Eintak

Tölublað

Eintak - 05.05.1994, Blaðsíða 23

Eintak - 05.05.1994, Blaðsíða 23
íyrir satt að helstu rímnaskáld þjóðarinnar hafi þjáðst af minnis- leysi. Naglanag Einhverra hluta vegna hefur það aldrei verið gúterað almennilega að menn nærist á nöglum sínum þrátt fyrir að þær innihaldi mörg bæti- efni. Rót þessarar meinsemdar er yfirleitt að finna í taugaveiklun og öðrum sálrænum vandamálum en þeir sem nenna ekki að spá í það geta einnig látið dáleiða sig eða keypt mjög ólystugt naglalakk í apótekum. Ofát Ef manni leiðist lífið er gott að fá sér nammi og gleyma áhyggjunum um stund. Það getur samt orðið að slæmum vana og fylgifiskarnir eru offita og almennt stjórnleysi. Ónefndum ofætum hefur vaxið fiskur um hrygg, eða þannig, á Is- landi á undanförnum árum en fé- lagsmenn skrá gjarnan í byrjun dags hvað þeir ætla að borða þann daginn og hringja og segja annarri ónefndri ofætu frá því. Einnig setja margir sykur og fleira í þeim dúr á bannlista yfir það sent þeir ætla ekki að éta. Dæmi um alvarlegt til- felli af ofáti væri að fara út í búð og kaupa fjóra lítra af ís gegn betri vit- und og fara síðan heim og éta hann bak við luktar dyr og missa með- vitund. Ofætur þurfa ekki að vera feitar frekar en að óvirkir alkohól- istar þurfa að lykti af áfengi. Ofbeldishneigð Fregnir af ofbeldi fara stöðugt vaxandi á vettvangi fjölmiðla. Æ fleiri grípa til þess að tjá tilfmning- ar sínar með þessum hætti en yfir- leitt er því mætt með skilningsleysi. Undiralda ofbeldis er oftast gremja eða reiði og mikil útrás fylgir of- beldisverkum, sérstaklega ef þau eru verulega kvikindisleg og fórn- arlambið á sér einskis ills von. Ofbeldisfíklar sem vilja ekki búa á Hrauninu geta fundið sköpunar- þrá sinni útrás í ýmsum sjálfsvarn- aríþróttum. Offita Einu sinni þótti fínt að vera feit- ur og búttaðar konur þóttu mest sexí. Með aukinni velmegun og neyslu á öllum sviðum, samfara hreyfmgarleysi, er fita ekki lengur inni. Fitubollur eru féþúfa sem æ fleiri misprúttnir sölumenn sækja í og framboðið á megrunarkúrum, duftum, pillum og fitubrennslu- stöðvum vex hraðar en nokkur fitubolla hér á Iandi. Róttækari baráttuaðferð gegn offitu og ofáti er að láta vírbinda saman á sér túl- ann eða fara I skurðaðgerð og láta stytta smá- þramana. Ofneysla áfengis Þegar Egill Skallagrímsson datt í það og skandaliseraði fimm ára þótti aldur hans ekk- ert tiltökumál. Framan af öld- um var litið svo á að drykkju- menn væru bara aumingjar sem bæru sjálfir ábyrgð á sínum gjörðum en með tilkomu AA-samtakanna hér á landi árið 1955 og SÁÁ tutt- ugu árum síðar hafa viðhorfin gagnvart ofneyslu áfengis gjör- breyst. AA-samtökin bjóða upp á fundi fyrir þá sem treysta sér ekki til að hætta á eigin spítur og SÁÁ er með afvatnanir og meðferð fyrir hina sömu. Eins er hægt að verða sér út um lyfið Antabus sem veldur því að menn verða hættulega veikir ef þeir setja dropa af áfengi inn fyr- ir sínar varir. Þá er boðið upp á námskeið fyrir þá sem ekki kunna að drekka en vilja halda neyslunni í hófi. Orkuleysi Besta ráðið við orkuleysi er að drífa sig í líkamsrækt. Þeir sem nenna því ekki geta valið um að fara í orkunudd sem byggir á því að nudda orkustöðvar líkamans eða fengið sér kaffibolla. Kaffihús- um og líkamsræktarstöðvum fjölg- ar stöðugt í Reykjavík og því er engin ástæða til þess að þjást leng- ur af orkuleysi. Ófrjósemi eða of mikil frjósemi Það er annað hvort of eða van í þessum efnum. Getnaðarvarnir eins og pillan, hettan, og smokkur- inn eru algengustu lausnirnar gegn frjósemi. Ef ekki er gripið nógu snemma í taumana er líka hægt að skella sér í fóstur- eyðingu eða ef menn vilja gera eitthvað róttækara að láta kippa sér úr sambandi með tiltölulega einfaldri skurðaðgerð. Skírlífi og sjálfsfróun koma einnig til greina en flestir notast ein- ungis við þær lausnir í hall- æri. Ófrjósemi er erfiðari viðureignar en hún er ört vaxandi vandamál. Þegar getnaðarvörnunum er sleppt er ófrjósemin oft orðin sjálfvirk. Sumir reyna ,* glasafrjóvgun en einungis um þriðjungur þeirra með- ferða gengur upp. þeirra. Krabbameinsfélagið heldur námskeið fyrir þá sem vilja hætta að reykja og hægt er að fá plástur, tyggjó, eða nefúða í lyfjaverslunum til hins sama. Dáleiðslu og nála- stunguaðferðum má einnig beita til að vinna bug á þessu vandamáli. Nýlega voru stofnuð samtökin Smokers Anonymous hér á landi en félagsmenn nýta sér sömu hug- myndfræði og AÁ í þeim tilgangi að reykja ekki: „Taka einn dag í einu.“ Sambúðarvandamál Aukið vinnuálag og skortur á hreinskiptum samræðum eru efst á listanum yfir orsakavalda fyrir sambúðarvandamálum. Málamiðl- anir eru nauðsynlegar í sambúð til Sjónvarpssýki Sjónvarpið leysir allan vanda nú- tímamannsins en verst er að mað- ur getur orðið húkkt á því. Það er alltof öfgafull krafa að benda sjón- varpssjúklingum „einfaldlega“ á að slökkva á tækinu því það væri ekki ósvipað og að benda lofthræddum manni á að losa sig við óttann með fallhlífarstökki. Eini staðurinn sem vitað er um til að flýja sjónvarpið í einhvern tíma er í áfengismeðferð- um hjá SÁÁ. Sjónvarpssjúklingar ættu því að byrja á að fara á fjöl- skyldunámskeið til að kynna sér einkenni alkohólisma og skella sér síðan beint í meðferð. fíkla hér á landi, en flestir eru enn- þá að leita að botninum á vasan- um. Stelsýki Það er viðurkennt sem hobbí að reyna að stela pínulítið þegar þú ert ungur en ef þú ert gömul kona sem vill halda andanum ungum með slíku framferði ert þú stimpl- uð stelsjúklingur. Það er spennandi að stela og margir ánetjast þeirri spennu. Einnig má fá gott masók- ískt kikk út úr því að vera böstaður í minnkapels með hangikjötsbréf í vasanum. Sálfræðingar hjálpa stel- sjúkum en hollt heimilisráð er að vera með göt á vösunum. Dora Takefusa "Ég býst við að lífhræðsl- an stafi afþvíað ég er ekki tilbúin til að deyja." Ómeðvituð þvaglosun Orsök þess að börn pissa undir er oftast að finna í óöryggi sem þau upplifa innan fjölskyldunnar. Ýms- ar breytingar, eins og til dæmis það að flytja, virðast örva þvagfærin en lausnin er ekki fólgin í því að skamma börnin því þetta hátterni er yfirleitt ómeð- vitað. Oftast bregða for- eldrar á það ráð að kaupa gúmmíhlífar á dýnurnar en einnig má skella börnum í dáleiðslu eða til sálfræðings sem getur virkað sem hinn besti þvag- rásarstoppari. Þvagleki er líka alltaf að vera algengari hjá eldra fólki og nú er hægt að fá bleyjur fyrir full- orðna í flestum apótekum. Reykingar Reykingamenn eru sífellt að verða meiri olnbogabörn í þjóðfé- laginu og ganga sumir svo langt að vilja ekki að heilbrigðiskerfið taki þátt í að greiða fyrir sjúkrakostnað I að báðir einstaklingar fái að njóta sín og það kann ekki góðri lukku að stýra að láta ekkert uppi um til- finningar sínar við hinn aðilann. Ef ekki væri fyrir sambúðarvandamál- in hefðu prestar ekkert annað að gera en að tala um Jésú og stétt sál- fræðinga væri í útrýmingarhættu. Sambúðarvandamál eru margvísleg og margflókin og eitt af kikkunum við að asnast út í sambúð með ein- hverjum er einmitt að leysa þau. Konráð Adolphsson í hefímörg ár hreinsað út hús þar sem andar hafa verið á sveimi. Ég >á hæfileika að geta farið út úr líkamanum og farið þannig á staðinn. Þegar Konráð Adolphsson skólastjóri Stjórnunarskólans er spurður að hvort hann þjáist af kvíða segist hann vera að mestu leyti kominn yfir það. „Alltaf þegar maður er að undirbúa eitthvað kemur upp ákveðinn kvíði en hann hvetur mann bara til að standa sig betur,“ segir hann. „Menn losna aldrei alveg við kvíða, að finna aðeins fyrir honum er bara vottur um heilbrigði. Ég hef hinsvegar ekki ótta af því sem bíður mín, það er töluverður munur þar á milli.“ En þú hefur eytt miklum tíma í leit að til- gangi með lífinu. „Já, ég er forseti Sálarransóknarfélags- ins og hef verið áhugamaður um leit að sannleikanum til margra ára. Það er inn- byggt í manninn að vilja vita hvað tekur við á eftir þessu lífi. Það er engin spurning um það í mínum augum að það er framhaldslíf. Við höfum fengið svo margar sannanir fyrir því. Ég hef aldrei óttast dauðann því ég veit að það er bara upphafið að öðru lífi. Um leið að þú veist meira og aflar þér aukinnar þekkingar kemur þú út úr myrkrinu." Hvað um óttann við að eldast? „Mér finnst líka bara spennandi að eldast því það hefur marga kosti. Eftir því sem maður eldist losnar um ýmsa stressvalda sem tengjast því að koma undir sig fótunum í lífinu og möguleikarnir á að hagnýta þekkingu sína og njóta lífsins aukast. Aldur er bara tala en með aldrinum kemur nýr blær yfir lífið sem gefur manni tækifæri til að sinna ýmsum áhugamálum. Það er við- horfið sem skiptir mestu máli og ef manni tekst að halda því jákvæðu er hægt að verða niræður en samt í fullu fjöri." Ég heyrði það að þú hjálpar mönnum sem þurfa að glíma við illa anda. Já, það er eitt af hobbíum mínum að gera það. Ég hef í mörg ár hreinsað út hús þar sem andar hafa verið á sveimi. Ég hef þá hæfileika að geta farið út úr líkamanum og farið þannig á staðinn. Þegar þangað er komið reyni ég að vinna með Ijósinu og hjálpa fólkinu að skilja hvað um er að vera. Það byggist líka á bæninni og öðru slíku. Þetta eru um 700 beiðnir sem Sálarrannsóknarfélagið og ég sjálfur fáum á ári til að hjálpa til við að losa um andsetni. Ég held að ásókn illra anda sé ekkert að aukast — það er frekar að fólk sé orðið næmara fyrir þessu. Ef einstaklingur er andsetinn sjálf- ur hjálpa ég honum að loka orkustöðvunum og bið fyrir honum.“ Eru einhver persónuleg vandamál sem þú ert að glíma við í dag? „Nei, það held ég ekki. Ég reyni bara að halda glaðlegu viðmóti. Það er ekki mikill vandi. Þú segir bara við sjálfan þig: „Þetta verður góður dagur, ég er frískur hress og glaður, og í dag er mitt tækifæri.“ O Skuldafíkn Fáir íslendinga hafa uppgvötað að þeir eru haldnir þessum „sjúk- dómi“ og flestir eru ennþá blúss- andi virkir. Skuldafíkillinn finnur sér tilgang í því að vera ekki fyrr búin að greiða fyrir eitthvað en hann kemur sér í skuldir að nýju. Bankarnir eru meðvirkir í þessu sambandi og stefna að því að hjálpa skuldsjúkum til að lifa í skuldaneyslu ffam að gjaldþroti með því að bjóða upp á ráðgjöf við að halda uppi þessum óskunda. Skuldarar hafa með sér anonymous-sam- tök í Bandaríkjunum til að vinna sig frá þessu vanda- máli. Hvernig líður þér ef þú hugsar um að segja skil- ið við kreditkortið? Tilgangsleysi Allt er hégómi og eftirsókn eftir vindi stendur skrifað í Predikaran- um. Það virðist vera sama hvað sumum gengur vel í lífinu, þeir uppskera einungis tilgangsleysi og vöntun á lífsfyllingu. Nýr BMW kallar óhjákvæmilega á nýjan Benz og þar ffam eftir götum. Þegar einu takmarki er náð hillir í það næsta fyrir marga, og tómleikatil- finningin eykst um leið og mögu- leikunum til að fylla tómið fækkar. Kannski er stærsti misskilningur- inn fólginn í því að halda að ein- hver tilgangur sé með lífinu. Sam- tökum um framreiðslu á tilgangin- um með stóru T- i fjölgar óðum enda hefur eftirspurnin aldrei verið meiri og naflaskoðun verður sífellt vinsælla áhugamál. Dóra Takefusa þáttagerðarmaður finnur helst fyrir stressi og kvíða þegar reikn- ingarnir er orðnir of margir og launaumslagið er of þunnt. „Eina ráðið við þ>ví er að reyna að borga einhverja af reikningunum og semja um afganginn. Eg kannast við að fá höfuðverk vegna vöðvabólgu sem stafar af stressi," segir hún. Hvað með kynlífssýki? „Hún kemur í tímabilum. Annars er ég örugglega mjög eðlileg hvað það varðar.“ Dóra viðurkennir upp á sig kaupæði og segir að sér þyki gaman að kaupa hvað sem er — skrúfur og nagla ef því er að skipta. „Matarsýki þekki ég líka. Mér finnst matur mjög góður. Það koma dagar þegar ég borða mikið en aftur á móti aðrir þegar ég snæði aðeins léttan mat,“ segir Dóra. „Ég finn stundum fyrir lofthræðslu. Þó sæki ég í að líta niður. Eftir að ég eignaðist son minn er ég orðin ansi lífhrædd. Áður fann ég hvorki fyrir flughræðslu né bílhræðslu. Ég býst við að lífhræðslan stafi af því að ég er ekki tilbúin til að deyja. Þó tel ég dauðann ekkert slæman. Ég óttast ekki að eldast en kvíði því þó að vera komin yfir sjötugt." Þegar illa liggur á Dóru leitar hún fremur ráða hjá sjálfri en öðrum. Stundarðu innhverfa íhugun eða eitthvað í þá áttina? „Ég held að allir geri það ómeðvitað þótt við beitum henni mismunandi mikið,“ segir Dóra. Annað slagið verður hún vör við sjónvarps- sýki og horfir þá á hvað sem er. „Mér finnst gott að horfa á sjónvarp þegar ég finn fyrir tómleika. Sjónvarpið matar mann og það er gott að slappa af fyrir framan það og þurfa ekki að hugsa neitt. Það rænir hugsun- unum,“ segir Dóra. „Ég nærist á því að hafa mikið að gera og mikla spennu í kringum mig. Áður fyrr fannst mér mjög spennandi að stökkva upp í flugvél og fara þangað sem leið hennar lá. Ég hafði fáeina aura í vasanum og treysti á að hlutirnir réðust. Mér finnst lífið yfirhöfuð mjög spenn- andi.“ G Spennufíkn Spennufíkn er hin hliðin á eirðarleysi. Spennufíklar brenna seint yfir á nautn sinni og þjóðfélagið gengur beinlínis á því að verða þeim út um ný viðfangs- efni. Gott ráð við spennu er að fylgjast með Evróvisi- on keppninni. Spilafíkn Hætta skal hverjum leik þá hæst stendur eru eink- unarorð sem spilafíklar geta ekki tileinkað sér. Einu sinni spilaði þjóðin bara í einhverju stórhappdrætt- anna en með tilkomu skaf- miða, spilakassa og fleira í þeim dúr eru æ fleiri húkkt á þessu tómstundargamni sem getur endað í gjald- þroti. Spilafíkillinn flýr lífs- baráttuna og eigin tilfinn- ingar og kemst þess í stað í tilfinningaleg tengsl við spilakassa. Um stund finnst fíklinum hann hafa stjórn- ina en að lokum tekur kassinn hann á hælinn. Er- lendis blómstra samtökin Gamblers Anonymous og eitthvað hefur verið haldið af námskeiðum fyrir spila- Stress er líklega algengasti menningar- sjúkdómur nútímans og fylgifiskar þess geta verið margvíslegir. Ef menn óttast afleiðingarnar af því að poppa eina róandi í tíma og ótíma eða fá sér í glas fýrir hádegi eru líkamsrækt og slökun af ýmsu tagi oftast nefnd sem helstu lausn- irnar. Margir kjósa einnig að slaka á í nuddi eða sólbrúnkusamlokum en þessi ráð duga einungis við væg- ari einkennum af stressi. Þeir sem taka farsímann með sér á klósettið þurfa væntanlega að gera eitthvað drastískara í sínum málum og leita til sálfræðings eða geðlæknis. Svefnleysi Svefnpillur eru úrelt ráð við svefnleysi. Kindurnar eru allar löngu stokknar yfir girðinguna og hrossum er haldið í sóttkví. Mogginn er sennilega ódýrasta ráðið við svefnleysi en Stöð 2 veitir honum æ meiri samkeppni. Kosn- ingabaráttan á eftir að vera mjög áberandi á næstunni og lesning kosningaáróðurs á því örugglega eftir að vera haldgott ráð fyrir þá sem glíma við svefnleysi. Sveppasýking Sveppasýking er rosalega „inn“ um þessar mundir. Sveppurinn þrífst í maganum eða smáþörmun- um, en vandamálið er að hann er ósýnilegur. Samt er einn maður í Kópavogi sem getur hjálpað þeirn sem þjást af sveppasýkingu, en fyrst verða menn að skrifa undir yfirlýsingu um að þeir muni ekki lögsækja hann. Syndgun Fæstir taka því alvarlega þótt þeir syndgi öðru hvoru og líta svo á að syndin gefi lífinu lit. Þó eru alltaf einhverjir sem líta svo á að tilgangur lífsins sé að fara eftir lög- máli guðs eins og það er sett fram í Biblíunni. Kristilegir söfnuðir hafa verið í mikilli sókn á undanförnum árum og ólíklegust menn taka upp á því að frelsast fyrir Jesúm Krist. Unglingavandamál Unglingurinn sem eining var fundinn upp með tilkomu borgar- samfélagsins. Vandamálið felst oft- ast í vanda foreldra og skilnings- leysi á þörf ungs fólks til sjálfstæðis og sköpunar sjálfsímyndar. Tilvist foreldranna hefur verið bundin við að segja börnum sínum hvað ekki má og þegar þau nenna ekki að hlusta á „þetta væl“ lengur er voð- inn vís og foreldrarnir misstu til- gang sinn í lífinu ef ekki kæmi til unglingavandamálið. Því meira sem foreldrarnir eru í klessu með sín mál, þeim mun illþyrmilegra verður unglingavandamál viðkom- andi barns. Sálfræðingar bera smyrsl á sárin en ef það dugar ekki til er unglingurinn sendur á stofn- un eins og Unglingaheimili ríkisins eða meðferðarheimilið Tinda á Kjalanesi. Þunglyndi Ég hitti einu sinni tvítugan mann sem var ennþá á bömmer yf- ir að hafa tapað handboltaleik þeg- ar hann var tólf ára. Hann er man- ic-depressive, en það er löngu við- urkennt sem sjúkdómur. Það er eðlilegt að skyn og skúrir fylgist að í lífinu og það væri hálf tilbreyt- ingalaust af maður færi aldrei á nettan bömmer. Sjálfsmynd þess sem þekkir ekki þunglyndi hlýtur að vera brengluð og að einhverju leiti að einkennast af afneitun. Æ færri virðast vera tilbúnir til að kaupa þá hugmynd að vilja alltaf vera í stuði. © FIMMTUDAGUR 5. MAI 1994 23

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.