Eintak

Tölublað

Eintak - 14.04.1994, Blaðsíða 4

Eintak - 14.04.1994, Blaðsíða 4
-I- HlBgpSar Fimmtudagurinn J. apríl Lenti í leiðindaatviki inni á Horni. Kom þar saklaus í fylgd Gísla Marteins og ætlaði að borða. Inni var laust borð og ekkert að vanbúnaði. Vindur þá ekki að mér einhver þjónn með útlendan framburð og segir borðið upptekið. Ég spyr hann hver hafi pantað en hann segir að mér komi það ekki við. Ég ætti eftir að sjá það gerast annars staðar í heiminum að einn helsti ráðgjafi forsætisráðherra fái ekki sæti á skitnum pizzustað. Mér varð svo um að ég hætti að vera svangur og lét mér nægja kaffi á Gafé Paris. Gísli reyndi að draga úr þessu en ég sagði honum að þegja. Föstudagurinn S.apríl Ég labbaði fram hjá kosningaskrifstofu R- listans á Laugaveginum, rétt gaut augun- um inn um gluggann og gat ekki varist hlátri. Þarna sátu næstum allir kverúlantar bæjarins. Alls kyns lið úr leigjendasamtök- unum, Félagi gangandi vegfarenda, Sam- tökunum 78, hverfasamtökum og guð má vita hverju. Ég áttaði mig á að allt þetta lið stendur í þeirri trú að öllum hafi verið boð- ið til veislunnar. Ég hló alla leið niður á kosningaskrifstofu sjálfstæðismanna á Vesturgötunni. Þar var álíka hópur af kverúlöntum. Laugardagurinn 9. apríl Fékk mér snarl með Geir H. Haarde um kvöldið og stakk þvi að honum að hann myndi beita sér fyrir því að Alþingi keypti Efst á Baugi úr því Salóme vill ekki kaupa Pressuna lengur. Ég sæi ekki hvers vegna það gæti ekki keypt eina þlaðið sem styddi forystu Sjálfstæðisflokksins eftir að Styrm- ir hefur gert Moggann að málgagni Félags frjálslyndra jafnaöarmanna. Geir tók ekki nógu vel í þetta. Við enduðum í afmæli Ara Gísla á Sólon. Þar var allur framþoðslisti flokksins fyrir kosningarnar i Reykjavík og eitthvert slangur af smáskáldum. Fátt um alvörumenn utan mín, Geirs og Villa Egils Sunnudagurinn 10. apríl Mikið vorkenni ég Davið að sitja uppi með aðra eins menn og Þorstein og Jón Bald- vin. Þessir menn geta ekki einu sinni haft rangt fyrir sér í málum sem einhverju skipta heldur hamast þeir við að hafa rangt fyrir sér í þyrlukaupamálum og einhverjum tittlingaskit. Ég skil vel að Davíð nenni ekki að hafa skoöanir á þessari vitleysu. Ég man fyrstu mánuöi stjórnarinnar. Þá stóð Davíð á tröppum stjórnarráðsins og hótaði að senda Byggðastofnun til Akureyrar. Þá voru stjórnmál stjórnmál. Mánudagurinn 11. apríl Ienn hafa undrast hin- ar tvær ólíku hliðar óska- drengs íslensku þjóðarinnar, Ólafs JÓHANNS ÓLAFS- SONAR. Annars vegar stjórnar hann risabatteríi hjá Sony í Bandaríkjun- um sem framleiðir tölvuleiki og hins vegar er hann rithöfundur eins og pabbi hans var en bókum og tölvu- leikjum hefur oft verið stillt upp sem andstæðu og shelst á þann hátt að tölvu- leikir drægju úr íbókhneigð barna fog unglinga. I Fsamtali við ein- j,TAK upplýsti Ól- °“ out afur aQ f,ann . kynni ekki að Olaf, tra prosa spila einn ein- e motoseghe astatölvuleikog 0 gert væri grin að honum í þeim framleiðslugeira í Bandaríkjunum þess vegna... I kki er nóg með að fram- I kvæmdastjórn Listahátíðar sé Ibúin að klúðar Bjarkar-kons- ertnum heldur stefnir allt í að tón- leikar Kristjáns Jóhannssonar misheppnist einnig. Fyrirhugað var að þeir yrðu í Háskólaþíói en vegna fjölda boðsgesta er Ijóst að ef þeir yrðu haldnir þar yrði mikið tap á tónleikunum. Nú hyggst stjórnin grípa til þess örþrifaráðs að flytja tónleikana í Laugardalshöll en Kristján hefur löngum sagt eins og margir aðrir tónlistarmenn að hún sé ekki hæf fyrir flutning á klassískri tónlist... Heyrst hefur að hinn harð- skeytti ungverski þjálfari meistaraflokks KR, Laslo Nemeth, muni ekki þjálfa liðið næsta keppnistimabil. Það er langt frá því að Laslo þyki vondur þjálfari, þvert á móti kann hann mjög vel til Nýja tóbaksvamafhjmvarpið felur í sér bann við innflutningi á sælgæti og sviptir dagskrárstjóra rikispmiðlanna völdum Ég veit ekki alveg hvaö ég á að halda með þetta SR-mjöl. Að hálfu leyti er það gott því þetta er skitamálið hans Þorsteins. En að hálfu leyti er þetta vont mál því þetta er mál ríkisstjórnar Davíðs og meira að segja einkavæðing ríkisstjórnar og því hjartans mál Davíðs. Eftir að hafa reynt að skrifa grein um málið ákvað ég að hafa ekki skoðun á því. Á eftir áttaði ég mig á að ef þessi ríkisstjórn lifir lengi enn enda ég sem skoðanalaus maður. Þriðjudagurinn 12. apríl Mikið var ég glaður að sjá grein Petrínu, þessarar kratakellingar úr Grindavík, í Mogganum. Hún lýsti því yfir að Jóhanna ætlaði að fella Jón á næsta flokksþingi. Farið hefur fé betra. Ég er oröinn hundleið- ur á Jóni og Davíð líka. Og með því að fá Jóhönnu sem formann myndum við losna við alla kratana líka því enginn maður er svo vitlaus að vilja samstarf með Jóhönnu. Eg sendi memó niður í stjórnarráð og ráð- lagði Davíð að taka undir allar tillögur Jó- hönnu næstu vikurnar og vera almennileg- ur við hana til að auka henni sjálfstraust. Miðvikudagurinn 13. apríl Ég sat með skeiðklukkuna mína við út- varpstækið og fékk grun minn staðfestan. Ríkisútvarpið eyddi aðeins 5 minútum og 43 sekúndum í blaðamannafund Árna um fjölskyldumálin en Ingibjörg Sólrún fékk hins vegar 5 mínútur og 58 sekúndur til andsvara og í frásögn af þessum borgara- fundi hennar. Ég skrifaði Ólafi G. bréf um málið og nafngreindi þá fréttamennina. Þegar Óli setur okkar mann í útvarpið fær þetta lið að kenna á því. Sælgæti. sígarettur oa vindlar... heilbrigðisráðherra svindlar Reykingamenn eiga eftir að vakna upp við vondan draum að morgni næsta nýársdags ef frum- varp tii tóbaksvarnalaga, sem Guð- mundur Árni Stefánsson heil- brigðisráðherra lagði fram á Al- þingi í vikunni, verður að lögum. Markmið stjórnvalda er að sjálf- sögðu að draga úr reykingum, beinum og óbeinum, og nú skal beita nánast öll- um tiltækum ráðum. Guðmundur reyki hins vegar enn, eins og hann segir frá annars staðar í blaðinu. Alls staðar þar sem opinberir að- ilar ráða ríkjum, í opinberu hús- næði og á samkomum og fundum á vegum hins opinbera, verður bann- að að reykja. Aftur verður reynt að fá veitingahús til að afmarka svæði þar sem má reykja. Reykingamenn verða að fara út á dekk vilji þeir NAFNSPJALD VIKWNNAR Þegarmenn láta búa til fyrirtækisnafnspjöld eru þeir mishugmyndaríkir. Flestir fara hefðbundna leið og veija pappír i spjöldin og hafa þau sem formlegust. Þeirhjá umboðsversluninni Viðey hf. hafa hins veg- ar ákveðið að breyta út frá hefðinni þvi þeirra spjöld eru úr harðplasti og þó það sjáist ekki hér eru þau hin litskrúðugustu. Reyndar minnir nafnspjaldið frá Viðey nokkuð á lyklakippu vegna þess að þeim sem ráða þar ríkjum hefur ekki fundist nægjanlegt að minna á sinn aðalverslunarvarning, mexikanska bjórinn Solo, á spjaldinu sjálfu, heldur hafa þeir hengt litla plasteftirmynd af bjórflöskunni á það. Um Solo er það helst að segja að best er að drekka hann iskaldan með limesneið i eins og venjan er með öllu þekktari frænda hans, Corona. reykja um borð í Herjólfi eða Akra- borginni. Ef uppvíst verður um reykingar í rútum má bílstjórinn búast við sektum. Það sama á við um veitingamann ef reykingamað- ur með rettu í munnvikinu fer yfir landamæri reyksvæðis og þess reyklausa. Munntóbak verður gert útlægt með öllu úr landinu. Þá þykir ástæða til þess í frumvarpinu að banna reykingar í lyftum. Fræðsla um skaðsemi reykinga verður aukin til muna þannig að Þorvarður Örnólfsson, óvinur tóbaks númer eitt á Islandi, fær næga yfirvinnu. Eitt ákvæðið svipt- ir dagskrárstjóra ríkisfjölmiðlanna völdum að nokkru leyti. Þar segir að menntainálaráðuneytið skuli í samráði við heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytið sjá til þess að fram fari reglubundin fræðsla í rík- isfjölmiðlum í því skyni að draga úr tóbaksneyslu. Umfjöllun í fjölmiðl- um um einstakar vörutegundir verður bönnuð. Þá má væntanlega ekki minnast á Bjarna frá Vogi nema taka það fram sérstaklega að ekki sé átt við hollensku vindlana sem kenndir eru við hann. Ýmis skondin ákvæði er að finna í fumvarpinu. Þannig verður bann- að „að flytja inn, framleiða eða selja leikföng og sælgæti sem að lögun líkist sígarettum, vindlum eða reykjarpípum eða ætlað er að minna á tóbak með öðrum hætti“. Brot gegn því ákvæði og fleirum varða sektum en varðhaldi séu sak- ir mildar eða brot ítrekað. Það ákvæði sem andstæðingar reykinga hafa samt mesta trú á er tíu prósenta hækkun tóbaks á ári umfram almennar verðhækkanir til aldamóta sem þýðir að pakkinn af algengum sígarettum mun kosta 418 krónur árið 1999 á núverandi verðlagi. Eina vonarglætan sem staðfastir reykingamenn geta hengt sig i er að finna í fýlgiskjali með frumvarpinu sem ættað er úr fjármálaráðuneyt- inu. Þar er bent á að ýmis ákvæði þess stangist í nokkrum veigamikl- um atriðum á við stefnu ráðuneyt- isins í sölumálum „og verður at- hugasemdum um það komið á framfæri annars staðar“. Kannski eru í uppsiglingu deilur sem gætu tafið frumvarpið eitthvað. O verka, en á köflum í vetur munu leikmennirnir hafa verið að bugast undan æfingarálaginu hjá honum. Hann lét menn miskunnarlaust mæta á skotæfingar klukkan sjö á morgnana þótt aðrar æfingar væru fyrirhugaðar síðar um daginn. Mað- urinn sem forráðamenn körfuknatt- leiksdeildarinnar hafa augastað á sem arftaka Ungverjans heitir Axel NikulAsson og er öllum körfu- knattleiksunnendum að góðu kunn- ur... WNDARLEQ VERÖLD HILMARS ARNAR AfKúbeinum, breiðum vegum og sjálfsvígum Það er hluti af harmsögu ævi minnar að ég starfa af og til í jaðri dægurtónlistarinnar og þarf því off og einatt að lesa erlend rokktímarit til þess að glöggva mig á Zeitgeist- legheitum æskunnar á hverjum tíma. Innantóm viðtöl við krakkakjána væru þolanleg ef ekki kæmi til sú yfirsýn sem ellin hefur veitt mér og ég er óvart orðinn sérfræðingur i að segja fýrir parabólskar kúrvur í frægðarferlum einstaklinga og hljómsveita og það hryggir mig allt- af jafn mikið hvað ég reynist sann- spár. Fyrir nokkrum árum fór að bera á hljómsveitinni Nirvana og söngv- aranum Kurt Cobain og öll um- fjöllun pressunnar æpti OGÆFA í hástöfum, upphleypt og skáletrað á mig: rock’n roll rúsíbaninn var aug- ljóslega lagður af stað í ferð sem gat aðeins endað á einn veg. Eins mikið og ég hata að vera móralskur stóð ég mig að því að emja undan viðtölum við „kúbein- ið“, eða „sjálfseyðingarmagapínu- dverginn“ eins og ég kallaði hann. Drengurinn gat jarðað heilt heims- þing AA-manna í játningum á fyrri neyslu og sjaldan hefúr mönnum tekist að upphefja sig jafn fjálglega á fyrri sjálfsniðurlægingu eins og kú- beinið gerði á síðasta ári þegar hann kom því til skila í gegnum gagnrýnislausa og andarástandandi rokkpressu að heróínneysla væri kúl og afsakanleg ef hún væri liður í sjálfslækningu á iðrakrampa og vörn gegn ágengni sömu rokk- pressu sem hann var að fóðra í við- komandi viðtölum. Kannski er ég orðinn gamall og vitlaus en mér finnst dauðadaður og sjálfseyðing ekkert sneddí og ég reyndi ekki einu sinni að veðja við sjálfan mig um hvaða leið út kú- beinið myndi velja sér. Hún reyndist ófrumleg, ömurleg og smekklaus eins og lífshlaup hans undanfarin ár. Ég hef glott yfir fréttum af sjálf- kæfðum breskum þingmönnum í fullnægingarleit. Fréttum af mann- inum sem negldi þremur fírtomm- um í hausinn á sér. Manninum í Malasíu sem gerði svo margar og örvæntingarfullar sjálfsmorðstil- raunir að löggan neyddist til þess að skjóta hann í þeirri síðustu og mest desperat. Eða manninum sem kyrkti sjálfan sig í rafstýrða bíl- glugganum. Það var allt óvænt, furðulegt og engum til eftirbreytni. Strákpjakkurinn sem samdi lagið „Smells like teen spirit“ skaut af sér hausinn með haglabyssu. Ég vona að æskan haldi áfram að lykta í versta falli af táfýlu og að náfnykur- inn af kúbeininu hverfi með pressu síðustu helgar. © 4 FIMMTUDAGUFt 14. APRÍL 1994 -j

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.