Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 39
VINCE VAUGHN BEN STILLER www.laugarasbio.is Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. Kr. 500 COLLATERAL Fór beint á toppinn í USA!  Mbl. Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16 ára. Nýjasti stórsmellurinn frá framleiðendum Shrek. Toppmyndin í USA í dag. Sýnd með íslensku og ensku tali. j i ll i l i i í í í l li Sýnd kl. 8. B.i. 16 ára. Kvikmyndir.is  DV Kvikmyndir.is JAMIE FOXXTOM CRUSE Sýnd kl. 5, 8 og 10.30 B.i. 16 ára. Frá leikstjóra Silence of the Lambs Bakvið martraðir hans leynist óhugnalegur sannleikur DENZEL WASHINGTON MERYL STREEP Hverfisgötu ☎ 551 9000 www.regnboginn.is Nýr og betri Þú missir þig af hlátri... punginn á þér!  Ó.Ö.H. DV  S.V. Mbl. „Ég anda, ég sef, ég míg ... Tónlist“ Bubbi Morthens Til heljar og til baka með atómbombunni Bubba Morthens Sýnd kl. 6 og 10. V.G. DV S.V. Mbl. Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára. THE HUNT FOR THE BLOOD ORCHID Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 DodgeBall ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR...ENN BLÓÐÞYRSTARI! KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA. 28.10.04 á allar erlendar myndir í dag, ef greitt er með Námukorti Landsbankans á allar erlendar myndir í dag, ef greitt er með Námukorti Landsbankans MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 39 EMINEM ætlar að kjósa í fyrsta sinn í bandarískum forsetakosn- ingum. Rapparinn umdeildi er svar- inn andstæðingur George Bush for- seta og segist staðráðinn í að koma honum frá völdum. En þótt hann sé á móti Bush seg- ist hann ekki búinn að gera upp hug sinn hvort hann kjósi frambjóðanda demókrata, John Kerry. Í samtali við Rolling Stone tíma- ritið sagði hann: „Bush er sann- arlega ekki minn maður. En ég er enn óákveðinn. Kerry hefur sagt ýmislegt sem fangað hefur at- hygli mína, lýst ýmsu yfir sem er að mínu skapi, en ég er samt ekki viss. Hvað svo sem ég geri, vil ég að Bush fari frá völdum.“ Þegar hann var beðinn um að gera frekari grein fyr- ir þessari andstöðu sinni við forset- ann svaraði hann: „Hann er látinn líta út fyrir að vera einhver hetja á meðan hann sendi herlið okkar til Íraks til þess eins að deyja af tilgangsleysi. Hann eltist við skottið á sér eins og hundur og við horfum uppá allt þetta unga fólk deyja, ungt fólk sem átti fram- tíðina fyrir sér. Og til hvers? Þetta virkar á mann eins og Víetnam 2.“ Og hann segist núna vera loksins búinn að átta sig á því hversu mik- ilvægt er að kjósa: „Fólk heldur að atkvæði þess telji ekki, en fólk verð- ur að drífa sig á kjörstað.“ Forsetakosningar | Eminem ætlar að kjósa í fyrsta sinn Vill losna við Bush Eminem Í MARS á næsta ári verður söng- leikurinn Annie settur upp í Aust- urbæ og er þetta í fyrsta skipti sem hann er settur upp hérlendis. Annie er byggður á teikni- myndasögunni ,,Litli munaðarleys- inginn Annie“, eftir Harold Gray og var kvikmynd gerð eftir söng- leiknum árið 1982. Söngleikurinn var frumfluttur á Broadway 21. apríl 1977. Það er fyrirtækið Andagift ehf. sem setur upp söng- leikinn en framkvæmdastjóri hans er Rakel Kristinsdóttir sem þýðir handrit og lagatexta. Næsta laugardag hefst nám- skeið á vegum aðstandenda söng- leiksins fyrir börn og unglinga frá sex til átján ára. Á vefsíðu söng- leiksins, www.annie.is, kemur þetta fram: „Námskeiðið er hluti af leit okk- ar að hæfileikaríkum ein- staklingum til að leika Annie og félaga hennar… og verður að því loknu valið úr hópnum. Ef þurfa þykir munum við einnig auglýsa eftir leikurum utan námskeiðsins, en þátttakendur námskeiðsins ættu að standa betur að vígi en aðrir…lögð er áhersla á að efla og styrkja hæfileika hvers nemanda, en umfram allt að hafa gaman af. Lokuð áheyrnarpróf verða að námskeiði loknu fyrir þátttak- endur. Opin áheyrnarpróf verða einnig haldin ef þurfa þykir (þá auglýst síðar) og gefst öllum börnum og unglingum, á aldrinum 6–18 ára, þá tækifæri til þess að þreyta þau. Við munum velja í börn í tvo til þrjá hópa sem munu skipta með sér sýningum. Taka skal þó fram að þátttaka tryggir ekki hlutverk í Annie. Þeir hæfustu verða valdir.“ Þátttökugjald á námskeiðið er 19.100,- kr. sem greiðist fyrirfram. Systkinum er veittur 20% af- sláttur. Skráning er hafin á Net- inu og einnig í síma 866-2745 alla virka daga á milli kl. 17.00 og 20.00. Söngleikir | Annie Í fyrsta sinn á Íslandi www.annie.is ÚTVARPSMAÐURINN John Kennedy hjá XFM, einni vinsælustu stöð Bretlands, sendi þátt sinn beint úr hljóðveri Ríkisútvarpsins í Efsta- leiti í gærkvöldi. Kennedy spilaði upptökur frá Airwaves-tónlistarhá- tíðinni sem lauk í gær og tónlist- armaðurinn Mugison spilaði í þætt- inum. Aðspurður segist Kennedy hafa notið Airwaves til hins ýtrasta. Há- punkta hátíðarinnar telur hann hafa verið ensku sveitina Hot Chip og hinar íslensku Ghostigital, Skáta, Mugison og Leaves. Um tónleika landa sinna í Hot Chip segir hann: „Undirtektir áhorfenda voru frá- bærar og mér fannst gott hjá þeim að styðja sveitina svona vel. Svo hafði ég mjög gaman af Einari Erni og félögum í Ghostigital og líka hljómsveitinni Skátum. Hún var mjög góð. Mugison var framúrskar- andi og Leaves var góð. Svo ráfaði maður milli tónleikastaða og skemmti sér vel.“ Kennedy segist ekki gera mikið af því að senda beint út frá öðrum lönd- um. „Við sendum reyndar líka beint út frá Airwaves í fyrra og það var mjög skemmtilegt, þannig að við ákváðum að endurtaka leikinn.“ Það kenndi ýmissa grasa í þætti Kenn- edys í gærkvöldi; Mugison mætti í hljóðverið og tók lagið. Leiknar voru upptökur frá tónleikum helgarinnar og þá lék Kennedy nokkur vel valin lög með íslensk- um sveitum af plötum og spjall- aði við Óla Palla, útvarpsmann hjá Ríkisútvarpinu. Þá var flutt viðtal sem Kennedy tók við Björk um Ís- land og íslenska tónlist áður en hann kom hingað. Þetta verður þó ekki eina umfjöll- un Kennedys um Airwaves og ís- lenska tónlist: „Sumt af efninu sem ég viðaði að mér hérna verður líka flutt í þætt- inum seinna í vikunni.“ Að sögn Kennedys veit fólk al- mennt af því að Ísland á spennandi listamenn á borð við Björk, Sigur Rós, múm og Mugison. „Við erum að reyna að halda þessum áhuga við og kynna aðra íslenska tónlistarmenn, sem eru fjölmargir og ég tel að eigi fullt erindi við Lundúnabúa,“ segir hann. „Það er mjög gaman að senda þáttinn út héðan. Það er skemmtileg tilbreyting,“ segir hann að lokum. Airwaves | Breskur útvarpsþáttur sendur út frá Íslandi Mugison spilaði í beinni Morgunblaðið/Árni Torfason John Kennedy hreifst af flutningi Leaves í Hafnarhúsinu. John Kennedy Hægt er að nálgast útvarpsþætti Johns Kennedys á heimasíðu XFM-stöðvarinnar: xfm.co.uk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.