Morgunblaðið - 22.02.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.02.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Og hefur þú ekki verið góður drengur á meðan við vorum í skíðaferðinni, Dabbi litli.??? Kynning á MBA-námi kvenna Nám sem hent- ar konum vel Í dag, á konudaginn,þykir viðskipta- oghagfræðideild Há- skóla Íslands tilhlýðilegt að halda kynningu á mögu- leikum kvenna til MBA- náms. Svafa Grönfeldt er lektor við viðskipta- og hagfræðideildina og hún svaraði nokkrum spurn- ingum Morgunblaðsins. Hvað er hér á ferðinni, Svafa? „Þessi kynning, sem fer fram í húsi Endurmennt- unar Háskóla Íslands við Dunhaga og hefst klukkan 2, er liður í röð kynninga á MBA-náminu. Okkur fannst alveg upplagt að beina slíkri kynningu til kvenna í tilefni af konu- deginum og gefa konum tækifæri til að fræðast um MBA- námið af konum sem eru í námi, hafa lokið náminu og/eða starfa í tengslum við námið. Hér er bæði um árangursríkan og skynsam- legan kost að ræða fyrir alla þá, í þessu tilviki konur, sem vilja efla sig enn frekar í starfi eða breyta um starf og takast á við algerlega nýja hluti. Jafnvel í störf sem fólk taldi áður ekki koma til greina, meðal annars krefjandi stjórnun- arstörf.“ Þú segir að þetta sé árangurs- ríkt og skynsamlegt... „Já, tvímælalaust. MBA er ein- mitt nám sem hentar konum sem komnar eru með fjölskyldu alveg sérstaklega vel. Í MBA-námi er óþarfi að rífa sig upp og flytja ut- an til að mennta sig, og koma þannig róti á fjölskylduna. Námið stendur yfir tvisvar í viku eftir vinnutíma, í fjóra tíma í senn. Þetta er skipulagt þannig að fólk getur stundað sína vinnu. Reynd- ar er þetta gífurleg vinna og er reiknað með að hver og einn leggi fram 25 til 35 klukkustunda vinnu í hverri viku, þannig að það reynir vissulega á skipulagshæfileika hvers og eins og samvinnuhæfi- leikana á heimilunum. En fólk er að standast þetta og flestir fara í gegnum námið með miklum glans. Og já, þetta er skynsamlegt nám. Þetta eykur sóknarfæri þeirra og það smellpassar við umræðuna um að konur komist ekki í bestu störfin. Ég ætla ekki að gera lítið úr þeirri umræðu en það er undir okkur konum komið að skapa okk- ar tækifæri og ryðja þeim hindr- unum frá sem kunna að vera í vegi okkar eða dætra okkar hvað starfsframa varðar. MBA-nám færir konum oft bæði það sjálfs- traust og þann orðaforða sem þær þurfa til að sækja í þau störf sem þeim þótti áður utan seilingar.“ Segðu okkur eitthvað frá kynn- ingunni... „Eins og ég gat um áðan, þá verða þarna konur sem ýmist stunda námið um þessar mundir, hafa lokið náminu eða starfa í tengslum við það. Það eru fimm konur sem þarna koma og segja frá reynslu sinni, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Talnataka, Guðrún Rakel Guðjónsdóttir, sviðsstjóri hjá Land- spítala – háskóla- sjúkrahúsi, Guðrún Pálsdóttir, MBA-nemi og sölu- og markaðs- stjóri hjá PharmaNor, Ingibjörg Óðinsdóttir, MBA-nemi og ráð- gjafi hjá IMG og Áslaug Maack Pétursdóttir, verkefnastjóri MBA-námsins. Nánari upplýsing- ar er hægt að fá á slóðinni www.mba.is.“ Verður þetta hefðbundinn fyr- irlestrastíll? „Nei, það vill svo til að við ætl- um að hafa formið á þessu skemmtilega óhefðbundið. Þetta verða ekki stífar og formlegar kynningar, heldur meira í ætt við samtöl fundargesta og fyrr- greindra kvenna. Allar konur eru velkomnar til okkar og það stefnir í að þetta verði lífleg og skemmti- leg samkunda, enda eru þetta hörkukerlingar með mikla reynslu á bak við sig“ Því er fleygt að það sé mikill slagkraftur í þessu MBA-námi? „Það er alveg rétt. Meira og minna allir kennarar viðskipta- skorar Háskóla Íslands koma að náminu sem er í senn mjög krefj- andi og skemmtileg reynsla fyrir kennara jafnt sem nemendur. Fólkið sem kemur gerir miklar kröfur um tengingu við atvinnu- lífið, það eru miklar umræður og mikil og náin samvinna. Fyrir vik- ið verða til sterk vinabönd, MBA- nemendur halda sambandi eftir námið, stofna fyrirtæki saman og leita auk þess mikið í smiðju hver til annars eftir ráðgjöf og stuðn- ingi.“ Samkvæmt því er mikil ánægja með námið og kennsluna? „Já, mjög svo. Nemendur sjálfir koma með svo margar hugmyndir og svo marga vinkla með sér, að það er stöðugt verið að betrum- bæta námið. Í hvert einasta skipti sem nýtt námskeið byrjar þá er það betra en það næsta því það nýtur góðs af þeim sem voru á undan. Svo má geta þess, að auk þess sem námið er lánshæft hjá Lánastofnun íslenskra námsmanna, þá fer hver hópur í námsferð að námi loknu. Einn hópurinn fór til dæmis í viðamikla Asíuferð í skeleggri fylgd Ingjaldar Hanni- balssonar og var hoppað á milli staða á borð við Malasíu og Japan rétt eins og verið væri að skreppa upp á Skaga. Í ferðinni voru nem- endur að hitta forkólfa risafyrir- tækja og fá stemmninguna beint í æð. Menn koma úr svona löguðu reynslunni ríkari.“ Svafa Grönfeldt  Svafa Grönfeldt er fædd í Borgarnesi árið 1965. Hún er BA í stjórnmálafræði frá HÍ, MA í starfsmanna- og boðskipta- fræði frá Bandaríkjunum og doktor í vinnumarkaðsfræði frá London School of Economics ár- ið 2000. Fyrsta konan til að gegna lektorsstöðu við við- skipta- og hagfræðideild HÍ. Framkvæmdastjóri hjá IMG, móðurfélagi Gallup/Deloitte viðskiptaráðgjafar á Íslandi. Maki er Matthías Friðriksson flugmaður og eiga þau tvö börn, Viktor 10 ára og Tinnu, sem er á öðru ári. og koma þannig róti á fjölskylduna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.