 10 þús kr. Upplýsingar í símum 849 6264 og 557 1023. FJARLÆGJUM STÍFLUR VALUR HELGASON ehf. Sími 896 1100 - 568 8806 Röramyndavél til að skoða og staðsetja skemmdir í frárennslislögnum DÆLUBÍLL úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum og niðurföllum – Við notum ný og fullkomin tæki Renault 19 árg. '92. Ek. 153 þús. km. Nú fer að verða síðasta tæki- færið til að eignast þennan frá- bæra bíl, þarfnast smá lagf. Ef þú ert handlaginn þá er hann málið. Skoðaður '04, lítið sem ekkert ryð. Uppl. í síma 868 0301. Stórhöfða 27, sími 552 2125 Opið til kl. 22 alla daga til jóla www.gitarinn.is JANÚARÚTSALA GÍTARINN EHF. ALLT AÐ 30% AFSLÁTTUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.