Heimilistíminn - 11.09.1975, Blaðsíða 26

Heimilistíminn - 11.09.1975, Blaðsíða 26
Sagan af Önnu önd, eða eggjunum sem hurfu EINU sinni var litil önd, sem hét Anna. Hún var elskuleg- asta öndin á öllum andapollin- um og öllum hinum öndunum þótti vænt um hana, af þvi hún var alltaf svo blið og góð. En alltaf var einhver, sem fannst gaman að gabba önnu önd, segja henni einhverja vit- leysu, þvi hún trúði alltaf öllu, sem henni v.ar sagt. Anna önd sagði sjálf alltaf satt og þess vegna hélt hún, að allir aðrir geröu það lika. En þannig er það þvi miður ekki alltaf. í vor, sem leið verpti Anna mörgum eggjum og á hverjum degi lá hún á þeim i hreiðrinu til að unga þeim út. En hvað hún hlakkaði til, þegar ung- arnir kæmu úr eggjunum. Þol- inmóð lá hún á og gætti eggj- anna vel, þvi að þau voru dýr- mætasta eign hennar. Einn daginn komu nokkrar ungendur til Önnu með mikl- um látum. — Anna, Anna. Veiztu bara hvað? kvökuðu þær hver upp i aðra. — Það er veriö að gefa brauðmola við brúna! Þegar þær sögðu þetta, gáfu þær hver annarri vængjaskot og reyndu að halda alvörusvipnum. 26 — Er það? spurði Anna sak- laus. Nú langaði hana mikið i góðan brauðmola, því hún var orðin skelfing svöng af að liggja svona lengi á eggjun- um. — Já, flýttu þér þangað! kvökuðu ungendurnar. — Ég hlýt að mega yfirgefa eggin andartak, sagði Anna. — Það ætti ekki að gera neitt til. Svo stóð hún upp og vappaði yfir að brúnni. En þegar þangað kom, var ekki einn einasta brauðmola að sjá og engin börn með bréf- poka. Anna leit ringluð i kringum sig. — Ha-ha, ha-ha, heyrði hún yfh' höfði sér. Þar voru komn- ar ungendurnar, sem höfðu elt hana. Þarna börðu þær vængj- unum og skelltu nefjunum af kæti, svo þær gátu varla flog- ið. Þá skildist Önnu, að hún hafði enn einu sinni verið göbbuð. Hún andvarpaði og vappaði aftur að hreiðrinu sinu. — Skrýtið, hvað öllum finnst skemmtilegt að gabba mig, hugsaði hún — þær eru alltaf að þvi. En ef þeim finnst það svona gaman, er bezt, að þær fái að gera það. Þegar Anna kom að hreiðr- inu, botnaði hún hvorki upp né niður.— Var það ekki hérna? Jú, hreiðrið var þarna, en ekki cggin. Eggin voru horfin, hvert eitt og einasta. Anna ráfaði um i örvæntingu og leit- aði og leitaði. En hún fann engin egg. — Aumingja, aumingja ég, grét hún óhamingjusöm. — Veslings litlu eggin min. Hvað á ég að gera? Einhver hlýtur að hafa stolið þeim. Þau voru dýrmætustu perlurnar minar, þvi að þau áttu að verða ung- arnir minir. Svo settist hún i grasið og grét. En ungendurnar úti á pollinum heyrðu það og komu til að athuga málið. Þær urðu dálitið skömmustulegar, því að það hafði ekki verið ætlunin að gabba Önnu svona illa. — Hvað er að þér? kvökuðu þær varlega. — Einhver hefur stolið eggj- unum minum, meðan ég var í burtu, kjökraði Anna og faldi höfuðið undir vængnum og grét sáran. Þá urðu ungend- urnar verulega Ieiðar. — Ef við hefðum vitað það, hefðum við aldrei narrað þig af hreiðrinu, sagði ein þeirra. Anna stóð upp. — Ég skal finna þau, sagði hún ákveðin og vappaði af stað. Hún gekk um allan garðinn og spurði alla, sem hún hitti, hvort þeir hefðu séð eggin hennar. Ekki gat það verið ikorninn, þó að hann væri afskaplega gráðug- ur i egg. Hann var nefnilega

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.