Vísir - 30.04.1981, Blaðsíða 19

Vísir - 30.04.1981, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 30. apr „Þl EN 1 1981 EIR Kl i s ERI TA Ul RF Ell IS IF iíN Al IU LDLE VAX GA NIR 99 - Rætt vlð Hrafn Jóhannsson. sem vlklð var úr starfi sem deildarstlðra hjá fiugmáiastjðrn eftir átta ára starf. Hann helur margar athugasemdir fram að tæra vlð starfshætti stotnunarlnnar | Hrafn Jóhannsson flugvelli i þeirra kjördæmi, pen- ingarnir sem i hann áttu að fara voru fluttir i allt annaö verkefni, jafnvel I öðru kjördæmi. En eftir að nýr maöur tók við sem formaður flugráðs, skapaðist nýtt aðhald, þvi að fíugráð fer með stjórn flugmála i landinu og flugmálastjóri er undir það sett- ur. Nú starfar flugráð eftir þeim reglum, sem þvi eru settar. Flugráð fær fréttir i blöðum. Flugmálastjóri má ekki ráð- stafa fé stofnunarinnar nema i samræmi við f járhagsáætlun sem flugráð gerir. Hann fer þó i kring- um þær reglur eftir getu, t.d. er mér kunnugt um að flugráð vissi ekki um kvikmyndina, sem hann er að láta gera um sjálfan sig á kostnað stofnunarinnar, fyrr en meðlimir þess lásu frétt af þvi i VIsi. Það var eins með nýju tækjageymsluna á Akureyri, hún var ekki "framkvæmdaáætlun flugráðs og flugráðsmenn vissu ekki um að byrjað hefði verið á henni, fyrr en þeir lásu um það i Morgunblaðinu. En á þeim tima stóðu flugráðs- menn sig ekki sem skyldi, þvi þeir höföu ekki það eftirlit með flug- málastjórn og flugmálastjóra sem þeim bar, samkvæmt reglum flugráðs.” Leynistaðan. — Þú nefndir áðan að skipun Péturs hafi haft á sér pólitiskan blæ. Hvernig bar hana að? „Það var auglýst staða fram- kvæmdastjóra við flugmála- stjórn, en auglýsingin er sér- kennileg að þvi leyti aö þar er ekki gerö grein fyrir verksviði né kröfum um menntun og reynslu. Auglýsingin LAUSSTAÐA Staða framkvæmdastjóra við flugmálastjórn er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt upplýsing- um um aldur, menntun og fyrri störf sendist sam- gönguráðuneytinu fyrir 28. júli 1980. Samgönguráöuneytið, 30. júni 1980. (2773 Menn spyrja þá ráðuneytiö og er svarað aö þetta sé staða fram- kvæmdastjóra við flugöryggis- þjónustu. Hinsvegar munu ekki allir hafa fengið sömu svör og sumum er gefið I skyn að þarna sé verið aö búa til nýja stöðu. Siöan hefjast bréfaskrif milli flugráðs og samgönguráðuneytisins. Sam- kvæmt starfsreglum á að leggja allar umsóknir fyrir það og það á aö gefa umsögn um umsækjend- ur. En flugráð telur sig ekki fá nægar upplýsingar um stööuna, sem var auglýst. Ein staða auglýst — tveir ráðnir. Úr bréfi flugráðs til samgönguráðuneytis- ins dags. 24. júlí 1980. „Nánari skýring á verk- sviði framkvæmdastjórans kemur ekki fram i auglýs- ingunni, en upplýst var að tveir hugsanlegir umsækj- endur um stöðu þessa hafa fengið mismunandi upplýs- ingar af hálfu ráðuneytisins. 1 fyrra skiptið var sú skýring veitt, að um væri að ræða flugvalladeild, en i siðara skiptið að hér væri um að ræða flugöryggisþjónust- una”. Og siðar: „...ber (flugráði) nauðsyn tilað fá upplýst hvaöa stöðu er átt við i téöri auglýsingu”. Þetta endar þannig að flugráð stóö fast á að meta ekki hæfni manna til starfs, sem það fékk ekki skilgreint i hverju ætti að felast og Steingrimur skipaöi tvo menn i framkvæmdastjórastöð- ur, án umsagnar flugráðs. Pétur Einarsson var skipaður fram- kvæmdastjóri flugvalladeildar og Haukur Hauksson framkvæmda- stjóri flugöryggisþjónustu. Þaö var aldrei auglýst nema eitt em- bætti og svo laumulega með þetta mál allt farið, að flugráö fékk ekki einu sinni að vita aö tvö væru i boði. úr bréfi samgöngu- ráöuneytisins til flug- ráös/ dags. 6. ágúst 1980. 1 bréfinu greinir frá að Leifi Magnússyni hafi verið veitt lausn frá starfi fram- kvæmdastjóra flugöryggis- þjónustu, að hans eigin ósk. Siðan segir: „Það er þetta stöðugildi sem lýst er laust til umsókn- ar með auglýsingu þeirri er fyrr greinir...” Og enn siðar: „Það skal tekið fram að ráðuneytið hefur i hyggju að stofna á ný til stöðu fram- kvæmdastjóra flugvalla og verður meðferð umsókna þessara við það miðuð”. úr svari flugráðS/ dags. 29. ágúst 1980. ,,... er þaö einróma álit flugráðs, að eftir umfjöllun ráðsins um tillögur um breytt skipulag flugmála- stjórnar, og ákvörðun stjórn- valda um það, veröi þær stöður, sem lausar verði til umsóknar, auglýstar með hefðbundnum hætti”. Samgönguráðuneytið svaraöi með þvi að skipa 3. september i tvær stöður framkvæmdastjóra við flug- málastjórn. Onnur þeirra var aðeins til i tillögum nefndar undir stjórn þess manns, sem i stöðuna var skipaður. Þetta rennir stoðum undir þá skoðun mina og margra annarra, að þarna átti að læða Pétri inn, og var raunar gert. Ég lagði þetta mál fyrir BHM. Þeir kynntu sér það vel og þeirra afstaða var skýr. Þeir töldu þetta brot á starfsreglum flugráðs og brot á lögum, sem varða réttindi og skyldur opinberra starfs- manna, þar sem skylt er aö aug- lýsa slika stöðu.” ,,Af þvi að hann er ráð- herra” —Ertu með þessu að segja að samgönguráðherra hafi brotiö lög með þessum starfsháttum? „Ég hef undir höndum afrit af bréfi, þar sem BHM átelur sam- gönguráðherra harðlega fyrir að brjóta lög og reglur I sambandi við ráðningu Péturs. Ég hlýt aö trúa að hann hafi þá gert sig sek- an um lögbrot.” —Verður þá ekki gefin út kæra I málinu? „Nei. Það viröist vera afstaða allra þeirra, sem ég hef leitaö til varöandi þetta mál mitt, að allir eru sammála um að þarna séu höfð i frammi lögbrot. Það er lögbrot þegar Pétur er ráðinn, það er lögbrot þegar mér er sagt upp og ég á samúð manna, þeim þykir hörmulegt að þetta skuli vera hægt, en þeir halda að sér höndum. Ég spurði lögfræöing minn hvort ekki væri ástæða til aö hef ja mál á hendur samgönguráö- herra, eða hvort honum ætti að liðast að brjóta lög og reglur. Svar hans var aö honum leyfðist þetta af þvi að hann er ráðherra. Tii þess eins að flytja Ragnar” Þetta gefur spegilmynd af þvi samfélagi sem við lifum i. Við horfum á og samþykkjum alls konar lögbrot án þess aö depla augum. Ég get sjálfur litiö I eigin „Flugmálastjóri kaupir flugvél I algjöru heimildarleysi” (mynd af nyju vélinni sem flugmálastjórn á.) barm, þegar ég horfi á það árum saman að fjárlög rikisins eru þverbrotin. Ég horfi uppá þegar flugmála- stjóri gefur yfirlýsingar i fjöl- miðlum, þegar hann var staðinn að þvi að senda flugvélina meö Ragnar Arnalds norður á Sauöár- krók og sækja hann aftur, eins og frægt er. Hann kom meö eina skýringu i dag og aðra á morgun, en sannleikurinn kom ekki i ljós. Sannleikurinn var sá aö vélin var dregin út úr skýlinu 1 báðum til- vikunum til þess að flytja Ragn- ar. Valsar með fjármuni skattborgaranna. Ég vissi þetta og mér hefði ver- iö i lófa lagiö aö skýra frá þvi I blöðum, en ég gerði þaö ekki. Sú sama er afstaða þingmannanna gagnvart þessum lögbrotum. Þeir horfa á það árum og áratug- um saman aö fjárlög eru brotinn flugmálastjóri kaupir flugvél i al- gjöru heimildarleysi og valsar með fjármuni skattborgaranna og allir horfa á þetta aðgerðar- lausir. Mönnum liðst þetta vegna þess að allir halda að sér höndum. Til samanburðar má nefna, að á siðastliðnu ári vakti það mikla athygli Dana, þegar einn ráö- herrann þeirra varð uppvis að þvi aö nota heldur dýra Ibúð, þegar hann var á fundi I Paris. Ráð- herrann var kallaður heim og al- menningur krafðist þess að hann segði af sér, — eada fór svo. íslcnskir þingmenn eru öðruvisi Þá afstöðu hafa ekki Islenskir þingmenn. Þeir horfa árum sam- an á lögbrotin allt i kringum þá, án þess að gera tilraun til að kom- ast fyrir rót meinsins. Þeir lita ekki upp, fyrr en þeir eru komnir I persónulega klipu, gagnvart kjósendum sinum, vegna þess aö einhver hefur stolið fé úr fram- kvæmdum i þeirra eigin kjör- dæmi, og notað það I annað. Þá tryllast þeir og skammast, og siö- an ekki meir. Hjá öðrum þjóöum væru menn sem reka embætti sitt eins og hér hefur verið lýst kall- aðir fyrir og þeir reknir, þvi þeir eru einfaldlega ekki starfi sinu vaxnir. Þá skýrist samhengið. Aður en við ljúkum þessu spjalli vil ég gjarnan segja frá þvi að I fyrravor skipaði Steingrimur Hermannsson nefnd til að gera tillögur um breytta tilhögun hjá flugmálastjórn. Ein af tillögum nefndarinnar er að þaö eigi að leggja flugráð niður i núverandi mynd. Formaður þeirrar nefndar er Pétur Einarsson, og væntan- lega fer þá samhengiö að skýrast fyrir mönnum. Það er ekki öll- um gefið að fá að móta og velja sér verksviö innan rikisstofnun- ar. SV Agnar Kofoed-Hansen, flugmálastjóri

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.