Íslendingaþættir Tímans - 16.03.1972, Blaðsíða 12
Vilhjálmiir Svanberg Helgason
°g
Jóhanna Sveinsdóttir
frá Grund i Mjóafirði
Á fyrsta degi þessa vetrar var aust-
firzk húsfreyja jarðsungin frá Kefla-
vikurkirkju. Það var Jóhanna Sveins-
dóttir. Voru þá liðnar 20 vikur frá þvi
maður hennar, Vilhjálmur Helgason,
var kvaddur á sama stað.
Jóhanna var fædd að Hleinargarði i
Eiðaþinghá 24. janúar 1897. Foreldrar
hennar voru Sveinn bóndi Jóhannsson
frá Seljamýri i Loðmundarfirði og
Oddný Oddsdóttir frá Hreiðarsstöðum
i Fellum. Þau fluttust búferlum að
Neshjáleigu i Loðmundarfirði þegar
Jóhanna var á sjötta ári. En sex árum
siðar flytja þau að Vestdal við
Seyðisfjörð.
Jóhanna fór úr foreldrahúsum litlu
eftir ferminguna og vann á ýmsum
stöðum á Seyðisfirði og viðar. En
sautján ára gömul fór hún til Odds
bróður sins, sem bjó á Minni-Dölum,
innsta býlinu i Dalakálki i Mjóafirði.
Dvöl hennar i Kálkinum varð svo
nokkuð löng. Haustið eftir, 1915,giftist
hún Vilhjálmi Helgasyni á Grund. Þau
settu þar saman bú og bjuggu á Grund
i 43 ár,eða allt til ársins 1958. Þá fluttu
þau búferlum i Kastalann, innar meö
firðinum, sem siðar verður greint frá.
Margur skilur illa að una megi lifinu
á „útskögum”. Og e.t.v. er það heldur
ekki á allra færi. En Jóhanna kunni
áreiðanlega þá list. Viðhorf hennar til
umhverfisins voru jákvæð. Hún unni
gróðri og umgekkst málleysingjana
með móðurlegri umhyggju. Og ég
hygg, að stórfengleg umgerð byggð-
arinnar i Dalakálki hafi verið henni
allt i senn: kirkja, konsert, og list-
sýning.
Jóhanna og Vilhjálmur áttu miklu
barnaláni aö fagna.Börn þeirra urðu
fimm; Helga er búsett i Neskaupstað,
Arngrimur i Keflavik, Sveinn i
Neskaupstað, Helgi i Reykjavik og
Þorvarður i Þorlákshöfn. Bræðurnir
eru allir kvæntir; Helga missti mann
islenzkra húsfreyja, sem i mestri
kyrrð og með stærstri prýði skila þjóð-
félaginu dagsverki sinu i mynd nýrrar
kynslóðar.
Jóhanna Sveinsdóttir var ágætum
gáfum gædd, kona frið sýnum, hæglát i
fasi og hlý i viðmóti. Bókhneigð var
hún og fylgdist með málum af lifandi
áhuga.
sinn fyrir nokkrum árum. Börn
þessara Grundarsystkina eru orðin
sextán,og enn ný kynslóð er komin til
sögu. — Þess má geta, að fleiri ung-
menni skyld og óvandabundin fóstruð-
ust upp með þeim Vilhjálmi og
Jóhönnu um árabil.
Ævisaga Jóhönnu á Grund er sem
dæmigerð fyrir lifshlaup þeirra
12
íslendingaþættir