24 stundir - 01.05.2008, Blaðsíða 18

24 stundir - 01.05.2008, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 24stundir KOLLAOGKÚLTÚRINN kolbrun@24stundir.is a Leiðtogahæfileikar felast í því að segja nei, ekki já. Það er mjög auðvelt að segja já. Tony Blairr Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@24stundir.is „Við erum að reyna að búa til góða skemmtun sem vonandi er ekki of innantóm. Maður veit hins vegar aldrei neitt fyrirfram. Sérhver uppsetning er óvissuferð. En verkið er búið að fá þriggja ára þróunar- ferli, frábæran tónlistarstjóra og ungan og einstakan leikarahóp. Leikstjórinn hefur gefið þessu 140% og allir eru að reyna sitt besta. Samt veit maður aldrei. Það eina sem maður getur gert er að naga neglur og vona það besta,“ segir Hallgrím- ur Helgason, en leikrit hans Ástin er diskó, lífið er pönk verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Í leikritinu er fjallað um baráttuna milli diskós og pönks. Rósa, nýkrýnd ungfrú Hollywood, hittir pönknaglann Nonna niðri á Hallærisplani og þau laðast hvort að öðru. Einmana hellisbúi Hallgrímur hefur fylgst grannt með æfingum en bróðir hans, Gunnar, er leikstjóri sýningarinnar. „Það er gaman fyrir rithöfund, þennan einmana hellisbúa, að fá að komast annað slagið út og hitta fólk, sitja á æfingum og hlusta á leikara syngja textana sína,“ segir Hallgrímur. „Ég er reyndar ekki mikið fyrir fundarsetur en verð þó að viðurkenna að í leikhúsvinnu verður maður annað slagið að hlusta á sérfræðinga tæta í sundur verkið manns. Að því slepptu held ég að fundarhöld séu í raun visst þjóðfélagsmein. Ég veit vel að Ís- lendingar þögðu í þúsund ár, og nú eru þeir loks farnir að tala saman, en fyrr má nú vera talgleðin. Sjálfur fæ ég tíu tilboð á viku um að tala á allskyns málþingum, sem ég neita öllum nema ég fái hest með öllum reiðtygjum fyrir og góða köku með kaffinu. Og í hverjum fréttatíma blasir við okkur einhver hótelsalur- inn fullur af fólki sem situr við að hlusta á einhver erindi. Ég hugsa alltaf: Hefur þetta fólk ekkert að gera?“ Hörð stéttaskipting Hallgrímur segir æfingaferlið hafa verið einstaklega skemmtilegt: „Gunna hefur tekist að mynda þennan vinnuglaða anda sem orð- inn er sjaldgæfur nú þegar enginn lyftir hendi án þess að fá borgað fyr- ir það. Þetta minnir helst á það að vera í heyskap, eins og hann var í den. Allir ofurþreyttir á lágum launum en samt í góðum gír. Allir að leggjast á eitt. Það er helst að höfundurinn hafi verið til ama í hópnum. Ég kann ekki alveg inn á þessa hörðu stéttaskiptingu sem ríkir í leikhúsinu og á það til að tala beint við leikara um mál sem heyra undir smink- eða búningadeild. Þá fer allt upp í loft. Og svo hefur Gunni nokkrum sinnum þurft að reka mig niður af sviðinu með þeim orðum að hann sé leikstjórinn en ekki ég. Ég reyni þá að afsaka mig með því að ég sé vanari frjálsari vinnureglum frá mínum vinnu- stað.“ Snillingurinn Sveppi Hallgrímur hefur verið að skrifa og endurbæta verkið allt fram á síð- ustu stund. „Það er segin saga að verkið er ekki fullskrifað fyrr en tjaldið fellur á frumsýningu, og jafnvel ekki þá, því einhver leikar- inn gæti hafa gleymt línu. Þannig að maður er stöðugt að breyta og bæta. Og þá er gott að hafa snilling eins og Sveppa í hópnum. Ef maður er flúinn út í horn með leikara á hælunum sem biðja um nýja línu hér, betra tilsvar þar, og er orðinn alveg andlaus, þá spyr maður bara Sveppa og hann kemur alltaf með einhverja snilld. Mikill gleðibrunn- ur sem sá maður er, hreinræktaður skemmtikraftur og fallega auð- mjúkur.“ Hallgrímur Helgason „Það er gaman fyrir rithöf- und, þennan einmana hellisbúa, að fá að komast annað slagið út og hitta fólk, sitja á æfingum og hlusta á leikara syngja textana sína.“ Ástin er diskó, lífið er pönk frumsýnt í Þjóðleikhúsinu Óvissuferð Hallgríms ➤ Meðal leikara og dansara ísýningunni eru Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Þórir Sæmunds- son, Sara Marti Guðmunds- dóttir, Þröstur Leó Gunn- arsson, Selma Björnsdóttir og Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi). ➤ Danshöfundar eru Birna ogGuðfinna Björnsdætur. Leik- mynd er eftir Frosta Frið- riksson. LEIKRITIЄSérhver uppsetning er óvissuferð. En verkið er búið að fá þriggja ára þróunarferli, frábæran tónlistarstjóra og ungan og einstakan leikara- hóp,“ segir Hallgrímur Helgason um leikrit sitt Ástin er diskó, lífið er pönk. Á þessum degi árið 1967 gengu Elvis Presley og Priscilla Anne Beaulieu í hjónaband á Aladdin- hótelinu í Las Vegas. Elvis var 32 ára og Priscilla 21 árs. Nákvæmlega níu mánuðum síðar fæddist dóttir þeirra Lisa Marie. Parið hittist fyrst árið 1959 þegar Elvis gegndi herþjónustu í Þýskalandi en þá bjó Pris- cilla, einungis 14 ára gömul, í Wiesbaden. Hjónaband Elvis og Priscillu entist í sex ár. Priscilla skrifaði bókina Elvis and Me um samband þeirra. Þar segir hún frá því að Elvis hafi kosið að vaka um nætur og sofa á daginn. Hún lýsti einnig óhóflegri lyfjanotkun hans sem færðist sífellt í aukana með ár- unum og varð honum loks að aldurtila. Síðar kom út ævisaga Priscillu eftir Suzanne Finstad þar sem farið er ófögrum orðum um Priscillu og hún sögð hafa ætlað sér að giftast Elvis til að verða fræg og hefði aldrei elskað hann. Priscilla fór í meiðyrðamál og vann það. Elvis í hjónaband MENNINGARMOLINN Laugardaginn 3. maí kl. 15 opnar Pétur Gautur sýningu í Baksal Gallerís Foldar. Sýn- ingin stendur til 25. maí. „Kæruleysi og málaragleði var útgangspunkturinn fyrir þessa sýningu,“ segir listamaðurinn. Ný málverk Péturs AFMÆLI Í DAG Judy Collins söngkona, 1939 Rita Coolidge söngkona, 1944 John Woo leikstjóri, 1946 Ray Parker lagahöfundur, 1954 10. Agnarsmá brot úr eilífðinni Ólafur Ragnarsson 9. Þúsund bjartar sólir Khaled Hosseini 8. Maxímús Músíkús heimsækir... Hallfríður Ólafsdóttir / Þórarinn M. 7. Þórarinn Eldjárn - Kvæðasafn Þórarinn Eldjárn 6. Kuggur 7 - Gleðilegt sumar Sigrún Eldjárn 5. Sjortarinn - kilja James Patterson 4. Steinsmiðurinn - kilja Camilla Läckberg 3. Dvergurinn Rauðgrani G.T. Rotman 2. Alfinnur álfakóngur G.T. Rotman 1. Dísa ljósálfur G.T. Rotman Listinn er gerður út frá sölu í Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar 23.04. 2008 -29.04.2008. METSÖLULISTI Bækur á íslensku 10. Daring to Dream Nora Roberts 9. Dexter in the Dark Jeff Lindsay 8. Stalins Ghost Martin Cruz Smith 7. 501 Must-See Natural Wonders Bounty Books 6. 501 Must-See Destinations Bounty Books 5. Blood of Flowers Anita Amirrezvani 4. Children of Hurin J. R. R. Tolkien 3. Witch of Portobello Paulo Coelho 2. Exit Music Ian Rankin 1. Bad Luck and Trouble Lee Child Listinn er gerður út frá sölu dagana 22.04.2008 - 28.04.2008 í Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar METSÖLULISTI Erlendar bækur

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.