24 stundir - 23.02.2008, Blaðsíða 52
YFIRLÝSINGIN
Árvakur/Frikki
Hlyn ur Halls son
mynd list ar mað ur,
fædd ur 25.09.1968
Hæ, þetta er kannski ekki alveg
í samræmi við allar þessar fyrir-
spurnir en ég veit ekkert hvert
ég á að snúa mér.
Ég er búin að vera ástfangin
af vini mínum í 2 ár. En hann
sýnir eng an áhuga og hætti að
tala við mig núna nýlega því að
hann lokar sig oft frá heiminum
og ég græt og skoða myndir af
honum og neita að fara út á
lífið nema ég viti að hann verði
á veginum og ég geti hitt hann.
Hvað er til ráða? Ég elska hann
svo mikið að ég get ekki einu
sinni sofið hjá neinum öðrum
né fengið fullnægingu við sjálfs-
fróun nema ég hugsi um hann!
Hann sagði eitt sinn við mig að
hann vildi ekki samband því
hann vill ekki að það komi í veg
fyrir fitness-dæmið hjá honum.
Á ég að let it go eða segja honum
hvernig mér líður eða fela mig í
hvert sinn sem ég sé hann?
Gerðu það að svara fljótt.
Með fyrirfram þökk.
Sæl og takk fyrir að leita til femin.is.
Heyrðu vinkona, þetta er hálfömur-
leg staða að vera í. Þú gjörsamlega lifir
fyrir hann en ekki þig sjálfa og það er
ekki gott. Hann hefur greinilega ekki
mikinn áhuga fyrst hann hefur ekki
reynt við þig né sýnt þér áhuga í 2 ár
en það er mikilvægt fyrir þig að koma
hreint fram, segja honum hvernig
þér líður svo þú getir haldið áfram.
Biddu hann að hitta þig og segðu
honum hvernig þér líður og biddu
hann um hreinskilið svar. Taktu svo
ákvörðun. Ef hann er ekki hrifinn af
þér þá verður þú að sleppa tökunum
og leyfa ekki sjálfri þér að hugsa
um hann öllum stundum og detta í
dagdrauma. Hugsaðu um sjálfa þig,
byggðu þig upp, sinntu þínum áhuga-
málum, skemmtu þér og þú munt
hitta þennan eina rétta sem er ætlaður
þér og mun elska þig eins og þú átt
skilið. Ég lofa þér því.
Gangi þér vel.
Soffía Stein grímsdóttir - Ráð-
gjafi hjá femin.is
Ég get ekki komið nálægt pabba
mínum. Mér finnst þetta mjög
erfitt þar sem ég bý hjá for-
eldrum mínum og þarf að um-
gang ast hann daglega. Alltaf
þeg ar hann kemur heim flý
ég inn í herbergið mitt eða fer
eitthvað út. Hann starir alltaf í
augun á mér eins og elskuhugi
þeg ar við tölumst við og ég hef
oft séð útundan mér hvernig
augun hans eru á mér þeg ar ég
er ekki að horfa. Hann notar
alltaf sérstaka rödd þeg ar hann
talar til mín og er alltaf að segja
mér að ég sé falleg. Svona hefur
þetta alltaf verið.
Stundum kemur hann aftan
að mér og strýkur mér yfir
axlirnar og jafnvel niður rass-
inn. Þá stirðna ég upp, alger-
lega öfugt við það sem ég vildi
gera. Athygli hans er nánast
alltaf á mér og ég finn svo
mikla strauma frá honum að
mér líður illa og verður óglatt!
Mamma hefur notað andlegt of-
beldi og í og með líkamlegt sem
uppeldisað ferð.
Sjálfsmynd mín er í rúst og
ég veit það. Ég hef reynt ýmsar
leiðir til að bæta hana og hef
mikinn áhuga á því að ala sjálfa
mig upp á nýtt. Ég finn það bara
betur hvað ég er brotin. Mér
líður eins og ég sé veik andlega
og þurfi á foreldrum mínum að
halda, samt þrái ég ekkert heitar
en að fara héðan, þetta er eins
og martröð. Það er teygja aftan
í hausnum á mér sem kastar mér
til baka alltaf þeg ar ég er rétt að
ná flugi. Veist þú hvernig ég get
slitið þennan streng og orðið
konan sem ég veit að ég er?
Sæl og takk fyrir að leita til femin.is
Takk fyrir póstinn. Það hljómar
eins og þú sért í slæmum aðstæðum
með hann pabba þinn. Nú veit ég
ekki hversu gömul þú ert en ef þú ert
nógu gömul væri mitt fyrsta ráð fyrir
þig að flytja að heiman. Faðir þinn er
að beita þig kynferðislegu ofbeldi og
er ekki að sinna skyldum sínum við
þig sem faðir þinn. Það sem þú lýsir
eru ekki heilbrigð samskipti við heil-
brigðan föður. Hefur þú sagt honum
hvað það er sem þú upplifir? Að þér
finnist þetta óþægilegt? Treystir þú
þér til þess? Mig grunar að þú treystir
þér ekki til þess, en mikilvægt er fyrir
þig að þú annað hvort finnir leið til
þess að hætta að umgangast hann eða
fáir stuðning til þess að segja honum
að þú viljir að hann hætti að koma
svona fram við þig. Endilega hringdu í
Stígamót og biddu um viðtal þar ef þú
þarft stuðning til þess að komast út úr
þessum aðstæðum.
Það er mjög góð athugasemd hjá
þér að vilja alast upp aft ur og gera það
sjálf. Það er nefnilega besta leiðin sem
þú get ur farið til þess að gera þér grein
fyrir því af hverju þú ert eins og þú ert.
Sjá hvað þú fórst á mis við sem barn
og sjá hvernig það speglast í lífi þínu í
dag og hver þú ert. Það er alveg mögu-
legt að hjálpa sér sjálfur með það. Það
er til alveg frábær bók sem heitir Að al-
ast upp aft ur, eftir Jean Illsley Clarke.
Hún hefur verið þýdd á íslensku af ÓB
ráðgjöf. Ég mæli með því að þú kíkir
á heimasíðuna hjá þeim og flettir upp
á sálfræðingum sem hafa lært að nota
það sem er í bókinni kennt. Hugsan-
lega get urðu einnig lesið bókina og
notað verkefnin í samvinnu við sál-
fræðing eða ráðgjafa. www.obradgjof.
is
Að lesa þessa bók gæti líka hjálpað
þér að skilja af hverju þú ert brotin og
af hverju það tekur sum okkar mörg
ár að slíta samskipt um við foreldra,
jafnvel þegar þau koma illa fram við
okkur. Önnur bók sem ég mæli með
fyrir þig, ef þér finnst gaman að lesa
til að hjálpa sjálfri þér og langar að
skilja sjálfa þig bet ur, er Becoming Att-
ached eftir Robert Karen, Ph.D. Þessi
bók sýnir okkur svart á hvítu hvernig
samskipti okkar fyrstu árin hafa áhrif
á hver við verðum og erum þegar við
eldumst. Bókin leggur einnig fram
leiðir til þess að bæta það sem miður
fór í barnæsku en umfram allt hjálpar
hún þér að skilja vandann. Þessi bók
er á ensku en er auðlesin fyrir þá sem
hafa áhuga á efninu.
Ég minni þig á að hafa samúð með
sjálfri þér og sýna sjálfri þér kærleika
og skilning. Leitaðu til góðra vina ef
þú þarft.
Mundu að það er til leið, ekki gefast
upp. Haltu áfram að fara til ráðgjafa
eða sálfræðings og finna stuðning við
að breyta og standa með sjálfri þér.
Ég vil taka það fram að ég er ekki
faglærður sálfræðingur eða ráðgjafi.
Þetta ráð gef ég af eig in reynslu og af
þeim fjölda bóka sem ég hef lesið og
notað síðustu 15 árin til þess að heila
sjálfa mig.
Gangi þér vel!
Svava Björnsdóttir – Ráðgjafi hjá
femin.is
Blátt áfram
Pikkföst í andlegum lamasessi
Get ekki komist yfir hann
LIGGUR Á HJARTA
Send ið fyr ir spurn ir á net fang ið: fem in@fem in.is – Merkt: Fyr ir spurn til ráð gjafa vegna 24 stunda
Akureyri
suckar svo big time!
öll lífsins gæði!
52 LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2008 24stundir
1 matsk. safieða 1 hylki.
Fæst í apótekum og heilsubúðum.
Magann og meltinguna
í jafnvægi og vellíðan
Byrjendanámskei› í yoga
Sex vikna byrjendanámskei› hefst 25. febrúar.
Mánudaga og fimmtudaga kl. 16.40.
Kennari: Talya Freeman.
Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T