Pressan


Pressan - 07.01.1993, Qupperneq 2

Pressan - 07.01.1993, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. JANÚAR 1993 U N D I R Ö X I N N I Eruð þið tilbúin til að grafa und- an þeim einhug sem ríkt hefur um embætti forseta íslands? „Þjóðin hefur látið í Ijós mjög sterkar óskir um að afgreiða þetta mál. 35 þúsund manns hafa skrifað undir skjal þess efn- is, 75 prósent þjóðarinnar vilja þjóðaratkvæðagreiðslu sam- kvæmt skoðanakönnunum og mörg fjöldasamtök hafa óskað eftir að þetta sé borið undir þjóðina. Þvi teljum við okkur ekki vera að grafa undan ein- hug um forsetann.’ Heldur þú sem sagt að það verði einhver friður um Vigdísi eftir þetta? „Ef meirihluti þjóðarinnar vill þjóðaratkvæðagreiðslu þá hlýt- ur það að merkja að þá verði frekar friður um hana. Við ætl- umst ekki til að hún taki efnis- lega afstöðu. Hún er einungis að skjóta þessu til þjóðarinnar sem æðsta dómstóls í málinu." Verðurforseti Islands ekki að hafna lögunum til að þau fari til þjóðaratkvæðagreiðslu, sam- kvæmt stjórnarskránni? „Hún verður að hafna því að undirrita lögin á þeirri forsendu að hún telji að þjóðin eigi að úrskurða. Hún þarf ekki, eins og áður segir, að taka sjálf efnis- lega afstöðu til samningsins." En er hún ekki einmitt að hafna samningnum með því að setja hann í þjóðaratkvæðagreiðslu? „Forseti Islands er eina stjórn- valdið sem ég tel að sé kosið beínni kosningu af þjóðinni, sem sé fulltrúi allrar þjóðarinn- ar. Það er deilt um hvort þjóðin eigi að greiða atkvæði þarna eða ekki. Hitt er svo það að for- setinn hefur þetta vald, þó svo að því hafi aldrei verið beitt. En þarna er um að ræða aðgerð sem mjög stór hluti þjóðarinn- ar telur að skipti sköpum. Ég held að allir séu sammála um það að þarna er um örlagarík- asta samning að ræða sem þjóðin hefur nokkru sinni stað- ið frammi fyrir og það er að mínu viti fyllilega innan vald- sviðs forseta (slands að taka svona ákvörðun — hreinlega segja að þarna verði þjóðin að ráða." Er það ekkl alþingismannanna að kljást um deilumál sem þetta? „Nei, ég tel að þarna sé gengið of langt. Hérna er um að ræða verulegt réttindaafsal, eins og er viðurkennt í öllum löndum sem um þennan samning fjalla. Menn deila hins vegar um tæknileg og lögfræðileg at- riði, hvort hér sé um formlegt stjórnarskrárbrot að ræða, en réttindaafsal er það." Menn eru ekki á eitt sáttir um hvort forseti (slands eigi yfirleitt að skipta sér af stjórnmáladeilum. Bjarni Einarsson, fyrrum aðstoðar- forstjóri Byggðastofnunar, er einn þeirra um það bil 300 einstaklinga sem skrifuðu undir ósk til forseta Islands, Vigdísar Finnbogadóttur, þess efnis að hún staðfesti ekki lögin um EES nema að undan- genginni þjóðaratkvæðagreiðslu. F Y R S T F R E M S T ÓLAFUR RAGNAR GRlMSSON. Greiðir ekki atkvæði um EES. GUNNLAUGUR STEFÁNSSON. Hann verður „tekinn út af". LÁNIN FALLA í HÁSKÓLAN U M I Háskólanum eru kennarar nú að fara yfir próf að venju. Ekki er fullljóst hversu margir nýnemar falla að þessu sinni, en þau örlög geta haft afdrifaríkari afleiðingar nú en oft áður. Með breyttum lög- um um Lánasjóð námsmanna veitir sjóðurinn neftiilega ekki lán fyrr en sýnt er að nemandi hafi staðist próf á fyrstu önn. Bankar hafa veitt lán til að brúa þetta bil, en því fylgir að ef nemandinn fell- ur, þá falla lánin líka í gjalddaga. Kennarar eru því undir beinum og óbeinum þrýstingi um að sýna mildi við einkunnagjöf og þess eru dæmi að nemendur hafi kom- ið gráti næst til þeirra vegna ótta við slæma einkunn og þar með yfirvofandi fjárhagsleg áfoll. 32 GREIÐA ATKVÆÐI MEÐ EES Eftir þriðju umræðu Alþingis um EES-samninginn, sem sjón- varpað verður í kvöld, verða greidd atkvæði um samninginn í heild sinni. Þrír þingflokkar ldofna í afstöðu sinni til samn- ingsins, en talnaglöggir viðmæl- endur PRESSUNNAR meðal þingmanna telja að hann verði samþykktur með 32 atkvæðum gegn 22. Sex þingmenn sitja hjá og þrír verða að óbreyttu íjart'erandi. 23 þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins greiða atkvæði með samn- ingnum og tveir á móti, þeir Eyj- ólfur Konráð Jónsson og Egg- ert Haukdal. Einn er veikur þessa dagana, Ingi Björn Al- bertsson, en hann hefði væntan- lega setið hjá. Framsóknarflokk- urinn klofnar í herðar niður í þessu máli. 8 þingmenn eru á móti, þar á meðal formaðurinn, Steingrímur Hermannsson. Hjá sitja hins vegar 5, þau Hall- dór Ásgrímsson varaformaður, Jón Kristjánsson, Finnur Ing- ólfsson, Valgerður Sverrisdótt- ir og Jóhannes Geir Sigurgeirs- son. Að öllu eðlilegu hefði einn til viðbótar setið hjá, Ingibjörg Pálmadóttir, en hún er stödd á Kanaríeyjum í fríi. Varamaður hennar er Sigurður Þórólfsson, sem er andvígur samningnum. Þingflokkur Alþýðuflokksins er óskiptur í stuðningi við samning- inn. Einn þingmaður flokksins, séra Gunnlaugur Stefánsson, verður þó fjarstaddur af tiilitssemi við Alþýðubandalagið, en Ólafur Ragnar Grímsson getur ekki verið viðstaddur atkvæðagreiðsl- una þar sem hann er staddur í Bandaríkjunum. Hann hefði greitt atkvæði á móti og því er einn stuðningsmaður „tekinn út af‘ í atkvæðagreiðslunni. Þingflokkur Alþýðubandalagsins er óskiptur á móti samningnum. Kvennalistakonur greiða at- kvæði á móti, allar nema Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, sem mun sitja hjá. Samkvæmt þessu verður nið- urstaðan því þessi: fylgjandi eru 23 þingmenn Sjálfstæðisflokks og 9 kratar, samtals 32. Á móti eru 8 ffá Alþýðubandalagi, 8 ffamsókn- armenn, 4 Kvennalistakonur og 2 sjálfstæðismenn, samtals 22. Hjá sitja 5 framsóknarmenn og ein -rþingkona Kvennalista, samtals 6. Tveir verða örugglega fjarverandi, en hjásetumönnum íjölgar í sjö ef Inga Bimi rénar sóttin í tæka tíð. Eftir fyrstu og aðra umræðu höfðu þingmenn talað samtals í um 110 klukkutíma um EES og tengd mál. Það eru tæpir tveir tímar á mann og hafa þó fjarri lagi allir stjórnarliðar tjáð sig um mál- ið. LOGANDI ILLUR Sjónvarpsáhorfendur eiga vafa- laust eftir að sakna Loga Berg- manns Eiðssonar, íþróttafrétta- manns á Sjónvarpinu, sem lét af störfum nú um áramótin. Eins og við sögðum frá fyrir skömmu sagði Heimir Steinsson útvarps- stjóri Loga að taka pokann sinn frá og með áramótum, þvert ofan í fyrri yfirlýsingar. Logi er nú að hefja nám í hagnýtri fjölmiðla- fræði við Háskóla Islands, en hon- um bregður þó hugsanlega fyrir á skjánum í afleysingum. Þá hefur hann fengið ádrátt um að fá að stunda dagskrárgerð við Sjón- varpið, en í ljósi fyrri loforða frá fyrirtækinu vilja fáir treysta því fyrr en tekið er á. ÞORGRÍMUR HAFNAR HEMMA Engan undraði þótt Þorgrímur Þráinsson væri mikið í sviðsljósi fjölmiðlanna fyrir þessi jól, enda Efnahagsaðgerðir ríkisstj órnar innar Skuldir fyrirtækja hækka sem nemur búbótinni Skuldir íslenskra fyrirtækja hækka vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar um að minnsta kosti það sem nemur búbótinni sem hún ætlaði að færa þeim. Efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar var ætlað að færa í kringum átta milljarða frá launafólki til fyrirtækja til að styrkja stöðu þeirra. Vegna aðgerð- anna hækka hins vegar skuldir þessara sömu fyrir- tækja um það sem nemur búbótinni og líklega gott betur. Þetta stafar af breytingum á sköttum, bygg- ingar- og lánskjaravísitölum og gengisfellingunni, sem samtals éta upp það sem rfldsstjómin ætlaði að færa fyrirtækjunum. Þessa dagana er verið að reikna út byggingarvísi- tölu sem tekur gildi um næstu mánaðamót. Vegna niðurfellingar endurgreiðslna á virðisaukaskatti vegna vinnu við húsbyggingar hækkar vísitalan um rúmlega þijú prósent, að mati embættismanna. Til viðbótar koma áhrif gengisfellingar, en þau koma fyrst fram af afli núna. Ekki er vitað nákvæmlega hver þau verða, en eitt til tvö prósent er ekki fjarri lagi. Byggingarvísitala er þriðjungur lánskjaravísi- tölu og hækkun byggingarvísitölu um 4,5 prósent, sem er ekki ólíkleg nálgun, hækkar því lánskjara- vísitölu um 1,5 prósent. Skuldir íslenskra fyrirtækja í september- lok vom um 280 milljarðar, að mati Seðla- banka fslands. Ekki er vitað hversu stór hluti er bundinn lánskjaravísitölu, en samkvæmt lauslegri áætlun Seðlabanka um heildarskuldir landsmanna við lána- kerfið er um helmingur þeirra bundinn vísitölu, þriðjungur gengisbundinn og sautján prósent óverðtryggð. Ef þeirri áætlun er beitt á skuldir fyrirtækja er niðurstaðan þessi: Lánakerfið tekur aftur í hækkuð- um skuldum það sem launþegar færðu fyrirtækjum með efna- hagsaðgerðum ríkisstjórnarinn- ar. 1,5 prósenta hækkun á 140 milljörðum (helmingi skuldanna) er 2,1 milljarður. 6 prósenta hækkun (vegna gengisfellingar) á 93 milljörðum (þriðjungi skuldanna) er 5,6 milljarðar. Samtals hækkun skulda um 7,7 milljarða. Þessi tala er lfldega töluvert hærri, sökum þess að skuldir fyrirtækja eru gengis- tryggðar í meira mæli en ofangreind heildaráætlun segir til um. Því má áætla að skuldir fyrirtækjanna hafi hækk- að um að minnsta kosti átta milljarða vegna hliðar- áhrifa efnahagsaðgerðanna, en það er nálægt þeirri upphæð sem rfldsstjórnin vildi færa þeim, þótt sú tala væri á reiki ffam eftir hausti og vetri. Á hitt er að líta að búbótin kemur fyrirtækjunum til góða strax, en afborganir af auknum skuldum dreifast yf- ir lengri tíma. Þótt lánakerfið virðist þannig taka beint aftur það sem launþegar gáfu gerist það ekki samstundis og vænkast því hagur fyrirtækjanna að minnsta kosti sem nemur þeim skuldaffesti. stakk hann alla aðra af hvað varð- ar sölu á eigin ritverkum á nýaf- staðinni vertíð. En nú eru jólin að baki og bókavertíðin sömuleiðis og því þarf Þorgrímur ekki lengur á sviðsljósinu að halda. Fyrir því finnur einkaniega Hemmi Gunn, sem hefur ítrekað reynt að fá Þor- grím í viðtal í þáttinn sinn, Á tali, en Þorgrímur þverneitar og segist vera búinn að fá nóg af fjölmiðl- umíbill. INGIBJÖRG PÁLMADÓTTIR. Hún er að kanna innri markaðinn á Kanaríeyjum. Varamaður hennar er á móti. INGI BJÖRN ALBERTSSON. Hann gæti þurft að fylgjast með í sjónvarpinu. HEIMIR STEINSSON. Logi Bergmann fær fleiri loforð frá Sjónvarpinu. GUNNAR BIRGISSON. Nýjar reglur Lánasjóðsins græta félitla námsmenn. Á UPPLEIÐ Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis. Hann fékk stórriddarakross til að skreyta sig með í kónga- veislum og vonandi að hann fari vel við slaufuna. Helgi Jóhanns- son og Sam- vinnuferðir. Eru nú laus viðSam- bandið og fram- sóknarfýluna. Kristján Jóhanns- son. Fyrst Chicago, þá fálka- orðan og síðan Vín. Hvað næst? SAS. Fyrirtækið heilsaði innri markaði EB með því að lækka far- gjöldin um helm- ing. Flugleiðir hafa ekki enn heilsað. Verðlag, skattar, verðbólga, álögur og önnur pín. Á NIÐURLEIÐ VISA og Eurocard. Alltaf óvinsæl fyrir- tæki í upphafi árs. Morgunblaðið. Auglýsinga- herferðin ber vott um tauga veiklun. Gísli Örn Lárusson. Þessi fyrrum við- skiptastjarna er fallin. Þórhildur Þorleifsdóttir. Þessi prímadonna leikhús- anna bjó til afskaplega ófyndið skaup. Samstaðan um óháð Island. Enn kvarnast úr hópi andstæðinga EES-samningsins á Alþingi.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.