Morgunblaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 17
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Að eiga orlofshús í Stykkishólmi verður alltaf vinsælla og vinsælla. Það er ekki vandkvæðum bundið að selja hús hér í bæ og er eftirspurnin meiri eftir því sem húsið er eldra. Þeir sem mestan áhuga hafa á að kaupa hér hús við Breiðafjörðinn eru íbúar af höfuðborgarsvæðinu. Ef hús eru auglýst til sölu eru strax komin fleiri en eitt tilboð. Meira að segja er það orðið þannig að haft er samband við fólk án þess að það sé í sölu- hugleiðingum og þeim boðið gott verð í hús- eignina. Þá eru verðtilboðin svo freistandi að erfitt er að standast þau. Til að koma á móts við þörfina hefur Stykkishólmsbær skipulagt orlofshúsa- byggð rétt fyrir ofan bæinn. Svæðið hefur fengið nafnið Arnarborg. Skipavík í Stykk- ishólmi hefur hafið smíði orlofshúsa á svæð- inu sem verða afhent um mánaðamótin júní-júlí. En hvað gerir Stykkishólm svona aðlaðandi? Er það bæjarstæðið, fallegt um- hverfi, góð sundlaug, heitt vatn? Ef Hólm- arar eru spurðir eiga þeir ekki í vandræð- um með svörin.    Körfuboltalið Snæfells heldur áfram sigurgöngu sinni í Úrvalsdeild Íslands- mótsins í körfubolta. Á föstudaginn vann það sinn 10. sigur í röð og er komið í efsta sæti deildarinnar með 32 stig. Aðal- umræðuefni bæjarbúa er þessa dagana körfubolti og það verður að játast að Hólm- arar, sem fylgjast vel með liði sínu, áttu ekki von á að því gengi svona vel. Í ekki stærra bæjarfélagi hefur frammistaða liðs- ins jákvæð áhrif á bæjarbraginn. Ólíkleg- ustu menn eru farnir að tala um körfubolta og góð aðsókn er á heimaleiki Snæfells. Á föstudag auglýsti Tannlæknastofan lokun eftir hádegi því starfsmenn hennar ætluðu að fylgja Snæfellsliðinu á leikinn við Breiðablik.    Framhaldsskóli Snæfellinga tekur til starfa í Grundarfirði í haust. Í Stykkishólmi hefur verið starfrækt framhaldsdeild frá Fjölbrautaskóla Vesturlands til fjölda ára. Þar hefur verið boðið upp á 1 til 2 ár í fram- haldsnámi, sem hefur haft mikla þýðingu fyrir unglingana. Framhaldsdeildin leggst nú niður og námið færist út í Grundarfjörð. Við það fækkar stöðugildum við grunnskól- ann en reiknað er með að framhaldsskóla- kennarar fái störf við nýja skólann. Ekki voru allir Hólmarar sammála um þá breytingu að færa nám unglinganna í burtu. En samstaða náðist á milli sveitarfé- laganna á Snæfellsnesi um sameiginlegan framhaldsskóla staðsettan í Grundarfirði og er þetta mikill áfangi í því samstarfi. Úr bæjarlífinu STYKKISHÓLMUR EFTIR GUNNLAUG ÁRNASON FRÉTTARITARA Jón Benediktsson,bóndi á Auðnum íÞingeyjarsveit, seg- ir á bondi.is að ref hafi stórlega fjölgað fyrir norðan. Hann segir nauð- synlegt að leggja meira fjármagn í refaveiðar en gert hefur verið. Það þurfi að leita að nýjum grenjum og jafnvel líka að gömlum týndum grenjum sem grunur leikur á að refur- inn sé aftur farinn að búa í. Jón segir að greni séu víðar en vitað er um. Hann segir að eftir að hálendislínan var dregin og ríkið hætti að greiða fyrir grenjavinnslu á há- lendinu hafi tófunni tekið að fjölga. Einnig hafi létt- ir vetur undanfarin ár verið refastofninum hag- stæðir. Fleiri refir Þóshöfn | Lífsgleði og galsi var í sundlauginni á Þórshöfn á dögunum. Stelpurnar í 10. bekk grunnskólans fengu leyfi hjá íþróttakennaranum til að fara í sundslag við strákana í tilefni þess að þetta var síðasti sundtím- inn á miðsvetrarönninni og erfiður tími prófanna framundan. Morgunblaðið/Líney Sundslagur við strákana Einar Kolbeinssonfylgdist með Ást-þóri Magnússyni ræða um forsetaframboð sitt í Kastljósi á sunnu- dag: Fráleitt hefur fengið nóg, frakkur sýnir þráann. Ástþór reynir aftur þó, enginn vilji sjá́ann. Steingrímur Sigfússon var í þingveislu og tal- aði í bundnu máli, hefð- um samkvæmt, þegar hann ávarpaði Geir Haarde: Vel í holdum, værukær, vappar um með loðnar tær, engar tekjur að austan fær – Ítalirnir hirða þær. Einnig spurðist vísa sem Steingrímur orti í tilefni af þingveislunni: Veislu heldur, veitir tár, víst skal starfið metið; hefur nú í hundrað ár Hannes Oddsson setið. Í þingveislu pebl@mbl.is Fljót | Í síðustu viku fannst hrútlamb á Hvarfdal í Fljótum. Dalurinn liggur fram af byggð- inni í Austur-Fljótum. Bóndinn á fremsta bænum í sveitinni var þar á ferð á snjósleða á góðviðr- isdegi og kom auga á lambið nánast niðri á sléttlendi og náði því. Það reyndist vera sæðings- hrútur frá bænum Brúnastöð- um í Fljótum. Þrátt fyrir mikinn snjó á þessum slóðum síðan snemma í janúar er ljóst að það hefur haft einhverja beit. Talið er að lambið hafi hafst við í svo- kölluðum Dröngum sem eru of- arlega í vesturhlíð dalsins. Þar er skjólgott og mun taka seint fyrir beit. Það er afar fátítt að skepnur finnist til fjalla í Fljót- um þegar svo langt er liðið á vetur enda ávallt sú hætta að þær sem ekki finnast á haustin fenni í kaf ef áhlaup gerir. Ljósmynd/Örn Þórarinsson Fagnaðarfundur: Krakkarnir á Brúnastöðum í Fljótum; Ólafur Ísar og Guðrún t.v. og Kristinn Knörr og Ríkey Þöll með hrússa nýkominn til byggða, en ljóst er að hann hefur haft einhverja beit. Lambhrútur fannst fyrir tilviljun Seigla Selfoss | Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir hefur heimilað útboð á fram- kvæmdum við 800 milljóna króna verk við- byggingar við Sjúkrahús Suðurlands á Sel- fossi. Verkið mun ná til þess að ljúka upp- steypu hússins, frágangi utanhúss og inn- réttingu annarrar hæðar þess þar sem verður hjúkrunardeild fyrir aldraða sem taka mun á móti þeirri starfsemi sem er nú í hjúkrunardeildinni Ljósheimum við Aust- urveg á Selfossi. Verklok eru áætluð árið 2006. Í hinni nýju viðbyggingu verður auk hjúkrunardeildarinnar aðstaða fyrir heilsugæslu á fyrstu hæðinni og gert er ráð fyir endurhæfingu í kjallara. Mikil fagnaðarbylgja fór um byggðir á Suðurlandi þegar ljóst var af fréttum Rík- isútvarpsins og Sunnlenska fréttablaðsins að þetta baráttumál Sunnlendinga var í höfn. Starfsfólk og heimilisfólk á Ljós- heimum klappaði og skálaði fyrir tíðind- unum og á Heilbrigðisstofnuninni á Sel- fossi slógu starfsmenn saman höndum þegar þeir mættust á göngum Sjúkrahúss Suðurlands, eins og boltaíþróttamenn gera eftir að hafa skorað. Haft var á orði að ár- angurinn mætti þakka samstöðu og bjart- sýni allra þeirra sem að málinu hafa komið. Gunnar Friðþjófsson kokkur á Sjúkrahús- inu bar fram sérstakt vínarbrauð til hátíð- arbrigða. Heimild veitt til útboðs viðbygg- ingar sjúkra- hússins á Selfossi Morgunblaðið/Sig. Jóns. Nýja viðbyggingin mun tengjast eldra húsinu á miðri vesturhlið þess. Fjölga smáhýs- um á tjaldstæði NÁTTBÓL ehf. setti niður fimm smáhýsi á tjaldstæðinu á Höfn sl. sumar og sjötta húsið bíður flutnings á tjaldstæðið. Fyr- irtækið áætlar að bæta 8–10 smáhýsum við áður en ferðamannatíminn í sumar byrjar. Jón Stefán Friðriksson, einn af eigend- um Náttbóls, segir á vefnum hornafjördur- .is að ekki sé ákveðið hvort þetta verða sams konar hús og þau sem komin eru, það kemur í ljós á næstu dögum, en verið er að skoða fleiri gerðir húsa. Húsin, sem komin eru, eru finnsk, með gistiplássi fyrir sex manns í herbergi, snyrtingu og plássi með borði og stólum. ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.