Vísir - 03.11.1981, Blaðsíða 5

Vísir - 03.11.1981, Blaðsíða 5
Þriöjudagur 3. nóvember 1981 5 VÍSIR Kafbaturinn dreginn á flol Kafbátsmenn sendu úl neyðarkall, begar hvessa tók Sænskir sjóliðsforingjar yfir- heyrðu sovéska kafbátsforingj- ann isex klukkustundir i gær og var hann siðan fluttur um borö i kafbátinn aftur. En kafbáturinn var dreginn á flot um leið , þar sem hann hefur setið fastur á skeri og ileir siðan hann strandaði á þriðjudegi fyrir viku. Kafbátsforinginn var spuröur i þaula um ferðir kafbátsins á þessum slóðum og munu flotafor- ingjamir skila skýrslu af yfir- heyrslunni siöar i dag. Rannsókn er þó ekki lokiö og segjast menn diki enn hafa fengið nógu haldgóð svör við spurningum um. hvaða erindi kafbáturinn hafi átt. Loks i gær veitti Sovétstjórin leyfi til þess aö kafbátsforinginn yrði yfirheyrður og fór sií yfir- heyrsla fram i sænsku flotaskipi en þangaö var foringinn fluttur. A meðan foringinn var i burtu tók að hvessa og sendu menn hans út neyðarskeyti á neyðarbylgj- unni og sendu á loft neyöarblys. Tveir sænskir dráttarbátar kipptu þá kafbátnum á flot og drógu hann I var. — I öldurótinu á skerinu haföi komiö slagsiða á kafbátinn og þótti hætta á, að sýrurnar lækju af rafgeymunum, en við það hefði getað myndast banvænt klórgas um borð i bátn- um. Rock 6;: stund á skurðar boröinu Leikarinn Rock Hudson gekkst undir hjartaaðgerð i gær og var i sex og hálfa klukkustund á skurðarborðinu. Tókst aðgerðin vel eftir þvi sem umboðsmaður hans segir. Einhverjir gallar voru á fimm hjartalokum, og segja læknarnir að búast hefði mátt við þvi að hann fengi banvænt hjartaslag innan mánaðar, ef hann hefði ekki gengist undir aðgerðina. Fanga- uppreisn : ■ Ílll ■ Þeir herskáustu f verkalýðshreyfingunni láta illa að stjórn Lec Walesa og forystu Einingar Fangar i rikisfangelsinu i Graterford I Pensylvaniu gerðu uppreisn og héldu á sinu valdi sex gislum i fimm daga. — Gáfust þeir loks upp i gær og slepptu gislunum. Gislarnir, þrir fangaverðir og þrir oponberir starsmenn, komu heilir á húfu út úr fangelsinu og höfðu með sér tvær afsagaöar haglabyssur sem fangarnir höfðu haft undir höndum. Sjö fangarfylgdu á hæla þeirra og gáfu sig á vald lögreglunni. Blaðamaður hafði annast milli- göngu i samningaviöræöum uppreisnafanganna og yfirvalda, en ekki hefur verið látið uppi, hverjar kröfur fangarnir gerðu. Verkfðllin fjara úl Landsstjóm Einingar, samtaka óháðra verkalýðsfélaga I Pól- landi, kemur saman til fundar i Gdansk i dag til þess að ræöa innanfélagsreglur um verkföll og tugtunaraögeröir á hendur þeim, sem efna til verkfalla i blóra við verkalýðsforystuna. Verkföllin virtust i rénun i dag, enda hafði mörgum þeirra veriö aflýst i gær fyrir orö Lech Walesa, leiðtoga Einingar. — Verkalýðsforystan kviðir þvi, að almenningsálitið snúist gegn samtökunum, ef verkföllum er beitt of ótæpilega. Lech Walesa efndi til blaða- mannafundar i Varsjá i gær og kvaðst fullviss um, að hann fengi talið menn á að hætta skæruverk- föllum f bili. Varaöi hann einstaka verkalýðsforingja við þvi, aö þeir yröu látnir vikja, ef þeir lytu ekki forystunni. Innan Einingar heyrast góðar undirtektir við tilboði stjórnvalda um stofnun ráðs, þar sem embættismain fulltrúar verka- lýðs og kirkjunnar menn fengju að hafa einhverja hönd i bagga meö landsstjórnarmálum. — Þeir herskáustu i verkalýöshreyf- iingunni telja þó, að þessi tillaga sé einungis viðleitni til þess að kljúfa verkalýðshreyfinguna. Komu sprengju fyrir neöansjávar viö skip Franskir kafarar fjarlægðu i gær 6punda sprengju, sem komið hafðiveriö fyrir neöansjávar rétt við botninn á bresku flotaskipi i höfninni i Nantes i V-Frakklar.di. Menn töldu sig hafa heyrt væga sprengingu neðansjávar skammt frá breska skipinu Hecate, snemma i gærmorgun og voru kafarar þá kallaðir til. Fundu ♦ þeir sprengju á einum bryggju- bitanum fast við skipssiðuna. Heyrst hefur að stuðningsmenn IRA, eins skonar frönsk Utgáfa hafi lýst sprengjutilræöinu á hendur sér, en lögreglan hefur varist allra frétta af þvi. Sprengjan var fjarlægð og sprengd á óhultum stað, en engar skemmdir höfðu hlotist af fyrri sprengjunni. Hér sjást Maureen og Michael (fyrir aftan Reagan og Nancy) á | kosningaferðalagi, þegar Reagan stefndi á Hvita húsið. Faöirinn j ætlar ekki að endurgjalda dótturinni kosningastarfið, þegar hún j núna stefnir að þvf að hljóta útnefningu til þingframboðs. I Döttir Reagans í framboöshugleiðingum Eldri dóttir Reagans Banda- rikjaforseta, Maureen Reagan, gerði kunnugt i gær, að hún stefndi að framboði fyrir Repúblikanaflokkinn til öldunga- deildar Bandarikjaþings. — Hún væntir ekki stuðnings frá föður sinum við framboð sitt. Maureen Reagan (40 ára) sýndi blaðamönnum bréf, þar sem faðir hennar sagði, að hún skildi, hversvegna hann þyrfti að vera algjörlega hlutlaus i tilraunum hennar til þess að hljóta útnefn- ingu flokksins til framboös i Kali- forniu. Reagan hefur boriö (t móti blaðafregnum um, aö hann sé andvigur framboöi dóttur sinnar gegn S. I. Hayakawa, öldunga- deildarþingmanni repúblikana, sem stefnir aö endurkjöri næsta ár. Sá eini úr fjölskyldunni, sem viöstaddur var, þegar Maureen kynnti kosningaáform sin, var bróöir hennar Michael. — Móðir Maureen var fyrsta eiginkona Reagans, leikkonan Jane Wy- man. Maureen er gift Dennis Revell, skrifstofumanni, en notar jóm- frúarnafnsitt ipólitikinni. Hún er áöndverðum meiði viö föður sinn i jafnréttismálum kvenna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.