Morgunblaðið - 17.01.2004, Page 22

Morgunblaðið - 17.01.2004, Page 22
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Fagna samkomulagi | Stjórn Verkalýðs- félags Akraness fagnar því að Grandi og HB-fjölskyldan skuli hafa komist að sam- komulagi um kaup á eign Brims í Haraldi Böðvarssyni, og vonar að þeirri miklu óvissu sem ríkt hefur um störf sjómanna og fisk- vinnslufólks á Akranesi hafi þar með end- anlega verið eytt. Stjórn Verkalýðsfélags Akraness skorar jafnframt á núverandi eigendur að sjá til þess að sú rekstrareining sem hefur verið starfrækt hér á Akranesi frá árinu 1906 verði áfram tryggð um ókomna framtíð. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Úrskurður dómara | Úrslit í jólaljósa- samkeppni Djúpavogs hafa verið tilkynnt. Að þessu sinni fær Borgarland 9 heið- ursviðurkenningu fyrir stílhreina og fagra skreytingu og sjö önnur hús fá við- urkenningu. Það var Björn Hafþór Guðmundsson sveitarstjóri sem var háyfirdómari keppninnar, að því er fram kemur á vef sveitarfélagsins. Um leið og sveitarstjórinn þakkar íbúunum fyrir fram- lag þeirra til að fegra jólabæinn Djúpavog boðar hann að fyrir næstu jól verði kosin sérstök dómnefnd til þess að meta jóla- skreytingarnar. „Eigendur geta gengið eft- ir auglýstum verðlaunum eftir því sem þeir kunna að kjósa, en tekið er fram að þó að smá spaug sé á ferðinni varðandi verðlaun- in, er full alvara að baki því að tilnefna hin vel skreyttu hús,“ segir sveitarstjórinn á vefnum. Skógræktarland | Unnið hefur verið að samantekt á stærð samningsbundins skóg- ræktarsvæðis á starfs- svæði Suðurlandsskóga. Meðalfjöldi hektara sem eru samningsbundnir í Árnessýslu er 81,0435, í Rangárvallasýslu er meðaltalið 98,6667 og í V-Skaftafellssýslu er meðaltalið 135,545. Enn er ekki orðið ljóst hver hektarafjöldinn er í A- Skaftafellssýslu að því er kemur fram á vef Suðurlandsskóga. Spurt var í desember áheimasíðu Akranes-kaupstaðar hvort lesendur notuðu þjónustu Bókasafns Akraness og svöruðu um 130 þeirri spurningu. Svörin skiptust þannig að 53,4% sögðust nýta þá þjónustu en 46,6% svöruðu spurningunni neit- andi. Þjónusta bókasafns- ins er margþætt, þar er hægt að fá bækur, tímarit og ýmis önnur rit, hljóð- bækur, tónlist og margt fleira til útleigu auk ann- arrar þjónustu sem þar er í boði. Til dæmis geta við- skiptavinir bókasafnsins sem komast ekki á safnið sökum aldurs eða veikinda fengið sendar bækur heim án endurgjalds. Margir nýta bókasafn Egilsstaðir | Dagana 12.–14. janúar voru haldnir svo- kallaðir Samfylkingardagar á Austurlandi. Af því til- efni heimsóttu þau Össur Skarphéðinsson, Katrín Júl- íusdóttir, Kristján Möller og Einar Már Sigurðarson fyrirtæki og stofnanir í Neskaupstað, á Eskifirði, Reyð- arfirði, Seyðisfirði og Héraði. Segir í fréttatilkynningu að fundir með heimamönnum hafi verið vel heppnaðir og augljóst að bjartsýni og framkvæmdagleði einkenni mannlíf á Austurlandi þessi misserin. Samfylking- arfólk heimsótti m.a. Bifreiðaverkstæði Ásbjörns á Eskifirði á yfirreið sinni um Austurland á dögunum og þar er myndin tekin. Heimsóttu Austfirðinga Sagan endurtekin pebl@mbl.is BÓKAVINIR kom-ust í feitt í gær ergefnar voru þús- undir bóka á bókamark- aði Bókavörðunnar. Þar á meðal var nokkurt safn ljóðabóka og kenndi þar ýmissa grasa. Hafsteinn Stefánsson orti um and- lega fátækt: Mig langar stundum ákaft til að yrkja um undurfagurt líf og sumarblóm en verð þá eins og góð og gömul kirkja sem grætur yfir því að vera tóm. Allir þekkja afhendingu Guttorms J. Guttorms- sonar um landkönnuðinn: Eftir Vilhjálms utanför til eskimóa hvítu fólki fór að snjóa. Að lokum er viðeigandi að rifja upp vísu eftir Harald Zóphoniasson sem ort er um áramót. Gamla árið grætti mig og gleði vakti hlýja. Endurtekur sagan sig sjálfsagt á því nýja. Borgarnes | Halldór Óli Gunn- arsson ásamt þeim Alexander Ríkharðssyni og Arnari Helga Jónssyni unnu í söngkeppni Óðals sem haldin var sl. fimmtudagskvöld. Þeir spiluðu lagið „Tired of you“ með Foo fighters og heillaði söngur Halldórs dómnefndina sem og aðra áheyrendur, en fullt var út úr dyrum á keppninni. Að sögn dómnefndar var val- ið erfitt því margir hæfi- leikaríkir unglingar úr grunn- skólunum í Borgarbyggð tóku þátt. Keppnin er árviss við- burður og munu sigurveg- ararnir taka þátt í söngkeppni Samfés sem haldin verður laugardaginn 24. janúar í Laugardagshöllinni. Morgunblaðið/Guðrún Vala Söngkeppni Óðals Innlifun Húsavík | Aðalsteinn Á. Baldursson,for- maður Verkalýðsfélags Húsavíkur, segir Húsvíkinga binda miklar vonir við hið ný- stofnaða rækjufyrirtæki Íshaf hf. sem áð- ur var rækjuvinnsla Fiskiðjusamlags Húsavíkur. Stefnt sé að því að efla rækjuvinnslu fyrirtækisins auk þess sem það hefur eignast fjög- ur togskip sem væntan- leg eru til Húsavíkur á næstu dögum og vikum. Ráðnir verða um 30 til 40 sjómenn á skipin og ljóst er að tilkoma þeirra kemur til með að hafa veruleg margfeldisáhrif á Húsavík þar sem skipin kalla á marghátt- aða þjónustu í landi. Spurður um atvinnuástandið í vetur og horfur í þeim málum segir Aðalsteinn: „Það hefur verið mikið að gera hjá Bol- fiskdeild Fiskiðjusamlags Húsavíkur og eins hjá GPG í saltfiskverkun og hausa- þurrkun. Að öðru leyti hefur atvinnulíf á Húsavík verið nokkuð stöðugt þrátt fyrir að um 40 einstaklingar séu um þessar mundir á atvinnuleysisskrá en um helm- ingur þeirra er þó í hlutavinnu. Þekking- arsetur Þingeyinga og Náttúrustofa Norðausturlands hófu nýlega starfsemi á Húsavík auk þess sem úrvinnsla á hrein- dýrakjöti frá Grænlandi hófst í lok síðasta árs. Með tilkomu þessara aðila hefur fjöl- breytileiki atvinnulífsins á Húsavík aukist enn frekar. Þá hefur ferðaþjónustan vaxið hratt á síðustu árum og allt bendir til þess að svo verði áfram á komandi árum ekki síst með tilkomu viðlegukantsins við Bökugarð sem taka á í notkun árið 2005,“ segir Aðalsteinn. Nokkrir kostir til skoðunar Eins og áður segir gætir töluverðrar bjartsýni á Húsavík vegna tilkomu tog- skipanna en auk þess eru nokkrir kostir til skoðunar varðandi frekari atvinnuupp- byggingu á svæð-inu. „Þar vega þyngst hugmyndir innlendra og erlendra aðila að reisa með vorinu Glucomed-verksmiðju á Húsavík sem ætlað er að vinna afurðir úr rækjuhrati. Þá eru enn hugmyndir um að reisa hér álver og polyol-verksmiðju á næstu árum og eru þessi mál til skoðunar hjá hlutaðeigandi aðilum,“ sagði Aðal- steinn. Vonir bundnar við nýtt rækju- fyrirtæki NÝVERIÐ voru samþykkt á Alþingi lög þar sem meðferð hlutafjár rík- isins í Landssíma Íslands hf. færðist frá samgönguráðherra til fjár- málaráðherra. Er þetta í samræmi við þá almennu skipan mála að fjár- málaráðherra fari með mál er varða eignir ríkisins. Í framhaldi af þessari breytingu sótti Geir H. Haarde fjármálaráð- herra fyrirtækið heim. Átti hann fundi með stjórnarformanni Símans, Rannveigu Rist, Brynjólfi Bjarna- syni forstjóra og ýmsum fleiri starfsmönnum fyrirtækisins. Ráð- herra skoðaði ennfremur nýjar höf- uðstöðvar fyrirtækisins í Ármúla sem og fyrrverandi höfuðstöðvar þess við Austurvöll, þar sem áfram verður starfrækt símstöð. Símafundur: Brynjólfur Bjarnason forstjóri Landssíma Íslands, Rannveig Rist stjórnarformaður og Geir H. Haarde fjármálaráðherra. Fjármálaráðherra heimsækir Símann      

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.