Tíminn Sunnudagsblað - 13.10.1963, Blaðsíða 18
Látinn öðlast líf
þegar nafn hans
™\wm
i-jjijfjjl!
:i:
|Íl!»!tlM.iiÍÍ!''«Í! 1
að nýju,
er nefnt
„Hinn dauði ö<S!ast líf a8 nýju,
þegar naín hans er nefnt“,. segir í
fornri egypzkri áletrun. Og þetta hafa
oft reynzt orð að sönnu. Eitt þeirra
nafna, sem öðlazt hafa nýtt líf síð-
ustu áratugina, eftíir að hafa verið
gleymt í meira en þrjú þúsund ár, er
nafn Tutankamuns Egyptalandskon-
ungs, sem ríkti um miðbik 14. aldar
fyrir Iírists burð.
Gröf Tutankamuns fannst árig 1922
og reyndist auðugasta og glæsilegasta
konungagröfin, sem fundizt hefur í
Egyptalandi. í þessari gröf fundust
myndir af konungum, gullkistur og
glæsilega skreytt hásæti, goðamynd
ir og skartgripir, áletranir og frásög
ur. Gröfin var gíögg tjáning þeirrar
trúar, sem hefur verið ríkjandi meðal
hinna fornu Egypta, að konungurinn
myndi fæðast. til nýs lífs og njóta
þar sömu eða svipaðra lífsþæginda
og hann bjó vig hérna megin grafar.
En hver var Tutankamun? Úr gröf
inni og grafarmunnunum er hægt að
lesa margvíslegar upplýsingar um trú
og menningu samtímamanna hans, en
þar er ekki mikið skýrt frá ævi hans
og persónu. En fræðimenn hafa lagt
sig fram við að reyna að svara spurn
ingunni. Þeir hafa dregið fram í dags-
ljósifl heimildir úr mörgum áttum,
raðað saman brotum og reynt að
skapa úr beiro heildarmynd. Á þess-
um grundvelli hefur reynzt unnt að
setja fram tilgátur og hugmyndir,
sem margt mælir með að séu réttar
í aðalatriðum, þótt talsvert kunni að
vanta á, að þær séu fullsannaðar eða
geti nokkru sinni hlotið fullnaðar-
sönnun.
Forfeður Tutankamuns höfðú ríkt
yfir egypzku konungsríkjunum tveim
ur um tveggja alda skeið. Á valda-
dögum þessarar ættar — hinnar átj-
ándu konungsættar — hafði ríkið ver-
ið gert að stórveldi og náði allt frá
Sýrlandi suður í Súdan. Völdunum
fylgdi auðlegð. Listir stóðu í mikl-
um blóma og íburður tók við af þeim
einfaldleika, sem annars var eiginleg
ur egypzkrj Ust. Glæsilegar hallir og
hof voru reist víðs vegar á Nílarböklc
um.
Ríkið stóg á hátindi veldis síns, þeg
4 Þessl stytta af hinum látna
þjóðhöfSingja stóð I anddyrl graf-
hýsisins. Hún er I fullri líkams-
stærð og hörundið er málað svart
til að tákna skyldleika hins látna
vlð Ósirls, goð undirheima.
858
TÍMIN'N - SUNNUDAGSBLAÐ