Tíminn Sunnudagsblað - 28.06.1970, Blaðsíða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 28.06.1970, Blaðsíða 13
Ólafur Þorvaldsson þlngvörður. fttí Iborða hjá Gunnari. Hann bjó Uppi á íofti, yfir búðinni. — Hvernig líkaði þér að vera verzlunarmaður? — Vel. Annars var ég nú ekki alger nýliði, þegar ég kom til Gunnars, þvi að ég var búinn að vera átta ár verzlunarmaður hjá Milljónafélaginu í Hafnarfirði. Þar var mikið að gera og mikið um að vera, því að félagið gerði út tíu kúttera, auk allra annarra um- svifa, og hluthafar voru bæði á íslandi og í Danmörku. Þar var sá siður að loka búð klukkan fimm síðdegis, einkum framan af vetri. Þegar lokað hafði verið, fóru all- ir inn í skrifstofu til þess að færa inn í bækurnar, því að reikning- arnir urðu að komast utan með áramótaferðinni. Lára gamla, sem þá var helzta millilandaskipið, fór alltaf ferð upp úr áramótum, og það var geysilegur strekkingur og kapphlaup allan fyrri hluta vetr- arins að hafa allt tilbúið í áramóta- ferðina. Þá voru nú hvorki ritvél- ar né reiknivélar til þess að létta mönnum störfin. Allt var reiknað með heilanum og skrifað með hendinni. — Ég heyri, að þú ert ekki alls ókunr.ugur verzlunarstörfum. — O-nei. Eiginlega finnst mér ég geta skipt ævi minni í þrjá, nokkuð jafna hluta: Verzlunar- og kaupsýslustörf (ég var um tíma kaupmaður í Reykjavík), landbún- að og veru mína á alþingi, en þar var ég í aldarfjórðung. — Við höfum enn ekki minnzt á Iandbúnaðinn, svo heitið geti. Hvar bjóstu? — Það var nú nokkuð víða. Ég hef átt heima í mörgum sveitum og sýslum. Fyrst voru það nú þessi tvö ár, sem ég bjó í Straumi. Svo, þegar ég hafði um mörg ár verið við ýmis verzlunar- og skrifstofu- störf í Reykjavík og Hafnarfirði, þá fluttist ég vestur á Snæfellsnes og bjó þar í sex ár. — Hvar var það? — Á Stakkhamri í Miklaholts- hreppi. Þetta var gömul konungs- jörð, og við tókum hana á leigu tveir, ég og Björn Jónsson frá Strýtu, bróðir Ríkarðs Jónssonar myndhöggvara og þeirra systkina. Við Björn höfðum unnið saman í Reykjavík, og þá kom það fljótt í ljós, að í báðum rann sama sveita- blóðið, og þá ákváðum við það að taka í sameiningu jörð til ábúðar. Þessi ágæta fyrirætlan okkar fór þó verr en skyldi, því að á öðru búskaparári okkar á Stakkhamri andaðist Björn, og eftir það undi _ég ekki þarna, þótt búskapur minn treindist að vísu nokkur ár enn. — Bjugguð þið ekki báðir við sæmileg kjör, þegar þið fluttuzt burt frá Reykjavík? Það hefur þurft þó nokkra löngun til sveita- búskapar til þess að hverfa frá öllu hér? — Þetta var óviðráðanleg árátta. Þegar ég fór úr Reykjavík, var ég í vel launaðri stöðu. Lík- lega hef ég aldrei á ævi minni fengið hærra kaup, ef miðað er við peningagildið. Svipuðu máli gegndi um Björn, nema ef hann kann að hafa verið örlítið betur staddur en ég. — Hvernig var svo að búa á Stakkhamri? — Jörðin er stór, bæði til lands og sjávar. Vetrarbeitin er allt að því óþrjótandi, einkum í Gláms- flóa. Hann er víðáttumikiU mjög og hreinasta ævintýraland fyrir sauðkindur. Vötnin í honum og tjarnirnar eru vist eitt af því, sem óteljandi er á landi voru, og á milli þeirra eru háir hryggir með mikl- um fjalldrapa. Þess á milli eru brokflög, mjög loðin, en svo ger- samlega rótlaus, að það er hezt ek-ki hægt að fara um þau, nema á skíðum, og það gerðum við oft. Það kom víst meira að segja fyrir að bjarga þurfti mönnum, sem þar voru í hættu staddir, og komust hvorki fram né aftur. Þetta kom að vísu aldrei fyrir í minni tíð, en mér var sagt frá því, og það mun rétt vera. Þegar ég kom vestur, sögðu gamlir menn mér, að það væri haft fyrir satt um búskap á Stakkhamri, að þar þyrfti aldrei að gefa kind hey, ef hún næði niður á þúfu í Glámsflóa. Þeir orðuðu þetta víst svona: Það þarf þá ekki að gefa henni hey það kvöldið. En einn ókost hafði Glámsflói, og hann mikinn: Þar voru óskaplegar hætt- ur fyrir kindur haust og vor, þegar tjarnirnar voru hvorki auðar né með heldu svelli. Það var alls ekki um annað að gera en standa yfir fénu allan þamn tima, sem svo stóðu sakir. — Hvert lá leiðin, þegair bú- skapnum 4 Stafckhamri lauk? — Ég seldi Síakkhamar og fluttist suður á Hvaleyri við Hafn- arfjörð. Þar tók ég til ábúðar tvö býíí, Sveii iskot og Tjarnarkot. Þau TllilNN - SUNNUDAGSBLAÐ 517

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.