Nýja dagblaðið - 18.07.1936, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 18.07.1936, Blaðsíða 2
I 35? Ý ií A DAGBLAÐIÐ Erlendar íþróttafréttir r Ipróttaairek í Bandaríkýunum 1 Bandaríkjunum er nýlega lokið meistarakeppni í íþróttum fyrir yfirstandandi ár. Til fróð- leiks fyrir íslenzka íþróttamenn skal hér getið nokkurra úrslita: Stangarstökk; Georgie Vor- off, 4.42,5 m. eða 3,3 cm. hærra en heimsmetið. Langstökk: Jessi Owens, 7,99 metra. 100 metra hlaup: Jessie Ow- ens, 10,4 sek. Hástökk: Cornelius Johnson, 2.06 m. 110 m. grindahlaup: Forrest Towns, 14,2 sek. Kúluvarp: Dimitri Zaitz, 15,44 m. Knnglukast: Carpenter, 50. 65 m. 400 m. hlaup: Harald Small- wood, 47.3 sek. 1500 m. hlaup: Cunnigham, 3 mín. 54,2 sek. 800 m. hlaup: Ch. Beethman, 1 mín. 50,3 sek. Sleggjukast: Rowe, 53.42 m. Keppnin fór fram í miklum liita. Allir þessir íþróttagarpar taka að forfallalausu þátt í Olympiuleikjunum. Kínverskír knatt- spyrnum. T‘ Berlín Kínverjar senda 22 knatt- spyrnumenn á Olympisku leik- ana og er það í fyrsta sinn, sem kínverskir knattspymu- rnenn keppa í Evrópu. Knatt- sp.vrna ér sögð ein mestiðkaða íþrótt Kínverja, en þó eru það aðallega vissar stéttir í borg- unum, sem iðka hana, verzlun- armenn, skrifstofumenn o. þ. 1. Kínverjar eru taldir betri knattspyrnumenn en Japanir. Meðalaldur kínversku knatt- spyrnumannanna, sem keppa í Berlín, er 2614 ár og meðal- hæð 160 cm. Nýtt airek í tugpraut Ungur Bandaríkjamaður, Glenn Morris, hefir komizt mjög nærri heimsmetinu í tug- þraut. Fékk hann 7889 stig, en metið er 8790 stig, sett af Þjóð- verjanum Hans H. Silvert. Af- ) ek Morris í einstökum íþrótt- um voru þessi: 100 m. hlaup: 10.7 sek. Langstökk; 6.85 m. Kúlukast: 14.45 m. Hástökk: 1.86 m. 400 m. hlaup: 50.7 sek. 110 m. grindahlaup: 14.9 sek. Kringlukast: 43.10 m. Stangarstökk: 3.45 m. Spjótkast: 56.06 m. 1500 m. hlaup: 4 mín. 48.1 sek. — Ameríkumenn era mjög ánægðir með þennan árangur og vænta mikils af þessum unga manni. Morris er sveita- maður, 24. ára gamall. Keppnín um nor- ræna knatt- spyrnubikarinn Þriðju keppninni um noiræna knattspyraubikarinn lýkur í haust. Það voru Danir, sem gáfu fyrsta bikarinn og unnu þeir hann líka. Næsta bikarinn gáfu Svíar, en hann var unninn af Norðmönnum. Bikarinn, sem nú er keppt um, gáfu Norð- menn. Keppnin stendur í fjögur ár um hvern bikar og fer fram ein umferð á hverju ári. Eins og gefur að skilja, taka aðeins úrvalslið landanna þátt í þess- ari keppni. Keppnin stendur nú þannig. Fyrst er tala kappleikja, síðan stigatala og síðast markafjöldi: Svíþjóð .. .. 11 14 29:31 Danmörk .... 11 13 27:22 Noregur .... 10 10 22:16 Finnland .... 10 5 15:34 1 vor hafa farið fram þrír kappleikir. Danir hafa unnið Svía með 4:3 og Finna með 4:1. Svíar hafa unnið Norð- menn með 2:0. Þrír leikir eru eftir og verða þeir alir í september. Keppa þá: Norðmenn gegn Finnum, Danir gegn Norðmönnum og Finnar gegn Svíum. Svíar eru taldir vissir með bikarinn að þessu sinni, því þeir eru nú mun betri en Finn- ar. — 11 ára Danmerkur- meistari Það hefir vakið mikla at- hygli í Danmörku og gleði er óhætt að segja líka, að 11 ára gömul skólatelpa, Inge Sören- sen, hefir . hvað eftir annað sigrað mestu sundkonu Dana á 200 m. bringusundi. Og sunnu- daginn 5. þ. m. vann hún keppnina um meistaratignina fyrir konur á þessari vega- j lengd. Tími hennar var 3.06.8 mín. Konungskoman og Geysír í Nýja dagblaðinu á mið- vikudaginn var (15. júlí) ritar hr. Sigurður Greipsson í Haukadal um árásir, er hann telur sig hafa orðið fyrir sök- um þess að mistök hafi orðið á um gæzlu Geysis fyrir komu konungs þangað. Getur S. G. þess, að hann muni ekki eftir, að móttökunefndin hafi lagt sér neinar lífsreglur í sambandi við gæzlu hversins, enda hafi hann sjálfur átt að kunna þar bezt með að fara. í þessu sambandi skal þess getið, að Sigurði Greipssyni var lagt svo fyrir af móttöku- nefndinni, að hann skyldi leit- ast við að hafa skál hversins eins fulla og auðið væri, að minnsta kosti þrjá sólarhringa áður en gestirnir kæmu. Hafði S. G. þau ummæli, er hann fékk þessi fyrirmæli, að hann teldi þeta skynsamlega ráðstöf- un og' lofaðist til að sjá um þetta. En í stað þess að gera það, sem fyrir hann var lagt, virð- ist S. G. hafa komizt að þeirri niðurstöðu, þegar hann átti að framkvæma fyrirskipunina, að það „mundi vera mikill gos- kraftur í hvemum og þóttist og sjá að mjög óvíst væri, hvort tækist að halda honum niðri, því að hann gæti auð- veldlega gosið, jafnvel þó skál- in fylltist á barma“. Niðurstað- an af þessum bollaleggingum verður svo sú, að hann gerir ekkert fyr en um nóttina á undan heimsókninni og er þá hverinn búinn að gjósa þann dag. Sjálfsagt er að geta þess, sem S. G. færir fram sér til réttlætingar, að hann hafi lagst niður hjá hvernum til þess að gæta hans, eftir að hann hafði sett í hann stífluna. Þó undar- legt megi virðast, sýnist þetta engin áhrif hafa haft á hver- inn, á einn veg eða annan. Fyrirmæli þau, sem getið er um hér að framan, að Sig. Greipsson hafi fengið, voru gefin honum af mér undirrit- uðum og Haraldi Árnasyni á heimili S. G. nokkra fyrir kon- ungskomuna. Ragnar E. Kvaran. r Alið hefir verið á þeim orð- rómi, að Geysir hafi ekki gosið þennan umrædda dag sökurn þess, að ekki hafi verið notuð viðeigandi sápa. Þetta er vita- skuld með öllu ábyrgðarlaust hjal, því að enn hefir það aldrei brugðist, að Geysir hafi gosið fallega og mikið, er sú sáputegund, sem notuð var, hefir verið í hann sett — nema þennan dag. Og hæstu gosin, sem enn hafa vejrið reglulega mæld, hafa verið af áhrifum þessarar sápu. R. E. K. Kaapið Gula-bandið er beztft og ódýrasta smjörlíkið í heildsölu hjá Samband isl. samvinnufélaga Simi 1080 VERÐ VIÐTÆKJA ER LÆGRA HÉR Á LANDI, EN í ÖÐRUM LÖNDUM ÁLF- UNNAR. Viðtækjaverzlunin veitir kaupendum viötækja meirí tryggingu um hagkvæm viðskipti en nokk- ur önnur verzlun mundi gera, þegar bilanir koma fram i tækjunum eða óhöpp hera að höndum. Ágóða Viðtækjaverzlunarinnar er lögum samkv. eingöngu varið til rekaturs útvarpsins, almennrar útbreiðslu þess, og tíl hagshóta útvarpsnotendum. Takmarkiö er: Viðtæki inn á hvert heiraili. VIÐTÆKJAVERZLUN RÍKISINS, Lækjargötu 10 B. Sími i Heyvinnuvéiar Eígtim esm óbSaðar s&okkrar slátluvélar og raksfrarvélar. Samband asL samviamufélaga NÝJA ÞVOTTAHÚSIÐ Greitisgötu 46 Sími 4898 Fullkomnustu vélar — Fljét og góð vinna.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.