Íslendingaþættir Tímans - 23.02.1983, Blaðsíða 5

Íslendingaþættir Tímans - 23.02.1983, Blaðsíða 5
‘AUiTSF' Helg'i G. Benediktsson Fæddur 12. janúar 1914 Dáinn 29. desember 1982 Mig langar til að skrifa nokkrar línur um samstarfsmann minn Helga G. Benediktsson. Hann veiktist stuttu fyrir jól. Ég ákvað því að fara í heimsókn til þeirra hjóna daginn fyrir Þorláks- messu sem ég og gerði. En þann sama dag hafði Helga versnað svo mikið að það þurfit að flytja hann á sjúkrahúsið hérna á Hvammstanga. En nafna mín tók vel á móti mér eins og hennar var von og vísa og sagði eitthvað á þá leið að það væri ekki í fyrsta skipti sem að ég líti til hennar þegar hún þurfi mest á að halda að fá einhvern til að létta á sér með. Ég var óumræðanlega glöð yfir að hafa drifið mig til hennar þetta kvöld. Ég spurði hana hvort að ég gæti ekki gert eitthvað fyrir hana, og bað hún inig þá um að taka fyrir sig jólakortin, og kom ég þeim öllum út fyrir hana daginn eftir. Ég drakk hjá henni góðan kaffisopa með miklu og góðu meðlæti. Sjálf er hún mikill sjúklingur og oftast nær sár þjáð, mér finnst húns amt óumræðanlega dugleg. Hún á góða dóttur sem að hjálpar henni mikið. Mér hefur alltaf fundist afar vænt um þessi hjón og ætíð traustur vinskapur á milli okkar. Helgi hafði sérstaklega létta og skemmtilega lund komust því allir í gott skap sem að störfuðu með honum. Það er ntikil eftir sjá í Helga, og sakna allir hans afar mikið. Þó er það trú mín að hann sé með okkur í verki og fylgist með okkur í vinnunni. Hann hafði mikinn áhuga fyrir störfum sínum í K.V.H. og vann sitt verk af mikilli alúð eins og allt annað sem að honum var trúað fyrir. Helgi Guðmundur Benediktsson var fæddur 12 janúar 1914 að Skinnastöðum í Torfalækjarhreppi í A-Hún. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Fr. Þorláks- dóttir og Benedikt Helgason. Hann eignaðist 12 systkini og eru 9 þeirra ennþá á lífi. Helgi kvæntist Kristínu Jónsdóttir frá Hlíð á Vatnsnesi V-Hún. 1. september 1945. Þau eignuðust eina dóttur Guðrúnu Halldóru, er eiginmaður hennar Þráinn Traustason húsasmið- ur, þau búa á Laugarbakka í Miðfirði sem er ca 8 km, frá Hvammstanga. Þau eiga 3 myndarleg börn tvær dætur og son. Helgi hélt mikið upp á barnabörnin sem glöddu afa og ömmu með heimsóknum sínum á tangann. Nú verða þau ömmu sinni til trausts, halds og gleði í framtíðinni. Núna á afmælis dag Helga þá sendi Kristín starfsfólki K.V.H. pönnukökur og kleinur. Ég hringdi til hennar eftir kaffi þann sama dag til að þakka henni fyrir hugulsemina. Kristín sagði mér þá að hana hefði dreymt Helga nóttina áður og þá fannst henni að hún ætti að gera þetta. Öll þau ár sem Helgi vann hjá K.V.H. þá kom hann alltaf með pönnukökur á afmælisdaginn sinni. Þó að Kristín gengi sjaldnast heil til skógar þá lét hún aldrei bregðast að baka pönnukökur 12-janúar ár hvert. Alltaf sá maður betur og betur hvað Helgi unni sínu kaupfélagi og þótti honum afar vænt um samstarfsfólkið. Útför Helga fór fram frá Hvammstangakirkju 14-janúar. Elsku Kristín mín ég vona að góður guð styrki þig um ókmin ár og að þú öðlist betri heilsu. Við Gunnar sendum þér og þinni fjölskyldu innilegar samúðar kveðjur. Blessuð sé minning hans. Hildur Kristín Jakobsdóttir Hvoli, Hvammstanga, V-Hún. Guðný Ella Sigurðardóttir Fædd 4. maí 1931 Dáin 29. janúar 1983 Mig langar til að minnast vinkonu minnar og fyrrum samstarfsmanns Guðnýjar Ellu með örfáum orðum. Guðný Ella fékk snemma á kennsluferli sínum áhuga á því að búa betur að þeim nemendum sem einhverra hluta vegna ráða ekki við það nám sem skólinn býður þeim. Hún var með fyrstu sérkennurum sem útskrifuöust frá Kennaraskóla Islands og sótti síðar framhaldsnám til Edinborgar °g lauk þaðan heymleysingjakennaraprófi árið 1975. ’ ' 1 Guðnýju Ellu voru falin margvísleg trúnaðar- störf á vegum kennarasamtaka. þar á meðal var hún formaður Félags islenskra sérkcnnara 1978- 80. Það eru aðeins 7 ár síðan ég kvnntist Guðnýju Ellu, þá sem samstarfsmaður hennar viö sér- kennslu í einum af grunnskólum Reykjavíkur. Hafa þau kvnni orðið mér ntikill ávinningur í starfi æ síðan. Eins og öllum cr kunnugt. hefur þróun í uppeldis- og kennslumálum verið tnjög ör a undanförnum árum og oft veriö deilt hart um stefnumótun á þeint vettvangi. Oi tnörg okkar sem að ker.nslustörfumhöfum verið of fljóthuga aö taka við nýium straumum og stefnuin og ekki seð fyrir, hverjar breytingar þyrfti að gera áður ^lendingaþæftir en hinu nýja markmiði yrði náð. Guðný Ella var cin af þeim scm var opin fyrir nýjungum í skólastarfi og breyttu hlutverki skólans samfara breyttum þjóðfélagsaðstæðum. En hún athugaði alla þætti breytinga gaumgæfilega áður cn hún mótaði sér stefnu og hafði ávallt haldbær rök máli sínu til stuðnings. Lét hún sér þá í léttu rúmi liggja. þótt skoðanir hennar væru ekki samhljóma þeim sem vinsælastar voru á hverjum tíma. Guðný Ella var hlý, jákvæð og framar öllu bjartsýn kona. Þeir scm kynntust henni urðu ríkari í andanum. Gaman var að ræða við hana þegar ntaður var sammála henni, en ennþá skemmtilegra þó þegar svo var ekki. Aftur störfuðum við Guðný Ella saman í stjórn Félags íslenskra sérkennara um 2ja ára skeið. Þar kom einnig í ijós hin víðfcðma þekking hennar og reynsla í uppeldis- og kennslumálum settt styrkti félagið undir formennsku hennar. Nú síðustu árin starfaði hiin í samnorrænni kennslu- gagnanefnd sent vinnur að sérkennslugögnum í samtélagsfræði. Því miður entist henni ckki tími til að Ijúka því. Guðný Ella var ekki gcfin fyrir að auglýsa afrek sín á sviði sérkennslunnar, en við sem njótum afraksturs vinnu hennar vitum, hve drjúgt hennar framlag er. Hvaða tilgangur er með þvt að láta hæfileikaríkt fólk hverfa héðan á miðri starfsævi? Ef til vill segir hún mér það þegar við hittumst í innra hylkinu annars staðar. Að lokum vil ég fyrir hönd Félags íslcnskra sérkennara þakka Guðnýju Ellu fyrir framlag hennar til sérkennslunnar, og senda samúðar- kveðjur til fjölskyldu hcnnar. Kolbrún Gunnarsdóttir formaður Félags íslenskra sérkennara 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.