Tíminn Sunnudagsblað - 23.07.1967, Side 12
I.
Hinn 17. janúar árið 1706 fædd-
.st sonur þeim Jósúa Franklín,
sertasteypara í Boston, og Albíu,
konu hans. Sveinninn var vatni
ausinn og nefndur Benjamín, og
varð af honum mikil saga, þótt
fáa muni hafa órað fyrir slíku við
fæðingu hans. Franklínsættin átti
rætur í Oxfordskíri í Englandi, en
Jósúa flutti vestur um haf árið
1683. Englendingar hófu landnám
í Norður-Ameríku á öndverðri
seytjándu öld, og jókst það hröð-
um skrefum, er á öldina leið. En
þeir voru ekki einir um hitu:
Frakkar, Spánverjar, og HoB
lendingar ásældust einnig lönd í
þessum heimshluta, og rauðskinn
ar, frumbyggjar Vesturheims,
veittu vasklegt viðnám, þótt fá«
mennir væru. Hollendingar heltust
þó úr lestinni, og um skeið voru
ítök Spánverja norðan Rio Grande-
fljóts, sem nú skilur Mexíkó og
Bandaríkin, einskorðuð við Flór-
ída. Um það leyti, sem Benjamín
Franklín fæddist, voru því Eng-
land og Frakkland hin miklu ný-
lenduveldi á meginlandi Norður-
Ameríku. Nýlendur Englendinga
Iágu allar austan Appalakkafjalla,
en Frakkar töldust ráða fyrir geysi
miklu landflæmi þar fyrir vestan,
frá Mexíkóflóa, vestur undir Kletta
fjöll og norður að íshafi. Þess ber
þó að gæta, að frönsku landnem-
arnir voru aðeins nokkrir tugir
þúsunda og höfðu margir hverjir
ekki fasta búsetu, heldur ferðuð
ust um í leit að loðskinnum. Sum
ir rauðskinnakynþættir fóru mjög
sínu fram á landi Frakka og gerðu
bæði þeim og Bretum marga skrá-
veifu. En landnemar á austur-
ströndinni voru mörgum sinnum
flelri en í nýlendum Frakka, og
fastara skipulag var á flestum hlut
um eystra.
Landnemar í Vesturheimi voru
mjög frjósamir, og átti Jósúa
Í'ranklín alls seytján börn, senj.
flest náðu fullorðinsaldri. En lík»
legt er, að oft hafi verið þröngjj
í búi, Benjamín hneigðist snemmá
til bókar og var settur í skóla. Eíj
stutt varð í dvöl hans þar, tfít
ára byrjar hann að vinna að kertíu
gerð og verður alla tíð síðan af
afla sér þekkingar upp á eigin
spýtur. Atvikin höguðu því svo, ao
Benjamín var settur til prentnáms,
Benjamín Franklín á gamalsatdrl.
636
T 1 M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ