Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 44
Morgunblaðið/Eggert Björk Jakobsdóttir táraðist eins og fegurðardrottning. SÍÐASTLIÐIÐ laugardagskvöld var NO NAME andlit-ársins 2004 kynnt. Athöfnin fór fram í Iðnó að viðstöddu fjölmenni. Kynnir var leik- arinn Jóhann G. Jóhannsson. Þetta er í 19. sinn sem útnefningin fer fram en fyrsta andlitið var kynnt árið 1990. Ávallt hvílir leynd yfir því hver verður fyrir valinu og hefur þar af leiðandi myndast talsverð eftirvænting yfir því hver verður valin. Í ár var sú nýbreytni viðhöfð að fyrri NO NAME-andlit völdu þá sem titilinn hlaut í ár. Fyrir valinu varð leikkonan Björk Jakobsdóttir en hún hefur getið sér gott orð fyr- ir uppistands einleikinn Sellofon, sem frum- sýndur var árið 2002. Björk leikur um þessar mundir í leikritinu 5stelpur.com. Björk Jakobsdóttir NO NAME-andlit ársins Selma B og Sigga B tóku lagið saman. HÓPUR annálaðra tónlistar- manna hefur komist að þeirri nið- urstöðu að Bítlarnir séu mestu rokkstjörnur síðastliðinna fimm- tíu ára. Bruce Springsteen, Edge gít- arleikari U2, Chrissie Hynde söngkona Pretenders og Moby voru á meðal þeirra 55 tónlistar- manna sem tóku þátt í valinu á fimmtíu áhrifamestu tónlistar- mönnunum sem fram fór á veg- um Rolling Stone magazine. Pete Townsend úr The Who, Art Gar- funkel og Slash fyrrum gítarleik- ari Guns N’ Roses tóku einnig þátt í könnuninni. Á eftir Bítlunum voru nefndir til sögunnar þeir Bob Dylan og Elvis Presley. Aretha Franklin, sem varð 62 ára á dögunum, hafnaði í níunda sæti – en hún var eina konan sem komst á topp tíu listann. Könnunin spannaði fimmtíu ár eða fyrstu fimmtíu árin af rokki og róli. Upphaf tímabilsins er rakið til 5. júlí árið 1954 – daginn sem Elvis hljóðritaði lagið That’s All Right í Memphis. Nokkrir tónlistarmannanna sem tóku þátt í könnuninni hrip- uðu niður texta í því skyni að vegsama sinn uppáhaldstónlistar- mann. Elvis Costello sagði að Bítlarnir hefðu hljómað ólíkt öllu öðru þegar hann fyrst heyrði í þeim árið 1962. „Þeir höfðu þá þegar tekið upp á arma sína lög efti Buddy Holly, The Everly Brothers og Chuck Berry, en þeir sömdu einnig lög sjálfir,“ ritaði Costello. „Þeir gerðu það að viðtekinni venju að semja sitt eigið efni.“ Britney Spears skrifaði um Mad- onnu: „Ég myndi án nokkurs vafa ekki vera að gera það sem ég er að gera í dag nema vegna Madonnu.“ Listinn er svohljóðandi: The Beatles Bob Dylan Elvis Presley The Rolling Stones Chuck Berry Jimi Hendrix James Brown Little Richard Aretha Franklin Ray Charles Bítlarnir efstir og áhrifamestir Óhætt er að kalla Bítlana áhrifamestu popphljómsveit sögunnar. AP 44 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10.20. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. KRINGLAN Sýnd kl. 6, 7, 9 og 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. Gamanmynd eins og þær gerast bestar ! Hágæða spennutryllir með Angelinu Jolie, Ethan Hawke og Kiefer Sutherland í aðalhlutverki. Hann mun gera allt til að verða þú!r llt til r ! Sprenghlægileg gamanmynd þar sem Ben Stiller og Owen Wilson fara á kostum sem súperlöggur á disco-tímabilinu! l il ill il f l i í ili ! „Hreint út sagt frábær skemmtun“ „Þetta er besta myndin í bíó í dag“ Fréttablaðið i i í í í l i Sýnd kl. 10. B.i. 16.Sýnd kl. 8.10. B.i. 16. Sýnd kl. 6. Sean Penn besti leikari í aðalhlutverki Tim Robbins besti leikari í aukahlutverki Sýnd kl. 5.45. Sýnd kl. 6, 8 og 10.05.  J.H.H Kvikmyndir.com  Ó.H.T Rás2 Sýnd kl. 8. „Stórkostlegt kvikmyndaverk“ HL. MBL „Hreint út sagt frábær skemmtun“ „Þetta er besta myndin í bíó í dag“ Fréttablaðið i i í í í l i Bless Krakkar Au revoir les enfants Kynna Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16. Hann mun gera allt til að verða þú!r llt til r ! Hágæða spennutryllir með Angelinu Jolie, Ethan Hawke og Kiefer Sutherland í aðalhlutverki. FULLT HÚS HJÁ ÖLLUM HELSTU GAGNRÝNENDUM LANDSINS! Skonrokk „Bráðfyndin“ HJ. MBL Ó.H.T. Rás2 „Hundrað sinnum fyndnari en Ben Stiller á besta degi.“ -VG. DV „Ótrúlega áhrifarík. Frumleg, fyndin og elskuleg.“ -BÖS, Fréttablaðið -Roger Ebert Sýnd kl. 6, 8 og 10.05. Sprenghlægileg gamanmynd þar sem Ben Stiller og Owen Wilson fara á kostum sem súperlöggur á disco-tímabilinu! Í KVÖLD mun menning- arbarinn Jón forseti ásamt Laugarásvídeói og Nexus bjóða upp á safaríkt teikni- myndakvöld á Jóni forseta, þar sem heilum 44 myndum verður varpað á hvíta tjaldið, á rúmlega fjórum tímum. Lengd þeirra spannar allt frá 25 sekúndum og upp í 75 mínútur, en sú elsta þeirra er frá árinu 1940 og þær yngstu frá árinu 2002. Mark- miðið er að reyna að draga upp fjölbreytta mynd af teiknimyndum allra tíma og í leiðinni varpa einhverju ljósi á sögu og þróun þessa tján- ingarmiðils. Dagskrá kvölds- ins og niðurröðun hennar miðar jafnframt að því að áhorfandinn geti orðið margs vísari með því að ferðast frá hefðinni yfir í nýjabrumið. Dagskrá kvöldsins er eft- irfarandi: Kl. 20.00–20.50: Looney Tunessyrpa (1940–1949). Kl. 21.05–22.20: Tin Tin & The Lake of Sharks (1972). Kl. 22.55–24.15: Ýmsar ný- legar „adult“ teiknimyndir eftir sjálfstæða aðila. Sýningar hefjast stundvís- lega kl. 20.00 og er aðgangur ókeypis á meðan húsrúm leyfir. Gestir eru vinsamleg- ast beðnir um að slökkva á farsímum meðan á sýningum stendur. Tinni og Tobbi láta sig ekki vanta á Teiknimyndakvöldið. 44 teikni- myndir á rúmlega 4 tímum Lágmenningarbíó Jóns forseta:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.