Pressan - 14.01.1993, Blaðsíða 22

Pressan - 14.01.1993, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. jANÚAR 1993 Þegar Ólafur Ragnar Grímsson gerðist flugvélasölumaður ÞJÓÐARÞOTAN l\IOTUÐ í UMFANGS- MIKLUM FJÁRSVIKUM í ÞÝSKALANDI Ólafur Ragnar Grímsson var ánægður þegar hann seldi flugfé- laginu Atlanta Þjóðarþotuna fyrir þremur árum. Það var hinn raunveru- legi kaupandi, Thor Tjontveit, líka. Hann notaði vélina umsvifalaust til að svíkja lán út úr þýskum spari- sjóði. Félagi hans í því ævintýri á vél- ina enn og Atlanta hefur hana á leigu. Fyrir þremur árum seldi Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi fjár- málaráðherra, flugfélaginu Atl- anta þotu af gerðinni Boeing 737. Þotuna hafði ríkissjóður leyst til sín vegna skuldbindinga sinna í tengslum við Arnarflug hf., sem þá var að fara á höfuðið. Ólafur Ragnar og forráðamenn Atlanta undirrituðu kaupsamning þann 4. janúar 1990 og gerði hann ráð fyrir staðgreiðslu kaupverðs- ins, sem var 7,1 milljón Banda- ríkjadala. Þetta var býsna gott verð miðað við að ríkið hafði leyst þotuna til sín fyrir 4,2 milljónir dala. Ekki kom ffam fyrr en síðar að sá sem á endanum borgaði fyr- ir þotuna var Thor K. Tjontveit, Norðmaður með bandarískan rík- isborgararétt og skrautlegan feril í alþjóðlegum viðskiptum. Frá hans bæjardyrum séð virðast kaupin á „Þjóðarþotunni" hafa verið hluti af öðru og stærra máli, umfangs- miklum fjársvikum í Þýskalandi sem enduðu með því að bæði þýsk yfirvöld og fnterpol lýstu eft- ir honum vegna lögbrota. TJ0NTVEIT KAUPIR — ATLANTA LEIGIR Það varð reyndar tíu mánaða dráttur á því að Ólafur Ragnar fengi „staðgreiðsluna“ sína. Þjóð- arþotan stóð á Keflavíkurflugvelli til loka júlí 1990 og þurfti að láta skoða hana bæði hériendis og er- lendis áður en hún teldist hæf til Ólafur Ragnar Grímsson ogArngrímur Jóhannssonfagna sölu Þjóðarþot- unnar. Á milliþeirra stendur Þórhallur Arason ífjármálaráðuneytinu, en til vinstri Tómas Þorvaldsson lögmaður, meðstjórnandi Arngríms og Thors Tjontveit í Flugvélum hf notkunar. Breskir skoðunarmenn vélarinnar gerðu töluverðar at- hugasemdir við ástand hennar og þó ekki síður hvernig viðhaldi og eftirliti með henni var háttað hér- lendis. 1 skýrslu sinni nefnir breski skoðunarmaðurinn, Melvyn Simson, sérstaklega að hinn nýi eigandi, íslenska ríkið, sé ósamvinnufúst og liggi á gögnum um viðhald vélarinnar. Hann gerir einnig að sérstöku umræðuefni að Lárus Atlason skuli vera fulltrúi ríkisins í málinu, en hann starfaði hjá fýrri eiganda vélarinnar, Arn- arflugi. Þetta taldi Simson bjóða upp á alvarlega hagsmuna- árekstra. Að lokinni skoðun var greiðsla loks innt af hendi og lögð inn á reikning ríkisins frá banka í Bandaríkjunum, en þar hefur Tjontveit aðsetur og rekstur sinn. 23. október fékk Atlanta afsal fýrir vélinni, en afsalaði henni sam- dægurs áfram til hlutafélagsins Flugvéla. Það fyrirtæki höfðu Tjentveit og Atlanta stofnað um sumarið og gert um leið samning um að Atlanta leigði og ræki vél- ina. Eignarhlutur Tjontveits í Flugvélum var 98 prósent, með- stjórnendur hans voru þeir Arn- grítnur Jóhannsson, forstjóri Atl- anta, og Tómas Þorvaldsson lög- maður. Með þessu var vélin komin í eigu Tjontveits, en Atlanta hafði hana á leigu. En þá fór sagan að flækjast svolítið. BEINA LEIÐ í SPARISJÓÐ- INN Þann 15. nóvember 1990, þremur vikum eftir að íslenska ríkið afsalaði sér flugvélinni, lenti Tjontveit vél af sömu gerð á flug- velli við smábæinn Halle, skammt frá Leipzig í Austur-Þýskalandi. Hann stansaði stutt við, ekki nema um tvo klukkutíma, en fór burt um fimmtíu milljónum marka ríkari, að sögn þýskra dag- blaða. Óstaðfestar heimildir PRESSUNNAR herma að austur- þýskur áhugaljósmyndari hafi tekið mynd af vélinni þar sem hún stóð á flugvellinum og fullyrt er að á henni þekkist íslenskur flug- maður. Þessi fímmtíu milljón mörk (um tveir milljarðar íslenskra króna) voru hluti láns sem félagi Tjontveits, Stephan Grzimek, hafði fengið í sparisjóðnum í Halle, Stadt und Saalkreisspar- kasse. Að sögn þýskra blaða lagði Grzimek fram sem tryggingu veð í þremur flugvélum sem hann sagðist hafa keypt af Tjontveit.' Þeir Tjontveit og Grzimek höfðu uppi áform um atvinnurekstur í Halle, meðal annars útflutning á norskum laxi á Bandaríkjamark- að, og út á þá atvinnuuppbygg- ingu voru lánin veitt. Ekki leið þó á löngu áður en uppgötvaðist að tryggingarnar voru einskis virði og sparisjóðurinn átti á hættu að tapa hundruðum milljóna marka á ævintýrinu. í kjölfarið var spari- sjóðsstjórinn settur á eftirlaun fýr- ir aldur fram og deildarstjóri út- lánadeildar fluttur á geðsjúkra- hús. Það liggur engan veginn ijóst fýrir hvernig Tjontveit kom þess- um fjársvikum í kring. I samtali við PRESSUNA staðfesti Dieter Schmiedl-Neuburg hjá saksókn- araembættinu í HaUe að rannsókn stæði enn yfir, en hann var ekki tilbúinn að tjá sig um einstök at- riði símleiðis. Aðrir heimildar- menn í Þýskalandi sögðu að málið virtist svo flókið að líklega hefðu yfirvöld í Halle ekki mannskap eða þekkingu á vestrænum við- skiptaháttum til að komast til botns í því. Þýsk yfirvöld lýstu eff- ir Tjontveit og Interpol lýsti eftir honum á alþjóðavettvangi. Eftir því sem næst verður komist virð- ist Grzimek vera laus allra mála, en í norskum og þýskum blöðum hefur honum verið lýst sem fjár- glæframanni og glaumgosa. Óstaðfestar upplýsingar PRESS- UNNAR benda hins vegar til þess að Tjontveit hafi blekkt Grzimek í þessu máli. Eftirmálar sögunnar hérlendis renna stoðum undir þá skýringu. Þetta sama sumar reyndi Tjontveit einnig að koma undir sig fótunum í norska flugbransan- um, en mistókst það. Um miðjan síðasta áratug sat hann í fangelsi í Noregi og Þýskalandi í sjö mánuði vegna fjársvika og hafði ekki sést til hans síðan. Tjontveit keypti og seldi flugfélög og flugvélar með misjöfnum árangri og virtust vél- arnar vart lenda svo að lánar- drottnar legðu ekki hald á þær. Síðasta ævintýri hans í Noregi lauk með því að hann fór á loft í annarri Boeing 737-vél með föls- uðum merkingum frá flugvellin- um í Stafangri. Ferðinni var heitið til Bandaríkjanna, með viðkomu á Islandi. GRZIMEK FÆR ÞJÓÐAR- ÞOTUNA Þann 11. febrúar 1991, þremur mánuðum eftir „bankaránið" í Halle, afsalaði Tjontveit sér öllum hlut sínum í Flugvélum hf. og um leið Þjóðarþotunni í hendur Grzimeks og fyrirtækis hans, GAC Trans-Air Carrier Lease, Flugze- ugleasing. Kunnugir segja að þetta hafi verið hluti af uppgjöri þeirra í milli og gerst eftir töluverðan barning Atlanta-manna við að losna við Tjontveit, enda þá kom- ið í ljós hvern mann hann hafði að geyma. Þetta afsal og yfirlýsing Tjontveits var þó ekki kynnt á stjórnarfundi í Flugvélum hf. fýrr en 15. ágúst 1991, þar sem Grzim- ek tók við stjórnarformennsku af Tjontveit. Þar voru mættir Grzim- ek, Arngrímur, Tómas og Ágúst Fjeldsted lögmaður, sem var fundarstjóri. I fúndargerð segir að Tjontveit hafi gerst sekur um ým- islegt ólögmætt athæfi, meðal annars: — Með því að láta aflýsa skuldabréfi með veði í flugvél fé- lagsins [Þjóðarþotunni], að fjár-

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.