Morgunblaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 B 3 ÍSLENSKU fjárfestarnir, sem eiga meirihluta í enska 1. deildarliðinu Stoke City, fögnuðu því um helgina að fimm áru liðin frá því þeir tóku við stjórn félagsins. Íslendingarnir hafa nú gert ný plön en stefna þeirra er að Stoke verði í deild þeirra bestu innan tveggja ára. „Gamla fimm ára áætlunin hefur nú verið lögð til hliðar og við höfum gert nýja tveggja ára áætlun sem felst í því að við stefnum á að kom- ast upp í úrvalsdeildina. Kjarninn í okkar liði er góður en við þurfum að styrkja hópinn og við vitum um leikmenn sem við getum fengið til að styrkja okkar lið,“ segir Gunnar Þór Gíslason stjórnarformaður Stoke í The Sentinel. Í leikskrá fyrir leik Stoke gegn Crewe á laugardaginn ritaði Gunn- ar Þór grein og þar segir meðal annars: ,,Við erum með lið sem við getum verið stoltir af og þetta lið er mun sterkara en það lið sem Stoke tefldi fram í nóvember 1999 þegar við tókum við.“ Pulis skrifaði undir nýjan samning Tony Pulis knattspyrnustjóri Stoke hafði tvöfalda ástæðu til að fagna. Hann skrifaði undir nýjan samning við félagið og eftir það höfðu hans menn betur gegn Crewe, 1:0. Stoke er í 8. sæti 1. deildarinnar með 27 stig, tólf stigum á eftir topp- liðunum Wigan og Ipswich. Fimm ár frá yfirtöku Íslendinganna hjá Stoke RÓBERT Gunnarsson fór á kostum rétt eina ferðina með liði Århus GF þegar liðið burstaði Helsinge, 33:24, í dönsku úrvalsdeildinni í hand- knattleik í gær. Róbert skor- aði 13 mörk, þar af aðeins eitt úr vítakasti, og hann er lang- markahæstur í deildinni með 104 mörk í tíu leikjum. Sturla Ásgeirsson skoraði 1 mark fyrir Árósaliðið sem er efst í deildinni með 17 stig, meist- arar Kolding hafa 15 og GOG og Viborg hafa 14. Hans með sjö mörk Íslendingurinn Hans Lind- berg var markahæstur í liði Helsinge með 7 mörk en, Hans, sem er fæddur á Íslandi og á íslenska foreldra, er í danska landsliðinu. Róbert með 13 fyrir Århus GF  GUÐJÓN Valur Sigurðsson skoraði 4 mörk fyrir Essen í sigri þess á Redbergslid, 23:20, á útvelli í EHF-keppninni í handknattleik en Essen hafði áður unnið heimaleik- inn með sjö marka mun.  MAGDEBURG undir stjórn Al- freðs Gíslasonar er einnig komið áfram í keppninni en liðið burstaði Paris SG, 36:23, og hafði áður unnið á útivelli, 30:25. Arnór Atlason skoraði eitt mark í leiknum en Sig- fús Sigurðsson komst ekki á blað.  LOGI Geirsson skoraði 3 mörk fyrir Lemgo sem tapaði fyrir ung- verska liðinu Fotex Vesprém, 29:23, í Ungverjalandi í Meistara- deild Evrópu. Ósigurinn kom ekki að sök því Lemgo hafði fyrir leikinn tryggt sér sæti í 16 liða úrslitunum.  EINAR Hólmgeirsson var markahæstur í liði Grosswallstadt sem tapaði fyrir Nordhorn í þýsku 1. deildinni í handknattleik, 30:22. Einar skoraði 5 mörk en Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 3.  PATREKUR Jóhannesson skor- aði 4 mörk fyrir Minden sem tapaði á heimavelli Tus N-Lubbecke, 40:37.  MARKÚS Máni Michaelsson skoraði 4 mörk fyrir Düsseldorf sem sigraði Post Schwerin, 27:26. Alexander Pettersson komst ekki á blað fyrir Düsseldorf.  RÚNAR Sigtryggsson, þjálfari og leikmaður Eisenach, skoraði 1 mark fyrir lið sitt sem sigraði Kornwestheim, 40:38, í miklum markaleik í þýsku 2. deildinni. Þetta var annar sigur Eisenach í röð.  DAGUR Sigurðsson, þjálfari austurríska liðsins Bregenz, skor- aði 4 mörk fyrir sína menn sem töp- uðu fyrir danska liðinu á Álaborg, 24:22, í EHF-keppninni. Bregenz komst engu að síður áfram því liðið vann heimaleikinn með 5 marka mun.  SKJERN, sem Aron Kristjánsson þjálfar, féll úr leik í EHF-keppn- inni. Skjern tapaði síðari leik sínum á heimavelli fyrir rússneska liðinu Dynamo Astrakhan, 37:32, og sam- anlagt, 68:62. Jón Þorbjörn Jó- hannsson og Ragnar Óskarsson skoruðu tvö mörk hver fyrir Skjern.  WEIBERN, undir stjórn Aðal- steins Eyjólfssonar, tapaði með 21 marks mun fyrir Leipzig í þýsku 1. deildinni. Dagný Skúladóttir skor- aði 6 mörk fyrir Weibern og Sól- veig Kjærnested 3.  HRAFNHILDUR Skúladóttir skoraði 4 mörk fyrir SK Århus sem tapaði fyrir Horsens, 26:24, í dönsku úrvalsdeildinni í handknatt- leik í gær. SK Århus er í næst- neðsta sæti með 4 stig eftir tíu um- ferðir. FÓLK Ég hef verið í djúpu lauginni meðliðinu að undanförnu og hef ekki þekkingu eða reynslu af keppni á alþjóðavettvangi. Hef því lært mikið á þessum leikjum. En ég er gríðarlega ánægð með þann anda sem var í liðinu á laugardaginn. Þar var barist um alla bolta og ekk- ert gefið eftir. Við vorum aftarlega á vellinum og tókum enga áhættu. Þannig þurfum við að spila til þess að ná árangri,“ sagði Helena. Dagny Mellgren kom Norðmönn- um yfir á 22. mínútu er hún skaut að marki en knötturinn fór í varnar- mann og í markið. „Klaufalegt mark og við áttum að gera betur í því til- viki,“ sagði Guðlaug Jónsdóttir sem lék í stöðu vinstri bakvarðar að þessu sinni. En hún var miðvörður í fyrri leiknum. „Ég tel að þær breytingar sem ég gerði á byrjunarliðinu hafi skilað ár- angri. Vörnin stóð sig vel en ég er sérstaklega ánægð með Dóru Maríu Lárusdóttur og Erlu Arnardóttur sem stóðu sig vel á vængjunum,“ sagði Helena. Nína Kristinsdóttir jafnaði leikinn með góðu marki á 69. mínútu en Nína náði frákasti eftir að skot Erlu Árnadóttur hafði farið í þverslána. Gott mark. „Við töldum að þessar breytingar myndu skila árangri og það sýndi sig að mínu mati,“ sagði Helena en Dagny Mellgren tryggði norska lið- inu sigur með marki á 79. mínútu af stuttu færi. „Vörnin var mun betri hjá okkur. Það voru tæklingar og læti í leiknum. Eitthvað sem við náð- um ekki í fyrri leiknum. Og þetta eru hlutir sem við þurfum að hafa í lagi til þess að ná árangri,“ sagði Guð- laug Jónsdóttir sem lék vel í vörn Ís- lands. „Þær eru að mínu mati í betra ástandi líkamlega en við. Undir lok leiksins bættu þær við á meðan við vorum á „felgunni“, alveg búnar,“ sagði Guðlaug. Landsliðsþjálfarinn tekur undir orð Guðlaugar og telur að íslenskar stúlkur þurfi að lyfta lóðum og taka á því eins og sagt er. „Ég er ekki að mæla með öfgum í þessu samhengi en ég tel að við þurfum að leggja meiri áherslu á líkamlega þjálfun. Tækni og sendingageta skilar engu ef við getum ekki haldið í við þá bestu úti á vellinum. Besta dæmið á þessu sviði er að í efstu deild á Ís- landi geta leikmenn notað allt að 5 snertingar áður en þeir gefa stungu- sendingar inn fyrir vörnina. Í þessum leikjum höfum við ekki getað gefið stungusendingar af þeirri einföldu ástæðu að norska lið- ið var í stakk búið að hlaupa okkur uppi og við fengum ekki tíma til þess að afhafna okkur. Allt þetta bendir til þess að við leikum ekki nógu hratt á Íslandi og tvískipt deild kvenna gefur vísbendingu um hvað um er að ræða. Kannski þurfum við að taka þátt í 2. flokki karla eða 3. flokki karla til þess að fá verkefni sem efla okkur,“ sagði Helena Ólafsdóttir eft- ir leikinn í Ósló. „Ég ber ábyrgð á 7:2-tapi liðsins í Egilshöll,“ segir Helena Ólafsdóttir Íslenska liðið spark- aði frá sér „VIÐ erum stoltar eftir leikinn þrátt fyrir 2:1 tap og ég tek það alfar- ið á mig að við töpuðum fyrri leiknum, 7:2, á heimavelli. Ég ofmat getu okkar og við fórum ekki rétt að í þeim leik,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, eftir 2:1 tap liðs- ins gegn Norðmönnum í umspili um laust sæti í úrslitum Evrópu- mótsins. „Við hentum möguleikum okkar frá okkur í fyrri leiknum. Og þar ætluðum við okkur of mikið. Ég ofmat getu okkar og lærði mikið af þeim leik,“ sagði þjálfarinn er Morgunblaðið spjallaði við hana á hóteli liðsins eftir leikinn á laugardaginn. Morgunblaðið/RAX Helena Ólafsdóttir, landsliðsþjálfari Íslands. Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar frá Noregi Morgunblaðið/Golli Erla Hendriksdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, spyrnir knettinum að marki Norðmanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.