Vísir - 06.04.1981, Síða 18
Unglingastjarnan Brooke Shields
er niimer eitt yfir verst klæddu
konurnar.
Sophia Loren er ein af þeim best
klæddu.
Elizabeth Taylor reynir að yngja
sig upp i klæðaburði og hafnar i
öðru sæti yfir þær verst klæddu.
Suzanne Somers er þriðja verst
klædda konan.
Dallas-stj arnan Charlene Tilton
er ein af þeim verst klæddu.
Fötin skapa
manninn
Brooke Shields sú verst klædda
ad dómi tiskufrömuda
i Ameriku stunda menn mjög
þá iðju að velja þá best klæddu og
verst klæddu úr hópi fræga fólks-
ins og sá sem einna inest mark er
tekið á i þessum efnum er tisku-
hönnuður einn i Hollywood sem
gengur undir nafninu Herra
Blackwell. Hann hefur nú birt
lista sinn yfir áriö 1980 og skal hér
gripið niður i þeirri upptalningu,
sem fjallar um klæðaburð kven-
fólksins þar vestra.
Blackwell hefur valið unglinga-
stjörnuna Brooke Shields i fyrsta
sæti yfir verst klæddu konur árs-
ins. Astæðuna segir Blackwell
vera þá að hún klæði sig ekki i
samræmi við aldur sinn heldur sé
hún með klæðaburði sinum,,að
reyna að vera kona”.
' — ,,Það er mdðir hennar sem á
sök á þessu”, —segir Blackwell.
„HUn erafar metnaðargjörn fyrir
hönd dóttur sinnar en athugar það
----------------------------►
Nancy Reagan er best klædda
kona ársins 1980 að dómi Black-
wells.
ekki að best er að láta hlutina
hafa sinn eðlilega gang. Leyfið
þeim ungu að vera ungar svo
lengi sem kostur er”, — segir
tiskufrömuðurinn.
NUmer tvö yfir þær vest klæddu
er Elizabeth Taylor og þar gildir
það sama, bara með öfugum for-
merkjum. Beta reynir nefnilega
að yngja sig upp i klæðaburði en
verður hallærisleg fyrir bragðið
að sögn Blackwells.
Suzanne Sommers er
númer þrjU yfir þær verst klæddu
og á eftir fylgja Bo Derek númer
fjögur, Charlene Tilton, stjarnan
Ur sjónvarpsþáttunum „Dallas”
nUmer fimm og;Beatrix Hollands-
drottning nUmer sex.
NUmer eitt á listanum yfir þær
best klæddu er Nancy Reagan
forsetafrU i Bandarikjunum en
um hana segir Blackwell að hún
klæði sig óaðafinnanlega og ávallt
i samræmi við stöðu sina og að-
stæður hverju sinni.
1 næstu sætum á þeim lista eru
leikkonurnar Sophia Loren og
Catherine Deneuve.
Bo Derek er ekki mikið klædd i
myndinni „10” og i raunveruleik-
anum er hún illa klædd að dómi
Blackwells.
Herra Blackwell tlskufrömuöur I
Hollywood hefur valið listann yfir
best klæddu og þær verst klæddu.
SUNDMÓTI
Vill hætta I Stones
Bill Wymari/ bassaleikari Rolling Stones, hefur lýst þvi yfir
aö hann hafi hug á að yfirgefa hljómsveitina og hætta í popp-
inu. Bill segir að eftir tvo áratugi í þessum bransa ,/Sé hann
búinn að fá nóg af glamornum/ sukkinu og hneykslunum"
i sem fylgi þessu lífi og að það sé ekki lengur gaman að .
L véra /,einn af Steinunum" eins og hann orðar það. Það A
■jv séu komnir nýir menn og breyttir tímar og músíkin
sé ekki lengur hans... ÆF
f
Svona var
^ stemmningin á
(lansleiknum frá upphafi
til enda, — heilbrigöir
krakkar að skemmta sér.
Umsjón;
Sveinn
Guðjónsson
Guðmundur Þ.B. Ólafsson,
fréttaritari Visis i Vestmannaeyj-
um, sendi blaðinu eftirfarandi
pistilum sundmót Kiwanismanna
sem haldið var i Eyjum nú ný-
verið;
„Nýlega stóðu Kiwanismenn
fyrir sinu árlega Kiwanissund-
móti hér i' Vestmannaeyjum og
heppnaðist það vel eins og ávallt
áður. Mikill hugur er i sund-
krökkunum þegar fer að liöa að
móti þessu, enda mun það vera
talið til stærri viðburöa hjá þeim.
Kiwanismenn standa að öllu leyti
fyrir móti þessu, sjá um tima-
tökur, skráningar, verðlaunaaf-
hendingar, og svo auðvitað sjá
þeir um aila verðlaunagripi.
Verðlaun eru veitt i öllum grein-
um, gull, silfur og brons, auk þess
fær sá keppandi sem mest hefur
bætt sinn árangur frá seinasta
Kiwanismóti, sérstakan farand-
bikar og annan til eignar i verð-
laun. Verðlaunagjöf þessi er ein-
staklega vinsæl, þvi allir þátttak-
endur hafa jafna möguleika á þvi
aö vinna Kiwanisbikarinn. Að
þessu sinni urðu þau sigurveg-
arar Kiwanisbikaranna, i
kvennaflokki, Lovisa Jónsdóttir,
en þótt ung sé að árum hefur hún
tekið þátt i öllum Kiwanismótun-
um. 1 karlaflokki sigraöi Magnús
Tryggvason.