Morgunblaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 19
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 19 TUTTUGU ár verða liðin frá stofnun Verkmenntaskólans á Ak- ureyri 1. júní næstkomandi. Af þessu tilefni hafa skólayfirvöld VMA ákveðið að ráðast í útgáfu rits, þar sem fjallað er um sögu skólans sem og einnig um verk- menntun við Eyjafjörð frá upphafi. Aðalhöfundur verksins er Bern- harð Haraldsson, fyrrverandi skólameistari VMA, og er hann þegar langt kominn með verkið. Ritið mun koma út næsta haust, en það verður í stóru broti, ríkulega myndskreytt. Bókaútgáfan Hólar gefur bókina út. Frásögnin hefst á 19. öld þegar Eyfirðingar hófu skipasmíðar og Einar Ásmundsson í Nesi tók að kenna stýrimannafræði. Þá verður fjallað um mótorfræði og vélstjórn, vélskóladeildina á Akureyri, Iðn- skólann og Iðnaðarmannafélag Akureyrar, baráttuna fyrir tækni- skóla á Akureyri, Gagnfræðaskóla Akureyrar og framhaldsdeildir hans, Húsmæðraskólann og ótal margt fleira. Heillaóskaskrá verður í bókinni þar sem öllum velunnurum skól- ans, nemendum, starfsfólki og áhugamönnum um sögu Eyja- fjarðar verður boðið að skrá nafn sitt. Þeir sem kjósa að skrá nafn sitt í heillaóskaskrána fá bókina á lægra verði. Tekið er á móti pönt- unum á netfangið holar@simnet- .is. Afmælisrit um VMA MIKLAR sviptingar hafa verið í veðrinu það sem af er ári og hafa Eyfirðingar ekki farið var- hluta af því frekar en aðrir landsmenn. Í janúar var mikið óveður, með tilheyrarndi ófærð, auk þess sem raflínur slitnuðu vegna snjóflóða. Fyrr í þessum mánuði snjóaði mikið, kuldinn fór niður fyrir 10 gráður í mínus og í síðustu viku hlýnaði á ný með suðlægum áttum og fór hitinn þá í 12– 14 gráður í plús. Heimir Kristinsson í Sigluvík á Svalbarðsströnd fylgist vel með veðrinu og hann tók myndir heima hjá sér, sem sýna vel hversu sviptingarnar hafa verið miklar að undanförnu. Hinn 8. febrúar var allt á kafi í snjó heima við bæ en hinn 19. febrúar var jörð orðin auð og undan snjónum komu iðagræn tún. Þá flæddu minnstu bæjarlækir yfir bakka sína í leysing- unum. Heimir sagði þetta mikla umbyltingu á innan við hálfum mánuði og að menn hefðu sjald- an eða aldrei séð annað eins á jafn fáum dögum. Ólafur G. Vagnsson, ráðunautur hjá Bún- aðarsambandi Eyjafjarðar, sagði að varðandi túnræktina hefði það sýnt sig í gegnum árin að það séu svellalög sem valdi kali í túnum. Þá skipti máli hversu lengi svellin liggja samfellt yf- ir túnunum og einng hafi það áhrif á hvaða tíma svellin leggist yfir. Ólafur sagði að í Eyjafirði væru svæði þar sem svell lögðust yfir strax í des- ember og þrátt fyrir hláku að undanförnu hefðu þau ekki náð að hreinsast af svellalögum. „Það er talað um þriggja mánaða krítískan tíma og ef þessi svellalög liggja áfram yfir túnum fram í næsta mánuð er hætta á kali. Þessi tími er þó hættulegri eftir því sem nær dregur vori en ef þetta gerist fyrr um veturinn.“ Ólafur sagði að ekki virtist nokkur hætta á tjóni þótt komi svona hlýindakaflar, tún grænki um miðjan vetur og svo snjói og kólni aftur. „Kal stafar af köfnun þegar svell liggja yfir túnum í þetta langan tíma.“ Ólafur sagði að víða út með firði, t.d. í Svarfaðardal og á Árskógsströnd séu enn svell og snjór yfir túnum en annars staðar sé jörð orðin auð. Eyfirðingar hafa ekki farið varhluta af sviptingum í veðrinu Tún komu víða iðagræn undan snjónum Allt á kafi í snjó. Þannig var umhorfs í Sigluvík 8. febrúar sl. eftir stórhríð- ina dagana á undan. Húsin fóru þá nánast á kaf í snjó. Morgunblaðið/Heimir Kristinsson Túnin græn undan snjónum. 19. febrúar sl. var nánast allur snjór horfinn í Sigluvík og túnin voru iðagræn. EES-samningur | Bjarnveig Ei- ríksdóttir héraðsdómslögmaður flytur fyrirlestur á Lögfræðitorgi í dag, þriðjudag- inn 24. febrúar, kl. 16.30 í Þing- vallastræti 23, stofu 24. Hann fjallar um eftirlit með framkvæmd EES-samningsins. Í erindi sínu mun Bjarnveig rekja helstu þætti eftirlitsins, hvernig það fer fram, og fjalla um kosti og galla hinna mismunandi leiða sem eru við eftirlit með framkvæmd samningsins.    Safnasvæði við Krókeyri | Unnið er að gerð deiliskipulags safn- asvæðis við Krókeyri, eins og fram kom í Morgunblaðinu sl. laugardag og er gert ráð fyrir að svæðið verði hluti safnaþyrpingar í Innbænum. Í fréttinni á laugardag láðist að geta þess að deiliskipulagið er unnið af Árna Ólafssyni arkitekt en hann starfar hjá Teiknistofu arkitekta Gylfi Guðjónsson og félagar ehf. HVAMMUR fasteignasala, er nafn á nýrri fasteignasölu sem tekið hefur til starfa í Amarohúsinu, Hafnarstræti 99–101 á Akureyri. Arnar Birgisson er eigandi hennar og jafnframt sölustjóri en með honum starfa Sigurður Sigurðs- son, löggiltur fasteignasali, Svala Jónsdóttir sölumaður og Ragnhild- ur Stefánsdóttir sölumaður sem jafnframt sér um skjalagerð. Hvammur er áttunda fasteignasal- an á Akureyri en á tæpu ári hafa tvær nýjar fasteignasölur hafið starfsemi í bænum. Arnar þekkir vel til í fasteigna- geiranum en hann starfaði á Fast- eignasölunni Holti í tæp 10 ár. Hann sagði að það legðist vel í sig að fara í út í fasteignasölu á nýjan leik og er bjartsýnn á reksturinn. „Þetta fer mjög vel af stað og við teljum að það sé pláss fyrir okkur á markaðnum. Við erum komin með yfir 30 eignir á skrá þessa fyrstu viku sem opið er og fyrsta eignin hefur verið seld. Þetta snýst um dugnað og að veita góða þjónustu og það ætlum við að gera. Og aukin samkeppni kemur sér vel fyrir viðskiptavinina.“ Arnar sagðist hafa haft spurnir af því að frekar rólegt hefði verið á fasteignamarkaðnum frá áramót- um. Hann sagði það ekkert nýtt á þessum árstíma en þó hefðu marg- ir samband og sendu inn fyrir- spurnir. Eftir páska mætti hins vegar búast við að kippur kæmi í markaðinn. Arnar rekur jafnframt umboð fyrir Íslandstryggingu í sama hús- næði og er Benedikt Viggósson sölufulltrúi umboðsins á Akureyri. Fasteignasölum fjölgar á Akureyri og eru nú átta talsins „Teljum að það sé pláss fyrir okkur“ Morgunblaðið/Kristján Ný fasteignasala á Akureyri . Starfsfólk Hvamms og Íslandstryggingar, f.v. Benedikt Viggósson, Svala Jónsdóttir, Ragnhildur Stefánsdóttir, Sig- urður S. Sigurðsson og Arnar Birgisson. Í GÆR snerist veðrið á Akureyri til norðlægrar áttar á ný með éljagangi um tíma og næstu daga er gert ráð fyrir kólnandi veðri. Spáð er éljum eða snjókomu norðanlands en um helgina gæti farð að hlýna á ný. Vinkonurnar Gunnur og Kristjana Bylgja þurftu að halda sér í girðinguna við andapollinn á leið heim úr Brekkuskóla í gær en mikil hálka var á göngustígnum og nokkur vindur, auk þess sem hann gekk á með éljum. Morgunblaðið/Kristján Norðlægar áttir í kortunum FYRIRTÆKI TIL SÖLU www.fyrirtaekjasala.is FYRIRTÆKJASALA ÍSLANDS Síðumúla 15 • Sími 588 5160 Gunnar Jón Yngvason lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.