Pressan - 03.03.1994, Blaðsíða 9

Pressan - 03.03.1994, Blaðsíða 9
Lei lchús • Gauragangur. ★★1/2 Mér er óskiljanlegt hvers vegna verkið var ekki bara látið gerast um 1970, það hefði verið mun trúverðugra, enda eiga klisjurnar sem vaða uppi í því uppruna sinn á þeim tíma. (FB) Þjóðleikhúsinu, sun. kl. 20. • Blóðbrullaup. ★★★ Ef þeim Ing- vari og Steinunni Ólínu tækist að kveikja eldinn á milli sín væri ég til I að sjá þessa sýningu aftur og aftur og aftur. (FB) Þjóðleikhúsinu, Smíða verkstæði, fös. kl. 20 og iau. kl. 15. • Seiður skugganna. ★★★★ Það er ekkert falið, engin fjarlægð frá ömurleikanum, þú gengur inn í verk- ið og engist í klóm þessarar fjöl- skyldu, sem að meira eða minna leyti er fjölskylda okkar allra. (FB) Þjóðleikhúsinu, Litla sviðinu, fim. og lau. kl. 20. • Mávurinn. ★★★ Sýning sem óhætt er að hvetja alla til að sjá, ekki síst þá sem standa í þeirri meiningu að Tsjekhov sé svo óskaplega þungur höfundur. (FB) Þjóðleikhúsinu, lau. kl. 20. Síðasta sýning! • Allir synir mínir. ★★★ í þessu merka verki Millers er reynt að tak- ast á við hugmyndir hans um glæp, ábyrgð, fjölskyldutengsl og fleira, og allt sem þau mál snertir er prýði- lega vel túlkað. (MR) Þjóðleikhúsinu, fös. kl. 20. • Skilaboðaskjóðan. Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Þorvald Þorsteíns- son. Þjóðleikhúsinu, sun. kl. 14. • íslenski dansflokkurinn. Ballettar eftir Auði Bjarnadóttur, Maríu Gísla- dóttur, Lambros Lambrou og Steph- en Mills. Þjóðleikhúsinu, fim. kl. 20 (frums.) og lau. kl. 14. • Gleðigjafarnir eftir Neil Simon. Leikstjórn, þýðing og staðfærsla: Gísli Rúnar Jónsson. Aðalhlutverk: Bessi Bjarnason og Árni Tryggva- son. Borgarleikhúsinu fim. (frumsýning) og fös. kl. 20.. • Eva Luna. ★★★★ Kjartan Ragn- arsson leikstjóri sannar hér svo ekki verður um villst hæfni sína sem leik- húsmanns. Hvert smáatriði í sýning- unni er úthugsað og fágað, hún rennur hratt og áreynslulaust í rúma þrjá tfma, lifandi og gjöful og aldrei dauður punktur. (FB) Borgarleikhúsinu, lau. og sun. kl. 20.. • Elín Helena. ★ Fyrir utan nokkrar vel samdar og vel leiknar senur fannst mér Elín Helena alls ekki sér- stakt leikrit. Án þess að lýsa at- burðarásinni leyfi ég mér að segja að sagan sjálf sé langt frá því að vera merkileg og uppbygging henn- ar bæði fyrirsjáanleg og langdregin. (MR) Borgarleikhúsinu, Litla sviðinu, lau. kl. 20. Aukasýning. • Bar-par. eftir Jim Cartwright. Leikstjóri: Hávar Sigurjónsson. Leik- arar: Sunna Borg og Þráinn Karls- son. Leikfélag Akureyrar, Sýnt I Þorpinu fös. og lau. kl. 20.30. • Vörulyftan eftir Harold Pinter. Leikstjóri: Pétur Einarsson. Leikarar: Halldór Björnsson og Þórarinn Ey- fjörð. íslenska leikhúsið, Hinu húsinu, fim. kl. 17 og lau. kl. 20. • Besti volgi bjórinn í bænum. ★★ 1/2 Það er skemmtileg tilbreyting að setjast inn á bar til að horfa á leik- list og ekki spillir að verkin eru skemmtileg og vel unnin og eiga, eins og klisjan segir, erindi við okk- uröll.(FB) Þormaguð, Naustkjallaranum, lau. kl. 17. Finnskt lunga andar í Reykjavík vikunni kom til landsins finnski furðufuglinn Kake Puhuu sem stend- ur á bakvið eins manns hljómsveitina Keuhkot. Keuhkot spilar á Tveimur vinum í kvöld, í Norðurkjallara MH annað kvöld og á Húsa- vík á laugardagskvöldið. Keuhkot kemur hingað á vegum Dr. Gunna, en sveitirnar spiluðu saman sumarið 1992 og gefa út hjá sama finnska fyrir- tækinu, Bad Vugum. Keuhkot er um margt skrítin hljómsveit. Tónlistin er meira en lítið furðuleg, en að sama skapi stórskemmtileg. Hér á eftir kemur útdráttur úr útskýringu Kakes á hljómsveitinni: Keuhkot (sem þýðir lunga á íslensku) hefur ffamleitt súrefhi fýrir tónlistarheiminn síðan 1988. Á meðan aðrir hafa ffamleitt brennisteinsgufur og orsakað höfúðverk með því að anda alltaf ffá sér sama loffinu hefur Keuhkot verið ferskur og sogið kraff með rótum sínum úr jarðvegi allra listforma; kvikmyndun, ljósmyndun, leik- húsi, gjörningum, skúlptúrum... og blandað þeim saman í sitt eigið list- form. Keuhkot er eins manns hljómsveit. Kake Puhuu syngur og æpir á finnsku, leikur á gítar, tól og skrítna hluti sem hann hefúr rekist á. Hann er eins og fiflalegur vísindamaður, trúarleiðtogi, geðveikur mótmæla- söngvari og katatónískt wagnerískt ofurmenni. Hann hatar fólk, sýnir því myndirnar sínar, spifar spólurnar sínar, safnar klinki og færir fólki sjálfs- morðshugsanir og fullkomna hamingju. Um upphitun á tónleikunum sjá sveitirnar Stilluppsteypa og Curver og Dr. Gunni kemur ffam með nýjum bassaleikara, líldega í eina skiptið á þessu ári. Það er skemmtileg tilviljun að næstu erlendu rokksveitir sem heimsækja Island eru einnig finnskar. Hér er átt við Honey B and the T- Bones og 22 Pistepirkko, sem báðar eru rokkþyrstum fslendingum að góðu kunnar og eru væntanlegar hingað á næstu misserum. Ólafur Darri Ólafsson rakhnífinn. hlutverki Sweeney Todd mundar Herranótt á blódugum nótum Leiklistarklúbbur Menntaskóla Reykjavíkur, Herranótt, er elsta leik- listarfýrirbærið hér á landi. Um aldamótin fluttu menntaskólapiltar í Reykjavík leikþætti og þótti mikil uppreisn gegn kóngi felast í þeim. Nú dettur svo sem engum í hug uppreisn þegar MR er annars vegar. Þar eru helstu broddborgarabörn landsins við nám og þeir sem halda um stjórnartauma landsins sátu flestir hverjir á sínum menntaskólabekk þar innan veggja. Herranótt ffumsýnir í kvöld leikritið Sweeney Todd og þar er engin lognmolla — mikið blóð. Þetta er eldgömul hryllingssaga sem hefur verið færð í gamansaman búning. MR-ingar hafa skilgreint verkið sem Splatter en það er þegar djókað er með blóð. Sweeney Todd er fær og flinkur rakari sem hefúr misst alla tiltrú á mannkyninu. Dómari nokkur hafði dæmt hann saklausan í útlegð vegna þess að dómarinn var hrifinn af ffú Todd. Hann kemur aftur heim til Englands og leitar hefnda: Hann fer að raka menn svo vel og vandlega að þeir þurfa aldrei rakstur aftur. Það eru nemendur MR sem leika en leikstjóri er Óskar Jónasson. Nemendur í Myndlista- og handíðaskóla Islands sjá um búninga og leikmynd. Og þeim sem vilja sjá Todd sveifla rakhnífnum er bent á Tjarnarbæ en þar fara sýningar ffam. • Amma Lú Aggi Slæ og Tamlarnir ásamt Erni Árnasyni og Jónasi Þóri á föstudagskvöld. Bergþór Pálsson veröur hins vegar með Agga Slæ og Tamlasveitinni á laugardagskvöld. Á fimmtudag og sunnudag er hluti Ömmu Lú opinn fyrir þá sem vilja á barinn. • Barrokk Snarkandi arineldur og rómantík. Án hávaöa. • Bóhem Vinir vors og blóma á föstudagskvöld. Péll Óskar og Millj- ónamæringarnir á laugardagskvöld. • Blúsbarinn Dan Cassidy fiðlari og Kristján Guðmundsson verða þar eitt- hvað um helgina. • Café Romance lan heitir Englend- ingurinn sem syngur og leikur Ro- mance-megin um helgina. Hinum megin við þilið spilar Hjörtur Howser af fingrumfram. • Fógetinn Djass á háaloftinu á fimmtudagskvöld með Kristjáni Guð- mundssyni, Rúnar Georgssyni og Tómasi R. Niðri er Jón Ingólfsson einn að verki. Um helgina spila ein- hverjir Sigurður og Heimir sem mynda dúett. Bjössi greifi beint frá Húsavik á sunnudagskvöld. • Gaukur á Stöng Yrjan, sú ágæta grúppa, á fimmtudagskvöld. Um helg- ina tekur við hljómsveitin Undir tungl- inu sem allir héldu að væri hætt. • Hótel ísland Bítlahátíð á föstu- dagskvöld með fullt af gömlum kemp- um auk Stefáns Hilmarssonar. Þrjár bítlamyndir á stóra tjaidinu. Þriðja sýningin á laugardagskvöld á hinni ótrúlega þrautseigu Sumargleði með þeim Bessa Bjarnasyni, Magnúsi Ól- afssyni, Hemma Gunn og fleirum. Hljómsveit kvöldsins er sveit Siggu Beinteins. • Hótel Saga Sýning hinnar miklu hátiðar Halla, Ladda, Sigga og Eddu á laugardagskvöld. Saga Class leikur fyrir dansi. Matur og afnot af dans- gólfi. Gunnar Tryggvason og Þorvald- ur Halldórsson á Mímisbar á föstu- dags- og laugardagskvöld. • Hressó Skárr'en ekkert er trió hússins sem spilar ekta franska kaffi- húsatónlist á sunnudagseftirmiðdag. • Ingólfscafé Steinunn Ólína, kokkt- eilboð, plötusnúðar úti í garði ef veð- ur leyfir, erlendur Ijósmyndari, jafnvel indverska prinsessan og Paul Smith- línan sýnd. • Pizza 67 Örkin hans Nóa ótengd á föstudags- og laugardagskvöld. • Rauða Ijónið Sin, ekki með ufsiloni, á föstudags- og laugardagskvöld. • Sólon islandus Spilaborgin, sem er ekki djassgrúppa, á fimmtudagskvöld. Djassspilerí á föstudagskvöld og á laugardagskvöldið spilar JJ soul, sem einnig er á djasslínunni. • Tveir vinir Finnski rokkgjörninga- hávaðatrúbadorinn Keuhkot á fimmtudagskvöld. Hress hinir snarg- eggjuðu á föstudagskvöld og hvorki meira né minna en KK í öllu sínu veldi á laugardagskvöld. • Þjóðleikhúskjallarinn Dansiball með Leikhúsbandinu á föstudags- og laugardagskvöld. Óskabörnin á föstu- dagskvöld. Þýðendakvöld hjá Lista- klúbbnum á mánudagskvöld. SVEITABOLL • Áslákur, Mofellsbæ Lipstick Lovers á eina almennilega ródhásinu á íslandi föstudags- og laugardagskvöld. • Sjallinn, Akureyri Allt vitlaust að venju með Geira Valtýs hinum skag- firska á laugardagskvöld. • Skíðaskálinn, Hveradölum Sigrún Eva Ármannsdóttir júróvisjónsöng- kona er þar alltaf með annan fótinn. • Þotan, Keflavik Diskó á föstudag en sjálfir Bubbleflies á laugardags- kvöld. \ Dolli ... Tequila, salti og sítrónu með öllum stælum. Þetta bjórþamb er komið út í öfgar: Menn verða slobbí, mígandi og mærðar- legir. Þá er betra að örva sig með eins og einu skoti af Tequila. ... Að dreift verði góðum dömubindum meðal iðnskóla- nema. Þau hafa jú áhrif á námsárangur. ... Eivilization. Tölvuspilið sem tekur þrjá sólarhringa að fara í gegnum og gerir mann að einræðisherra yfir þjóð að eigin vali í sex þús- und ár. Ef Hider hefði fengið að leika sér í þessum leik hefði hann ekki þurft að prufukeyra þennan draum sinn í raunveruleikanum. ... Konum sem hafa ftumkvæðið að því að reyna við karla. Það er of mikil tímaeyðsla fýrir filósófi'skt þenkjandi mann að þurfa að koma á nánari kynnum. ... Að á næstu vetrarólgmpíuleika verði bara sendir íþrótta- fréttaritarar ffá Islandi. Því miður var ekki keppt í íþróttafréttamennsku en að eigin sögn stóðu þeir sig afbragðsvel, voru fæstir (þá er að vísu ekki miðað við margffæga höfðatölu) en sendu mest af efni heim (hlutfalls- lega). tveir og bingó. Hann veifar til mín brosandi og ég kinka kolli á móti — það er þessi innbyggða kurteisi sem off hcfúr komið manni í koll. Síðan hið fyrirsjáanlega, Stebbi kom ark- andi með stóra könnu af kaffi og sett- ist hjá mér. Þegar maður er að drekka bjór þá er þetta eitt það versta sem getur komið fyrir. Ef maður er með kaffi er hægt að leika þann lcik að ljúga því að öl sé böl og samsinna öll- um leiðindunum sem velta upp úr þessum heilaþvegnu mönnum. En það er verra að eiga við þá með könnu á borðinu. Og það brást ekki: Úr raunamæddum augunum mátti lesa vorkunnsemi og setninguna: „Það er þá svona komið fyrir þér.“ Ohhh. Eitt er þó með þessa kalla, þeir reykja tóbak eins og þeim sé borgað fyrir það og með trbánu að sníkja af þeim sígarettu er oft hægt að snúa vörn í sókn. „Hvað segirðu, Stebbi? Áttu reykju?“ Það þyrmdi yfir mig þegar hann fór að segja mér frá þvf að hann væri hættur að reykja: Nálar- stunguaðferðin, plásturinn, tyggj- óið... Ég pantaði mér Jameson og þegar hann neyddist til að fara á ldó- settið — kafifiþambið var gígantískt — þá sletti ég slurk af viskíi út í boll- ann hjá honum. Honum svelgdist á fyrsta sopanum, leit á mig særðum augum og sagði um leið og hann kvaddi: „Þú ert lifandi sönnun þess að áfengi ermannskemmandL11 Síðan hef ég fengið frið fyrir þessum labba- kútuin. ' / / * Nú segi ég stopp. Eg sat á kaffi- húsi hér í bæ, var að sötra fyrsta bjór dagsins og fletti þessu eina hádegisblaði sem gefið er út á íslandi. Þá gerast þau ósköp að inn ráfar Stebbi snípur, sem nú geng- ur víst undir nafhinu Stefán streit, uppþomaður alki sem ég kannaðist við. Fyrst reyni ég að látast ekld hafa séð hann og þykist niðursokkinn i há- degisblaðið. Ég er ekki versti leikari í heimi en það hefði þurff sir Larry til að leika þetta atriði sannfærandi því eins og menn vita þá dugar þetta blað ekki nema í fimm mfnútur með hálfri athygli. Ég leit lymskulega upp úr blaðinu og bang — ég var dauður. Hann þurfti ekki nema þetta sek- úndubrot og náði augnkontakt einn "W 7* >C Vio inœlum með: FIMMTUDAGURINN 3. MARS 1994 PRESSAN 9B

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.