Morgunblaðið - 18.12.2004, Page 74

Morgunblaðið - 18.12.2004, Page 74
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes ÉG HUGSA AÐ ÉG KLÓRI JÓN ÉG ÆTLA AÐ FARA ÚT Í BÚÐ AÐ KAUPA ÍS FYRIR OKKUR EF EINHVERJUM DETTUR Í HUG AÐ KLÓRA JÓN ÞÁ ER MÉR AÐ MÆTA FISKABÚR? AF HVERJU VARSTU AÐ KAUPA FISKABÚR? ÞVÍ ÞAÐ ER STJÖRNU- MERKIÐ MITT. FISKABÚRIÐ! FISKARNIR HVAÐ? EKKERT! STÓRIR BRÆÐUR VITA ALDREI UM HVAÐ ÞEIR ERU AÐ TALA ÉG ER KOMINN MEÐ NIÐUR- STÖÐURNAR ÚR NÝRRI KÖNNUN MEIRIHÁTTAR GÓÐU FRÉTTIRNAR ERU ÞÆR AÐ FLEST ALLIR Á HEIMILINU ÞEKKJA ÞIG SEM PABBA. ALLIR SEX ÁRA KRAKKARNIR ÞEKKTU ÞIG UNDIR NAFNINU, PABBI ÞVÍ MIÐUR MÁ REKJA ÞESSA ÞEKKINGU MANNA Á ÞESSUM TITLI ÞÍNUM TIL ÞESS AÐ ÞÚ STJÓRNAR ÖLLU MEÐ HARÐRI HENDI OG ORÐRÓMUR HEFUR KOMIST Á KREIK AÐ RÁÐGERT SÉ AÐ KJÓSA MÖMMU SEM NÝJAN PABBA VISSIR ÞÚ EITTHVAÐ UM ÞETTA? FYRSTA VERK MITT SEM PABBI ER AÐ LÁTA ÞIG ELDA! BÍDDU! ÞETTA BREYTIR ÖLLU! Risaeðlugrín EN HVAÐ ÞETTA ER FALLEGT © DARGAUD MÁ ÉG LÍKA! VÁÁ, ALGJÖRT ÆÐI!! ÞETTA VERÐUR NÆSTA TÍSKUBYLGJA ÚÚ, ALVEG RÉTT! MÉR FINNST ÞÚ VERA MEÐ YNDISLEG AUGU SVONA LÍKAR YKKUR ÞETTA STELPUR! Í RAUN ER ÉG AÐ PRÚFA NÝTT TÆKI SEM GERIR OKKUR KLEIFT AÐ SJÁ BETUR JÁ! MEÐ ÞVÍ AÐ NOTA BETUR PUSSAÐA KRISTALLA ER HÆGT AÐ BÆTA SJÓNINA EN BETUR AUÐVITA ER ÞETTA EKKI ALVEG TILBÚIÐ, EN ÍMYNDIÐ YKKUR HVAÐ ÞETTA GETUR HJÁLPAÐ MÖRGUM SEM SJÁ ILLA EN DÍNÓ ERT ÞÚ EKKI MEÐ AFBRAGÐS SJÓN! ÁN ÞESS AÐ HAFA ÞESSA FJÁRANS KRISTALLA FYRIR AUGUNUM, ... JÁ!! Dagbók Í dag er laugardagur 18. desember, 353. dagur ársins 2004 Víkverji stóð í íbúð-arkaupum á dög- unum. Það er að ýmsu að huga í þessum efn- um, pappírsflóðið yfirgengilegt og lögin og reglurnar á tíðum alltof flóknar. Og hús- næði er nú svo sem ekkert á útsölu þessa dagana og þess vegna þurfti Víkverji að fá lánaðar nokkrar krón- ur til að fjármagna kaupin. Víkverji gekk til samninga við Íbúðalánasjóð og vil koma á framfæri þökkum við starfsfólk sjóðsins fyrir einstaka þjónustulipurð, kurteisi og þolinmæði. Þó er eitt sem enn þá er að angra Víkverja. Það eru þessi blessuð gjöld sem Víkverji þarf að inna af hendi hjá fasteignakaupin. Fasteignasalinn tekur sitt, lána- stofnunin sitt og ríkið tekur sitt. Víkverji getur svo sem vel skilið að fasteignasalinn taki eitthvað fyrir sinn snúð og jafnvel lánveitandinn líka. En Víkverja er ómögulegt að skilja hvers vegna ríkið þarf að seil- ast svo djúpt í vasa hans. Hin svo- kölluðu þinglýsingargjöld eru ekk- ert nema forneskjuskattur sem ætti fyrir löngu að vera bú- ið að afnema. Víkverji er ennþá með óbragð í munninum eftir heim- sókn sína til sýslu- manns. x x x Víkverji er ekkertsérlega ánægður með jólasveinana sem renna ofan úr fjöll- unum þessa dagana. Grýla hefur greinilega ekki nennt að gera neitt fyrir þessi jól, bara sagt sveinunum að fara í sjoppuna og kaupa nammi handa krökkunum sem bíða í ofvæni eftir einhverju úr hendi þeirra rauðklæddu. Sem sagt, mikill vinur Víkverja, tæpra tveggja ára gamall, fór á jóla- ball á dögunum. Þar voru að sjálf- sögðu jólasveinar á ferð og sá stutti var ekkert hræddur við þá, að eigin sögn. Enda fékk hann líka stóran stóran pakka frá sveinka. Og pakk- inn var bólginn af sælgæti! Hvar eru nú eplin og appelsínurnar? Er ekki sniðugra að rétta börnunum eitthvert smádót í stað þess að belgja þau út af nammi foreldrum, ömmum og öfum til mikillar ar- mæðu? Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is   Þjóðleikhúskjallarinn | Blásið verður til mikillar grín- og gleðiveislu í kvöld, þegar uppistandsgrínarinn og leiklistarfrömuðurinn Snorri Hergill Krist- jánsson heldur upp á þrítugsafmæli sitt í Þjóðleikhúskjallaranum. Alls munu fimm uppistandarar fara með gamanmál, en á eftir verður síðan háskólateiti þar sem góðvinir Snorra í hljómsveitinni Hraun! skemmta gestum. Ein af kollegum Snorra er Taffeta Wood, frá Bandaríkjunum, en hún stundar nám við enskudeild Háskóla Íslands. Þau munu bæði kitla hlát- urtaugar gesta í kvöld ásamt þeim Birni Hjaltasyni, Bjarna töframanni og Ágústu Skúla. Morgunblaðið/Kristinn Grínveisla og partí MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Liðið er á nóttina og dagurinn í nánd. Leggjum því af verk myrkursins og klæðumst hertygjum ljóssins. (Róm. 13. 12.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.