Morgunblaðið - 17.06.2004, Síða 14

Morgunblaðið - 17.06.2004, Síða 14
FYRSTA tölvuveiran, sem dreifist með farsímum, er kom- in af stað. Er hún að vísu mein- laus en óttast er, að hún sé að- eins upphafið að öðru verra. Tölvuormurinn, sem kallast Cabir, sýkir síma og tæki, sem notast við Symbian-stýrikerfið, en það á við um flesta farsíma- framleiðendur. Þegar veiran fer í gang birtist orðið „Caribe“ á skjánum og í hvert sinn sem kveikt er á símanum leitar orm- urinn að öðrum símum með Bluetooth-senditækni og reyn- ir að smita þá. Kom þetta fram á fréttavef BBC, breska ríkis- útvarpsins, í gær. Vegna þess, að ormurinn nýtir sér Bluetooth, getur hann ekki smitað aðra síma en þá, sem eru í 30 metra fjarlægð eða minna. Eins og fyrr segir er veiran skaðlaus en margir ótt- ast, að það sé bara byrjunin. Veira komin í farsíma RÉTTARHÖLD í máli Míkhaíls Khodorkovskís, fyrrverandi forstjóra rússneska olíufélagsins Yukos, hófust í Moskvu í gær en var frestað jafn- harðan þar sem einn verjendanna þurfti að jafna sig eftir augnaðgerð. Khodorkovskí og Platon Lebedev, annar stór hluthafi í fyrirtækinu, eru sakaðir um margvísleg afbrot, m.a. falsanir, skattsvik og fjárdrátt. Ákærurnar varða flestar sölu eða einkavæðingu stórrar áburðarverk- smiðju á árinu 1994. Búist er við að réttarhöldin taki marga mánuði og Khodorkovskí og Lebedev geta átt yf- ir höfði sér 10 ára fangelsi. Ljóst þykir, að margt misjafnt átti sér stað í einkavæðingarhrinunni eft- ir hrun Sovétríkjanna en marga grun- ar, að tilgangur stjórnvalda sé öðrum þræði pólitískur og að kveða niður mikil völd rússnesku auðjöfranna. Vegna þessara mála og skattakröfu stjórnvalda, upp á 247 milljarða ísl. kr., rambar Yukos á gjaldþrotsbarmi. Rússneskir saksóknarar segja Lebedev og aðrir ráðamenn í fyrir- tækinu Menatep hafa árið 1994 kom- ist yfir 20% hlut í Apatit, stærsta áburðarframleiðanda í landinu, og beitt við það ýmsum blekkingum, meðal annars fölskum tilboðum. Til- boðsgjafinn, sem fékk síðan hluta- bréfin á nafnverði, hafi svo ekki staðið við fyrirheit um að fjárfesta fyrir um 17 milljarða ísl. kr. í fyrirtækinu. Í ákæruskjalinu segir, að Khodor- kovskí hafi lagt á ráðin um þetta. Auk þessa eru þeir Khodorkovskí og Lebedev sakaðir um að hafa svik- ist um að greiða skatt, bæði af tekjum Apatits og sínum eigin, og dregið til sín mikið fé frá fyrirtækinu. Auðlindirnar endurheimtar? Vladímír Pútín, forseti Rússlands, hefur sagt um rannsóknina að hún sé hluti af baráttunni gegn efnahags- glæpum og spillingu. Grunsamlegt þykir að lagt var til atlögu við hann á sama tíma og hann var að efla sín póli- tísku áhrif í andstöðu við Pútín. Þá telja sumir erlendir fjárfestar og rússnesku auðmennirnir, að hugsan- lega vaki fyrir ríkisstjórninni að end- urheimta eitthvað af þeim auðlindum og fyrirtækjum, sem örfáir menn komust yfir í einkavæðingu síðasta áratugar. Sakaður um falsanir, skatt- svik og fjárdrátt Moskvu. AP, AFP. LALU Prasad Yavad, ráðherra járnbrautamála á Ind- landi, sagði tuttugu látna og hundrað særða eftir lest- arslys sem varð í gærmorgun, um 200 km frá Bombay. Tildrög slyssins voru þau að lest keyrði á bjarg á 95 km hraða á leið sinni yfir brú, með þeim afleiðingum að hún fór af sporinu og steyptist út af brúnni. Sjónvarpsstöðvar í Indlandi sýndu myndir frá slysstað þar sem sjá mátti mikið skemmda lestarvagna í einni kös og vógu tveir þeirra salt á brúnni í um 30 metra hæð. Eimreiðarstjórar sögðu í gær að stálnet, sem lögð höfðu verið meðfram brautarteinunum, dygðu ekki til að halda björgum frá. Forstjóri járnbrautarfyrirtækisins sem á lestina, B. Rajaram, sagði „náttúruna enn einu sinni hafa gert lítið úr manninum“. Reuters Keyrði á bjarg og fór út af brú Bombay. AFP. ERLENT 14 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÍTALSKA sjónvarpskonan Lilli Gruber eða „Rauða Lilli“, eins og hún er gjarnan kölluð vegna háralit- arins, þykir hafa niðurlægt illilega sjálfan forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, í kosningunum til Evrópuþingsins um helgina. Þar fékk hún nefnilega meira en helm- ingi fleiri atkvæði en ráðherrann, í höfuðborginni Róm. Hlaut hún flest atkvæði frambjóð- enda í borginni eða tæplega 237 þús- und á meðan Berlusconi fékk rúm 116 þúsund. Athygli vekur að for- sætisráðherrann bauð sig fram í mörgum héruðum landsins jafnvel þótt vitað væri að hann gæti ekki tekið sæti á þinginu. Gruber þessi er einn frægasti fréttalesarinn í ítölsku sjónvarpi þar sem hún hefur starfað í 20 ár eða þar til í maí þegar hún tilkynnti, áhorfendum til mikillar furðu, að hún ætlaði að láta af störfum til að bjóða sig fram fyrir Ólífutréð sem er bandalag nokkurra stjórnarand- stöðuflokka. Er hún hætti kvartaði hún yfir því að fréttum í þætti henn- ar, m.a. af Íraksstríðinu, hefði verið breytt í þágu stjórnar Berlusconis. Sætur sigur Þykir sigur Gruber á forsætisráð- herranum einstaklega sætur þar sem hann ræður beint eða óbeint yf- ir 90% allra sjónvarpsstöðva á Ítal- íu, Hann á stærstu einkareknu sjón- varpssamsteypuna auk þess sem hann sem forsætisráðherra, getur óbeint haft áhrif á ríkissjónvarps- stöðina RAI. „Ég er mjög ánægð með niðurstöðuna. Fréttakonan … hefur sigrað manninn sem á sjón- varpið á Ítalíu,“ sagði Gruber eftir kosningarnar. Ólífutréð er bandalag vinstrisinn- aðra miðjuflokka sem Romano Prodi, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, stýrir. Fékk það 31% atkvæða í kosningunum á meðan flokkur Berlusconis, Áfram Ítalía, fékk einungis 21%. Bandalagið hefur löngum þótt vanta í sínar raðir heillandi fram- bjóðendur sem tækju sig vel út á sjónvarpsskjánum, einhvern sem gæti veitt hinu fræga tannkrems- brosi Berlusconis samkeppni. Svo virðist sem ekki þurfi að leita lengur, hin glæsilega sjónvarpskona, sem margoft hefur verið kosin kyn- þokkafyllsta kona Ítalíu, hefur sýnt og sannað að hún er honum hættu- legur andstæðingur. „Fullsaddur“ af forsætisráðherranum Berlusconi hefur sagt að hann taki „fulla ábyrgð“ á slæmu gengi flokks síns, Áfram Ítalíu, í kosningunum. Vittorio Zucconi, þekktur blaðamað- ur, sagði eftir þær að flokkurinn hefði goldið þess að almenningur væri búinn að fá sig „fullsaddan“ af forsætisráðherranum sem síðustu vikur hefði birst í sjónvarpi „með morgunverðinum, í hádeginu og á kvöldmatartíma“. Veitti Berlusconi skell Reuters Lilli Gruber er afar vinsæl og virt fréttakona á Ítalíu. Flutti hún m.a. fréttir af Íraksstríðinu frá Bagdad. ’Ég er mjög ánægðmeð niðurstöðuna. Fréttakonan … hefur sigrað manninn sem á sjónvarpið á Ítalíu.‘ Róm. AP. YFIRVÖLD í Indónesíu hvöttu í gær skæruliða aðskilnaðarsinna í Aceh til að leggja niður vopn en þá höfðu þrír útlægir leiðtogar þeirra verið hand- teknir í Svíþjóð. Skæruliðar lýstu því hins vegar yfir, að baráttu þeirra, sem hefur staðið í 27 ár, yrði haldið áfram. Yasril Ananta Baharuddin, sem sæti á í öryggismálanefnd þingsins, hvatti skæruliða til gefast upp og berjast heldur fyrir hagsmunum sín- um og Aceh-héraðs með þingræðis- legum hætti. Kom áskorunin í kjölfar frétta um, að sænska lögreglan hefði handtekið þrjá leiðtoga þeirra, Hasan di Tiro, Zaini Abdullah, sem kallar sig utanríkisráðherra frjáls Aceh, og Malik Mahmud en hann er forsætis- ráðherra héraðsins í augum skæru- liða. Eru þeir að sögn sænskra yfir- valda „grunaðir um alvarleg brot á alþjóðalögum“. Indónesíustjórn hefur lengi hvatt sænsku stjórnina til að grípa til að- gerða gegn mönnunum en þeir hafa allir fengið sænskt vegabréf. Hari Sabarno, öryggismálaráðherra Indónesíu, fagnaði handtökunum í gær og benti á, að í raun hefðu sænsk- ir ríkisborgarar stjórnað óöldinni í Aceh. „Þeir hafa lifað í vellystingum praktuglega í Svíþjóð og fjarri eymd- inni, sem hernaður þeirra í Aceh hef- ur valdið,“ sagði Sabarno, sem bauðst til að senda til Svíþjóðar gögn, sem sýni, að mennirnir þrír hafi staðið fyr- ir hryðjuverkum annars staðar í Indónesíu en í Aceh. Talið er, að allt að 12.000 manns hafi fallið í átökunum í Aceh, þar á meðal margir óbreyttir borgarar. Skæruliðar í Aceh neita að gefast upp Jakarta. AFP. FRÖNSK yfirvöld hófu í gær her- ferð gegn ruslpósti með því að senda landsmönnum límmiða sem á stendur að viðkomandi vilji engan auglýsinga- eða markpóst. Límmið- arnir eru ætlaðir póstkössum og bréfalúgum. Orðrétt stendur á þeim í ís- lenskri þýðingu: „Stöðvum auglýs- ingar. Ofhlæði bæklinga stefnir jörð minni í hættu. Vinsamlegast hlífið póstkassanum mínum“, og síðan fylgir í smáu letri nánari skilgreining á því hvers konar póstur sé óvelkominn. Umhverfisráðherra Frakklands, Serge Lepeltier, kynnti herferðina og sagði bréfbera, og aðra þá sem dreifa markpósti, verða að hlýða því sem á límmiðanum stæði. Ráð- herrann sagði hvert heimili fleygja u.þ.b. 40 kg af ruslpósti á ári sem væri afar dýrt að endurvinna. Pappírsflóðið myndi minnka um 40.000 tonn á ári ef aðeins fimm af hundraði íbúa notaði límmiðana. Stéttarfélag verkamanna sem dreifa ruslpósti, CFDT, sagði að- gerðir stjórnvalda „andfélags- legar“ því þær stefndu lífsvið- urværi 50.000 manna í hættu, sem vinna við að stinga hinum óum- beðna pappír inn um lúgur Frakka. „Vinsamlegast hlíf- ið póstkassanum“ París. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.