24 stundir - 23.02.2008, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2008 24stundir
Hvorugt okkar er eiginlega mikið fyrir það að elta daga sem einhverjir aðrir ákveða að eigi að
vera dekurdagar, þannig að hún hefur örugglega ekki hugmynd um að konudagurinn er í
vændum. En sunnudagur er eini dagurinn sem konan mín er ekki að vinna svo að þá daga
dekra ég auðvitað alltaf við hana (og hún við mig) og má því segja að allir sunnudagar séu
konudagar á okkar heimili. Fyrir utan það allra heilagasta þá færi ég henni hreinan ávaxta-
safa, t.d. úr ferskum ananas, og svo á ég til að gera skrambi góðan baskneskan eggjarétt, í
honum eru nokkur egg, kirsuberjatómatar, rautt chili, laukur og hvítlaukur, jafnvel sólþurrk-
aðir tómatar líka og krydd, matreitt á mjög fallegan hátt. Ég prófaði að elda hann einu sinni
og hún féll alveg kylliflöt, enda er þessi réttur hreint sælgæti og algjör bomba í hádegi á
sunnudegi. Síðan eigum við það mjög oft til á sunnudögum að fara í bíó klukkan þrjú. Þar
sem ég er nú að búa mig undir að lýsa Óskarsverðlaunaafhendingunni og verð að sjá sem
flestar myndir er mjög líklegt að við förum í bíó á sunnudaginn. Við förum líka oft í sund og
heita potta til að láta okkur líða vel en reyndar er hér á landi erfitt að finna stað þar sem bæði
kynin geta farið saman í gott gufubað. Þú getur farið í vatnsgufu en alvöru finnska sánu er
erfitt að finna og lýsum við bæði eindregið eftir slíkri aðstöðu.
Þorfinnur Ómarsson
sjónvarpsmaður.
Spænsk bomba á sunnudagshádegi
Ég er ekki mikið fyrir þessa hefðbundu
daga eins og bóndadag, konudag og Val-
entínusardag. Mér finnst miklu skemmti-
legra að gera eitthvað bara þegar mér
dettur í hug og eins að gera eitthvað
óvænt, sem verður ekki óvænt á konudag-
inn. Ég er ekkert einstaklega rómantískur
maður, enginn Þorgrímur Þráinsson alla
vega, held að það sé alveg á hreinu. En jú,
ég á það til að vaska upp og þá kem ég
mjög á óvart og slæ í gegn. Það þarf ekki
alltaf endilega að gefa eitthvað heldur
frekar að gera eitthvað svona smá. Ég elda
alveg stundum þannig að það er ekkert
svo óvænt, ekki eins og með uppvaskið.
Jú, jú, ég hef samið lög og texta handa
henni, en það er alltaf svona hálfpartinn
grín. Bara e-ð sem við meira hlæjum að
heldur en eitthvað annað.Þegar ég kem
henni á óvart geri ég það sem ég veit að
henni finnst skemmtilegt. Ég hef und-
irbúið ýmislegt skemmtilegt þó að ég
muni ekki eftir einhverju einu sem stend-
ur upp úr. En það er kannski bara af því
að mér finnst það enginn stórviðburður
að gera eitthvað fyrir konuna öðru hvoru.
Það er bara partur af þessu öllu saman.
Bjarni Lárus
Hall, söngvari
Jeff Who?
Slær í gegn með
uppvaskinu
Ég hef aldrei gert neitt sérstakt á þessum
degi þar sem ég er ekkert mjög hrifin af því
að það sé ákveðið fyrir mig hvenær ég á að
vera rómantísk eins og t.d. á konudaginn. Ég
geri frekar eitthvað þegar mér líður þannig
og reyni að hafa alla daga konudaga. Þá tek
ég sérstaklega til hendinni þegar konan mín
á afmæli og undirbý oft heilan dag fyrir hana
með óvæntri dagskrá, en það er orðin hefð
hjá okkur að gera eitthvað svona stórt fyrir
hvor aðra á afmælisdögum. Mér finnst líka
mjög gaman að koma henni á óvart með því
að gefa henni óvæntar gjafir eða bjóða henni
út að borða enda er það mun skemmtilegra
þegar hún veit ekki að ég muni gera eitthvað
eins og raunin er á konudaginn. Síðan erum
við náttúrlega báðar konur og myndum því
örugglega báðar vilja taka mikið pláss þenn-
an dag. Þegar ég geri eitthvað fyrir konuna
mína elda ég góðan mat, býð henni í nudd
eða fer með hana óvænt út úr bænum.
Henni finnst líka mjög gaman að láta und-
irbúa stærri óvæntar uppákomur svo ég hef
stundum farið með hana í óvissuferðir, en
stundum líka bara í karaókí, hún elskar ka-
raókí.
Kristín Eysteins-
dóttir, leikhúsfræð-
ingur.
Spennandi
óvissudagar
Nú er ég svo heppinn að frúin er heima í
eina viku en hún hefur ekki verið hér á landi
síðan í ágúst. Það vill því svo vel til að hún
verður heima á konudaginn og verður
örugglega hátíð á heimilinu í tilefni dagsins.
Ég geri örugglega ekki nóg af því að dekra
við konuna mína en þegar hún kemur heim
erlendis frá passa ég að hafa fallegan rauðan,
rósavönd á staðnum og sýna henni þannig
að okkur afganginum af fjölskyldunni þyki
vænt um hana. Það held ég að sé nú samt
ekki dæmi um það að ég sé rómantískur,
heldur frekar tilkomið af áunninni reynslu.
En ég neita því ekki að það hefur auðvitað
verulega þýðingu fyrir sambandið að rækta
það og gera hluti sem eru umfram það sem
er praktískt og hversdagslegt. Fólk kvartar
undan tímaskorti en það eru jafn margir
klukkutímar í sólarhringnum nú og fyrir 50
árum, það er bara spurning um hvernig fólk
notar tímann. Ég er tilbúinn að gera flest
fyrir konuna mína en eitt sem ég geri þó ekki
nema í neyð er að elda, enda held ég að ég
myndi ekki gera henni né nokkrum öðrum
greiða með slíku. Á móti kemur þó að ég er
mjög liðtækur í uppvaskinu þegar því er að
skipta.
Friðrik Soph-
usson, forstjóri
Landsvirkjunar.
Gefur konunni
rauðar rósir
Yfirleitt man ég nú eftir konudeginum en
geri mér aftur á móti sérstakt far um að leiða
Valentínusardaginn hjá mér. Við eigum
þennan íslenska dag og mér finnst algjör
óþarfi að vera flytja inn meira af amerísku
drasli ofan á það sem hér er fyrir. Það er
mjög misjafnt hvort ég geri eitthvað fleira en
að kaupa blóm og vera almennilegur, elda
matinn og kannski bjóða í bíó. En það er
ágætt að nota þennan dag til að gera eitthvað
saman og ég mun kaupa blóm eða súkku-
laði, þó ekki væri nema vegna þess að ég er
sennilega ekki minna fyrir súkkulaði en kon-
an mín. Reyndar vill þannig til að dóttir mín
á afmæli á morgun þannig að það er ekki
ósennilegt að hún steli svolítið athyglinni frá
konunni minni og má því segja að konudag-
urinn í ár verði frekar helgaður annarri konu
en eiginkonunni. Annars skiptum við nokk-
urn veginn með okkur eldamennskuni á
mínu heimili og ég hef gaman af að elda. Það
má kannski segja að þetta sé gallinn við að
vera alinn upp í hugsjónum jafnréttis, það
að ráða við að elda og vinna algeng heim-
ilisstörf er engin sérstök tillitssemi við kon-
una heldur frekar eitthvað hversdagslegt.
Davíð Þór Jóns-
son, þýðandi,
skáld og leikari.
Konudagurinn
helgaður annarri
Hvernig dekrar
þú við konuna þína
á konudaginn?
Nú líður undir lok þorra og þar með er komið að konudeginum
og körlunum að dekra við konurnar sínar. Dekur þarf ekki endi-
lega að vera eitthvað dýrt og mikið, prófaðu bara að bjóða henni
í sund og svo í kaffi á eftir eða farðu út í bakarí og færðu henni
morgunmat í rúmið. Notaðu fyrst og fremst daginn til að minna
þig á það sem þú átt og njótið þess að vera saman. Hér segja
nokkrir þjóðþekktir viðmælendur lesendum frá því hvernig þeir
dekra við sínar konur.
LÍFSSTÍLLSPJALLIÐ
lifsstill@24stundir.is a
Ég er ekkert einstaklega rómantískur
maður, enginn Þorgrímur Þráinsson
alla vega, held að það sé alveg á hreinu.