Vísir - 25.06.1981, Blaðsíða 15

Vísir - 25.06.1981, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 25. júní 1981 VÍSIR ALLT A FLOTI A MELGERBISMÖTINU - Þrátl fyrir Dað Dötti hestamannamótið takast vel „Ég held aö flestir hafi farið ánægöir heim, þótt vatnavextir geröu okkur erfitt fyrir i lokin, þaö var allt aö fara á flot”, sagöi Björn Mikaelsson, valiarstjóri hestamannamótsins á Melgeröis- melum, sem haldiö var um helg- ina. Þaö voru hestamannafélögin Léttir, Funiog Þráinn, sem stóöu aö mótinu, sem tókst i flesta staöi vel, enda veöur gott. Margir gæðingar sam- ankomnir Ein hryssa með fyrstu verðlaun Eldjárn 6 vetra Náttfarasonur var dæmdur mesti gæðingurinn. Hlaut hann 8.40 i einkunn. Albert Jónsson sýndi hestinn, en hann er i eigu Asbjörns Valgarðssonar. I öðru sæti varð Fróði frá Kokuósi með 8.24 i einkunn, en hann er i eigu Arnar Grant, sem jafnframt var knapi. Ljósvaki Birgis Arnar- sonar varð i þriðja sæti með 8.16. Af klárhestunum sigraði Krist- all frá Kolkuósi, sem Gylfi Gunn- arsson á og sýndi. Fékk hann 8.42 i einkunn. Bliki Benedikts ólafs- sonar náði öðru sæti undir stjórn Freyju Hilmarsdóttur með 8.29 i einkunn, en i þriðja sæti varð ÞorriSigurðar á Höskuldsstööum undir stjórn Ragnars Ingólfsson- ar með einkunnina 8.24. í unglingakeppninni sigraði Höskuldur Jónsson á Glöð frá Ar- gerði eftir jafna keppni við Sig- mar Bragason á Glóa frá Vatns- leysu. í þriðja sæti varð Matthias Jónsson á Stjarna. Kappreiðarnar á floti Miklir vatnavextir settu strik i reikninginn viö kappreiðarnar, en þótt Eyjafjarðará gengi illa að Gylfi Gunnarsson og Kristali sigruöu i b-flokki gæöingakeppninnar. Jafnframt fór fram héraðssýn- ing Hrossaræktarsambands Ey- firöinga og Þingeyinga. Af stóð- hestum fékk Fengur Reynis Björgvinssonar i Bringu hæstu einkunn, en hann er undan Sörla frá Sauðárkróki og Eldingu. Fékk hann 7.61 i aðaleinkunn. Bylgja Magna Kjartanssonar i Árgerði fékk 8.02 i aðaleinkunn og var eiria hryssan sem náði fyrstu einkunn. Næstar henni af eldri hryssunum komu Gola frá Ar- bakka i eigu Ragnheiðar Jóns- dóttur á Akureyri og Lipurtá Jósavins Aðalsteinssonar á Akur- eyri. Af 4-5 vetra hryssum stóð Röskva frá Ytra-Dalsgerði efst, en hún er i eigu Huga Kristinsson- ar. G.S./Akureyri Bliki, Benedikts ólafssonar varö i ööru sæti I b-flokki klárhesta. Knapi Freyja Hilmarsdóttir. hemja sig i réttum farvegi, þá tókst að ljúka þeim af. i 150 m skeiði sigraði Heiming- ur Herberts Ólasonar eftir hörku- keppni við Hrimni Matthiasar Eiðssonar. Fengu þeir sama tima, en Hrimnir hljóp upp i úr- slitasprettinum. Það gerðu raun- ar fleiri hestar, þvi fáir láu tilskil- inn sprett. 1 þriöja sæti varð Grettir Arndisar Sigurbjörnsdótt- ur, en knapi var Orn Grant. Blesi Jóns Matthiasarsonar varð hlutskai pastur I 250 m skeiði. Hann ld sprettinn á 28.8 sek, en Blakkur Askels Ólafs- sonar varð i 2. sæti á 30 sek. Smári Jóns Stefánssonar varð3. á 32.6. í 250 m stökki var Súla LUÖ- viks Magnussonar fótfráust, hljóp sprettinn á 20,9 sek. Knapi var Hugrún Ivarsdóttir. Hatta Stefáns Erlingssonar varð önnur á 21,2 knapi Gunnlaugur Sigfús- son, en Þingey Halldórs Olgeirs- sonar varð þriðja á 21,7 knapi Böðvar Baldursson. Mjótt var á munum i 300 m stökki. Þar varð Baldvin Guð- laugsson fyrstur i mark á Cesar Herberts Ólasonar á 22,6 sek. I 2. sæti varð Böðvar Baldursson á Móra Sólveigar Erlendsdóttur á 23.00 og Hugrún ívarsdóttir varð 3. á Hrimni Ásgeirs Herbertsson- ar á 23,2 sek. Það var allt á floti i rásmarkinu fyrir 800 m brokkið, en þeir létu sig nú hafa það samt. Jarpur Jóns Höskuldssonar varð fyrstur á 1.57.31. Annar varð Andri Björns Jónssonar á 2.02 og Máni Ernu Jóhannesdóttur varð þriðji á 2.02.23 Fimm efstu hestarnir i klárhestakeppninni. Þorvaldur Friöriksson meö múrskeiö og fægiskóflu enda gildir aö vera varkár og ná- kvæmur. (Vfsismynd EÞS) Hér má sjá þversniöiö af rannsóknarsvæöinu. Þar fundust m.a. fornar steinhieöslur, sem þarfnast betri rannsóknar. (Visismynd EÞS) 25. júni 1981 VlSIR 15 Athyglisveröur fornleifagröftur á Kjalarnesi: LEITAfi AB LEIFUM AF ELSTU KIRKJU LANDSINS Orlygur Hralnsson á að hata relst hana um driö 900 eða ðld ðður en íslendingar tóku kristni Fornleifafræöingar frá Þjóö- minjasafninu hafa nýveriö hafiö uppgröft viö bæinn Esjuberg á Kjalarnesi og þar vonast þeir til aö finna leifar af kirkju, sem landná ms maöurinn örlygur H rafnsson á aö haf a reist á þeim sltíöum i kringum áriö 900 eöa einni öld áöur en isiendingar tóku upp kristin siö. Finnast þessar leifar er hér um aö ræöa einn merkilegasta fornleifafund siöari ára en þetta verkefni er annaö af tveimur sttírum, sem safnið stendur aö i sumar. Hitt verkefni safnsins er framhald á uppgreftri aö Stóru-Borg undir Eyjafjöllum. Af Örlygi Hrafnssyni Patrekur sagöi örlygi Hrafnssyni aö setjast þar aö á islandi þar sem hann fyndi tvö fjöll renna saman. Hér er liklegt aö staöurinn hafi veriö en myndin er tekin frá þjóöveginum á Kjalarnesi. Bærinn Esjuberg sést á miöri mynd beint undir gilinu i fjarska stendur staöurinn þar sem nú er veriö aö ieita aö ieifum af elstu kirkju iandsins. (Visismynd EÞS) „Jú, þaö má llka vitna I Kjal- nesingasögu þó að hún sé ærið ævintýraleg og sennilega litt marktæk. En I henni segir meðal annars frá Esju, sem var frekar vættur heldur en mann- leg vera, en hún á að hafa búið hér á Esjubergi eftir daga örlygs. Við búi hennar tók BUi sonur hennar en hann féll fyrir hendi 14 ára sonar síns, sem var æöi bráöþroska, sem nærri má geta. Sagan segir einnig að kona BUa hafi graíiö bonda sinn undir suöur horni kirkjunnar og lagt alvæpni hjá honum i gröfina. Raunar efast ég stórlega um að við finnum nokkrar leifar af þeim vopnum en hver veit,” sagði Guðmundur kiminn. í tilefni 1000 ára kristniboðs á íslandi Nokkuö er siðan áhugi fræði- manna vaknaði á þessum stað enda eru greinilegar rUstir sjáanlegar skammt sunnan viö bæjarhUsin á Esjubergi. Þegar hafa verið tdcnar loftmyndir af staðnum, sem eftir er aö athuga nánar, en Guðmundur sagði aö það, sem lfklega hefði ráðið Ur- slitum um aö ráöist var I þetta verkefni væri þúsund ára af- mæli kristniboös á íslandi, sem haldið er upp á I ár. Guðmundur ólafsson rýnir I eitthvaö, sem hann fann I þversniöinu. „Hugsanlega öskulag frá gömlum tima, jafnvel frá 1362,” sagöi hann. „Viö veröum aö kalla á jaröfræöing,” varö niöurstaöan. (Vlsismynd EÞS) Guömundur Ólafsson, forn- leifafræöingiíB, sem stjórnar uppgreftrinum við Esjuberg, sagöi að Landnáma greindi frá kirtcju þessari. „Landnáma segir meöal annars frá landnámsmanninum Orlygi Hrafnssyni, sem nam land hér á Kjalarnesi og settist að á Esjubergi. Hann var krist- inn og mun hafa komið frá Ir- landi. A leið sinni hingað kom hann við I Suöureyjum og hitti þar Patrek nokkurn heilagan að sögn en tæplega getur það hafa verið heilagur Patrekur, sem oftast er talaö um, þvf aö hann var uppi nokkrum öldum á und- an örlygi. En hvað um það, Patrekur þessi á aö hafa sagt við Örlyg aö taka sér þar ból- staö á Islandi þar sem tvö fjöll kæmu saman. Samkvæmt Landnámu kom örlygur fyrst að landi á Patreksfirði og skiröi fjöröinn í höfuðiö á vini sinum i áiðureyjum en siðan hélt hann hingað og settist hér að. Reyndar koma tvö fjöll hér saman fyrir ofan bæjarstæðið en aö sjálfsögðu heföu margir aðrir staðir komið til greina I þeimefnum. örlygur á siðan að hafa reisthér kirkju þá, sem við erum nU aö leita aö, enda haföi hann með sér hingað klukku eina mikla og vigöa mold.” Grafinn með alvæpni undir kirkjuhorninu Og fleiri sagnir tengjast kirkj- unni og Esjubergi á Kjalarnesi. Myndir: Emil Þtír Sigurösson. Þeir þrir leita aö kirkju, sem byggö var um 900 samkvæmt Landnámu. Frá vinstri: Baröi Valdimarsson, fornleifafræöingur, Þorvaldur Friöriksson, nemi I fornleifafræði, og Guömundur ólafsson, fornleifafræöingur og stjórnandi hópsins. (Visismynd EÞS) Kirkjurústirnar yrðu merkilegur fornleifa- fundur Þegar Visir var á ferð á Kjalarnesi I vikunni var verkið ný hafiö og litiö bUiö aö grafa. Þö voru fornleifafræðingarnir þrír, sem þama starfa, bUnir að grafa lítinn skurö, sem var þversniö af fjrirhuguðu rann- sóknarsvæði. Sjá má móta fyrir greinilegum hleöslum undir grasinu og sérfræðingarnir bentu á greinilegar húsarústir I grjóthrUgu, sem var að mestu grasi vaxin. I þversniðinu höfðu fundist fleiri hleðslur en fram að þessu töldu fornleifa- fræðingarnir að allt, sem fund- ist hefði væru yngri leifar en frá landnámsöld. „RUstirnar af húsinu, sem hér hefur greinilega staöiö, liggja i austur-vestur og þessvegna gætu það verið rústir af kirkju en í fljótu bragöi sýnast mér þær vera yngri en kirkjan eða bænahUsiö, sem viö vonumst til að finna. RUstirnar liggja hér beint undir lækjarfarvegi og er liklegt að oft hafi flætt hér yfir á liðnum öldum En þaö er ljóst að ef viö finnum leifar af kirkjunni þá er hér um að ræða mjög merkilegan fornleifafund. Ekki eingöngu vegna þess að þá væri fundin ein elsta kirkja landsins, sem getiö er um I heimildum, heldur og aö hér væri sennilega um írsk-kristna eða keltneska kirkju aö ræða en ekki róm- versk-kaþólska. trar viöur- kenndu nefnilega ekki páfa á þessum tfma og kirkja þeirra var um margt ólik þeirri kaþólsku,” sagöi Guömundur Ólaísson. —TT. Texti: Tómas Ttímasson

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.