Morgunblaðið - 18.12.2004, Side 35

Morgunblaðið - 18.12.2004, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2004 35 MINNSTAÐUR Hafnfirðingar! Leitið ekki langt yfir skammt Okkar verð í Hafnarfi rði: 1,25 m kr. 2.250 1,50 m kr. 2.950 1,75 m kr. 3.950 2,0 m kr. 4.950 2,5 m kr. 5.950 3+ m kr. 8.800 Opn un ar tím ar 18.-23. desember er op ið frá kl. 10-22 Jóla svein ar koma með jólat rén heim dagana 20., 21. og 22. des. frá kl. 18-21. Björgunarsveit Hafnarfjarðar selur jólatré nú sem endranær í Hvalshúsinu, við Flatahraun, beint á móti Nóatúni Verð í Reykjavík:* 1,25 m kr. 2.339 1,50 m kr. 3.189 1,75 m kr. 4.279 2,0 m kr. 5.329 2,5 m kr. 7.469 *samkvæmt auglýsingu í Fréttablaðinu 11. des. 2004 Í dag og á morgun, sunnudag, kl. 15 munu jólasveinar koma í heimsókn og skemmta sér og öðrum Allur ágóði rennur óskiptur til björgunarstarfa Selfoss | Keith Reed hefur tekið til starfa sem söngstjóri Samkórs Sel- foss. Kórinn heldur árlega jólavöku í Selfosskirkju 22. desember, kl. 22. Á jólavökunni býður kórinn upp á fjölbreytta dagskrá sem er til þess fallin að leiða samfélagið frá hinu stífa nútímaamstri á jólaföstunni. Með vökunni segjast forráðamenn kórsins vera að gefa fólki möguleika til þess að slaka á eina kvöldstund og opna sálina fyrir hamingju jólanna. Nýi söngstjórinn, Keith Reed, er Bandaríkjamaður að uppruna en hefur dvalið hér á landi undanfarin ár og getið sér gott orð á tónlist- arsviðinu á Austurlandi þar sem hann rak meðal annars Óperustúdíó Austurlands. Keith mun syngja einsöng með kórnum á jólavökunni og Jóhann Stefánsson trompetleikari leikur. Þá lofar kórinn að gestir fái að upplifa ýmislegt fleira á tónlistar- og menn- ingarsviðinu. Eftir tónleikana býður kórinn gestum upp á heitt súkkulaði og smákökur í safnaðarheimili kirkjunnar. Kórfélagar heita nota- legri stund og víst er að trúa má að það verði raunin því kórstarfið hjá Samkórnum er líflegt og notalegt andrúmsloft á æfingum. Samstaða í kórum á Selfossi góð og hún var það líka þegar fréttarit- ari tók hús á Samkórnum á æfingu og sýndi góða liðsheild þegar kór- félagar þjöppuðu sér saman í kring- um kórstjórann til myndatöku. Það þarf líka nokkurt afl í starfið þegar stefnan er tekin á að flytja stórverk eins og kórinn ætlar sér í janúar þegar jólahlutinn úr Messíasi eftir Händel verður fluttur í Selfosskirkju ásamt einsöngvurum og hljómsveit. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Samstaða Keith Reed söngstjóri umkringdur félögum í Samkór Selfoss. Sálin opnuð fyrir hamingju jólanna ÁRBORGARSVÆÐIÐ Selfoss | Tveir nemendur við líffræði- skor Háskóla Íslands, Jón Ágúst Jónsson og Margrét Lilja Magnús- dóttir, fengu vísindastyrk úr vísinda- sjóði Fræðslunets Suðurlands sem hélt hátíðarfund á dögunum. Styrkur úr sjóðnum er árlega veittur náms- fólki sem vinnur að lokaprófsverkefni á háskólastigi. Verkefnið þarf að tengjast Suðurlandi og líklegt þarf að vera að það leiði til frekari rannsókna og atvinnuuppbyggingar. Þau Jón Ágúst og Margrét Lilja segja styrkinn kærkominn til þess að vinna frekar að verkefnunum. Bæði vinna að mastersverkefni til lokaprófs. Fræðslunetið hefur verið starfrækt í fimm ár og þetta er í þriðja sinn sem styrkir sem þessir eru afhentir. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, af- henti styrkina og fagnaði um leið þess- ari áherslu í starfi Fræðslunetsins. Sjálfstæður háskóli Mastersverkefni Jóns Ágústs nefn- ist: Áhrif skógræktaraðgerða á viðar- vöxt og flæði kolefnis í asparskógi. Meginmarkmið þess er að auka skiln- ing á skammtímaáhrifum skógræktar- aðgerða, grisjun og áburðargjöf á kol- efnisupptöku og viðarvöxt sunnlensks asparskógar og eru rannsóknirnar unnar í Gunnarsholti. Mastersverkefni Margrétar Lilju nefnist: Áhrif glycinebetaine á seltu- og þurrkþol trjáplantna. Verkefnið er unnið í Þjórsárdal en Margrét er í rannsóknarteymi með aðstöðu í Garðyrkjuskóla ríkisins. Teymið stefnir að því að koma upp þekking- armiðstöð á Suðurlandi á sviði trjá- ræktar í örfoka landi og á særoks- svæðum. Sveinn Aðalsteinsson, skólameist- ari Garðyrkjuskóla ríkisins og vara- formaður stjórnar Fræðslunets Suð- urlands, hvatti styrkþega til dáða í ávarpi til þeirra og sagði meðal ann- ars að nauðsynlegt væri að stofna til sjálfstæðrar starfsemi háskóla á Suð- urlandi og finna þar vettvang fyrir vísindastarfsemi. Fræðslunet Suðurlands flutti í nýtt húsnæði í Fjölbrautaskóla Suð- urlands síðastliðið haust og fékk um leið betri aðstöðu fyrir starfsemi sína. Það hefur yfir að ráða þremur stofum með fjarfundabúnaði en auk þess er fjarbundabúnaður á Flúðum, Aratungu, Hvolsvelli, Vík og Kirkju- bæjarklaustri. Talið er að um 150 Sunnlendingar stundi fjarnám af ein- hverju tagi en 100 einstaklingar eru í námi á vegum Fræðslunetsins. Auk þess láta sífellt fleiri skólar Fræðslu- netið sjá um próf en 430 próf hafa verið tekin á 6 stöðum á þessu ári. Fræðslunetið er í samstarfi við Há- skólann á Akureyri um sérhæfðar námsbrautir og hafa kennarar komið frá Reykjavík til að kenna á þessum námsbrautum og þá hafa þeir kennt frá aðstöðu Fræðslunetsins á Sel- fossi. Ásmundur Sverrir Pálsson starfs- maður Fræðslunetsins sagði fjölda starfstengdra námskeiða og tóm- stundanámskeiða í boði á hverju ári en Fræðslunetið hefði það markmið að hvetja fólk til náms. Hann benti á að 50 til 60 % vinnuafls á Suðurlandi væru ófaglærðir starfsmenn og sam- eiginlegt átak þyrfti til að rétta þann hlut. Hann sagði Fræðslunetið stefna að tilraunaverkefni árið 2007 með menntunarátaki. Fræðslunet Suðurlands styrkir tvo unga vísindamenn Vinna að rannsókn- um í skógrækt Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Vísindastyrkir afhentir Ólafur Ragnar Grímsson ásamt verðlauna- höfunum, Margréti Lilju Magn- úsdóttur og Jóni Ágústi Jónssyni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.