Pressan - 14.01.1993, Blaðsíða 10

Pressan - 14.01.1993, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. TANÚAR 1993 s V^yamningar um sölu bifreiða- og véla- deildar Jötuns til Ingvars Helgasonar hf. eru nú á lokastigi. Allar líkur benda til að Ingvar stofni nýtt fyrirtæki um kaupin og það verði rekið með svipuðu sniði og móðurfyrirtækið. Þetta eru ekki góðar fréttir fyrir starfsmenn Jötuns, þar sem Ingvar Helgason er einmitt þekkt fyrir að hafa mun færri starfsmenn en önnur sambærileg fyrirtæki. Þar starfa nú aðeins um 40 manns, en til samanburðar má UTSALA - IITSALA 10 - 70% afsláttur Ei)>uin iliíka í miklu ún uli f>r<í/a offjína. 10 % afsUíttur mefian á útsdlu slettáur Álnabúöin - Suöurveri s. 679440 FULLORÐINSFRÆÐSLA GRUNNSKÓLI / FRAMHALDSDEILD GRUNNNÁM: Samsvarar námi í 8. og 9. bekk grunnskóla. FORNÁM: Samsvarar námi í 10. bekk grunnskóla. HEILSUGÆSLUBRAUT: 2 vetra sjúkraliðanám. VIÐSKIPTABR AUT: 2 vetra nám, lýkur með verslunarprófi. MENNTAKJARNI: 3 áfangar kjarnagreina: íslenska, enska, danska, stærðfræði - auk þess eðlisfræði, vist- fræði, félagsfræði, saga, tjáning, stærðfræði 112 og 122, þýska, hollenska, ítalska og rússneska. AÐSTOÐARKENNSLA í stærðfræði og stafsetningu. Kennsla hefst 18. janúar n.k. Innritun daglega í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1. Sími: 12992,14106. SKOKKNÁMSKEIÐ Á námskeiðinu verður boðið upp á eftirfarandi: 1. Fyrirlestrar. 2. Æf ingaáætianir. 3. Þrekmælingar. 4. Stöðvaþjálfun. Upphitun fer fram í leikfimisal, hlaupið úti, teygjuæfingar og þrekhringur í sal að lokum. Kennsla fer fram á mánudögum og fimmtudögum kl. 17:15 -19:15 og 19:15 - 21:15. Kennsla hefst 18. janúar n.k. Kennari: Jakob Bragi Hannesson. Upplýsingar og skráning í Miðbæjarskóla, Fríkirkirkjuvegi 1 og í síma 12992 og 14106. ALDREIOF SEINT AÐ LÁTA DRAUMINN RÆTAST nefna að í þeim deildum Jötuns sem Ingvar hyggst kaupa starfa tæplega 60 manns. Þrátt fyrir þennan mun á ^ölda starfsmanna hafa umsvif Ingvars Helga- sonar hf. verið mun meiri. Því má búast við að stór hluti starfsmanna Jötuns, sem öllum hefur verið sagt upp, verði eldd endurráðinn af Ingvari og eru þeir því mjög uggandi um sinn hag þessa dag- ana... F yrir tíu árum var stofnað Samband kaupskipaútgerða og stóðu-að ^tofnun- inni sjö aðilar, Eimskipafélagið, Hafskip, skipafélagið Nes, Nesskip, Skipadeild SIS, skipafélagið Víkur og skiparekstur Gunnars Guðjónssonar. Fyrsti formað- urinn var Ragnar Kjartansson frá Haf- skip. Nú, tíu árum síðar, má heita að að- eins þrír þessara aðila séu enn við lýði; Eimskip, Samskip og Nesskip. Fyrir utan stóð Skipaútgerð ríkisins, sem einnig er farin af ýfirborði lands og sjávar... s V^Jtaða hafnarstjóra á ísafirði var aug- lýst laus til umsóknar nú um áramótin en fram að þeim tíma hafði bæjarstjóri gegnt embættinu og yfirhafnvörður verið hon- ipn innanhandar um ýmis mál. Yfirhafh- vörður lét af embætti um áramótin vegna aldurs. Nokkur ágreiningur reis um sldp- an manns í hafnarstjórastarfið en greini- legt var að slagurinn mundi standa milli tveggja manna, Frímanns Sturlusonar skipatæknifræðings og Hermanns Skúlasonar skipstjóra, þó svo að nítján sæktu um stöðuna. Ljóst þótti að sjálf- stæðismenn í bæjarstjórn, sem mynda meirihluta ásamt einum fulltrúa Alþýðu- bandalags og einum fulltrúa Framsólcnar, mundu mæla með Hermanni, en menn- irnir hlutu hvor sín tvö atkvæðin er hafti- Fatasöfnun til bógstaddra í fyrrum Júgóslavíu Hjálparstofnun kirkjunnar og Rauði kross íslands sjá um fata- söfnun til bágstaddra í fyrrum Júgóslavíu fimmtudaginn 14. janúar nk. Söfnunarstöðvar verða á vegum Rauða kross deilda um allt land. Vinsamlegast snúið ykkur til þeirra. Á eftirtöldum stöðum verða söfnunarstöðvar sem hér segir: Reykjavík, opið fimmtudag kl. 14-22: Félagsmiðstöðin Frostaskjól, Frostaskjóli 2. Félagsmiðstöðin Þróttheimar v/Holtaveg. Félagsmiðstöðin Tónabær, Skaftahlíð 24. Félagsmiðstöðin Fellahellir, Norðurfelli. Félagsmiðstöðin Ársel, Rofabæ. Félagsmiðstöðin Fjörgyn, Logafold 1. Ölduselskóli, Ölduseli 17. Langholtskirkja, Sólheimum 11-13. Kópavogur, opið fimmtudag kl. 14-22: Listasafn Kópavogs, nýbygging neðan Kópavogskirkju, austurendi. Hafnarfjörður, opið fimmtudag kl. 14-22: Bæjarhraun 2, Hafnarfjarðardeild Rauða kross íslands. Mosfellsbær, opið fimmtudag kl. 16-19: Heilsugæslustöð, anddyri. Akranes: Grundaskóli. Hveragerði, opið miðvikudag kl. 13-15:30 og fimmtudag kl. 14-21: Safnaðarheimili Hveragerðiskirkju. Siglufjörður: Slysavarnadeildin. Þórmóðsbúð. Akureyri, fimmtudag kl. 14-22: l’bróttahöllin, anddyri. Húsavík: Björgunarskýlið Hvolsvöllur: Rauða kross deild Rangárvallasýslu Vestmannaeyjar: Safnaðarheimilið. Oskað er eftir hlýjum, heilum og hreinum fötum. Vinsamleg- ast komið með fötin flokkuð í 4 flokka: Karla, kvenna, yngri bama 1-4 ára og eldri barna 5-14 ára Vinsamlegast komið ekki með skó. Hjálparstofnun Kirkjunnar Rauði kross íslands HÚSNÆÐIÓSKAST Ríkissjóður leitar eftir leigu eða kaupum á íbúðarhúsnæði í BORGARNESI og á SAUÐÁRKRÓKI. Um er að ræða einbýlishús, par- og/eða raðhús, u.þ.b. 160-200 m2 að stærð að meðtalinni bílageymslu. Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og efni, fasteigna- og brunabótamat, verðhugmynd og áætlaðan afhendingartíma, sendist eignadeild fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir26.janúar 1993. Fjármálaráðuneytið, ll.janúar 1993 arstjórn fundaði um málið. Guðmundur Agnarsson (í) mun hafa setið hjá á þeim fundi, en líklegt hafði verið talið að hann stæði með Frímanni. Ef hann hefði lagt fram atkvæði sitt gæti hafa farið svo að bæjarstjórn réði Hermann í trássi við vilja hafharstjórnar. Leynileg atkvæðagreiðsla fór fram innan bæjarstjórnar um stöðu- veitinguna og hlaut Hermann fimm at- kvæði og Frímann tvö en tveimur var skilað auðum... F J__Jinhverjar mannabreytingar eru væntanlegar á Stöð 2 og Bylgjunni á næst- unni. Fyrirhugað er að fjölmiðlamennirn- ir Hallgrímur Thor- steinsson og Sigur- steinn Másson hafi stólaskipti á þann veg að sá fýrrnefndi sjái framvegis um frétta- flutning en sá síðar- nefndi taki við stjórn útvarpsþáttarins „Reykjavík síðdegis“... s Ly íðar í þessum mánuði er boðað að fram fari nauðungaruppboð á fasteign- inni Gerðubergi 1 í Breiðholti. Við höfum áður fjallað um þetta hús, en fyrst átti það Guðjón Pálsson í Bjórhöllinni. Guðjón missti það á uppboði í hendur Fjárfestingarfé- lags íslands, sem aftur seldi það Hreiðari Svavarssyni í Smiðjukaffi, nánar tiltekið Mutafélaginu Borgarfossi í eigu Hreiðars og félaga. í kjölfarið fylgdu hatrammar deilur og jafnvel átök milli Guðjóns og Hreiðars og hafði Hreiðar sér til fulltingis lögffæðinginn Grétar Haraldsson. Hús- næðið hefur lítt verið nýtt um langt skeið og nú virðist Borgarfoss komið í vand- ræði. Fjárfestingarfélagið Skandia, sem eignaðist Fjárfestingarféiagið fyrir nokkru, heimtar nú uppboð ásamt Gjald- heimtunni í Reykjavík, en samtals skuldar Borgarfoss þessum aðilum 80 milljónir króna... s CJagt er ffá því í Víkurfféttum að bæj- arstjórn Keflavíkur hafi ekki veitt skyndi- bitastaðnum Strikinu vínveitingaleyfi jafnvel þótt annar sambærilegur staður í bænum hafi hlotið slíkt leyfi áður. Var stjórn bæjarins ekki á einu máli um veit- inguna og voru þrír fulltrúanna með- mæltir tillögunni. Áfengisvarnarnefnd hafði áður gefið þá umsögn að hlaupið hefði ofvöxtur í þessa grein atvinnu og setti sig á móti „enn einum vínveitinga- staðnum“ og vonaðist til að bæjarstjórn beitti sér fyrir „heilbrigðari atvinnu- rekstri". Meirihluti bæjarstjórnar var á sömu skoðun og menn þurfa því að hverfa þurrbrjósta út af Strikinu, hugnist þeim að snæða þar á annað borð... B, 'úið er að gera upp þrotabú Jóns Péturs Jónssonar, bróður Ólafs H. Jónssonar, en þeir ráku Hag hf. og fleiri fyrirtæki ásamt Einari Marínóssyni. Þeir Ól- afur og Einar höfðu áð- ur verið gerðir eigna- lausir upp gagnvart 130 til 140 milljóna króna kröfum að núvirði í hvort búið. Samþykktar kröfur í bú Jóns Péturs voru öllu lægri eða „aðeins“ 75 milljónir og fengust upp í þær liðlega 220 þúsund krónur eða 0,3 pró- sent... Leiðrétting f frétt PRESSUNNAR um veitingu dósentsstöðu við Háskólann víxluðust nöfn tveggja umsækjenda. Það var Hall- dór K. Júh'usson, en ekki Friðrik Jónsson sem var annar umsækjenda sem dóm- nefndin taldi ekki uppfylla kröfur um starfið. Af þessu leiðir að það var vegna mats á Halldóri, en ekki Friðriki, sem at- hugasemdir voru gerðar við setu Tryggva Sigurðssonar í dómnefndinni. Viðkom- andi eru beðnir afsökunar á mistökunum.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.