Morgunblaðið - 31.07.2004, Page 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2004 15
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
EIGNIR ÓSKAST
Björn Þorri hdl. lögg. fastsali, Karl Georg hrl. lögg. fastsali.
Garðabær – Lundir - skipti á raðhúsi í Móunum
Höfum kaupanda að einbýlishúsi í Lundunum. Eignin má kosta
frá 24-26 millj. Kaupandi á glæsilegt raðhús í Móunum.
Upplýsingar veitir Sigurður Karl í síma 866 9958.
Fossvogur
Höfum ákveðinn kaupanda að rað- eða parhúsi í Fossvogi.
Kaupverð 23-30 millj. Húsið verður að hafa fjögur svefnherbergi.
Upplýsingar veitir Magnús í síma 865 2310.
Einbýli í Hamrahverfi
Erum með kaupanda að ca 200 fm einbýli ásamt bílskúr í Hamra-
hverfinu í Grafarvogi. Húsið verður að hafa fjögur svefnherbergi
og má kosta frá 23-26 millj.
Upplýsingar veitir Magnús í síma 865 2310.
Ef þú ert að leita, skráðu þig á heimasíðu okkar
www.midborg.is og fáðu sendar upplýsingar um eignir sem
henta þér, um leið og þær koma í sölu til okkar.
Laugavegur 182 • 105 Rvk • Fax 533 481 • midborg id
Lögfræðiskrifstofa, Kringlunni 4-12, 4. hæð,
stóra turni, 103 Reykjavík
sími 5858 400, fax 5858 401,
logthing@logthing.is
Vilhjálmur Bergs hdl. og lögg. fasteignasali
Landspilda við Borgarfjörð
Landspilda úr landi Hafnar í Leirár- og Melahreppi. Heildarstærð
landsins er 2053 hektarar. Land þetta nær yfir stærstan hluta und-
irlendis við Hafnarfjall, fjallið sjálft og dalina austan við það. Um er
að ræða gott beitiland bæði í fjalli og á láglendi. Láglendið niður
að sjó er um 680 ha og eru þar af skipulagðir 195 ha undir nytja-
skóga. Stór hluti láglendis eru birkiskógar og mólendi og því til-
valið til sumarbústaðabyggðar. Falleg fjara með miklu fuglalífi og
silungsveiði í sjó. Þetta er fallegur staður. Einungis um 45-50 mín.
akstur úr Reykjavík. Miklir tekjumöguleikar fyrir rétta aðila.
Tilvalið fyrir hestamenn og annað útivistarfólk. TILBOÐ ÓSKAST.
Upplýsingar veitir Vilhjálmur hjá Lögþingi í síma 5858 400
AÐ MINNSTA kosti 15 létu lífið og
112 slösuðust í gærmorgun þegar
mikil sprenging varð í háþrýstigas-
leiðslu í verksmiðju í iðnaðarsvæðinu
Ghislenghien í Belgíu, 30 km suðaust-
ur af Brussel.
Jörð skalf í margra kílómetra rad-
íus frá sprengingunni og eldlogarnir
teygðu sig í um 100 metra hæð. Meðal
þeirra sem slösuðust voru slökkviliðs-
menn og lögreglumenn sem kallaðir
höfðu verið til eftir að verkamenn
gerðu fyrir slysni gat á gasleiðslu sem
lá á sex metra dýpi.
Elise Hoffmann, sem býr um 4 km
frá slysstaðnum, sagði hús sitt hafa
skolfið og þegar hún hefði hlaupið út
hafi himinháir logar blasað við. „Þetta
gerðist fyrir 45 mínútum síðan en ég
skelf ennþá,“ sagði Hoffmann.
Hermenn voru sendir á svæðið til
stjórnunar og hjálparstarfa og tugir
sjúkrabíla og sex herþyrlur fluttu
hina særðu á spítala. Þá sendu emb-
ættismenn í norðurhluta Frakklands
hjúkrunarlið, sjúkrabíla og þyrlu til
aðstoðar. Sumir hinna særðu voru
fluttir alla leið til Parísar, um 240 km
leið.
Talsmaður heilbrigðisráðuneytis
Belgíu, Michele Vanderplaetsen,
sagði að 14 væru látnir samkvæmt
talningu embættismanna á hádegi í
gær en varaði við því að þeim gæti
fjölgað. Um helmingur hinna særðu
væru með brunasár.
Gasdreifingarfélagið Fluxys sagði
að leiðslan, sem lekinn kom að, lægi
frá hafnarborginni Zeebrugge til
Frakklands.
Mannskæð gassprenging í Belgíu
Á annan tug
manna týndi lífi
Brussel. AP.
Fjórði fanginn
handtekinn
í Svíþjóð
SÆNSKA lögreglan handtók í gær
Tony Olsson, strokufangann sem
slapp úr fangelsi á miðvikudag
ásamt þremur
öðrum föngum.
Lögreglan hand-
tók hina þrjá
degi síðar og
Olsson í gær-
morgun.
Danska dag-
blaðið Jyllands-
Posten segir Ols-
son ekki hafa
veitt mótspyrnu
við handtökuna. Lögregla handtók
Olsson í kjölfar umfangsmikillar
leitar í fyrrinótt og hafði uppi á
honum með hjálp vitna sem töldu
sig hafa séð til hans. Hafði hann
hann falið sig í hlöðu á bæ nokkr-
um, ekki fjarri staðnum þar sem
fangarnir skildu eftir flóttabílinn.
Notuðu lögreglumennirnir með-
al annars hunda við leitina og
stungu mjóum stöngum inn í heyið
í hlöðunni þar til þeir fundu Ols-
son.
Olsson var dæmdur í lífstíð-
arfangelsi fyrir bankarán og morð
á tveimur lögreglumönnum árið
1999.
„Tansaníu-
maðurinn“
handtekinn
AHMED Khalfan Ghailani, sem er
einn 22ja eftirlýstra hryðjuverka-
manna á lista bandarísku alrík-
islögreglunnar FBI, var handtek-
inn í Pakistan sunnudaginn s.l. að
sögn innanríkisráðherra Pakist-
ans. Ghailani, sem gengur einnig
undir nafninu „Tansaníumað-
urinn“, er grunaður um aðild að
sprengjuárásum á bandarísku
sendiráðin í Tansaníu og í Kenýa á
árinu 1998 en þau urðu 224 manns
að bana og særðu næstum því
5.000 manns.
Yfirvöld í Bandaríkjunum höfðu
lagt 25 milljónir dollara, um 1, 8
milljarða íslenskra króna, til höf-
uðs Ghailani en hann er talinn
háttsettur maður í hryðjuverka-
samtökum Osama bin Ladens, al-
Qaeda.
Vilji til friðarvið-
ræðna á Sri Lanka
STJÓRNMÁLAFLOKKUR sem
nýtur stuðnings skæruliðahreyf-
ingar Tamíl-tígra (LTTE) á Sri
Lanka lýsti í gær yfir ánægju sinni
með vilja ríkisstjórnar landsins til
að taka upp friðarviðræður að
nýju.
Viðvörun frá norskum stjórn-
völdum, sem haft hafa milligöngu
um friðarviðræður frá árinu 1995,
þess efnis að frekari tafir á frið-
arferlinu gætu leitt til stríðs, virð-
ist hafa ýtt við forsetanum Chand-
rika Kumaratunga sem vill hefja
friðarviðræður við LTTE.
Tamíl-Tígrar hafa barist fyrir
sjálfstæðu ríki á Sri Lanka frá
árinu 1983.
Árásir gerðar
á sendiráð
TVEIR menn féllu í það minnsta í
þremur sprengjuárásum á sendi-
ráð Bandaríkjanna og Ísraels og
skrifstofu ríkissaksóknarans í
Tashkent, höfuðborg Úsbekistans,
í gær.
Ekki er ljóst hvort um sjálfs-
morðsárás var að ræða. Verulegur
fjöldi gyðinga býr í Úsbekistan.
Tilræðin eru talin tengjast rétt-
arhöldum sem hófust í Tashkent
26. júlí yfir 15 meintum al-Qaeda-
liðum sem játað hafa á sig hryðju-
verk, morð og trúarofstæki. Þeir
eiga yfir höfði sér dauðadóm fyrir
fjölda sprengjuárása í mars og
apríl síðastliðnum í Tashkent og
suðvesturhluta landsins sem urðu
47 manns að bana og særðu
marga.
Tony Olsson
Reuters
UNGUR drengur lítur inn í stórskemmt hús í þorpinu Agas, sem 330 km norðaustur af Búkarest, höfuðborg Rúmeníu. Síðustu daga hafa verið mikil flóð í
landinu og hafa kostað a.m.k. átta manns lífið og nokkurra er saknað. Hafa þau valdið verulegu tjóni víða í landinu.
Stórtjón í flóðum í Rúmeníu
ÞRJÁTÍU og tveggja ára gamall
sænskur prestur hefur verið dæmd-
ur í lífstíðarfangelsi fyrir að fá unga
konu með brögðum til að myrða eig-
inkonu sína.
Héraðsdómur í Uppsölum komst
að þeirri niðurstöðu að hvítasunnu-
presturinn Helge Fossmo hefði
fengið Söru Svensson, 27 ára konu er
starfað hafði hjá prestinum sem
barnfóstra, til að skjóta eiginkonu
Fossmos, Alexöndru, á meðan hún
svaf á heimili þeirra í Knutby, norður
af Stokkhólmi. Svensson skaut einn-
ig Daniel Linde, nágranna Fossmo-
hjónanna, en hann lifði árásina af.
Geðlæknar töldu að Svensson væri
ekki sakhæf og var hún dæmd til að
dvelja á stofnun fyrir ósakhæfa af-
brotamenn. Svensson viðurkenndi
að hafa skotið eiginkonu Fossmos en
sagði að presturinn hefði sannfært
sig um að hún ætti að gera það, m.a.
með því að senda henni SMS-skila-
boð í farsíma hennar og segja henni
að um væri að ræða orðsendingar frá
Guði. Einnig kom fram við réttar-
höldin að þau Svensson og Fossmo
hefðu átt í kynferðislegu sambandi.
Saksóknarar sögðu að Fossmo
hefði viljað konu sína og Linde feig
svo hann gæti gifst eiginkonu
Lindes.
Fossmo var hins vegar sýknaður
af ákæru um að hafa myrt fyrri konu
sína sem fannst látin í baðkari árið
1999. Upphaflega var talið að um
slys hefði verið að ræða, en saksókn-
arar tóku málið upp að nýju og full-
yrtu að Fossmo hefði barið höfði
konunnar utan í vatnskranann á bað-
kerinu. Dómirinn taldi hins vegar
ekki að nægilegar sannanir væru
fyrir sekt Fossmos.
Sænskur prestur
í lífstíðarfangelsi