Heimilistíminn - 21.11.1974, Page 38

Heimilistíminn - 21.11.1974, Page 38
® Frídagur held þér svo félagsskap, ef þú vilt ekki heldur vera ein. — Nei, viðurkenndi ég. Kannski var hann lika einmana og auk þess stóð ég i þakkarskuíd við hann. — Þakka þér fyrir umbúðirnar, sagöi ég. Hann var ekki fyrr búinn að loka dyrun- um, en siminn hringdi aftur. Ég dró djúpt andann og hægt og varlega tók ég tólið og lagði það að eyranu. — Ert þetta þú, Unnur? sagði Silla. — Ég reyndi að hringja áðan, en það slitnaði vist. Ég ætla bara að láta þig vita, að ég verð sein i kvöld, svo þú þarft ekki að biða með matinn. — Allt i lagi, sagði ég. — Bless. Ég hallaði mér aftur á bak i stólnum. Sveinn mundi ekki hringja aftur. Það skiptir annars engu máli, hugsaði ég rugl- uö. Reynir kom meö teketilinn og pakka af súkkulaðikexi. — Jæja, var þetta hringingin, sem þú beiðst eftir? — Já, það var Silla. Hún kemur ekki heim fyrr en seint i kvöld, útskýrði ég. — Fint, sagði hann. — Ég get ekki látið þig vera eina hér. Ekki með togaðan ökkla. — Þú ættir heldur að lesa, sagði ég lágt. — Það gerir ekkert til, ég hef vel undan, sagði hann létt og brosti til min. — Eiginlega hafði ég hugsað mér að hætta i dag, þegar þú . . . datzt. Ég hugsaði um hárið á mér og fötin, götótta skóna og óreiðuna. Aldrei hafði ég getað látið Svein sjá mig svona, en það var annað með Reyni. Mér hefur alltaf geðjast vel að rauð- hærðum karlmönnum, en ekki dökkhærð- um, myndarlegum. Mér féil vel við and- litiö á Reyni. Munnurinn var ákveðinn og hakan sterkleg. Augun voru góðleg. Skrit- ið, að ég skyldi ekki hafa tekið eftir hon- um fyrr — þannig. Allt i einu varð ég ákaflega glöð. Sum- arið er dásamlegur árstimi. H$GIÐ Jón: — Ég borða aðeins náttúrufæðu. Ég snerti til dæmis aldrei mat, sem i eru rotvarnarefni eða sprautaður er með kemiskum efnu. og ég boröa heldur ekki kjöt af dýrum, sem alin hafa verið á gervifæðu. Karl: — Jæja, og hvernig líður þér svo? Jón: — Ég er alltaf svangur. — Já, hver er þaö. — Ég skal segja þér, að hann Jónatan er sá kurteisasti maöur, sem ég hef kynnzt. Til dæmis þegar hann teflir skák, þá hreyfir hann aldrei kónginn án þess að segja: Fyrirgefið, yöar há- tign. tes? — Ég er búinn, má ég fara heim? Axel var að koma úr siglingu og kom til tollvarðanna með stóra tösku undir hendinni og sagði: — Ef ég kem á morgun með sex viskýflöskur, fæ ég þá að fara með þær f gegn, ef ég gef ykkur eina? — Ég er nú hræddur um ekki, þrumaði töllvörðurinn. — Við þiggjum ekki mútur hér. Axel svaraði engu en hélt áfram ferð sinni. Daginn eftir fór hann um borð og siöan aftur gegn um tollinn með töskuna undir hendinni. Töllvörðurinn ieit á hana og spuröi: — Hvar eru viskýflöskurnar, sem þú varst að tala um f gær? — Ó, þær, svaraði Axel. — Ég fór með þær i gegn í gær. — Náöu i dósahnif svo við getum losaö um fötin hans. 38

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.