24 stundir - 27.06.2008, Blaðsíða 28

24 stundir - 27.06.2008, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 24stundir Það er meira í Mogganum Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800 í dag Föstudagur 27. júní 2008  Færeysku söngkonunni Sölvu Ford er skemmt » Meira í Morgunblaðinu Dularfulla konan  Tíu uppskriftir að prettum fyrir þá stríðnu í vinnunni »Meira í Morgunblaðinu Skrifstofuhrekkir  Ronaldo auglýsir ísl. íþróttadrykkinn Soccerade » Meira í Morgunblaðinu Andlitið út á við  Æ fleiri félög innan SA vilja viðræður um ESB-aðild »Meira í Morgunblaðinu Hallast að ESB  Sérfræðingur spáir því en lækki síðan í 100 dali » Meira í Morgunblaðinu Olían í 170 dali? Eftir Hauk Harðarson haukurh@24stundir.is „Mér fannst þetta athyglisverður og spennandi bíll og mig vantaði slíkan bíl. Mig minnir að fyrsti bíll- inn hafi verið notaður í happdrætti hjá okkur í Bónus,“ segir Jóhannes Jónsson verslunarmaður í Bónus þegar hann er beðinn um að rifja upp söguna á bak við fyrstu nýju Volkswagen Bjölluna sem var flutt til landsins árið 1998. Keypti fljótlega aðra Bjöllu Jóhannes lét þó ekki þar við sitja og sá sóknarfæri í að nota svo áber- andi og óhefðbundinn bíl sem átti eftir að hrella keppinauta Bónus. „Við keyptum fljótlega annan bíl, sem var notaður í verðeftirlit hjá samkeppnisaðilunum, og þeim var alveg djöfullega við að hafa þennan bíl á bílastæðunum hjá sér vegna þess að hann vakti svo mikla at- hygli og forvitni þannig að það sá hann hver einasti viðskiptavinur sem fór inn í verslanir hjá þeim. Þannig að þá má segja að tilgang- inum hafi verið náð.“ Er meira fyrir ameríska bíla „Þessi Bjalla var mjög athyglis- verð, það var ótrúlegt pláss og kraftur í henni og mjög gaman að keyra hana,“ segir Jóhannes sem hafði þó aldrei átt Bjöllu sjálfur enda segist hann vera mikill unn- andi amerískra bíla. „Bíladellan ætlar ekkert að eldast af mér. Núna er ég með Cadillac-dellu, og Cadil- lac Escalade er uppáhaldsbíllinn minn. Ég er með einn 2007 árgerð í Reykjavík og einn 2003 árgerð fyrir norðan. Þetta eru algerir öndveg- isbílar,“ segir Jóhannes sem eyðir nú miklum tíma á Akureyri. „Mér líður alveg dásamlega hér eins og öllum sem eru með hreina sam- visku,“ segir Jóhannes og heldur því fram að veðrið sé alltaf gott fyr- ir norðan. „Veðrið hér er afskap- lega fallegt núna þó það sé ekki glampandi sól. Það er líka vanda- mál hér að þegar sólin skín verður svo heitt hérna að það er eiginlega ekki æskilegt. Þá kemur sér vel að Escalade-bíllinn er með alveg frá- bæra loftkælingu, þess vegna er hann alveg kjörinn til notkunar hérna norðanlands.“ Tíu ár eru liðin síðan fyrsta „Nýja-Bjallan“ var flutt inn til landsins. Sá sem gerði það var enginn annar en Jóhannes Jóns- son stórkaupmaður í Bónus og eldheitur bíla- áhugamaður. Hann keypti tvo slíka bíla sem báðir voru notaðir í kynn- ingarstarf fyrir Bónus. Nýja-Bjallan Þetta er bíllinn sem Jóhannes flutti inn árið 1998. Jóhannes Jónsson Flutti inn fyrstu Nýju-Bjölluna frá Bandaríkjunum. Keppinautunum var illa við bílinn Jóhannes í Bónus flutti inn fyrstu „Nýju-Bjöllurnar“ til landsins Forveri Nýju-Bjöllunar, hin upprunalega Volkswagen Bjalla, er óumdeilanlega eitt af merkustu fyrirbærum í bifreiðasögunni. Upprunalega Bjallan var framleidd frá 1938 til 2003 þegar síðustu verksmiðjunni var lokað í Puebla í Mexíkó. Síðasta eintakið er nú geymt á Volkswagen-safninu í Wolfsburg. Mest selda óbreytta hönnunin Hinn 17. febrúar árið 1972 átti sér stað merkur atburður en þá fór Volkswagen Bjallan loksins fram úr Ford T-model bílnum á listanum yfir mest seldu bifreiðar heims. En þann dag í dag er Volkswagen Bjalla best selda einstaka hönnunin í sögunni en alls seldust 21.529.464 eintök af bílnum. Aðrar tegundar á borð við Toyota Corolla hafa selst betur en þeir hafa líka komið í mörgum útfærslum í gegnum tíð- ina. Bjallan situr þó í fjórða sæti yf- ir mest seldu bílategundir allra tíma. hh Upprunalega Bjallan skipar sérstakan sess í bifreiðasögunni Bíll sem mun seint gleymast LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is bílar

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.